Helgarpósturinn - 08.12.1994, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 08.12.1994, Blaðsíða 22
22 MORGUNPÓSTURINN VIÐTAL FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Ingólfs Margeirssonar Stilli ekki lífinugegn listinni Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari tjáir sig um innblástur, flökkulrfog tilfinningar í tónlist .Auður Hafsteinsdóttir fiðlu- leikari lýsir upp skammdegisskugg- ana á Sólon Islandus með brosi sínu þegar hún heilsar ntér svart- klædd frá hvirfli til ilja. Ég spyr hvers vegna tónlistarmenn séu flest allir svartklæddir og hún svarar að bragði: „Þeir eru svo uppteknir af tónlist að þeir hafa engan tíma til að velja liti.“ Svo hlær hún þessum smitandi hlátri og ég veit ekki alveg hvort ég á að taka hana alvarlega. En hvers vegna er hún svartklædd? „Vegna þess að ég var rauðklædd síðast!“ Og hlær ennþá rneira. i4.uður Hafsteinsdóttir er meðal fremstu fiðluleikara okkar. Hún út- skrifaðist aðeins sautján ára frá Tónlistarskólanum, en síðan lá leiðin til Boston þar sem hún nam við New England Conservatory undir handleiðslu heimsfrægra fiðluleikara sem Dorothy Delay og James Buswell. Þaðan lauk Auður Bachelor of Music - gráðu 1987 en 199] lauk hún Mastersgráðu í fiðlu- flutningi við Minnesotaháskóla í Minneapolis. Auður hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir leik sinn. Hún var valin listamaður Reykjavíkur- borgar 1991 og ári síðar vann hún samkeppni sem fulltrúi Islands á Hátíðartónleikum í Finnlandi und- ir yfirskriftinni „Ungir einleikarar á Norðurlöndunt." Auður vann fyrstu verðlaun í samkeppninni „Schubert Club Soloist Competiti- on“ í Minneapolis 1988, hún hefur hlotið úthlutun úr styrktarsjóði Thor Thors og unnið til margvís- legra verðlauna og viðurkenninga á Norðurlöndum og víðar. Auður hefur leikið um gervöll Bandaríkin, í Kanada, Skotlandi, Norðurlönd- unum og nú síðast í Austurlöndum fjær. Og nú er hún kornin út á geisla- disk; Nocturne heitir fyrsti sól- ódiskur hennar, þar sem hún nýtur meðleiks Steinunnar Birnu Ragn- arsdóttur píanóleikara. Og er á för- um til Italíu og síðan fleiri landa til tónleikjahalds. Á hinum nýja geisladisk Auðar er að finna verk eftir Tchaikovsky, Massenet, Schumann, Bach, Hándel, Schubert, Sibelius, Saint- Saéns, Kreisler og fleiri snillinga tónlistarsköpunar. En af hverju verk eftir þessa sígildu snillinga? — Ég hafði í huga að leika Brahmssónötu inn á geisladisk ásamt öðrum verkum. Lagavalið á geisladisknum varð að lokum ann- að. Mig hefur lengi dreymt um að leika inn tónlist, sem kemur beint frá hjartanu og höfðar til allra — hreinræktaða tónlist fegurðar. Nú er ég til að rnynda á kafi í Brahms. Um tíma var ég að uppgötva ýmis- legt, sem minna hefur verið spilað eftir Grieg. En nú er ég sem sagt komin á kaf í Brahms. Og nú útlistar Auður Brahms fýrir mér af miklum ákafa. — Hann er svo tær og þykkur í senn. Hann er ljóðrænn í öllu sem hann gerir; ljóðum, sinfónjum og maður finnur myndræna tónlist streyma frá honum! .Auður stofnaði Trio Nordica, sent vakið hefur rnikla athygli heima og erlendis, kannski ekki síst íyrir hina þokkafullu og tilfinn- ingaþrungnu tónlistartúlkun hinna þriggja kvenna: Bryndísar Höllu Gylfadóttur, Monu Sandström og Auðar. — Menn gleyma stundum hvílíkir tilnnningabelgir og lausbeislaðir bohemar hin klassísku tónskáld VOru, segir Auður brosandi. Þetta voru skapandi listamenn, sem börðust við sinn innri mann svo stundum jaðraði við geðveiki. Til að túlka tilfinningar og blæbrigði margra verka þarf maður að gefa af sjálfum sér. Ef ég leik bara með puttanum er ég komin út í tækni- spilamennsku. Slík spilamennska er geld. Ég verð að leika með öllum líkamanum og hjartanu til að geta túlkað tónlistina. Þetta þýðir hins vegar ekki að ég geti ieyft mér ein- hverja stæla. Og hvernig skyldi tilfinningaleg túlkun ríma við innri persónugerð Auðar? Auður hlær með öllu andlitinu. — Ég er fædd í Voginni og á að vera jöfn í skapi. En ég er listamað- ur og það svarar spurningunni. Út á við er ég mjög skapgóð. En ef ég vil að eitthvað gangi get ég lagt allt á mig, verkefnið gagntekur hug minn. Ég er mjög fyrirferðarmikil þegar mikið gengur á. Kærastinn minn (Gunnar Gunnarsson ljós- myndari) kvartar mikið þegar ég kem heim eins og heil herdeild. Ég spyr hana um tónlist og aga. — Tveggja til tíu tíma æfingar á dag, svarar Auður stutt og laggott. Við ræðum lítillega um hvernig það sé að vera tónlistarmaður á Is- landi. — Island er frekar lítið segir Auður. Landfræðileg