Helgarpósturinn - 08.12.1994, Qupperneq 20
20
MORGUNPÓSTURINN SPORT
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
Landsliðsæfingar eru nú hafnar i
körfubolta og nú nýverið var lands-
liðið kallað saman til æfinga, skrafs
og ráðagerða. Þegar æfingin átti að
hefjast brá mönnum heldur betur í
brún, þátttakan var lítil sem engin
og aðeins lítill hluti leikmanna skil-
aði sér. í flestum íþróttum þykir
mikill heiður að vera valinn í lands-
liðið og því kemur þetta áhuga- og
íslenskir atvinnu-
knattspyrnumenn
á mála hjá evr-
ópskum úrvals-
deildarliðum
1980 til 1990
Heimir Karlsson Excelsior.
Arnór Guðjohnsen Lokeren,
Anderlecht, Bordeaux.
Atli Eðvaldsson Dortmund,
Dusseldorf, Bayer Uerdingen.
Ásgeir Sigurvinsson
Standard Liege, Bayern
Munchen, Stuttgart.
Karl Þórðarson Laval.
Guðni Bergsson Tottenham.
Guðmundur Torfason
Beveren, Winterslag, GEnk,
Rapid Vín, St. Mirren.
Lárus Guðmundsson
Waterschei, Bayer Uerdingen,
Kaiserslautern.
Magnús Bergs Dortmund,
Tongeren, Real Santander og
Eintracht Braunschweig.
Ómar Torfason Luzern.
Pétur Ormslev
Fortuna Dússeldorf.
Pétur Pétursson Feyenoord,
Anderlecht, Antwerpen,
Flercules Alicante.
Ragnar Margeirsson
Waterchei, Club Brugge.
Sigurður Jónsson Sheffeld
Wednesday, Arsenal.
Sævar Jónsson Club Brugge.
Sigurður Grétarsson, Irakles,
Luzern, Grasshoppers.
Teitur Þórðarson Laval, Lens.
1994
Þórður Guðjónsson Bochum.
Arnar Gunnlaugsson
Feyenoord/Núrnberg.
Bjarki Gunnlaugsson
Feyenoord/Núrnberg.
Eyjólfur Sverrisson Beziztkas.
Eiður Smári Guðjohnsen PSV
Ath! Ekki eru teknir leikmenn á
mála hjá skandínavískum liðum
og einungis taldir þeir sem eru
á mála hjá evrópskum úrvals-
deildarliðum.
Islandsmótið í tippi
Seigir
Stjömu
menn
Að loknum níu umferðum í ís-
landsmóti Morgunpóstsins í
tippi er Stjarnan enn efst og Þórs-
arar í öðru sæti. Stjörnumenn
hafa haft forystu frá upphafi móts
og fátt bendir til þess að þeir láti
hana af hendi í bráð. Sem fyrr eru
KR-ingar á botninum en Skaga-
menn sækja þó á þá og eru nú að-
eins tveim leikjum frá botnsæt-
inu. í síðustu umferð náðu þeir
Valgeir Baldursson, Stjörnu-
maður, og Steingrímur Jóhann-
esson, Eyjamaður, bestum ár-
angri. Báðir náðu þeir sjö leikjum
réttum. Stjarnan hefur nú þriggja
leikja forskot á Þór, Stjarnan með
59 rétta en Þór með 56, en FH er í
þriðja sæti með 52 leiki rétta.
Seðill helgarinnar skartar að
þessu sinni sex úrvalsdeildarleikj-
um og sjö fyrstu deildarleikjum.
Tipparar Morgunpóstsins virðast
vera á einu máli um úrslit í leik
QPR og Manchester United, og
um leik Oldham og Port Vale í
fyrstu deild. Auk þess eru menn
nokkuð sammála um leikina Tot-
tenham - Sheffield Wednesday og
Stoke - Burnley. -RM
metnaðarleysi íslenskra körfubolta-
manna óneitanlega á óvart...
J_mn er allsendis óvíst hvað lands-
liðsmennirnir GUÐNI BERGSSON og
KristjáN JóNSSON taka sér fyrir
hendur á næsta keppnistímabili.
