Helgarpósturinn - 14.11.1994, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 14.11.1994, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 7 Skoðanakönnun Morgunpóstsins Dalvík Afsögn Guðmundar Áma var rétt ákvörðun 65 prósent telja að hann eigi að gefa kost á sér í komandi kosningum. I skoðanakönnun MORGUN- PÓSTSINS kemur fram að 94,5 pró- sent þeirra sem afstöðu tóku telja ákvörðun Guðmundar Árna Stef- ánssonar um afsögn rétta. í heild- ina sögðu 83,1 prósent ákvörðunina rétta en 4,8 prósent ranga. Einungis 4,85 prósent voru óákveðnir, 4 pró- sent höfðu ekki skoðun og 3,2 pró- sent neituðu að svara. Spurt var: Finnst þér ákvörðun Guðmundar Árna um að segja af sér rétt eða röng? f könnuninni var einnig spurt: Á Guðmundur Árni að gefa kost á sér í kómandi kosningum? Já sögðu 53,85 prósent en nei sögðu 29,3 pró- sent. Óákveðnir voru 7 prósent, 8,9 prósent höfðu ekki skoðun á því og 1 prósent neituðu að svara. Af þeim sem afstöðu tóku voru því 64,8 prósent fylgjandi því að hann færi fram að nýju en 35,2 prósent voru því andvígir. Ef spurningunni um hvort Guð- mundur Árni eigi að gefa kost á sér í komandi kosningum er skipt upp í stuðningsmenn flokkanna kemur í ljós að allir stuðningsmenn Al- þýðuflokksins eru því hlynntir. Hins vegar skiptast stuðningsmenn Kvennalistans í tvo jafhstóra hópa, með og á móti. 62 prósent stuðn- ingsmanna Framsóknar segja já en 24 prósent nei. Hjá Sjálfstæðis- flokknum segja 53,5 prósent já en 27,4 prósent segja nei. 60 prósent stuðningsmanna Alþýðubanda- lagsins telja að hann eigi að gefa kost á sér, 20 prósent vilja það ekki og sama hlutfall er óákveðið. Meðal stuðningsmanna Jóhönnu telja 60 prósent að hann eigi að bjóða sig fram en 30 prósent eru gegn því. Mest andstaða við framboð hans er hins vegar meðal þeirra sem segjast skila auðu, eða 48 prósent, en ein- ungis 24 prósent þeirra töldu að hann ætti að gefa kost á sér. Þeir sem svöruðu ekki spurningunni um flokkana skiptust í tvo nærri jafh stóra hópa, með og á móti. Ekki mældist marktækur munur milli lcynja eða eftir búsetu. Skoðanakönnunin var gerð um helgina og fengust svör frá 600 manna slembiúrtaki úr símaskrá. Svarendur endurspegla þjóðina í öllum megindráttum að teknu til- liti til aldurs, kyns og búsetu. -pj Guðmundur Árni Stefánsson „Úr vöm Afsögnin engin endalok á stjómmálaferlinum „Ég er mjög ánægður með þessar niðurstöður og þær eru í samræmi við það sem ég hef fundið á við- brögðum fólks. Ég held að fólk hafi kunnað að meta það að ég kom hreint fram í málinu allan tímann og lagði öll spilin á borðið. Síðan var það mín ákvörðun að þetta væri farið að hafa skaðleg áhrif á mikil- væg störf mín í ráðuneytinu og sýnt að þessi umræða myndi halda áfram með einum eða öðrum hætti hvað sem öllum efnisatriðum áhrærir. Ég vildi því höggva á þenn- an hnút og held að það hafi verið rétt ákvörðun hjá mér. Ég sé það líka af þessari niðurstöðu að fólk virðist bæði kunna að meta þá ákvörðun og einnig hitt að hún er langt því frá einhver endalok fyrir mig sem stjórnmálamann, heldur þvert á móti tímamót og kaflaskipti og ég held að niðurstaðan í þessari könnun sýni það alveg klárlega.