Helgarpósturinn - 08.12.1994, Page 12

Helgarpósturinn - 08.12.1994, Page 12
12 MORGUNPÓSTURINN SKOÐUN FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Útgefandi Ritstjórar Fréttastjóri Framkvæmdastjóri Auglýsingastjóri Miðiil hf. Páll Magnússon, ábm Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Kristinn Albertsson Örn ísleifsson Setning og umbrot Filmuvinnsla og prentun Morgunpósturinn Prentsmiðjan Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 195 á mánudögum og kr. 280 á fimmtudögum. Áskriftarverð er kr. 1.300 á mánuði fyrir tvö blöð í viku. Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt. Illa rekin sveitarféiög Sveitarfélögin á íslandi er flest hver afar illa rekin, og sum hörmulega. Hafi fólk efast um þetta ættu þær efasemdir að hverfa eins og dögg fyrir sólu, þegar hlustað er á ámátlegar útskýringar sveitarstjórnarmanna síðustu daga á nauðsyn þess að hækka álögur á íbúana. Fjárhagur flestra stærstu sveitarfélaga landsins hefur hríðversnað á undanförnum árum og virðist þá einu gilda hvaða flokkar hafa haldið um stjórnvölinn. Sífellt stærri hluti tekna sveitarfélaganna hefur farið í beinan rekstur og þeim mun minna fé hefur verið til skiptanna í framkvæmdir. Þetta hefur þó ekki þýtt að sveitarfélögin hafi skorið niður framkvæmdir til samræmis við fjárhagslega getu. Það er framkvæmt fjandann ráðalausan, en mestanpart fyrir lánsfé sem einhverjir aðrir eiga svo að greiða einhverntímann seinna. Þetta verklag hefur reyndar verið viðloðandi ríkisfjármálin um langt skeið, en nú virðast sveitarfélögin jafnvel ganga skrefinu lengra. Staða Reykjavíkur er lýsandi fyrir þetta ástand — nánast allar tekjur borgarinnar á þessu ári fara beint í rekstur. Hvert handarvik, sem ætti að framkvæma, yrði að fjármagna með lánum. Svipaða sögu er að segja um stóru sveitarfélögin í nágrenninu, Kópavog og Hafnarfjörð, og raunar miklu fleiri um land allt. Og þegar allt stefnir nú norður og niður í lok kosningaárs eru úr- ræðin gamalkunnug. Einn leggur á holræsagjald, annar hækkar út- svar og allir taka lán. Sveitarstjórnarfólk syngur svo einum rómi: „Það eru stöðugt auknar kröfur um þjónustu og menn reyna að verða við þeim.. eins og bæjarstjórinn á Akureyri sagði í blaðaviðtali nú í vikunni.- Þetta er bæði sjálfsblekking og lygi. Fólk vill eins góða þjónustu og sveitarfélögin geta veitt fyrir þá peninga sem þau hafa til ráðstöfun- ar. Það er reginmisskilningur ef sveitarstjórnarmenn halda að fólk sé nú um stundir reiðubúið til að láta seilast lengra ofan í vasa þess. Þeir ættu hins vegar að hafa kjark og dug til að rifa seglin í rekstri sveitarfélaganna þegar á móti blæs, eins og allir aðrir í þjóðfélaginu hafa þurft að gera. Þeir hafa því miður hvorugt til að bera og þess vegna hækka þeir skatta og taka lán. Upp lil hópa hafa sveitarstjórnir í landinu einfaldlega ekki reynst starfi sínu vaxnar, og vanhæfni þeirra virðist af einhverjum ástæð- um hafa aukist á undanförnum árum. Kannski er skýringin þó ekki önnur en sú, að dugleysi þeirra hefur komið betur í ljós þegar þeir hafa þurft að takast á við efnahagslegan samdrátt undangenginna ára. Allt botnar þetta auðvitað í þeirri staðreynd að sveitarstjórnar- mönnum, eins og reyndar fleiri stjórnmálamönnum, hefur tekist að firra sig ábyrgð af óráðsíunni gagnvart umbjóðendum sínum — fólkinu sjálfu. Þeir hafa fyrir kosningar getað flaggað sundlaugum þar og leikskólum hér, án þess í raun að þurfa að svara fyrir það hvernig peningarnir til að gera hlutina voru fengnir. Úr því að við höfum ekki betri sveitarstjórnarmenn en raun ber vitni verður að koma böndum á þá. Það á að banna með lögum að þeir eyði meiru en þeir afla — þá kemur bruðlið fram í augljósum skattahækkunum sem hægt er að refsa þeim fýrir í kosningum, en ekki lántökum, sem almenningur áttar sig ekki á. Páll Magnússon Pósturmn Vesturgötu 2, 101 Reykjavík, Sími 522-2211 fax 522-2311 Bein númer: Ritstjórn: 522-4666, símbréf: 522-2243 Taeknideild: 552-4888 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 522-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577 Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 17:00 virka daga, tii 21:00 á þriðju- og miðvikudögum og milli 13:00 og 21:00 á sunnudögum. Og nú í Sam-bíóunum Hann fékkþó jeppann í staðinn „Einu sinni varþað hvorki meira né minna enforseti ASl, Ásmundur Stefánsson, sem sóttist eftir sœtinu mínu. “ Guðrún Helgadóttir alþingismaður. Þá lemur pabbi ekla mömmu „Ég ólst upp við þá hugsun að heilbrigði og það að vera sterkur vceri gottfyrir bæði karla ogkotiur.