Helgarpósturinn - 14.11.1994, Blaðsíða 26
26
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994
Innspörk 1 stað innkasta
Spara Irtinn tím
eru mun nættu
Gamla góða innkastið
þarf kannski að víkja
fyrir nútímalegra
innsparki þegar
fram líða stundir.
Fyrr í sumar tilkynnti Alþjóða
knattspyrnusambandið, FIFA, um
hugmynd að nokkrum nýjum regl-
um sem gætu orðið þess valdandi
að auka hraðann í knattspyrnu nú-
tímans og íjölga mörkum. Ein þess-
ara hugmynda fólst í því að leyfa
mönnum að staðsetja boltann við
hliðarlínuna og sparka inn ef hann
hefur farið út af í stað þess, eins og
við þekkjum best, að henda honum
inn á.
Og FIFA sat ekki við orðin tóm. I
2. deild belgísku knattspyrnunnar
fer nú mörkum fjölgandi og
frammámenn segja hina nýju reglu
vera þess valdandi. FIFA fékk Belg-
ana í lið með sér til að prófa þessa
nýju reglu og þar í landi eru menn
hæstánægðir með niðurstöðuna
fram að þessu, segja reyndar að lítill
sem enginn tími sparist við þessa
breytingu en spörkin séu mun
hættulegri en innköstin og af því
leiði meiri hættu fyrir varnirnar og
markmennina og að endingu: fleiri
mörk.
Skiptar skoðanir
En í þessu eins og öllu öðru eru
skiptar skoðanir um ágæti breyt-
inganna. Sumir segja að með þessu
sé verið að hrófla of mikið við
íþrótt sem þegar sé sú vinsælasta í
heimi. Þeir benda á að hún hafi
orðið það á eigin verðleikum og
það nálgist helgispjöll að gera svo
miklar breytingar á reglum hennar.
Aðrir segja að engar reglur séu
hafnar yfir gagnrýni og allt það sem
stuðlar að meiri skemmtun fyrir
áhorfendur sé af hinu góða.
Þegar FIFA kynnti tilraunina á
sínum tíma var sagt að tilgangurinn
væri að setja aukinn hraða í leikinn
og neyða lið til að hugsa um aukinn
sóknarleik í stað eilífrar varnar-
takta. Enn sem komið er bendir
flest til þess að þetta með sóknina
skili tilætluðum árangri en það
sama sé vart hægt að segja um til-
ætlaðan tímasparnað, menn noti
eftir sem áður tækifærið til að kasta
aðeins mæðinni og blása úr nös.
Erfiðara fyrir
markmennina
Pierre Drouguet, markvörður
Beerschot, sem leikur í deildinni,
segir þetta þýða umtalsverðar
breytingar fyrir hans starfsstétt.
„Áður fyrr vissi maður að í fæstum
tilvikum var hætta af sjálfúm inn-
köstunum,“ segir hann. „Nú er
hins vegar komin bein ógnun af
innspörkunum og áður en langt
um líður mun fyrsta markið verða
skorað beint ffá hliðarlínunni."
Drouget segir að fyrsti leikurinn
hafi verið afar erfiður og fæstir hafi
áttað sig til fullnustu. „Þetta var af-
ar furðulegt. Liðin voru að reyna að
spila þessa hefðbundnu rangstöðu-
taktík en í innköstum eða spörkum
er auðvitað engin rangstaða þannig
að allt fór í uppnám inni á vellin-
um. Það er fyrst nú sem hlutirnir
eru að komast á eðlilegt plan en
samt er miklu meiri hætta fyrir
hendi nú en áður.“
Gallarnir
Enn sem komið er hafa fá vanda-
mál komið fram og gallarnir eru
teljandi á fingrum annarrar handar.
Einn galli er þó augljós; línuverð-
irnir eiga dálítið erfitt með að
ákvarða rangstöðuna ef þeir eru
staðsettir hinum megin á vellinum.
Innspark er framkvæmt nákvæm-
lega eins og aukaspyrna og í fjar-
lægð er erfitt að greina hvar sparkið
er framkvæmt. Rangstöðureglurn-
ar fyrir innspark annars vegar og
aukaspyrnu hins vegar eru gjörólík-
ar og þetta hefur valdið nokkrum
vandræðum.
Um áramótin er von á Sepp
Blatter, aðalritara FIFA, til Belgíu
og mun hann fara yfir tilraunina
með heimamönnum og í framhaldi
af því verður tekin ákvörðun um
hvort af breytingunni verður yfir
alla línuna. Þangað til sú ákvörðun
verður tekin verða gömlu innköstin
að duga, eins og þau hafa raunar
gert í yfir hundrað ár. -Bih
Evrópukeppni landsliða
TJ r* «0 C •= > « 2 t «0 'O ‘K
'O £ ra >
CQ LLi CO
Erfítt gegn Sviss
Það er óhætt að segja að leikur
Islendinga gegn Sviss á miðvikudag
verði erfiður. Margt kemur til,
svissneska landsliðið er feikilega
sterkt um þessar mundir og hefur
líklega aldrei verið sterkara, og
mjög erfið staða íslenska liðsins í
riðlinum bætir ekki úr skák.
