Helgarpósturinn - 08.12.1994, Side 2

Helgarpósturinn - 08.12.1994, Side 2
2 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Svakalegur mórall er þetta þarna hjá sýslumanninum á Akranesi. i Já, ekki vildi ég lenda í jólaglögginu á þessum vinnustað. I Jóhanna í ból Edwalds ■ Ekki Kœra Jelena heldur Oleanna gær voru Jöhanna Sigurðardótt- ir, Ólína Þorvarðar- dóttir og fleira fólk úr Þjóðvakanum að máta auglýsinga- spjöld flokksins í skrifstofúhús- næði í Hafnarstræti en líklegt er talið að þar muni verða opnuð áróður- skrifsstofa á næstu dögum. Húsnæðið sem hér um ræðir hýsti Fjárfestinga- félagið á meðan agö það var og hét, og Aiu Edwald, að- stoðarmann dómsmálaráðherra, sem ekki reið feitum hesti ffá próf- kjöri sjálfstæðismanna í Reykja- vík 29. október síðastlið- inn. Allt er þegar þrennt er stendur einhvers staðar en ljóst verður að teljast af húsnæði- svalinu að heilög Jó- hanna er ekkert að hengja sig í slíka hjátrú... Litla sviðið og Smíðaverkstæðið hafa að undaförnu boðið upp á margar af athyglisverðari sýningum Þjóðleikhússins. Sýningum er nú að ljúka á Sönnum sögum af sálarlífi systra og Dóttur Lúsifers og hafnar æfingar á nýjum verkum sem fara á fjalirnar í cndaðan janúar. Olcanna, eftir bandaríska leikritahöfundinn David Mamet, verður sýnt á litla sviðinu en það er tvíleikur með Jó- HANNI SlGURÐARSYNI Og ELFU ÓSK ÓL- afsdóttur í leikstjórn Þórhalls Sig- urðssonar. Verkið er nýtt og verið er að sýna það við metaðsókn víða um heim. Þá hljómar stykkið, sem verður á fjölum verkstæðisins seinni part vetrar spennandi, en það er gaman- leikurinn Taktu lagið Lóa og er eftir Bretann Jim Cartwright, þann sama og samdi Strætið, sem naut mikilla vinsælda fýrir nokkrum árum. Krist- BJÖRG K)ELD Og ÓLAFÍA HrÖNN JÓNS- dóttir fara með aðalhlutverkin og verður fróðlegt að sjá hvernig Ólafiu tekst upp þvi hún mun syngja fullum hálsi og herma eftir 10 til 15 frægum Fyrir hálfum mánuði felldi dómsmálaráðuneytið niður þrjár áminningar, sem Sigurður Gizurarson, sýslumaður á Akranesi, veitti fulltrúa sínum, Kristrúnu Kristinsdóttur. Nú hefur ríkissaksóknari einnig vísað frá kæru hans á hendur Kristrúnu vegna meintra brota í starfi. Enn hefur þó ekkert verið hróflað við Sigurði og er þess nú beðið að dómsmálaráðherra snúi aftur til landsins frá Brussel. „Getur veríð hættulegt að hafá slíkan mann í embætti“ Kristrún Kristinsdóttir „Hlýtur að vera umhugsunarefni, þegar maður með opinbert ákæruvald verður uppvís að því að bera fólk röngum sökum.“ ...fær Sigmar B. Hauksson fyrir að taka afhroði i prófkjöri fram- sóknarmanna á Vestfjörðum af karlmennsku í stað þess að segj- ast vera að hugsa sinn gang varðandi stuðning við Þjóðvaka eins og aðrir prófkjörsfallistar. ...fær Guðmundur Árni Stefáns- son fyrir yfirlýsingar sínar um að hægt væri að Ijúka sjúkraliðadeil- unni á nokkrum dögum þar sem Ijóst væri að á endanum yrði gengið að kröfum sjúkraliða. Skrítið að hann hafi ekki haft þetta í huga þegar meinatæknar voru í sjö vikur í verkfalli í heil- brigðisráðherratíð hans í vor. Ríkissaksóknari hefur vísað frá kæru Sigurðar Gizurarsonar sýslumanns á hendur fulltrúa hans, Kristrúnar