Helgarpósturinn - 14.11.1994, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN SPORT
27
Hvað er að gerast í NBA?
Vinsældir aukast
á kostnað
Að venju eru það áhorfendur
sem kjósa leikmenn í hinn árlega
Stjörnuleik NBA-deildarinnar.
Þetta fyrirkomulag hefur mjög ver-
ið gagnrýnt á undanförnum árum
þar sem mörgum þykir að leik-
menn hagnist einungis á vinsæld-
um en séu ekki metnir að verðleik-
um. Ekki mun ástandið batna í vet-
ur þar sem NBA-deildin hefur tekið
upp þau nýmæli að leyfa Frökkum
og Spánverjum að taka þátt í val-
inu. Það verður að segjast eins og er
að þessi tilraun deildarinnar er
dæmd til að mistakast enda hafa
Frakkar og Spánverjar augljóslega
mun verri forsendur til að meta
leikmenn heldur en tryggir aðdá-
endur liðanna.
Þessi nýbreytni er enn eitt skref-
ið sem NBA-deildin tekur til að
auka á vinsældir sínar á heimsvísu.
Það er furðulegt hve langt stjórnar-
menn vilja ganga og finnst mörg-
um að gæði körfuboltans hafi þurft
að víkja fýrir gróðasjónarmiðum.
Fyrirtækið sem kostar kosninguna,
Foot Locker, hefur borgað væna
fúlgu í því skyni að auglýsa sig með
þessum hætti.
Annað dæmi um hugsunarlausa
græðgi er sú þráhyggja að vilja sí-
fellt fjölga liðum deildarinnar. Lið
sem fær inngöngu í deildina greiðir
fyrir það hátt í tíu milljarða króna
eins og Vancouver Grizzlies og
Toronto Raptors sem munu hefja
keppni i995-’96. Flestir spekingar
eru sammála um að gæði deildar-
innar fari versnandi vegna offram-
boðs á störfum (það er of margir
leikmenn hafa tækifæri til að kom-
ast að hjá liðum). Fyrir tíu árum
voru aðeins 23 lið í deildinni og þá
blómstraði deildin sem aldrei fýrr,
bæði hvað varðar efnahag og gæði
Gott dæmi um hrörnun gæða er
úrslitakeppnin í fyrra þar sem við
áttust Houston Rockets og New
York Knicks. Allir spekingar eru
sammála um það að hvorugt lið-
anna hefði átt minnstu möguleika
til þess að sigra lið Los Angeles La-
kers og Boston Celtics á miðjum 9.
áratug.
Nú eru á lofti hugmyndir um að
bæta jafnvel enn einu liði í deildina
innan skamms tíma og myndi það
lið verða staðsett í Mexíkó. Þessar
hugmyndir eru nokkuð mótaðar og
spurningin er aðeins hvenær þessu
verður hrint í framkvæmt. Þá verða
liðin orðin 30 talsins en góðum
leikmönnum hefur ekki fjölgað
nógu mikið til að réttlæta þessi
auknu umsvif.
3-stiga veisla
Eins og áhugamenn um NBA
vita þá hefur reglum verið breytt
töluvert fyrir þetta tímabil og ber
þar helst að nefna að þriggja-stiga
línan hefur verið færð nær körf-
unni. Þetta býður auðvitað upp á
það að góðar skyttur fá sín enn bet-
ur notið en áður. Joe Dumars hjá
Detroit Pistons er einn af þeim sem
á líklega eftir að hagnast hvað mest
á þessu og sýndi hann síðastliðinn
þriðjudag í leik gegn Minnesota
hvers hann er megnugur. Hann
skoraði hvorki fleiri né færri en tíu
3-stiga körfur og jafnaði þar með
met Brian Shaw. Það sem vekur
athygli við þetta er að hann tók 18
3-stiga skot en aðeins eitt innan lín-
unnar, það skot mislukkaðist.
