Helgarpósturinn - 08.12.1994, Blaðsíða 29
Meistarastykki
Olympia
★ ★★★★
Sigurjón Kjartansson hefur
verið fyrirferðarmikill í „framsæk-
inni“ tónlist undanfarinna ára.
Hann var annar meginása rokk-
sveitarinnar Ham og sömuleiðis í
dansbandinu Funkstrafíe. Báðar
þessar sveitir eru íyrir bí, en Sigur-
jón hefur sameinað það besta úr
báðum og dregið saman undir
merki Olympia, sem er einstak-
lingsframtak hans, þó svo hann
njóti vissulega aðstoðar góðra
manna. Olympia verður fyrst og
fremst að teljast til danssveita, en
rokkhljómurinn er svo ósvikinn að
Ham-aðdáendur geta tekið gleði
sína á ný. Eins og tíðkast í tækni-
væddri danstónlist eru hljóðgervlar
alls kyns í hávegum hafðir, en Sig-
urjón notar bjagaðan metal-gítar-
inn mjög til þess að vega upp á
móti. Off á tíðum er hann í raun
ekki fjarri því sem þýska bandið
Die Krupps hefur ástundað.
Þetta væri þó bara útsetninga-
leikfimi ef ekki kæmi til það sem
gerir Olympia einstaka. Rödd Sig-
urjóns er nefnilega aðalhljóðfærið
og hann nýtir magnþrungna og fal-
lega bassarödd sína til fullnustu.
Lagasmíðarnar eru allar með tölu
fyrirtakspopplög, en með mónú-
mental útsetningum og drynjandi
rödd umvefur hann tónlistina got-
nesku myrkri, líkt og rómantíkerar
síðustu aldar voru alltaf að reyna að
strá í kringum sig. Afurðir þeirra
virka hins vegar oftar en ekki hjá-
kátlega, en tónsmíðar Sigurjóns
stórfenglega og skemmtilega í senn,
því hann leikur sér að þessu án þess
að stíllinn flækist fyrir
honum. Til þess að þetta
fari nú ekki fram hjá nein-
um eru textarnir svo dá-
samlega banal að engu tali
tekur. Auðvitað heyrast
klisjur eins og í öllu poppi,
en jafnvel þegar þær eru
annars vegar á Sigurjón
það til að leika á hlustand-
ann og taka til við frasa,
sem menn eiga fremur að
venjast í ldassík en poppi.
Helsti galli þessarar
skífu er hvað hún er stutt,
ekki nema um 45 mínútur.
Hún mætti vera miklu
lengri og til dæmis hefði
verið í góðu lagi að láta
lagið „Hvert sem er“ fylgja
með, þó svo það sé á ís-
lensku, en það kom út á
Lýðveldisdiski Smekk-
leysu í sumar.
Það er ekki oft sem út
kemur danstónlist á ís-
landi, sem jafnframt er
þess virði að hlusta á
heima í stofu; helst að
Todmobile og niðjar
hennar hafi framleitt slíkt.
Hér kveður hins vegar við
nýjan tón á stórglæsilegan
hátt og það sem meira er,
platan er þrælskemmtileg.
Andrés Magnússon
Hvort sem menn fíla
rokk, klassík, popp eða
danstónlist er þetta skífa
við þeirra hæfi. Hún er
bæði frumleg og
skemmtileg, sem er ekki
algengt þessi jólin.
Metsölubókin Þú missldlur mig er eftir bandarisku
m \ málvísindahmuna Deborah Tannen ogftallar hún
t \ áfrœðandioglifandiháttumhiðþekktavanda-
\ mál fy’njanna: tjáskiptin. Tannen útskýrir með
j dœmum úr hinu daglega lífi hvemig og hvers
vegna konur og karlar misskilja hvort annað.
I Þú misskilur mig er bók um málejhi sem kemur
/ öllum við og allir œttu að velta rœkilega fyrir sér.
/ Þetta er nauðsynleg bókfyrir þá sem vilja bæta
/ samskipti sín við hitt kynið.
y' „Afarþaift innlegg í hina sígildu umrœðu um JÉttr
samsldpti kynjanna.'' Guðrím Egilson, Nytt lif. ÆjMl
„ Gem œtti Þú missMur mig að sMdulesningu 11
fyrirknrlaístjómmálum.“EyjólfurSvemsson, f 1
aðstoðarmaðurforsœtisráóherra, áfimdi um I
jafhréttismál.
„Á blaðsíðum bókarinnar sjá lesendur hvað l
eftir annað samrœður og misskilning sem þeir \
þekkja úr eigin lífi.“ San Francisco Chronide. \
ALMENNA BÓKAFELAGIÐ
alMenna BÓKAFÉLAGIÐ
pm&
m&m &m
fóffi wmí
íþjónustu forsela og ráðherra segir Birgir Thorlacius
á sérlega skemmtilegan háttfrá fólki sem hann kynntist og
skringilegum atburðum sem gerðust á þeim 50 árum sem
hann starfaði í Stjómarráði íslands.
b Birgir vann með og kynntist vel sjöforsœtisráðherrum og
K V. tveimurforsetum; hann varð náinn vinur sumitt en var
“ öndverðum meiði við aðm. Á staifsvettvangi Birgis
Q gerðistfjölmaigt sem ekki var á allm vitorði, en
; hann segir núfráá sinn sérstceða hátt.
Um Bjama Benediktsson: „Rœddum við stðan
málin vinsamlegaogskildum kurteislega að
sjálfsögðu, en hvorugur mun hafa saknaó hins
til muna. “
dþsS ÓlafurThorsviðbílstjómsinnsem
tekinn var ölvaður við akstur:
,Nú verður annar okkar að hætta að drekka. ‘
N Ú E R RÉTTI TÍMINN TIL A Ð FÁ SÉR GSM FARSÍMA
um helgar!
í desember og janúar gefst GSM farsímaeigendum kostur á
að hringja gjaldfrjálst um helgar.* Tilboðið gildir frá
10. desember 1994 til 29. janúar 1995 á tímanum frá
kl. 20:00 á föstudagskvöldum til kl. 08:00 á mánudagsmorgnum.
PÓSTUR OG SÍMI GSIiD'
*Tilboðið á ekki við um símtöl til útlanda eða í Símatorg. Símtöl í GSM
farsímakerfið úr venjulegum síma eru gjaldfærð á venjulegan hátt.