Mál Guðna og Tottenham eru fyrir
dómstólum í London og er niður-
stöðu úr
þvímáliað
vænta inn-
an
skamms.
Heyrst
hafðiaf
áhuga
Crystal Palace á að fá Guðna en
einnig spurðust sænsk lið fyrir um
landsliðsfyrirliðann. Þá eru Vals-
menn heldur ekki búnir að útiloka
það að Guðni komi aftur heim og
leiki með þeim næsta sumar.
Sama má kannski segja um Kristján
Jónsson. Mál hans hjá Bodö Glimt
eru í óvissu og er víst að Framarar
eru mjög spenntir að fá þennan
sterka varnarmann aftur í sinar rað-
Tippið með
Birni Inqa
Látið Björn Inga segja ykkur hvernig á að vinna pottinn
íslenskir atvinnumenn í knattspyrnu
Tegund í úbým
ingarhættu?
Að undanförnu hefur
mönnum orðið tíðrætt um
stöðu íslenska fótboltans. Sitt
sýninst hverjum, en þó held
ég að menn séu sammála um
að skortur sé á framúrskar-
andi einstaklingum. Samfara
þessu virðist hafa orðið um-
talsverð fækkun á íslenskum
atvinnuknattspyrnumönn-
um. Hér á eftir mun ég leita
skýringa á þessari þróun.
Á árunum 1980-90 áttum
við leikmenn hjá sterkum
evrópskum úrvalsdeildarlið-
um en í dag eru þeir orðnir
æði fáir og eiga sjaldnast vís
sæti í liðum sínum.
Einhvern tímann spurði ég
þekktan umboðsmann að því
hvers vegna jafn fámenn þjóð
og íslendingar ætti jafn
marga leikmenn í evrópska
boltanum. Hann svaraði því
til að íslenskir leikmenn
þættu metnaðarfullir og með
mikinn sjálfsaga sem þykja
góðir eðliskostir í atvinnu-
mennsku. Suðrænir leikenn
þættu aftur á móti latir og
erfiðir í samstarfi.
Samfara hæfileikum er
þetta því spurning um metn-
að og sjálfsaga. Varðandi
metnað finnst mér þar nokk-
uð á vanta hjá íslenskum leik-
mönnum. Veit ég nokkur
dæmi þess að leikmönnum
undir tvítugu hafi verið boðið
til skammtímareynslu hjá 1.
deildarliðum í Evrópu sem
þeir höfnuðu. Töldu sig ann-
að hvort of unga, að nægur
tími væri til stefnu eða að
skólinn hafði forgang.
Það er hins vegar svo að
tækifærin koma ekki á færi-
bandi. Á áratugunum á und-
an voru ungir menn tilbúnir
að fórna miklu fyrir draum-
inn um atvinnumennsku í
knattspyrnu. Staðreyndin er nefni-
lega sú að festi menn sig í sessi hjá
liðum, til dæmis í Þýskalandi,
Spáni, Frakklandi, Englandi eða
Ítalíu þá eru þeir á ráðherralaun-
um. Sjálfsagi er einnig mikilvægur
þáttur í uppbyggingu góðs leik-
manns. Ég tel íslenska leikmenn
ekki nota tímann utan hefðbundins
æfingatíma nægilega vel til að bæta
tækni, hraða eða þrek með séræf-
ingum. Á 9. áratugnum tóku menn
það oft upp hjá sjálfum sér að laga
það sem betur mátti fara með auka-
æfingum. Atli Eðvaldsson æfði að
meðaltali tvo tíma á viku aukalega í
Þýskalandi til að bæta tækni eða
styrkja sig. Það hefur vafalítið átt
þátt í löngum og meiðslalitlum
ferli.
Ómar Torfason þótti ekki lík-
legur til afreka þegar hann kom til
Víkings árið 1979 en með mikilli
elju og sjálfsaga, samfara mörgum
aukaæfingum, komst hann í
fremstu röð íslenskra leikmanna og
gerðist atvinnumaður í knatt-
spyrnu.
