Helgarpósturinn - 14.11.1994, Page 10

Helgarpósturinn - 14.11.1994, Page 10
10 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1994 Grafgotur Einkaneysla 300 milljarðar kr. Einkaneyslan skýrir að mestu aukn- ingu í þjóðarútgjöldum. Hún eykst um 2 prósent bæði á þessu ári og á árinu 1995 eftir að hafa dregist saman um 9 prósent á tímabilinu frá 1991 til 1993. Samneysla 100 milljarðar kr/ Samneysla eykst í ár um 1,1 pró- sent og reiknað er með að hún auk- ist um 1,6 prósent á næsta ári. Þetta er minni aukning en var á síð- asta ári þegar samneysla jókst um 2 prósent. Mestu munar um aukna samneyslu sveitarfélaganna. Fjárfesting 80 milljarðar kr.- Fjárfesting dróst saman um ríflega 20 prósent á árunum 1991 til 1993. Á þessu ári er hins vegar búist við að hún haldist óbreytt og aukist um 2,2 prósent á næsta ári. Athafnasvæði Skógræktarfélagsins í Foss- vogi, sem það hefur haft leigulaust til afnota í tæpa fimm áratugi. Samkeppnisráð telur þá skipan mála ekki skerða samkeppnisaðstöðu sjálfstæðra garðplönutframleiðenda svo neinu nemi. Félag garðplöntu- framleiðenda vænir Skógræktarfélag Reykjavíkur um skattsvik Tefja Skógræktarfélagið svindla á virðisaukaskatti Fyrir réttum mánuði sendi stjórn Félags garðplöntuframleiðenda Skattstjóranum í Reykjavík bréf þar sem gerð er athugasemd við að Skógræktarfélag Reykjavíkur hafi ekki greitt skatta og skyldur af starf- semi sinni í samræmi við ársreikn- ing félagsins. Bent er á að Skógræktarfélagið hafi greitt rúmar 2,8 milljónir króna í virðisaukaskatt árið 1992 sem sé allt of lágt ef miðað er við vörusölu félagsins samkvæmt árs- reikningi sem nam nálægt 59 millj- ónum króna. „Þá verður heldur ekki annað séð en hluti af liðnum „framlög til skógræktar“ sé sala á virðisaukaskattskyldri vöru ... til Reykjavíkurborgar vegna sumar- vinnu unglinga," eins og segir orð- rétt í bréfinu. Þar er átt við sölu á miklum fjölda skógarplantna til borgarinnar. Jafnframt er gerð athugasemd við greiðslu tryggingagjalds í stað- greiðslu sama ár. Skógræktarfélagið greiddi rúmar 2,1 milljón en garð- plöntuframleiðendur telja þá tölu ekki geta staðist miðað við upplýs- ingar í ársreikningnum um launa- greiðslur félagsins. Þetta bréf er ritað í framhaldi af greinargerð Samkeppnisráðs frá því í sumar, en Félag garðplöntufram- leiðenda bar fram kvörtun við ráð- ið í fyrra. í þeirri kvörtun lét félagið meðal annars í ljósi efasemdir um skil Skógræktarfélagsins á virðis- aukaskatti. Samkeppnisráð kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu í úrskurði sínum, sem birtist í júní síðastliðnum, að skógræktarfélögin Vilhjálmur Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, vísar öllum ásökun- um um skattsvik á bug. í landinu hafi staðið full skil á virð- isaukaskatti af sölu og þjónustu. Garðplöntuframleiðendur segja í bréfi sínu til skattstjóra Reykjavíkur að svo virðist sem samkeppnisyfir- völd hafi ekki kannað þetta atriði sjálfstætt heldur eingöngu byggt þessa niðurstöðu á skýringum Skógræktarfélags Reykjavíkur. Því hafi þeir nú brugðið á það ráð að snúa sér beint til skattstjóra og vænti þess, að hann gangi eftir við- hlítandi skýringum. Ásökunum vísað á bug Vilhjáimur Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfé- lags Reykjavíkur, fullyrðir að ásak- anir Félags garðplöntuframleið- enda eigi ekki við nokkur rök að styðjast. „Menn verða að gera sér grein fýrir því, að það er munur á innskatti og útskatti. Það er ekki hægt að horfa bara á tekjur félags- ins og reikna svo útfrá því, við borgum virðisaukaskatt af að- keyptu efni og þjónustu, sem kem- ur á móti okkar útskatti. Skattstjóri og skattayfirvöld hafa fengið alla okkar reikninga og skýrslur, yfirfar- ið af okkar endurskoðendum, og hafa ekki gert neinar athugasemdir við það. Þannig að ég vísa öllum slíkum ásökunum á bug, þær eru alveg úr lausu lofti gripnar.