Helgarpósturinn - 08.12.1994, Page 10

Helgarpósturinn - 08.12.1994, Page 10
10 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Aðventan er ekki aðeins tími birtunnar. Þá og á vorin er algengara að fólk svipti sig lífi en á öðrum tímum ársins. Engin breyting hefur orðið á þessu nú. íslendingar standa frammi fyrir því að sjálfsvíg er algengasta dánarorsök ungmenna. Eftir áramótin skilar nefnd af sér skýrslu þar sem orsakanna er leitað og bent á leiðir til að sporna við þessari uggvænlegu þróun. Skuggahlið aðventunnar Síðustu vikur hafa nokkur ís- lensk ungmenni tekið eigið líf þannig að margar fjölskyldur eiga um sárt að binda á aðventunni, en sjálfsvíg hafa á undanförnum árum verið algengasta dánarorsök Islend- inga yngri en 24 ára. „Ég veit ekki hvort við getum beinlínis talað um hrinu en þau tilfelli sem komið hafa upp hafa verið dálítið áberandi,“ segir séra Bragi Skúlason, sjúkra- húsprestur á Landspítalanum. „Ég hef engar tölur í höndunum sem gefa vísbendingu um að það sé eitt- hvað slíkt í gangi. Reyndar konia sjálfsvíg oft í hálfgerðum bylgjum." Rannsóknir hafa sýnt að sjálfsvíg eru algengari á sumum tímum árs- ins en öðrum. „Tíminn nálægt jól- um og á vorin er sérstaklega áber- andi í þessu tilliti. Þegar gleðin, eft- irvæntingin og ljósið er mest hjá sumurn er myrkrið svartast hjá öðrum. Ferlið er í grundvallaratrið- um þannig að þegar einstaklingur sem þjáist af þunglyndi nær botn- inum þá hefur hann oft á tíðum ekki orku til að framkvæma sjálfs- víg. En þegar hann er á leiðinni niður eða upp hefur hann frekar kraft og því líklegra að hann láti til skarar skríða og það virðist frekar vera á þessum árstímum. En þetta er flókið og það er margt sem skipt- ir máli.“ Algengasta dánar- orsök íslenskra ungmenna Fyrir nokkrum árum vöknuðu íslendingar upp við þann vonda draum að sjálfsvíg væru orðin al- gengasta dánarorsök ungntenna. Á árabilinu 1960 til 1992 fyrirfóru 614 íslendingar sér, þar af 126 yngri en 25 ára, en yngsti íslendingurinn sem hefur tekið eigið líf var aðeins tíu ára garnall. Það er umhugsunar- vert að í þessum hópi voru 116 pilt- ar en 10 stúlkur. Talið er að bæta megi 25 prósentum við opinberar tölur um sjálfsvíg þar sem í sumum tilfellum eru skráð slysatilfelli í raun dulin sjálfsvíg. Sjálfsvígstil- raunirnar að baki þessum tölum eru svo margfalt fleiri, en víðast hvar er talið að þær séu tífalt fleiri en sjálfsvígin sem heppnast. Það er staðreynd á Vesturlönd- ,um að tíðni sjálfsvíga hjá ungu fólki hefur aukist jafnt og þétt en sam- kvæmt þeim upplýsingum sem fyr- ir liggja er aukningin þó langmest á íslandi. Enn eru þó sjálfsvíg meðal ungmenna algengari í löndum eins og Sviss og Finnlandi. Mikil umræða skapaðist vetur- inn 1991 til 1992 um þessi tíðu sjálfs- víg ungntenna hér á landi. Að veru- legu leyti má rekja það til vina og aðstandenda Sigurjóns Axelsson- ar, sem stóðu að minningartón- leikum um hann og félaga hans, Jón Finn Kjartansson, en báðir sviptu þeir sig lífi kornungir. Mark- miðið með tónleikunum var að opna umræðuna. Foreldrar Sigur- jóns, Axel Eiríksson og