Kristinsdóttur. Sig- urður kærði Kristrúnu til rann- sóknarlögreglunnar hinn 6. októb- er síðastliðinn. í kærunni hélt Sig- urður því fram að Kristrún hefði gerst brotleg við hegningarlög með því að reikna sjálfri sér og öðrum yfirvinnu umfram viðveru sam- kvæmt stimpilkortum. Rannsókn- arlögreglan sendi kæruna áfram til ríkissaksóknara, sem óskaði álits dómsmálaráðuneytisins. Ráðu- Sigurður Gizurarson Kæra hans staðlausir stafir, að mati dóms- málaráðuneytisins, sem fyrir hálf- um mánuði ógilti þrjár áminning- ar hans á sömu forsendum. neytið komst að þeirri niðurstöðu, að það hlyti að teljast „mjög vafa- samt að byggja kæru á þeim for- senduni sem sýslumaður ger(i) í bréfi sínu til rannsóknarlögreglu- stjóra ríkisins,“ eins og segir í nið- urlagi umsagnarinnar. I hréfi sgm ríkissaksóknari sendi rannsóknarlögreglunni hinn 1. des- ember segir því orðrétt: „Að feng- inni þessari niðurstöðu þykir eftir atvikum ekki vera ástæða til þess að mæla fyrir um frekari rannsókn í kærumáli þessu...“ Enginn grundvöllur fyrir kærunni Sigurður byggir kæru sína á vinnuskýrslum Kristrúnar fyrir tímabilið frá 10. janúar til 10. sept- ember á þessu ári. Öll yfirvinna Kristrúnar á þessu tímabili var staðfest af Sigurði sjálfum og kem- ur kæra hans því nokkuð spánskt íyrir sjónir. Þar við bætist að engar reglur eru til hjá sýslumannsemb- ættinu varðandi vinnutíma og út- reikning á yfirvinnu. Það er því erf- itt að sjá hvaða reglur Kristrún á að hafa brotið. „Þetta gat ekki farið á neinn annan veg“ sagði Kristrún í samtali við MORGUNPÓSTINN í gær. „Meira að segja ríkissaksókn- ari getur ekki ákært á engum grunni og í þessu tilfelli var enginn grundvöllur fyrir kærunni. Ég er ekki sek um eitt eða neitt og þó að sýslumaður hafi leitað bæði vel og lengi, þá fann hann ekkert.“ En þótt Kristrún hafi verið hreinsuð af þessum og öðrum ávirðingum sýslumanns er hún að vonum ósátt við starfsaðferðir yfir- manns síns. „Það hlýtur að vera umhugsunarefni þegar maður, sem fer með opinbert ákæruvald, verð- ur uppvís að því að bera fólk röng- um sökum. Ég held að það geti ver- ið beinlínis hættulegt að hafa slíkan mann í embætti. A hverju má al- menningur eiga von frá þannig embættismanni?" MORGUN- PÓSTURINN reyndi ítrekað að ná sambandi við Sigurð og bað fyrir skilaboð til hans um að hafa sam- band við blaðið, en árangurslaust. Framtíð sýslumanns rædd á mánudag Þetta er aðeins eitt af mörgum undarlegum málum sem tengjast Sigurði og embættisfærslu hans. Snentma á þessu ári birti Ríkisend- urskoðun skýrslu um sýslumanns- embættið á Akranesi. Komu þar fram fjölntargar athugasemdir og verkaskipting innan embættisins var harðlega gagnrýnd. I september þótti yfirmönnum Sigurðar í dómsmálaráðuneytinu sent íjar- vistir hans frá embættinu væru orðnar heldur rniklar. Var Sigurði skipað að mæta betur í vinnuna og taka upp notkun stimpilkorts. Þetta fór rnjög fyrir brjóstið á Sigurði, sem talaði urn pólitískar ofsóknir á hendur sér. Þegar Kristrún fór síð- an skriflega fram á sýslumannslaun fyrir þann tíma, sem hún hafði sinnt staðgengilsstörfum, virtist honum nóg boðið. Hann byrjaði á því að veita Kristrúnu þrjár áminn- ingar