“ Vernharður Gunnarsson garð- yrkjumaður og meðlimur í Félagi garðplöntuframleiðendá segir þess- ar skýringar hins vegar ekki full- nægjandi. „Lögfræðingur okkar fór fram á nánari skýringar á þessum útreikningum við endurskoðendur Skógræktarinnar en fékk ekki. Við höfum því aðeins ársreikningana til að styðjast við og þess vegna ekki aðstöðu til að reikna nákvæmlega út úr þessu. Hins vegar hefur eng- inn, sem skoðað hefur þetta dæmi, fundið neinn botn í þessari niður- stöðu. Þess vegna fórum við þá leið, að leita til skattstjóra. Miðað við ársreikninga Skógræktarfélagsins virðist hreint útilokað að þessi tala fái staðist, hvað sem öllum inn- skatti líður.“ Vernharður kvaðst ekki vita hvað gert hefði verið í málinu af hálfu skattstjóraembætt- isins, og Gestur Steinþórsson, skattstjóri Reykjavíkur sagðist í símtali við blaðamann MORGUN- PÓSTSINS ekkert kannast við um- leitan garðplöntuframleiðenda. Langvinnar deilur Félag garðplöntuframleiðenda hefur átt í langvinnum deilum við Skógræktarfélagið. Þær snúast fyrst og fremst um tengsl Skógræktarfé- lags Reykjavíkur og Reykjavíkur- borgar. Garðplöntuframleiðendur hafa lengi amast við því sem þeir kalla einokunaraðstöðu skógrækt- arfélaganna og þann aðstöðumun sem þeir telja sig hafa þurft að búa við vegna framleiðslu og sölu á garð- og skógarplöntum. Til þess að reyna að bæta samkeppnisstöðu. sína báru garðplöntuframleiðendur fram fyrrnefnda kvörtun við Sam- keppnisstofnun og Samkeppnisráð en deilurnar hafa staðið í áratugi. I úrskurði sínum féllst sam- keppnisráð á sum af kvörtunarefn- um garðplöntuframleiðenda en önnur ekki. Til dæmis taldi ráðið ekki óréttmætt að Reykjavíkurborg sæi Skógræktarfélaginu fyrir ókeypis lóð undir starfsemi sína, þar sem um starfsemi í þágu al- mannaheilla væri að ræða. Vern- harður Gunnarsson segir Skóg- ræktarfélagið hins vegar hafa þróast upp í fyrirtæki sem fyrst og ffemst ræktar og selur plöntur á almenn- um markaði í beinni samkeppni við einkaaðila. Telur hann því ekki hægt að réttlæta öll þau fríðindi, sem Skógræktarfélagið býr við, undir núverandi kringumstæðum. „Á sama tíma hafa aðrar gróðrar- stöðvar verið í landsvelti, og hálf- partinn úthýst af borgaryfirvöld- um. Við teljum þetta því mun veigameira atriði en Samkeppnis- ráð vill vera láta.“ Garðplöntuframleiðendur telja einnig óeðlilegt að svo stór kaup- andi sem borgin er standi ekki í meira mæli að útboðum á þessu sviði. Samkeppnisráð tekur undir þetta sjónarmið í úrskurði sínum og mælist til þess, að Reykjavíkur- borg efni í auknum mæli til útboða vegna kaupa borgarinnar á trjá- plöntum. Félag garðplöntuframleiðenda gerði einnig athugasemd við garð- plöntuframleiðslu Skógræktarinn- ar. I þeirri athugasemd kemur fram, að tap hafi verið á þeirri framleiðslu Skógræktarinnar, en það hafi verið niðurgreitt með hagnaði af skógarplöntufram- leiðslu. Samkeppnisstofnun kemst að þeirri niðurstöðu að þetta sé ekki í samræmi við samkeppnis- reglur. I ákvörðunarorðum sínum mælir Samkeppnisstofnun því fyrir um „fjárhagslegan aðskilnað þeirr- ar starfsemi Skógræktarfélags Reykjavíkur sem er í samkeppni við einkareknar gróðrarstöðvar frá annarri starfsemi Skógræktarfé- lagsins.