“ Nú erfylgi Alþýðuflokksins í sömu könnun einungis 4,8 prósent. „Þetta er skrýtnar niðurstöður og ég hef enga trú á að hún vísi ein- hvern veg til kosningaúrslita. I fýrsta lagi held ég að Alþýðuflokk- urinn mælist langt undir það sem hann kemur til með að hafa og Sjálfstæðisflokkurinn er náttúrlega óeðlilega hár þarna og langt frá þeim veruleika sem við blasir. Þannig að ég er út af fyrír sig bjart- sýnn á gengi Alþýðuflokksins á þessum kosningavetri. Nú förum við úr vöminni og í sóknina." Telur þú ekki að þín mál tengist lélegu gengi flokksins í könnuninni? „Það er náttúrlega ekki í neinu samræmi við fyrri spurningarnar þar sem 65 prósent telja sjálfgefið að ég haldi áfram að bjóða mig fram í pólitík og ég veit að stór hluti af því fólki mun styðja okkur, mig og Alþýðuflokkinn." Hefði ekki verið rétt að þú segðir af þér fyrr til þess að koma í veg fyrir frekara fylgishrun? „Ég held að þessi ákvörðun mín að fara núna hafi verið hárrétt. Ég vildi láta öll þau mál sem um var að ræða koma fram með skýlausum hætti og klára þann þátt málsins sem laut að almennri upplýsinga- gjöf. í öllu þessu ferli hef ég aldrei haldið neinu leyndu með málin og svarað þeim málefnalega. Þann veg vildi ég fara að enda og það gerði ég-“ Þú hefur ekki íhugað að segja skil- ið viðflokkinn? „Nei, ég hef verið í Alþýðu- flokknum og ætla að vera í hon- um.“ Það hefur ekki verið þrýst á þig að fara í sérfratnboð „Það hafa verið ýmsar hugmynd- ir á lofti og meðal annars af þessum toga en það hefur ekki komið til greina að minni hálfu. Ég er héðan úr rótum Alþýðuflokksins í Hafn- arfirði þar sem við höfúm verið í fylgi á milli 40 og 50 prósent. Hér er flokkurínn og hjarta hans slær hér.“ Samflot með Johönnu hefur ekki komið tilgreina? „Við skulum ekki fabúlera með þetta lengur en það hefur ekki komið til greina.“ -pj ísókn“ Guðmundur Ámi Stefánsson „Ég held að fólk hafi kunnað að meta það að ég kom hreint fram í málinu allan tímann og lagði öll spilin á borðið.“ Davíð Oddsson Nauðsynleg ákvöroun „Niðurstaðan kemur mér ekki á óvart. Málin gátu ekki gengið svona lengur og því var nauð- synlegt að höggva á þennan hnút,“ segir Davíð Oddsson forsætisráðherra um afsögn Guðmundar Árna Stefáns- sonar. „Ég fann að það var orðið nauðsynlegt að þetta gerðbt með þessum hættí. Jafnvel þó ég harmi að til þessa hafí komið þá var þetta rétt mat hjá Guðmundi Árna.“ -HM Finnstþérákvörðun Guð- mundarÁma um að segja af rongf Á GuðmundurÁmi aðgefakostásér í komandi kosningum? Bflstuklur og öh/unar- akstur Mikill gleðskapur var á föstudags- kvöldinu á Dalvík. Bubbi Mortens var með tónleika í Sæluhúsinu og hestamenn funduðu í Þingholti. Um nóttina voru tveir teknir fyrir ölv- unarakstur og Hondabifreið var stolið frá bænum Ytra-Kálfskinni í Árskógshreppi. Ekki er vitað hverjir voru að verki en bíllinn fannst óskemmdur við Hjalteyri undir morguninn. Aðfaranótt sunnudags- ins réðust svo þrír piltar á aðkomu- mann á Audibifreið og skemmdu bílinn talsvert, dælduðu hann og brutu rúður. Það mál er óupplýst. ■ Reykjavík Þjófur hand- tekinn er hannsótti bflinn sinn I gærmorgun komu lögregluþjón- ar í eftirlitsferð auga á tvo menn sem voru að þvælast í kringum bílskúra fjölbýlishúss við Kaplaskjólsveg. Þeg- ar lögreglumenn huggðust athuga málið nánar hlupu mennirnir sem fætur toguðu af vettvangi. í ljós kom að brotist hafði verið inn í tvo bíl- skúra og gerði lögreglan eigendum þeirra viðvart. Á meðan á vettvangs- rannsókn stóð kom annar þjófanna aftur en hann hafði skilið bílinn sinn eítir. Hann var handtekinn á staðn- um og vísaði fljótlega á félaga sinn. Rannsóknarlögreglunni var afhent málið til frekari athugunar. ■ Suðurlandsbraut Bruggverk- smiðju lokað