fyrir brot í starfi. Dómsmála- ráðuneytið komst að þeirri niður- stöðu, að Sigurði hafi ekki verið stætt á að veita þessar áminningar og dæmdi þær allar ómerkar fýrir tveimur vikum. Og nú hefur kæru Sigurðar verið vísað frá sem staðl- ausum stöfum. Þorsteinn Geirsson, ráðuneyt- isstjóri í dómsmálaráðuneytinu vildi ekkert tjá sig um áhrif þessarar niðurstöðu á framtíð sýslumanns- ins. „Ég get ekkert tjáð mig um það á þessu stigi málsins," sagði Þor- steinn. „Það gerist alténd ekkert fyrr en eftir helgina." Ekki náðist í Þorstein Pálsson, dómsmálaráð- herra, en hann er staddur í Brussel. Samkvæmt heimildum MORGUN- PÓSTSINS verða mál Sigurðar tek- in fyrir á fundi ráðherrans með yf- irmönnum ráðuneytisins á mánu- dag. Heimildarmenn blaðsins voru á einu máli um að mál sýslumanns- ins væru með eindæmum óvenju- leg og mundi enginn þeirra eftir öðru eins. Það er því kannski ekki að undra, þótt enginn þeirra treysti sér til að spá fyrir um mögulega niðurstöðu fundarins á mánudag. æöj Ólympíumótið í skák íslendingar og Úkraínu- menn skildu jafnir íslenska sveitin taplausþega mótið erhálfnað. Islendingar og Úkraínumenn aðra sterkustu skáksveit heimsins skildu í gær jafnir, tveir vinningar gegn tveimur, í sjöundu umferð á Olympíumótinu í skák, sem nú er háð í Moskvu. Á fyrsta borði tap- aði Jóhann Hjartarson fyrir Iv- anchuk, en hann er í hópi fimm sterkustu skákmanna heimsins. Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli við Maljanuk og á sama veg fór viðureign Margeirs Pét- urssonar og Romanihsin. Jón L. Árnason vann hins vegar On- ichuk á fjórða borði. Úkraínumenn teljast vera með samkvæmt styrkleikaröð FIDE, þannig að íslenska sveitin getur vel við unað. Ólympíumótið er nú hálfnað og Islendingar eru í 10.-14. sæti með 18 vinninga af 28 möguleg- um. Þeir hafa unnið samtals ellefu skákir, gert fjórtán jafntefli og að- eins tapað þremur skákum. Svokallað unglið Rússa er eitt í efsta sæti með 19 1/2 vinning, en þeir eru, ásamt Islendingum, eina sveitin sem enn hefur ekki tapað viðureign á mótinu. Bogi Nilsson rannsóknarlögreglustjóri: „Menn mega hafa sínar skoðanir" „Menn mega hafa sínar skoðanir í ffiði fýrir mér,“ segir Bogi Nils- son, yfirmaður Rannsóknarlög- reglu ríkisins, um gagnrýni Víðis Valgeirssonar á frammistöðu RLR við rannsókn á hvarfi sonar hans, Valgeirs, sem hvarf fyrir tæplega hálfu ári. I MORGUNPÓST- INUM á mánudag kom frarn að Víð- ir er orðinn langþreyttur á hversu rannsókn á hvarfi sonar hans geng- ur hægt. I blaðinu fer hann hörð- um orðum unt framtaksleysi RLR og segir hann að honum finnist þeir ekkert vera að vinna í málinu. „Það virðist vera þannig að fólk þurfi að koma upplýsingum á ffamfæri við þá sjálft svo þeir geri eitthvað. Þeir leita ekkert uppi sjálf- ir,“ sagði Víðir meðal annars í mánudagsblaðinu. Bogi neitar því hins vegar alfarið að rannsókn málsins liggi niðri. „Þetta mál er ekki gleymt, það er í athugun,“ segir hann. Aðspurður hvort einhverjar nýjar upplýsingar hafi komið fram segist Bogi ekkert vilja um það segja. „Það er ennþá opið, meira hef ég ekki um þetta að segja.“ -jk

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.