í leikjum 1. deildar í sumar
hafa fáir leikmenn verið að leika
vel, leik eftir leik. Menn eins og
Rúnar Kristinsson og Arnar
Grétarsson eru gæddir góðum
hæfileikum og hefði ég viljað sjá þá
leggja land undir fót fyrir tveimur
til þremur árum síðan. En þeir eiga
1. QPR - Man. Utd. X2
Gestirnir ættu að vera sterkari í þess-
um leik og hafa sigur. En það er auð-
vitað auðveldara um að tala en í að
komast og meistararnir hafa ekki
leikið nógu vel á útivöllum hingað
til. Heimamenn í QPR eru enn í
„limbói" eftir að Gerry Francis yfir-
gaf þá og eru sem óskrifað blað.
2. Nott. For. - Ipswich 1
Ég hef ekki nokkra trú á því að Nott-
ingham-menn klúðri þessum stigum
frá sér. Gengi Iiðanna í deildinni er
það ólíkt auk þess sem sjálfstraust
Ipswich-manna er lítið sem ekki neitt
þessa dagana. Þó má sjá ef innbyrði-
sviðureignir liðanna eru skoðaðar að
munurinn er ekki svo mikill.
3. Tottenham - Sheff. Wed. 1X
í raun ætti maður að setja sér þá
reglu að þrítryggja alltaf leiki Totten-
hamliðsins. Liðið leikur hreint frá-
bærlega þessa dagana en getur dottið
illilega þess á milli. Þó verður að segj-
ast að liðið hefur aflað sér mikilla
vinsælda með þessu brölti sínu og
þeir tapa allavega ekki.
4. Norwich - Chelsea 1X2
Þessi leikur gæti orðið dálítið snúinn.
Norwich tapaði fyrir.United um síð-
ustu helgi en lék samt mjög vel. Á
sania tíma hirti Chelsea öll stigin
gegn Southampton á útivelli og ættu
því að koma öruggir til leiks.
5. Aston Villa - Everton X2
Þótt liðin séu hlið við hlið við botn
deildarinnar segir það ekki svo mikið
um spilamennsku þeirra eins og hún
er nú. Bæði liðin gengu í gegnum
erfið framkvæmdastjóraskipti á dög-
unum og virðast vera að ná sér af
þeim. Brian Little, sem tekinn er við
Villa, og Joe Royle hjá Everton hafa
kontið með ferska strauma og stiga-
söfnun er aftur hafinn.
6. Wimbledon - Coventry 2
Þrátt fyrir að Wimbledon geti á góð-
um degi unnið hvaða lið sem er sök-
um gríðarlegrar baráttu er einnig
einkenni þeirra að detta niður þess á
milli, einkum ef smærri lið eiga í
hlut. Þannig er allt eins víst að fram-
herjinn Dion Dublin og félagar í Co-
ventry beri sigur úr býtum í þessum
leik.
7. Swindon-Tranmere2
Hér verður eflaust um hörkuleik að
ræða þótt Tranmere ætti að hafa
þetta ef litið er á stigafjölda liðanna.
Þar að auki hafa þeir mann innan-
borðs sem heitir John Aldridge og
hann einn gæti ráðið úrslitum í leik
sem þessum.
8. Portsmouth - Reading 1X2
Heimamenn fóru mjög illa út úr við-
ureign sinni við Middlesboro um
síðustu helgi. Á sama tíma vann Re-
ading sinn leik gegn Sunderland og
blandaði sér þar með í hóp efstu liða.
Þó segir sagan okkur að Reading hef-
ur ekki farið margar sigurfarir til
Portsmouth á undanförnum árum
og líklega er best að setja öll táknin
þrjú.
9. Millwall - Sunderland 1X
Sigurlíkurnar eru mestar Millwall
rnegin og eru sænskir og íslenskir
spekingar sammála um það. Inn-
byrðis viðureignir liðanna hafa verið
með jafnteflisblæ síðustu ár og hafa
liðin skipst á að sigra. Kannski sé
komið að Millwall nú.