Um tíuleytið á föstudagskvöld réðist lögreglan inn í bruggverk- smiðju við Suðurlandsbraut. Verk- smiðjan var nokkuð fúllkomin og lagt var hald á um 600 lítra af gam- bra og 50 lítra af landa. Eigendur verksmiðjunnar voru ekki á staðn- um þegar lögreglan réðist til inn- göngu og þeir hafa ekki enn verið handteknir. Lögreglan telur þó full- vist hveg'ir voru þarna að verki. ■ Grafarvogur falsaðan með Afgreiðslufólk í versluninni Rima- vali í Grafarvogi veitti athygli undar- legum eitt þúsund króna seðli sem unglingspiltur hugðist greiða fyrír vörur með í vcrsluninni á laugardag. Lögreglan var kvödd á vettvang og kom i ljós að seðiUinn var falsaður. Drengurinn sagðist hafa fúndið seð- ilinn og var sú skýring tekin til greina aflögreglunni. ■ Framsóknarmenn á Reykjanesi ákveða að halda prófkjör ísafjörður Fjórir brtast um fýrsta sætið Á fjölmennu kjördæmisþingi Framsóknarflokksins á Reykja- nesi, sem haldið var í Hlégarði í Mosfellsbæ á sunnudag, var tekin ákvörðun um að efha til opins prófkjörs í kjördæminu. Prófkjör- ið á að halda laugardaginn 10. des- ember og mun verða opið öllum þeim, sem lýsa yfir stuðningi við flokkinn, auk skráðra flokks- manna. Jóhann Einvarðsson þingmaður mun ekki gefa kost á sér, en að sögn Elínar Jóhanns- dóttur formanns kjördæmasam- bands Framsóknarflokksins á Reykjanesi, hafa fjórir aðilar þegar lýst því yfir, að þeir stefni á fyrsta sæti framboðslistans. Þetta eru þau Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjórnar sameinaða sveitar- félagsins á Suðurnesjum, Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, Unnur Stefáns- dóttir, leikskólakennari í Kópa- vogi og Hjáimar Árnason, skóla- meistari Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Framboðsfrestur rennur út 30. nóvember. -æöj Endaði í sjónum með þriggja tíma gamalt bílpróf Sautján ára gamall piltur á ísa- firði fór á miðnætti aðfaranótt sunnudagsins á lögreglustöðina til að ná í ökuskírteini sitt. Þremur tímum seinna hafði lögreglan af- skipti af stráknum þar sem fyrsta ökuferðin endaði í sjónum. Hann hafði farið beint á rúntinn með þremur jafhöldrum sínum á Su- barubifreið foreldra sinna. öku- ferðin endaði í Sundahöfhinni þar sem bíllinn rann í hálku og hafnaði á sjávarbotninum. Fjórmenning- arnir syntu í land ómeiddir en bif- reiðin er mikið skemmd. Subarubifreiðin var síðan tekin upp á sunnudeginum. Pilturinn vildi ekki ræða málið en móðir hans sagði að þetta hefði verið óhapp og mestu skipti að allir voru heilir á húfi. Hún vissi ekki hvort bíllinn væri ónýtur enda skipti það engu máli fyrst krakkarnir sluppu öll ómeidd. Atskákmótið í París Kasparov sló Jóhann út Það þurfti sjálfan heimsmeist- arann, Garry Kasparov, til að slá Jóhann Hjartarson út í gríðar- lega sterku atskákmóti, sem nú er að ljúka í París. Kasparov vann Jó- hann í gær í úrslitamótinu með tveimur vinningum gegn engum. Áður hafði Jóhann náð 3.-6. sætinu í undankeppni, með átta vinninga af ellefu mögulegum, - vann átta skákir en tapaði þrem- ur. Þar sló hann meðal annarra út breska stórmeistarann Nigel Short og ungverska undrabarnið Leko, sem varð yngsti stórmeist- ari skáksög- unnar ekki alls fyrir löngu - að- eins þrettán ára gamall. I úrslita- keppninni sjálfri sló J ó h a n n breska stór- meistarann Adams út í fyrstu umferð, en tap- aði síðan í undanúrslitunum fyrir Kasparov, eins og áður sagði.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.