“ Vilhjálmur Sigtryggsson sagði engan halla hafa verið á garð- plöntuframleiðslunni, en að Skóg- ræktarfélagið muni að sjálfsögðu verða við þessum tilmælum Sam- keppnisráðs. Því yrði sá hluti rekst- ursins aðskilinn öðrum rekstri fé- lagsins frá og með næstu áramót- um. -SG/ÆÖJ Mer er spurn Vigfús Þór Arnason, sóknarprestur spyr: „Ég vil spyrja hvort ekki sé hægt að ná sam- komulagi við kaupmenn að jólaundirbún- ingur hefjist ekki fyrr en fyrsta sunnudag í aðventu sem alltaf er um mánaðamótin. Þetta er svo mikil útþynning á efninu ef þetta varir allan nóvembermánuð líka. Ég vildi að við gætum stillt saman strengi okkar og und- irbúningurinn hæfist á fyrsta sunnudegi í að- ventu. Aðventan er hugsuð sem undirbún- ingur fyrir jólin og til að skapa rétta stemmn- ingu. Það væri því skemmtUegt ef hægt væri að bíða með vörur og annað sem tengist jól- unum fram að þeim tíma.“ „Þetta er það mikill verslunar- tími fram að jólum að það er nátt- úrlega nauðsynlegt að vinna þetta tímanlega. Ég held að það sé of seint að menn byrji ekki að sinna neitt þessari jólaverslun fyrr en fyrsta sunnudag í aðventu sem er 27. nóvember. Ég held að það sé fyrir hendi þegjandi samkomulag meðal kaupmanna um að byrja ekki að auglýsa eða vekja athygli á jólum fyrr en helgina fýrir aðventu sem nú er 19.-20. nóvember. Þarna skeikar viku. Ég tel að það hafi náðst veruleg samstaða hjá okkur. Fyrir 2-3 árum síðan voru jólaaug- lýsingar glymjandi allt frá því í byrjun nóvember. Biskup gekk í þetta mál í fyrra og við áttum ágætis viðræður við hann. Við ætl- um okkur að stilla saman strengi og mér finnst verulegur árangur hafa náðst með því að bíða nú þar til helgina fyrir aðventu. Ég held hins vegar að ef allir biðu til að- ventunnar yrði auglýsingaflóðið svo yfirgengilegt að það væri ekki af hinu góða.“ Bjarni Finnsson, formaður Kaup- mannasamtakanna. „Við ætlum okkur að stilla saman strengi og mér finnst verulegur árangur hafa náðst með því að bíða nú þar til helgina fyrir aðventu." Verðstríð í framköllun Myndbrot, nýstofnað fýrirtæki í filmuframköllun, býður ríflega helmingi lægra verð fýrir framköll- un á filmum en tíðkast hefúr áður hér á landi. Hjá fýrirtækinu kostar 599 krónur að framkalla 24 eða 36 mynda filmur, óháð því hve marg- ar myndir heppnast. Filmurnar eru sendar í vinnslu til Englands. Að auki er heimsending innifalin i verðinu. 1 kjölfarið hefur Bónus lækkað verð á framköllun úr 963 krónum í 589 krónur og eru því ódýrastir á markaðnum. Bónus býður einnig betur að því leyti að framköllun hjá þeim tekur yfirleitt tvo daga en viku hjá Myndbroti. Til samanburðar kostar fram- köllun á 36 mynda filmu hjá Hans Petersen 1746 krónur. Að sögn Þórðar Skúlasonar, markaðssjóra hjá Hans Petersen, stendur ekki til að taka þátt í verðstríðinu til að byrja með þar sem litið er svo á að þjónusta þeirra sé allt önnur en hjá hinum fýrirtækjunum. Hjá þeim eru mun fleiri útfærslur í boði svo sem ýmsar stærðir af myndum, styttri biðtími og fleira. Hans Peter- sen hefur til þessa haft stærstu markaðshlutdeildina en um 35 fyr- irtæki bjóða framköllunarþjónustu hér á landi. -HM

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.