Fregnir - 01.11.1995, Page 22
Kerfisbundin efnisorðaskrá fyrir bókasöfn
Ný útgáfa af Kerfisbundinni efnisordaskrá fyrir bókasöfn mun
koma út á næstunni Höfúndar eru bókasafnsfræðingarnir Margrét
Loftsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir
Við gerð skrárinnar er stuðst við reglur alþjóðlega staðalsins ISO
2788/1986 sem gefinn var út í þýðingu F/okkunar-nefndar árið
1991 sem ÍST 90.
Markmiðið með útgáfúnni er enn sem fýrr að stuðla að samræmi í
notkun efnisorða við lyklun heimilda og greiða þannig fyrir
samvinnu bókasafna og auðvelda notendum heimildaleitir.
Fyrsta útgáfa Kerfisbundinnar efnisorðaskrár kom út sumarið
1992 og hefúr verið í notkun á fjölda bókasafna. Uppbygging
skrárinnar er sú sama og í fyrri útgáfú en hún hefúr verið verulega
aukin og endurbætt m.a. í samvinnu við Borgarbókasafn, Bókasafn
Landspítalans og Skólasafna-miðstöð Reykjavíkur auk bókasafna
framhaldsskólanna.
Aðaldreifmgaraðili skrárinnar verður Þjónustumiðstöð bókasafna,
Laugavegi 163, Reykjavík, s. 561 2130.
Höfúndar
ATVINNUMÁL
Félag bókasafnsfræðinga fær oft fyrirspurnir um
bókasafnsfræðinga í skammtímastörf
Þeir bókasafnsfræðingar í Félagi bókasafnsfræðinga sem áhuga
hafa á að taka að sér skammtímaverkefni fyrir hinar ýmsu tegundir
stofnana eða fyrirtækja er hér með boðið að senda nafn sitt, síma
og útskriftarár og yfirlit yfir starfsreynslu til Félags
bókasafnsfræðinga að Lágmúla 7, 108 Reykjavík. Þar verður
22 Fregnir 3-4/95