Stefanía V. Sigurjónsdóttir, létu ekki þar við sitja og áttu þátt í að stofna undirbúningshóp sem útbjó bæk- ling til að vekja umræðu meðal unglinga. Honum var fylgt eftir með því að fara í framhaldsskóla og ræða við nemendur um vanlíðan og sjálfsvíg og benda þeim á leiðir út úr vandanum. Frarn að þessum tíma voru sjálfs- víg tabú, það þótti óviðurkvæmi- legt að ræða fjölskylduharmleiki. Þannig voru orð til alls fyrst. Nefnd skipuð af Al- þingi vill úrbætur Umræðan barst inn í sali Alþing- is og þar var samþykkt þingsálykt- un í maí 1992 um stofnun nefndar til að kanna tíðni og orsakir sjálfs- víga á Islandi og leita leiða til að snúa þróuninni við. Þessi nefnd er nú að ljúka störfum og er búist við að hún skili skýrslu til þingsins eftir áramótin. I henni eiga sæti Guðríð- ur Sigurðardóttir ráðuneytisstjóri, formaður, Sigmundur Sigfússon geðlæknir á Akureyri, Valgerður Baldursdóttir geðlæknir á Land- spítalanum, Elísabet Berta Bjarnadóttir félagsráðgjafi, Pétur Pétursson prófessor í guðfræði, Vilhelm Norðfjörð sálfræðingur, Axel Eiríksson úrsmiður og Krist- ín Magnúsdóttir kennari við Flensborg. Flutningsmenn tillögunnar, sem komu úr öllum þingflokkum, bentu á að fjórðungur þeirra karla sent fyrirfóru sér á áttunda ára- tugnum voru yngri en 25 ára en til samanburðar hafi hlutur þess ald- urshóps á sjöunda áratugnum verið tíu prósent. „Mikil umræða hefur átt sér stað um umferðarslys og varnir gegn þeim með áróðri fýrir bættri umferðarmenningu. Það er mjög þarft, enda farast og slasast margir í umferðinni, ekki síst ung- menni. Hitt hefur hins vegar legið í þagnargildi allt of lengi hversu mörg ungmenni farast fyrir eigin hendi,“ segir orðrétt í greinargerð með ályktuninni. „En nú, þegar fleiri ungir piltar láta lífið fyrir eigin hendi en í umferðarslysum, er tímabært og nauðsyniegt að hefja hliðstæðar aðgerðir til að kanna or- sakir sjálfsvíga í því skyni að fyrir- byggja þau eftir megni.“ Það sem nefndin mun væntan- lega gera að tillögu sinni er að stofnuð verði móttöku- og upplýs- ingamiðstöð, eins og fram kernur í viðtalinu við Axel Eiríksson annars staðar í opnunni. Skortur á aðstoð við fólk í sjálfsvígshugleiðingum, þá sem lifað hafa af slíkar tilraunir og aðstandendur þeirra, blasir við að mati viðmælenda blaðsins. Komið að lokuðum dyrum „Mér finnst þessi mál vera í lamasessi, svo ég tali alveg hreint út,“ segir Ólöf Helga Þór, for- stöðumaður Rauðakross- hússins. „Fólk í neyð, sem þarf aðstoð eða meðferð vegna tímabundinna erf- iðleika, kemur allt of víða að lokuð- um dyrum. Ein af ástæðunum fýrir því að einstaklingar vilja ekki lifa lengur eru fjárhagserfiðleikar en svo geta þeir ekki leitað til sálfræð- ings án þess að borga fyrir það. Þannig getur skapast vítahringur. Dæmi eru um að fólk, sem reynir að fyrirfara sér og er lagt inn á geð- deild vegna þess, fari ekki í meðferð þegar það útskrifast. Því er boðið Séra Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur á Landspítalanum. „Ég veit ekki hvort við getum beinlínis talað um hrinu en þau tilfelli sem komið hafa upp hafa verið dálítið áberandi." upp á viðtalstíma en ef það mætir ekki er ekkert meira gert, ekki hringt eða sent bréf. Samt má rekja flestar sjálfsvígstilraunir til þess að fólk er að hrópa á hjálp. Þannig að eftirfylgnin er ekki nógu góð. Það sama gildir urn syrgjendur. Foreldrar og makar þeirra sem fyrirfara sér ættu að fá bréf frá heilbrigðisyfirvöld- um þar sem þeim væri boðið upp á aðstoð því fæstir leita eftir henni sjálfir.