Margir aðrir eiga eftir að njóta
þessarar breytingar og kæmi ekki á
óvart að leikmönnum tækist að
gera gott betur. Leikmenn eins og
Reggie Miller (Indiana), Dennis
Scott (Orlando), Mark Price
(Cleveland), Glen Rice (Miami)
og margir aðrir eiga eftir salla skot-
um niður í allan vetur. Þessir menn
áttu ekki í erfiðleikum með að hitta
áður og hlæja líklega að nýju lín-
Mark Price, sem tvisvar hefur unn-.
ið 3-stigakeppni Stjörnuleiksins
og BJ Armstrong sem var með
bestu nýtinguna í leikjum á síðasta
tímabili eiga eftir að skora sinn
slatta úr langskotum í vetur.
Grant Hill hefur verið kallaður næsti Jordan. Hér er hann í leik með Duke-háskólanum sigursæla.
Nýr Jordan?
Sá nýliði sem vakið hefúr mesta
athygli fram að þessu er tvímæla-
laust Grant Hill hjá Detroit. Hann
kemur frá Duke háskólanum og
margir halda að hann verði Jordan
10. áratugarins. í sama leik og félagi
hans, Dumars skoraöi J° 3-stiga
•kortíir t'aiin Hjjí það afcek að hitta
• .j§r öllum tíu -iísl jga skofum sínúm
en klikkaði reyndar í eina 3-stiga
skoti sínú. Hill þykir alhliða leik-
maður og getur spilað vel hvort
sem er í vörn eða sókn. -ÞK-EÞA
Hvemig fer
íMÆmm
Sirfss \
- Islandf
Stefán Hilmarsson,
tónlistarmaður
„Ég get ekki annað séð
en að þessi leikur verði
mjög erfiður og við kom-
um til með að eiga í vök
að verjast, einkum og sér
í lagi með það fyrir aug-
um hvernig Svisslendingar unnu Sví-
ana á dögunum á sama velli. Ofan á
það bætist síðan að Arnór Guðjohn-
sen og Sigurður Jónsson verða
ekki mcð. Ég er þvi mjög smeykur fyrir
okkar hönd og spái 3:0 sigri Sviss.“
Valtýr Bjöm Valtýsson,
íþróttafréttamaður
„Við eigum ekki séns í
Sviss og töpum leiknum.
Þetta lið vann Svíana og
átti ekki í teljandi erfið-
leikum með þá. Við er-
um nokkuð á eftir þess-
ari þjóð, knattspymulega
séð, og erum þar að auki að fara að
spila við þá á útivelli. Ekki bætir síðan
úr skák að Siggi Jóns og Arnór verða
ekki með. Ég spái þrjú til fimm núll
fyrir Sviss. Því miður fyrir vin minn,
Asgeir Elíasson, er ég svartsýnn og
býst við að við förum illa út úr þessu,
þó ég óski þess innilega að við náum
stigi úr þessari viðureign. Hið óvænta
getur alltaf gerst."
Magnús Ver Magnússon,
sterkasti maður
heims
„Tvö núll fyrir ísland.
í leiknum á móti Tyrk-
landi voru strákarnir
ekki að spila sem ein
heild, en ég hef trú á að
þeim takist það í þessum leik. Ef það
tekst, vinna þeir Ieikinn.“
Ágúst Guðmundsson,
kvikmyndaleikstjóri
„Ég hef það einhvern
veginn á tilfinningunni
að leikurinn fari 3:2 fyrir
Sviss. Islenska liðið byrj-
ar illa í leiknum, en Ás-
geir þjálfari les vel yfir
hausamótunum á þeim í leikhlénu og
þeir koma tvíefldir til seinni hálfleiks.