“ Bryndís Ólafsdóttir kraftakona. Geta þeir ekki sett á holræsagjöld? „Mesti vandi Sameinuðu þjóðantia í heild eru tvímœlalaust jjármálin. “ Boutros Boutros Ghali aðalsöfnunarmaður. Vonandi þóekki að negla hann upp „Ég er tilbú- inn að takast á við Alfreð Þorsteins- son.“ Óskar Bergs- son trésmið- ur. .f i * Kjaradeila ríkisins við sjúkraliða Verkfall fjármálaráðherra gegn sjúkraliðum hefur nú staðið í um það bil einn mánuð. Sjúkraliðar hafa fengið mikinn stuðning. Aðal- atriðið er þó það að sjúkraliðar hafa lagt sig fram og sýnt óvenjulegt bar- áttuþrek. Satt að segja eru þess fá dæmi á seinni árum að verkfall eins hóps hafi vakið jafn sterkan stuðn- ing annarra hópa og þetta verkfall sjúkraliðanna. Álþýðusamband Is- lands hefur lýst eindregnum stuðn- ingi við kjarabaráttu sjúkraliða. Það er ekki algengt að Alþýðusamband- ið taki jafn eindregna afstöðu með einstökum hópum opinberra starfsmanna. Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar, hefur einnig gengið vasklega fram í stuðningi sínum og Dagsbrúnar við sjúkraliða. Þannig hefur Dagsbrún lagt fram verulega fjármuni í vinnudeilusjóð. Hið sama er að segja um Kennarasamband Islands undir forystu Eiríks Jónssonar. Augljós rök Rökin fyrir þessum stuðningi eru augljós: Takist að brjóta sjúkraliða á bak aftur er leiðinni lokað til allra kjarabóta fyrir alla aðra. Og það er einmitt sá ljóti leikur sem ríkis- stjórnin ber nú ábyrgð á: Hún ætlar að fórna sjúkraliðum, nota þá sem fyrirstöðu gegn því flóði réttlátra kjarabreytinga sem óhjákvæmilega fylgja á eftir, ef svo fer fram sem horfir. Það má ekki gerast að sjúkraliðarnir verði brotnir á bak aftur. Þess vegna er það lífsnauðsyn að allir Iaunamenn styðji sjúkraliða eins og kostur er. Notkun og misnotkun orða Það sem vinnur á móti sjúkralið- um er hins vegar ýmislegt og það erfiðasta er kannski notkun orða. Það er alltaf talað um verkfall sjúkraliða. Það er alltaf talað um deilu sjúkraliða við fjármálaráð- herra. Og hvað er rangt við það? Það er rangt að komast þannig að orði að ætla megi að vinnudeilan sé sjúkraliðum einum að kenna. Auð- vitað ber fjármálaráðherra og ríkis- stjórnin alla ábyrgð á málinu. Það sjá allir í hendi sér þegar bent er á Þungavigtin SVAVAR Gestsson ÞINGMAÐUR það. Þetta er ekki síst ljóst þegar riíjað er upp að samninganefnd ríkisins þóttist ekki skilja kröfugerð sjúkraliða fyrr en eftir þrjár vikur. Þegar svo er á málum haldið er augljóslega ekki hægt að kenna sjúkraliðum einum um. Því hafi kröfugerð þeirra verið óljós — sem hún var ekki — þá átti samninga- nefnd ríkisins auðvitað að knýja fram útskýringar með aðstoð sátta- semjara ef ekki vildi betur til. Enn verra er það þegar taiað er um deilu sjúkraliða við fjármálaráðherra, því sjaldan eða aldrei veldur einn þá tveir deila. Enn verra er það þeg- ar ævinlega er talað urn afleiðing- arnar af verkfalli sjúkraliða á hjúkr- unarheimilum og sjúkrahúsum þegar fréttir birtast um erfitt ástand á þessum stofnunum. Þessi notkun orða og órðasambanda sem er fjandsamleg sjúkraliðum hefur í raun verið þeirra versti óvinur í deilunni. Næstversti óvinurinn Næstversti óvinur sjúkraliða er fjármálaráðherra og ríkisstjórnin. Ríkisstjórnin samdi við hjúkrunar- fræðinga síðastliðið vor. Það geng- ur ekki fyrir ríkisstjórnina að reyna að stinga hausnum í sandinn. Þeir samningar sem hún sjálf gerði liggja fyrir. Launamunurinn eins og hann er liggur fyrir. Þar með er ljóst að fjármálaráðherra og ríkis- stjórnin verða að hækka kaup sjúkraliðanna. Það er veruleikinn. Þangað til hann rennur upp fyrir ríkisstjórninni má ekki líða langur tími. Allur dráttur á úrslitum deil- unnar úr þéssu er á ábyrgð ríkis- stjórnarinnar. Deilunni þarf að ljúka sem fyrst. En ekki með upp- gjöf sjúkraliða heldur með reisn. Og sá tími sem líður til loka deil- unnar verður þeim mun styttri sem sjúkraliðarnir finna meiri stuðning. Sá tími verður þeim mun styttri sem ríkisstjórnin áttar sig fyrr á því að sjúkraliðarnir eiga stuðning alls þorra landsmanna. Því þannig er það. Sjaldan eða aldrei hefur einn hópur átt eins heitan stuðning. „Nœstversti óvinur sjúkraliða er fjármálaráðherra og ríkisstjórnin. Ríkisstjórnin samdi við hjúkrunarfrœðinga síðastliðið vor. Það gengur ekkifyrir ríkisstjórnina að reyna að stinga hausnum í sandinn.“ P * P f * ► p I Þungavigtarmenn eru meðal annars: Árni Sigfússon, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Erlendsson Jón Steinar Gunnlaugsson, Óskar Magnússon, Páll Kr. Pálsson, Svavar Gestsson, Ógmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.