Fregnir - 01.11.1995, Blaðsíða 12

Fregnir - 01.11.1995, Blaðsíða 12
gætt að fylgiseðlar séu ekki fjarlægðir úr ritum áður en þeim er skilað. Bókasöfnum er í sjálfsvald sett hvort þau taka gjald fyrir millisafnalán 2 Hvert á ad senda beiánir? 2.1. Staðsetning: Reynt skal effir mætti að finna hvar umbeðið rit er til. Það verður best gert með því að fletta upp í Samskrá um erlend tímarit í íslenskum bókasöfnum og stofnunum, í (iegni og/eða DOBIS/LIBIS Einnig í NOSP (Nordisk Samkatalog över Periodica) og í bókaskrám þeirra safna sem mögulegt er að leita í beint um tölvu. Gott er að taka fram á pöntunum í hvaða bókasöfnum öðrum ritið er að finna. Mikilvægt er að veita athygli upplýsingum um forða einstakra bókasafna áður en beiðni er send. 2.2. Lánsleiðir: Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn gegnir hlutverki landsmiðstöðvar fyrir millisafnalán og þangað geta önnur bókasöfn leitað eftir upplýsingum og aðstoð. Sérhvert bókasafn skal þó koma sér upp uppflettiskrám og pöntunareyðublöðum og vera eins sjálfbjarga með millisafnalán og mögulegt er til að spara tíma og auka skilvirkni, því sérhver milliliður tefúr afgreiðslu. 2.3. Gegnir og DOBIS/LIBIS: Efni Þjóðarbókhlöðusafnanna er að finna í (iegni, svo og efni annarra bókasafna með fúllan aðgang (Kennaraháskóli Islands, AJþingi, Stofnun Árna Magnússonar á íslandi, Þjóðminjasafn íslands, Seðlabanki íslands, Stjórnarráðið, Myndlista- og handíðaskóli íslands). Einnig er þar að finna Samskrá um erlend tímarit í íslenskum bókasöfnum og stofnunum, svo og efni valinna íslenskra tímarita. Notendur DOBIS/LIBIS eru: Borgarbókasafn Reykjavíkur, Bókasafn Landspítalans, Skólasafnamiðstöð og þar með flestir grunnskólar Reykjavíkur og Læknisfræðibókasafn Borgarspítala. í DOBIS/LIBIS eru bókfræðilegar upplýsingar um bækur og tímarit safnanna, einnig efni íslenskra tímarita í heilbrigðisfræðum frá 1986. Söfn sem hafa 12 Fregnir 3-4/95

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.