lega landsins háir okkur mikið. Ef maður væri til að mynda Svíi, hoppaði maður hik- laust upp í lest og væri kominn eft- ir nokkra tíma til Noregs, Dan- merkur, Finnlands eða kannski Þýskalands. Það er hins vegar dýrt að ferðast frá íslandi. En í raun tek- ur flugferðin ekki lengri tíma en lestarferðin frá Svíþjóð og jafnvel styttri tíma. Fjarlægðin er því orðin afstæð í dag. Auður hefur staðið í miklum ferðalögum undanfarin ár og miss- eri. Hún hefur ferðast um Evrópu, Bandaríkin og Asíulönd og haldið tónleika við góðar undirtektir. Og þegar þetta viðtal birtist á prenti stendur hún á sviði í Mílanó og heillar væntanlega ítalska áheyr- endur upp úr skónurn. En hve lengi ætlar hún að ferðast um heiminn? Ætlar hún að stofna fjölskyldu og eignast börn? — Auðvitað þrái ég að eignast börn og fjölskyldu. Takmarkið er að láta það gerast þegar ég er 32 ára eða svo. En maður þarf ekki hætta heimshornaflakkinu fyrir því, segir Auður með ævintýraglampa í aug- um. Þessi umræða leiðir okkur sjálf- krafa inn á þær veraldlegu fórnir sem listin krefst. — Ég vil ekki stilla lífinu gegn listinni, segir Auður alvarlega. Tón- listin er mikill hluti af lífi mínu. Ef maður einangrar sig og helgar sig eingöngu tónlistinni, stöðvast lífið og maður sjálfur um leið. Maður verður að lifa lífinu — sem er svo yndislegt — til að fá innblástur. Án innblásturs verður engin list til. Þannig haldast listin og lífið í hend- ur. Ég hef aldrei litið á tónlistina sem einhvern afmarkaðan hlut. Þess vegna er mikilvægt að lifa og gera allt mifli himins og jarðar. Ég spyr Auði meira urn innblást- urinn. — Ég hef sleppt því að semja rnúsík, segir hún. Maður þarf að vera svo góður í tónfræði, bætir hún við hlæjandi. En innblástur í túlkun? — Jaaaaáá... segir Auður og dregur seiminn. Maður þarf að gefa í tónlist. Maður fær ekki innblástur frá stólnum sem maður situr á heldur frá fólkinu. Ég fæ einnig innblástur frá öðrum listgreinum eins og fallegum listaverkum. Segj- urn til dæmis að ég sé að leika Brahms; hugurinn fer á flug og ég sé málverk fyrir hugskotssjónum mínum. Það getur til dærnis verið af landslagi; Brahms samdi mikið af sínum verkum úti í guðsgrænni náttúrunni. Það liggja ósýnilegir þræðir milli tónskáldsins og flytj- andans. Þess vegna eigum við spil- ararnir að hugsa eins og tónskáld. amspilið milli tónskálds og flytjanda er enn á borðum okkar um stund og leiðir af sér umræðu unt skapandi og túlkandi lista- menn. Og þá liggur beint við að spyrja Auði hvað sé eiginlega að gerast inni í hausnum á listamanni, sem túlkar listsköpun annars lista- manns. — Það er alveg sama hvar ég er að spila, segir Auður, - fyrir fullan sal eða bara eina manneskju: Ég hugsa hvað tónlistin sé falleg og hvað það sé gaman að spila. Stund- um get ég allt að því hrópað: Guð, hvað þetta er fallega samin tónlist! En auðvitað fer þetta eftir tónlist- inni. Ef ég spila til dæmis spænska tónlist þá get ég séð fýrir mér sen- jórítur. Annars hlýt ég að hafa verið Suðurlandabúi í fyrra lífi. Ég er með alla skapgerð Suðurlandabú- ans og mér líður best í Suður-Evr- ópu; það er eins og að koma heim. Leiki ég Brahrns þá hugsa ég mér geislahjúpinn í kringum tónskáld- ið. Að vera ástfangin er mesti inn- blástur sem til er: Ekki nauðsynlega af einurn manni, heldur lífinu sjálfu. Skyldi Auður hugsa um sína nánustu þegar hún spilar? — Nei, svarar hún brosandi, þá verður túlkunin of væmin! En í hægum og rólegum köflum reyni ég að hugsa um eitt- hvao atvik úr lífí mínu eða jafnvel atriði úr góðri kvikmynd sem fellur að blæ tón- listarinnar. Við höfurn talað nær sleitulaust um tónlist. Ætli Auður sér tónlist- arfrík eða á hún sér einhver áhuga- mál? — Áhugamál? spyr Auður eins og utan við sig. Já... ég ætla að fara að hreyfa mig meira, ekki bara puttana. Áhugamál? Áhugamál, já?... Það er náttúrlega alls konar tónlist, en þú meinar eitthvað ann- að en tónlist? Ég hef fengið aðeins áhuga á ljósmyndum eftir að við Gunni kynntumst. Og ég fer stund- urn á myndlistarsýningar, sérstak- lega ef ég þekki listamennina sem sýna. Þar með lýkur upptalningu Auð- ar á áhugamálum. Skyldi hún hafa áhuga á matargerð eða góðum mat? — Pasta! segir Auður og hlær. Ég borða varla annað. Er Auður trúuð manneskja? — Á allt hið góða í heiminum segir Auður án þess að hugsa sig um. Ég trúi á nauðsyn þess að vera góð manneskja og láta gott af sér leiða, segir Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari.H

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.