Helgarpósturinn - 08.12.1994, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FÓLK
17
fjÖLSKYLDA ÓLA GaUKS
Nú þegar jólar hendist þessi vinalega
fjölskylda upp hitakvarðann og á eft-
ir að ylja mörgum jólatrésskemmtun-
argestinum um hjartaræturnar. Nú
fer vertíð í hönd og ekki hægt að
hugsa sér jólalegri fjölskyldu en Óla,
Svanhildi og Onnu Mjöll.
SkAidsagan
Skáldsagan með stóru E-ssi er mál
málanna núna. Útgáfumálin eru frétt
mánaðarins og þrátt fyrir samdrátt á
því sviði heldur skáldsagan sínu og
vel það. Þeir bjartsýnustu eru jafnvel
farnir að halda því fram að Ijósvaka-
miðlarnir séu að bíta í rassinn á sér
og fólk komið með óverdós. Aftur-
hvarf er lykilorð og vídeó- og tölvu-
leikjakynslóðin á undir högg að
sækja. Næsta kynslóð tekur til við að
lesa og mætir til leiks hæf til að tak-
ast á við slugs ríkjandi kynslóðar.
Neeeeei.
Almannarómur hefur kveðið upp
sinn dóm í kjörkassa MP og vill
banna reykingar í bíó sem verða þá
átómatískt heitar sem aldrei fyrr.
Hitler heitinn fylgdi þeirri sannfær-
ingu að lýðurinn væri heimskur og
gleyminn og þó það megi ýmislegt
um Dolla segja þá var hann aldrei
korní.
KlAM (KAPALKERflNU
Klám er soldið heitt item og umræð-
ur um það eru alltaf skemmtilegar.
Gamla skilgreiningin á muninum á
klámi og erótík (erótík er þegar fjöð-
ur er notuð en I kláminu er það allur
kjúklingurinn) er til dæmis ágætur
djókur. En hætt er við að þetta gufi
upp í skítalykt þegar heilu húsfélögin
byrja að funda um málið og því er
þetta undir 0°.
Kynjakvótakerhð
Alveg verulega þreytt item en það
eru alltaf einhverjar kerlingar tilbún-
ar að halda þessu á lofti — að
Gunna eigi að vera í þessu jobbi af
því að það er svo margir Gunnar í
geiranum. Það eigi að tala við Jónu í
fréttatímanum af því að það er búið
að tala við svo marga Jóna. Þetta fer
í taugarnar á öllu sómakæru kven-
fólki rétt eins og fátt fer meira í
taugarnar á svertingjum þegar þeim
er sýnd ofurtillitssemi.
NÝJU HOLRÆSAGJÖLDIN
Það þurfa allir að kúka og óþarfi að
vera með einhvern tepruskap þess
vegna og það sem meira er— það
er gott að kúka. Þetta var eitt af því
fáa sem maðurhafði á tilfinningunni
að væri ókeypis í lífinu en nú er búið
að eyðileggja það. Alveg hrollköld
gjöld.
Brátt fer að líða að hinni brjáluðu Alonzo-tískusýningu með botnlausum buxum
og tilheyrandi. Verður sú sýning vonandi til þess að lyfta upp annars erfiðum
janúar. En jólin eru eftir. Þeir sem hafa gaman af glamúr, skautapilsum og
gervigærum í einum graut ættu að skoða hvað Alonzo hefur upp á að bjóða.
Aukþess að fást í París, USA og íslandi er hönnuðurinn um það bil að ná í gegn-
um meltingarfæri Japana. Jólatré er lykilorðið yfir fatnað eiginmanns hinnar ís-
lensku Eddu Valesku sem nýverið var sýndur á Ingólfscafé.
Fatnaður
íyrir súper-
konur
Flauel sýndi einnig hátískuna á
fjölum Ingólfscafé á dögunum. Á
henni var augljóst aö kínverska
trendið er hvergi á undanhaldi.
Þótt ekki sjáist það á þessum
myndum er tískuslagorðið „go
for the gold“ en gull og silfur-
fatnaður er á hraðri uppleið.
Og það er líka konan, ef
marka má græna súper-
kvennabúninginn, sem er
að vísu í kjólalíki.
Lj ósmyndasýning
á Kofa Tómasar frænda
Berir kroppar
Baldur Bragason ljósmyndari heldur sína aðra einkasýningu
á þessu ári og opnar á laugardaginn i Kofa Tómasar frænda.
Baldur nam Ijósmyndurt í Kaliforníu og
hefur það meðal annars á affekaskránni að
hafa unnið sem aðstoðarljósmyndari hjá
því alræmda tímariti Playboy síðastliðið
vor. Baldur segir að það hafi verið hörð
vinna á Playboy samhliða svimandi háum
lifistandard hjá aðalljósmyndurum, mód-
elum og toppum. Hreint ótrúlegum fjár-
hæðum er eytt í hverja töku og þá er verið að tala um upp-
hæðir sem meðaljón á Islandi skilur ekki. Sjálfur var Baldur á
skítalaunum en eins og hann segir sjálfur: „Maður gerir allt
fyrir listina." Það er
óhætt að segja að
myndir Baldurs beri
þess dám af efnistökum
lærimeistara sinna —
alltént er viðfangsefnið
í öllum tilfellum nekt.
Berir kropþar koma því
til með að skreyta veggi
Tómasar frænda. Sýn-
ingin heitir „Fegurð og
skuggar“ og stendur
fram í janúar. Fyrirhug-
að er að þessi sama sýn-
ing fari erlendis fljót-
lega eftir að henni lýkur
hér. JBG
Játiu sppbnMt
Ertu mfcó stifar axJir
sp^nnuhmít í nssigat1*
riu sóður .
hljómsveitin UNUN
leikur rafmagnað popp
Megas og Sjón lesa
upphátt
Þjóðleikhúskjallaranum
í kvöld kl. 22.
miðaverð kr. 600