Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 28

Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 28
28 MORGUNPÓSTURINN VIÐTAL FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Egill Ölafsson „Úff... dag- unnn a mor Það þarf ekki að kynna þennan mann fyrir fiestum okkar en fyrir ykkur sem hafið eytt síðastliðnum tuttugu árum á eyðieyju þá er þetta Egill Olafsson leik- gun jafiivel strembinn er ari og söngvari. Við tyllum okkur í vinnu- herbergi á neðri hæð í húsi því sem Egill og kona hans, Tinna Gunnlaugs- dóttir leikkona, hafa um- breytt úr hrörlegum rúst- um er átti að jafna við jörðu, í eitt virðulegasta hús miðbæjarins. í hillum liggja bókmenntaverk eftir helstu snillinga ritlistarinn- ar og kassagítar stendur úti í horni. Það er rólegur mánudagseftirmiðdagur er við hefjum spjall. Egill hefur þýðan talanda og er ekkert að flýta sér þegar hann vill fínna réttu orðin til að leggja fram sitt mál þannig að boðskapur hans komist til skila. Hann er ekki uppi á neinum stalli þegar maður ræðir við hann, þvert á móti virkar hann miklu frekar eins og róiegur fjöl- cc skyldufaðir sem og hann er. Myndir þú segja að þú hefðir sterkt sjálfsálit? Er það ekki nauðsyn- legt íþínufagi? „Jú, en samt eru þetta frekar stellingar sem maður lærir að setja sig í, það er nauðsynlegt í bransan- um sem slíkum. En ég er ekki alltaf í bransanum, ég kem heim og þá er maður bara ósköp venjulegur. En manni lærist að setja upp ákveðinn skráp. Einhvers konar brynju. Þetta er vígvöllur þar sem menn ýmist komast af eða eru slegnir af.“ Ég heyrði það af vörum leikara að allir þeir erfœru út í leiklistina hlytu í fyrsta lagi að vera neurótískir eða geggjaðir á einhvern hátt, vœru að leita að ástúð eða viðurkenningu og upp til hópa með minnimáttark- ennd. Hvað finnst þér? „Ég held að leikarar séu eins mis- jafnir og þeir eru margir. Þú finnur allar tegundir af fólki í leikarastétt- inni. Flestir leikarar eru haldnir einhvers konar þörf til að sanna sig. Það á kannski við um alla menn. Það blundar í sérhverjum að vilja standa sig, að réttlæta sig með ein- hverjum hætti. Oftar en ekki eru leikarar fólk sem hefur áhuga á mannlegum kenndum og eiginleik- um. Áhugasamt um það sem er skrítið, jafnvel absúrd í fari mann- eskjunar. Þeir verða að hafa auga fyrir fólki og áhuga á innréttingum þess.“ Er eitthvað tímabil í mannkyns- sögunni sem þú hefðir frekar kosið að vera uppi á? „Já, ég hef oft sagt það að ég er að mörgu leyti miðaldamaður í mér, miklu meiri en nútímamaður. Miðaldir eru eitthvað sem mér finnst heillandi. Þá var ekki einn hlutur sem ég á erfitt með að sætta mig við og það er þessi sérhæfmg í nútíðinni. Ég hefði kunnað því mjög vel að lifa í samfélögum þar sem menn hefðu margvíslegan starfa. Bakari gat til dæmis einnig verið fiðluleikari sem lék í brúð- kaupum og fékk greitt fýrir það með korni. Verðmætamatið var öðruvísi. En þetta hefur að ein- hverju leyti verið mitt hlutskipti. Ég hef verið svona eins og Svíarnir kalla það, mongsýslari. Fengist við ýmislegt og alltaf átt erfitt með að takmarka mig við eitthvað eitt. Margir spyrja mig, „hvenær ætlar þú að fara snúa þér fyrir alvöru að Ieiklist?“ Mér finnst erfitt að ein- skorða mig við eitthvað eitt.“ Því er nú jafnan skotið að manni að ef maður sérhœfi sig ckki og sé með of mörg járn í eldinum þá geri maðurfátt vel í staðinn. „Ég er alveg tilbúinn til að hlusta á það, en það breytir ekki mínu eðli. Maður verður líka að hugsa þannig að það er oft betra að halda sönsum en ná árangri." í hverju sefur þú? „Engu.“ Er guð til? „Já. Innra með sérhverjum er vit- und um guð.“ Ást eða peningar? „Ást, og sækja kraft sinn sem mest út á ódáinsakurinn." Þú komst þér í gegnum þetta, en þá; peningar, kynlíf eða völd? „Jahá. Já. Peningar geta þýtt vald, ekki satt? Völd geta þýtt peningar, kynlíf getur líka svo sem þýtt vald. Þannig að ég myndi velja pening- ana. Það er kannski hægt að lifa án kynlífs en það er ekki hægt að lifa án peninga. Það er ekki hægt að lifa á ódáinsfæðunni einni saman. (Spurningin gerir líka ráð fyrir að eitt af þessu þrennu sé valið, úff!)“ Ertu feiminn? „Já. Hef alltaf verið feiminn. Bæði við sjálfan mig og aðra. Fyrst og fremst við sjálfan mig. En ég hef tekist á við mótsagnir í sjálfum mér, annars vegar hina „meðfram- veggjumsjúklegu“ feimni og hitt, þörfina fyrir að brjótast út úr eigin helsi, upp út til ljóssins, ögra sjálf- um sér, standa ískalt og rólega upp í íjölmenni og byrja að tala og þá að syngja.“ Hvar sérðu sjálfan þig eftir svona tíu ár? „Úff...Ég kem mér hjá því að hugsa svo langt. Dagurinn á morg- un er jafnvel strembinn.“ Hefur frœgðin breytt þér? „Nei, ég er þekktur á þessum litla bar — Islandi — þar sem aliir eru meira og minna nafntogaðir. Ég er einn af þeim og þeir eru ég.“ Hvað er það algengasta að fólk misskilji við Egil Ólafsson? „Að ég sé montinn og hrokafull- ur þegar ég er að reyna að halda höfðinu frá smásmugu og skít.“ Sérðu eftir einhverju? „Já ég sé eftir mörgu. En ég held ég sé búinn að læra að lifa með því og sumt af því sem ég sé eftir er far- ið að lifa sinu sjálfstæða lífi, hefur líka dáið, gleymst og hverfur með tímanum.“ Baldur Bragason

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.