Þetta er í raun mjög erfið staða
fyrir íslenska liðið. Það er alveg
nauðsynlegt fyrir okkur að ná stigi
út úr þessum leik enda erum við á
botni riðilsins og höfum enn ekki
hlotið stig. Samt sem áður er erfitt
að ætlast til þess að liðið geri ein-
hverjar rósir þar sem andstæðing-
urinn er þess eðlis að ekkert lið í
heiminum getur gert til þess kröfu
að bera sigur úr býtum gegn.
Liðið
Ásgeir Elíasson, sem sætti mik-
illi gagnrýni eftir hinn hrikalega
skell gegn Tyrkjum, þarf að ná upp
mikilli einbeitingu hjá drengjunum
fyrir leikinn. Þetta er án efa ekki
auðvelt, margir drengjanna hafa
ekki leikið neitt að ráði í margar
vikur og koma beint í flasið á at-
vinnumönnum sem leika í deildum
sem standa sem hæst.
Vai hans kemur ekki svo mjög á
óvart. Samt sem áður vekur athygli
að Ásgeir telur ekki þörf fyrir Þórð
Guðjónsson, sem leikur í þýsku
úrvalsdeildinni, í A-liðið, og setur
hann þess í stað í 21 árs landsliðið.
Þá velur Ásgeir þrjá markverði í
hópinn vegna óvissunnar með
Birki Kristinsson, sem meiddist í
leiknum við Tyrki.
Hópurinn er annars þannig skip-
aður:
Markverðir:
Birkir Kristinsson Fram,
Kristján Finnbogason KR og
Friðrik Friðriksson ÍA.
Aðrir leikmenn:
Izudin Daði Dervic KR,
Rúnar Kristinsson KR,
Guðni Bergsson Val,
Sigursteinn Gíslason ÍA,
Haraldur Ingólfsson ÍA,
Ólafur Adolfsson ÍA,
Arnar Grétarsson UBK,
Kristófer Sigurgeirsson UBK,
Kristján Jónsson Bodö Glimt,
Hlynur Stefánsson Örebro,
Þorvaldur Örlygsson Stoke,
Arnar Gunnlaugsson Nurnberg,
Bjarki Gunnlaugsson Nurnberg,
Eyjólfur Sverrisson Besiktas.
ndartaki
Þórður Guðjónsson, sem leikur
með þýska úrvalsdeildarfélaginu
Bochum, er ekki reiðubúinn að
Mka með A-4MK fstands aA mati
tanitaillf|fw Þsnli
if 21 ArsRAW.
Hér er Þórður f leik með Bochum
en þar er hann markahæstur leik-
manna liðsins.
21 árs landsliðið
Það er oft hart barist í NBA-deildinni enda heiður og gríðarlegar fjárfúlgur í boði. Félagarnir á myndinni vita
ailt um það, Patrick Ewing hefur lengi verið einn besti leikmaður deildarinnar en Hakeem Olajuwon er rís-
andi stjarna í þessum harða heimi. Þegar svona menn mætast vilja þeir venjulega sýna hvor öðrum í fulla
heimana og gera venjulega allt (innan skynsamlegra markal) til að gera þá ósk að veruleika.
Á þessu ári hefur fslenska landsliðið leiklð nfu landsleiki. Fimm þeirra
hafa unnist en fjórir tapast. Stærsti sigur okkar á árinu var 4:0 sigur á
Eistum en 5:0 tapið gegn Tyrkjum stendur upp úr á hinum endanum.
Liðið gegn Svtss
Ásgeir Elíasson og Gústaf
Björnsson landsliðsþjálfarari í
knattspyrnu hafa valið hópinn til
að mæta svissneskum jafnöldrum
sínum á þriðjudagskvöld. Þórður
Guðjónsson kemur inn í hópinn
en sóknarmaðurinn Helgi Sig-
urðsson hjá Stuttgart gefur ekki
kost á sér þar sem leikurinn skarast
á við verkefni hans með því liði.
Hópurinn er annars þannig skip-
aður.
Markverðir: Eggert Sigmunds-
son KA og Atli Knútsson KR.
Aðrir leikmenn: Pétur Marteins-
son Fram, Sturlaugur Haraldsson
ÍA, Auðunn Helgason FH, Hákon
Sverrisson UBK, Lárus Orri Sig-
urðsson Þór, Pálmi Haraldsson ÍÁ,
Eiður Smári Guðjohnsen PSV,
Ottó Karl Ottósson Stjörnunni,
Kristinn Hafliðason Fram, Guð-
mundur Páll Gíslason Þrótti R.,
Tryggvi Guðmundsson KR, Kári
Steinn Reynisson ÍA, Guðmundur
Benediktsson Þór og Þórður Guð-
jónsson Bochum.B
Helgi Sigurðsson gefur
ekki kost á sér í lands-
liðið vegna anna með
þýska liðinu Stuttgart.
Hér má sjá hvernig íslenska landsliðinu í fótbolta hefur
reitt af í viðureignum við önnur landslið á þessu ári.
Alls skoruð íslendingar níu mörk, en fengu 12 á sig.
3
2
1
0