Islendingar skora tvö mörk í seinni
hálfleik en það dugar ekki til þar sem
Svisslendingar skora þrjú.“
Kristín Ástgeirsdóttir,
alþingiskona
„Svisslendingar eru
náttúrlega með geysilega
sterkt lið sem er í hærri
gæðaflokki en Island, og
stóðu sig vel t heims-
meistarakeppninni í
sumar. Hins vegar eru íslendingar
þekktir fyrir að koma á óvart endrum
og sinnum. Ég spái 3:2 fyrir Sviss og
Eyjólfur Sverrisson skorar annað
marka Islendinga.“
Ari Matthíasson,
leikari , . úm
.;j, iLiggur leiðin ekki
bará upp á. viðV Síðast.
töpuðum við 5:0 fyrir
þriðja heims þjóð en í
þessum leik spái ég 4:0
fýrir Sviss.“
Hnefaleikar
Foreman segist
viija í Tyson
Hinn nýbakaði heimsmeistari í
þungavigt í hnefaleikum, George
Foreman, hefur lýst því yfir að
hann gæti vel hugsað sér að verja
heimsmeistaratitilinn gegn Mike
Tyson, en segist ekki ætla að
ákveða sig á næstu tveimur vikum
hvort hann komi til með að berjast
á ný. „Ég væri meira en til í að
keppa við Tyson í Astrodome-höll-
inni,“ sagði hinn 45 ára gamli Fore-
man við fréttamenn á fimmtudag,
fimm dögum eftir að hann sló Mi-
chael Moorer í gólfið í einvígi um
heimsmeistaratitilinn í Las Vegas,
og varð þannig elsti heimsmeistari í
þungavigt í hnefaleikum frá upp-
hafi. Mike Tyson, sem er fyrrver-
andi heimsmeistari í hnefaleikum,
verður hugsanlega látinn laus úr
fangelsi í maí á næsta ári, en hann
fékk sex ára fangelsi fýrir nauðgun
1992. „Ég held að innan næstu
tveggja vikna viti ég nákvæmlega
hvað ég vilji gera, og eftir þann tíma
tek ég endanlega ákvörðun,“ sagði
Foreman ennfremur. ■
George Foreman, elsti heims-
meistari í þungavigt í hnefaleikum
frá upphafi. Segist vilja verja titil-
inn gegn Tyson, en getur ekki
ákveðið sig strax.
Knattspyrna
Frands hætturhjá QPR
Enska úrvalsdeildarfélagið Que-
ens Park Rangers tilkynnti á föstu-
dag að það hefði móttekið uppsögn
ffá framkvæmdastjóranum Gerry
Francis. Á þriðjudag hafði liðið
sagt að uppsögn framkvæmdastjór-
ans yrði ekki tekin til greina.
Uppsögn þjálfarans þýðir að
QPR er fjórða enska úrvalsdeildar-
liðið sem skiptir um þjálfara á þessu
leiktímabili, áður höfðu þeir Mike
Walker hjá Everton, Ron Atkinson
hjá Aston Villa og Ossie Ardiles
hjá Tottenham verið reknir.
Francis átti eftir sjö mánuði af
ráðningarsamningi sínum en brást
reiður við þegar forráðamenn liðs-
ins áttu viðræður við Rodney
Marsh um að taka við einni af
stjórnunarstöðum liðsins. Francis
og Marsh eru allt annað en fornvin-
ir og eins fór í taugarnar á honum
að hann frétti fýrst um viðræðurnar
í fjölmiðlum.
Talsmaður félagsins sagði á
blaðamannafundi að þetta væri
mikið áfall fýrir QPR. „Francis hef-
ur verið viðÍoðandi félagið síðan á
sjöunda áratugnum, bæði sem leik-
maður og þjálfari, og því hefur stórt
skarð verið höggvið í raðirnar,“
sagði talsmaðurinn.
Strax og tilkynnt var um upp-
sögnina fóru sögur af stað sem
sögðu að Francis hefði verið boðið
að taka við liði Tottenham. Enn
hefur ekkert verið gefið út á þær
fréttir.B
Gerry Francis