“ Séra Bragi tekur ekki jafn djúpt í árinni. „Stundum kemur fyrir að nokkrir ung- lingar í sama kunningjahóp fyrirfari sér sern leiðir hug- ann að því hvort rétt sé stað- ið að stuðningi við þá sem eiga um sárt að binda eftir að einhver nákominn hefur fyr- irfarið sér. Aðstandendur leita heldur ekki mikið eftir aðstoð og það hefur ekki breyst í grundvallaratriðum. Það sem hefur breyst er að fleiri aðilar eru meðvitaðir urn að þarna þurfi hjálp og hafa sýnt frumkvæði. Skólarnir hafa til dæmis sýnt frum- kvæði að því að fá aðstoð ut- an frá og það fer vaxandi. Það er einmitt mikilvægt að ræða við vinina sem sitja eft- ir með spurningarnar. Þann- ig fá þeir leyfi til að fara í gegnum eigin tilfmningar. I sjokkinu fyrst á eftir blokker- ast fólk oft og hefur tilhneig- ingu til að einanagrast. Það er einmitt þá sem þarf að grípa inn í til að hjálpa því að finna farveg fyrir tilfinningar sínar og sorg.“ Rauðakross-húsið við Tjarnar- götu hefur verið starfrækt í níu ár. Þar er meðal annars boðið upp á símaþjónustu fyrir unglinga sem líður illa. Ólöf Helga segir að hringt sé til þeirra af öllu landinu og skipt- ingin milli byggðarlaga sé áþekk íbúadreifmgunni. „Á þeim átta ár- um sem við höfum starfrækt síma- þjónustuna höfurn við fengið 460 símtöl frá unglingum og ungu fólki í sjálfsvígshugleiðingum. Stúlkurn- ar eru heldur fleiri en piltarnir en flestir hafa verið á aldrinum fjórtán til sautján ára, þótt bæði eldri og yngri hringi einnig. Svo er talsvert um að aðstandendur hringi til að leita ráða, þau símtöl eru raunar ekki mikið færri.“ Starfsfólk Rauðakross-hússins er sérþjálfað í að tala við fólk í sjálfs- vígshugleiðingum í gegnum síma. „Við tökum öll símtöl alvarlega en það fer eftir eðli símtalsins hvað við gerum. Ef það er spurning um að hjarga mannslífi þá gerum við það sem við getum til að fá utanaðkom- andi hjálp þannig að einstaklingur- inn lifi. Á hverju einasta ári eru dæmi um símtöl þar sem viðkom- andi hefði dáið ef hann hefði ekki hringt, til dæmis ef hann hefur ver- ið búinn að taka inn lyf. Það eitt er næg ástæða fyrir Rauða kross Is- lands til þess að halda úti þessari símaþjónustu.“ Þeirri spurningu er ósvarað hvers vegna tíðni sjálfsvíga er svo há sem raun ber vitni meðal íslenskra ung- menna og varla er við því að búast að nefndin geti svarað því með óyggjandi hætti. Axel bendir þó sérstaklega á drykkjusiði íslendinga sem séu hættulegir. Ólöf Helga segir að ástæðurnar sem krakkarnir gefa fyrir vanlíðan sinni séu margvíslegar. „Sumir hafa misst náinn ættingja eða vin eða eru ósáttir við hjónaskilnað for- eldra eða önnur vandamál í fjöl-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.