10. Barnsley - Charlton 1
Barnsley ættu að teljast nær öruggir
með sigur í þessum leik. Tap þeirra í
síðustu umferð ætti ekki að koma
svo mikið að sök, fremur er líklegt að
það þjappi liðinu santan.
11. Bristol C. - Bolton 2
Bristol hefur ekki átt sjö dagana sæla
að undanförnu og fátt virðist geta
komið í veg fyrir fall liðsins þegar
tekur að vora. Bolton hefur hins veg-
ar átt ágæta leiki inn á milli og mun
líklega sigla lygnan sjó.
12. Oldham - Port Vale 1
Liðin eru á svipuðum slóðum í deild-
inni og hefur hvorugu tekist að spila
eins og þau ættu að hafa getu og
burði til. Flestir eru þó á því að
heimamenn vinni þennan leik næsta
örugglega.
13. Stoke - Burnley 1
Islendingarnir í Stoke, þeir Lárus
Orri Sigurðsson og Þorvaldur Ör-
lygsson, gera það að verkurn að erfitt
er að spá liðinu öðru en sigri. Þeir
eru enda á heimavelli í þessum leik.
Asgeir Sigurvinsson er einn ör-
fárra íslendinga sem komist hafa
til æðstu metorða í hörðum heimi
atvinnumennskunnar. Spurningin
er hvort Ásgeir kæmist að hjá
stórliði í dag eða hvort hlutskipti
hans yrði að leika með sænsku
eða norsku liði.
það sammerkt að taka aðeins rispur
í leikjum en hverfa síðan alveg þess
á milli, báða skortir þá framsækni
og harðfylgi.
Knattspyrnan í sumar hefur
því verið nokkuð bragðdauf því
það er jú einstakfingsframtakið
sem lyftir boltanum á hærra
plan. Þó eru nokkrir athyglis-
verðir leikmenn, Eiður Smári er
mesta efni sem komið hefur fram í
áraraðir en einnig hafa Kristinn
Hafliðason, Helgi Sigurðsson og
Guðmundur Benediktsson burði
til að ná langt. Þannig að þrátt íyrir
lægð eru nokkrir ljósir punktar sem
vonandi lyfta íslenskri knattspyrnu
upp á hærra plan á nýjan leik og
vekja þannig athygli erlendra liða á
ungum, efnilegum knattspyrnu-
mönnum frá Islandi.
Lárus Guðmundsson
ÍSLANDSMÓTIÐ ÍTIPPI 10. umferð 49. leikvika Kári Steinn Reynisson Hrafnkell Kristjánsson ^4 Einar Ásbjörn Ólafsson Ólafur Brynjólfsson c<||> Einar Þór Daníelsson |||) Haukur Pálmason Kristófer Sigurgeirsson Sigurður Gylfason <jj)| 9 c 0 </) <n ö) >1 L- O L— c ca E O Rögnvaldur Rögnvaldss. 2
1. QPR - Man.Utd. 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 10
2. Nott.Forest - Ipswich 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
3. Tottenham - Sheff.Wed X 1 1 1 1 1 1 1 X 1 8 2 0
4. Norwich - Chelsea X T" X X X 1 1 1 2 T~ 5 4 1
5. Aston Villa - Everton X X X 1 X X X 2 X X 1 8 1
6. Wimbledon - Coventry 1 2 1 1 1 X 1 1 1 1 8 1 1
7. Swindon - Tranmere 2 T~ 2 1 2 1 2 X 2 1 3 1 6
8. Portsmouth - Reading 1 X 2 2 X 1 1 1 X X 4 4 2
9. Millwall - Sunderland 1 1 1 2 2 X X 1 1 1 6 2 2
10. Barnsley - Charlton X T~ T~ ~ 1 2 "2 ~ T~ ~ 6 1 3
11. Bristol City - Bolton 1 2 2 X 2 X 1 X 2 2 2 3 5
12. Oldham - Port Vale 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
13. Stoke - Burnley 1 1 1 1 X 1 1 1 1 X 8 2 0
Samanlagður árangur 46 52 42 52 44 47 "47~ 51 56 "5Í"