Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 30
30
MORGUNPÓSTURINN MENNING
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
„Sælar konur. Ég er 34 ára gamall maður. Ég er hávaxinn, dökkhœrður og alveg
bráðmyndarlegur. Ég tel mig vera gæddan ýmsum kostum, ég er traustur, heiðarlegur,
rómantískur og barngóður. Ég er vel menntaður og ígóðri vinnu, og bara tiokkuð vel
stæður. í rauninni skortir ekkert í líf mitt nema ástina og er ég að vonast til að þetta
símtal leiði mig á vit hennar. Ef þú ert myndarleg kona á aldrinum 25 til 35 ára ýttu þá
endilega áiog kannski verðurþað upphafið að yndislegu ævintýri.
Fullutn trúnaði að sjálfsögðu heitið. Takkfyrir.“
Það er beðið eftir þér á Stefnumótalínunni
90 mínútan
Spáð í spilin — hvaða matur á við hvern?
Hangikjöts-
& rjúputýpur
Einhvers staðar segir að maður-
inn sé það sem hann étur og matur-
inn er vissulega í öndvegi á að-
fangadagskvöld sem nálgast með
ofurhraða. MORGUNPÓSTURINN
hringdi í matreiðslumeistarann
Úlfar Eysteinsson og fékk hann
til þess að persónugera hefðbundna
jólarétti. Svo var skotið út í loftið
— hvaða réttir eigi við hvaða per-
sónur (sem valdar eru af handa-
hófi) í ljósi opinberrar ímyndar.
Rétt er að undirstrika að ekki er vit-
að hvað viðkomandi hefur á jóla-
borðinu sínu en ef einhver telur sig
vera hangikjötskarl en reynist vera
rjúputýpa, þá væri nú kannski rétt
að endurskoða matseðilinn.
HANGIKJÖT
Þetta er týpískasti, íslenski rétt-
urinn sem til er í sambandi við jóla-
mat. Hann er ekki föðurlandsvinur
sem ekki borðar hangiket á jólun-
um, segir Úlfar. Hangiketið er rétt
að bera fram kalt í þunnum sneið-
um og gefa með því uppstúf krydd-
að með múskati. Laufabrauðið er
engin spurning, grænar orabaunir
(mjölmiklar og mjúkar — önnur
stærsta útflutningsvaran okkar um
jólin og er að berjast við ópalið og
prins pólóið) og rauðkál.
Sá sem liefur liangikjöt á sínum
borðum er hefðbundinn í háttum,
heldur í gömul gildi, kannski ekki
gamaldags en allt að því.
HANGIKJÖTSTÝPUR
Magnús Bjarnfreðsson
Sigrún Stefánsdóttir
Ólafur G. Einarsson
Steingrímur J. Sigfússon
Eggert Haukdal
Skúli Gautason
Ólína Þorvarðardóttir
Heimir Steinsson
Mörður Árnason
Ólafur Skúlason
Regína Thorarensen
Silja Aðalsteinsdóttir
HAMBORGARHRYGGUR
Þeir sem borða hamborgarhrygg
gera það gjarnan í fimmtán ár í röð,
þetta er það góður jólamatur, létt
með farinn og traustur. Meðlætið:
Rauðvínssósa og sykurbrúnaðar
kartöflur ganga yfirleitt vel í fólk
ásamt dönsku hefðinni að vera með
aspasuppstúf og vegur á móti salt-
bragðinu.
Sá sem hefur svínakjöt á sínum borð-
um er traustur og leggur áherslu á
það að hlutimir séu á sínum stað.
Ekki týpan sem sœkir vatnið yftr læk-
inn og vill liafa sitt á þurru.
HAMBORGARHRYGGSTÝPUR
Davíð Oddsson
Ari Gísli Bragason
Ólafur Ragnar Grímsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Magnús Ver
Sverrir Hermannsson
Björn Bjarnason
Eggert Skúlason
Þórunn Gestsdóttir
Hörður Sigurgestsson
Örn Árnason
Halldór Ásgrímsson
RJUPUR
Rjúpan er millistétta- og há-
stéttajólamatur ásamt veiðimanna-
fjölskýldum. Þeir sem borða rjúpu
á jólunum gera það alla ævi, þeir
breyta því ekki nema þeir giftist á
skjön inn í aðra fjölskyldu sem hef-
ur ekki rjúpu á jólahlaðborðinu og
það lyftist ekki brúnin á viðkom-
andi fyrr en hann kemst heim til
mömmu til að narta á rjúpuleifun-
um heima. Með rjúpu vill Úlfar
bera fram sósuna sem ber máltíð-
ina uppi, villiberjasósu með títi-
berjum, gráðosti og rjóma. Með
þessum rétti er oftast borið fram
Waldorfsalat; mjög smátt söxuð
sellerírót (sem er soðin), eplum,
hnetukjörnum og majonesi, sítróna
og pínu rjómi, þá er uppskriftin
komin. Kartöflur oft sykurbrúnað-
ar eða pönnusteiktar.
Sá sem hefur rjúpur á sínum borðum
hefur til að bera snert af nýjungar-
gimi í bland við hefðbundinn hugs-
unarhátt, er fyrir áhœttu en þorir þó
ekki oflangt.
RJÚPUTÝPUR
Edda Heiðrún Backman
Rósa Ingólfsdóttir
Carl J. Eiríksson
Össur Skarphéðinsson
Diddú
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Valgerður Matthiasdóttir
Valdimar Örn Flygenring
Tómas Ingi Olrich
Valgeir Skagfjörð
Kristín Ástgeirsdóttir
Helgi Pétursson
Helgi E. Hclgason
Halldór Guðmundsson
KALKUNN
Kalkúnninn er uppajólamatur-
inn og þar vill hinn ungi uppi
standa með hnífinn og stálið og
sýna hvað hann er klár eins og í
Varið í bíó
með Aqli
amerísku myndunum frá í thanks
giving, sýna veldi sitt, líta niður á
borðgesti og skammta þeim á disk-
ana. Stöffmgið er þungamiðjan í
matreiðslunni, væta aumingja-
brauð í rjóma og hakka hjörtu og
lifur samanvið og rista beikon í litl-
um bitum ásamt lauk, krydda með
maríom, timian og oregano eftir
smekk. Síðan má bæta salti eða ör-
litlum kjötkrafti. Tvö egg út í það.
Gott að eiga stöffmg í formi þannig
að það sé hægt að eiga til hliðar
líka. Svo er það ameríkan graví,
maískorn er gefið með og það
grænmeti sem til er ferskt, ristaðir
sveppir, steiktar gratíneraðar kart-
öflur passa einnig vel með.
Sá sem ber fram kalkún á aðfanga-
dagskvöld er nýjungagjarn og stefnir
fram á við. Gallinn er sá að þetta er
karakter sem ekki virðir reynsluna og
verðurþví oft á.
KALKÚNATÝPUR
Friðrik Sophusson
Hans Kristján Árnason
Friðrik Weisshappel
Jón Óttar Ragnarsson
Leoncie
Hermann Gunnarsson
Bergþór Pálsson
Heiðar Jónsson
Páll Óskar
Ilannes Hólmsteinn
Guðmundur Árni Stefánsson
Ásgeir Hannes
Davið Scheving
JBG
PS. Rétt er að taka fram að Úlfar
átti engan þátt í að ákvarða hver er
hvaða týpa.
Fimm stjörnur í Prövdu
Gangið niður dimma ganga kvíkmyndahúsanna með Agli
Bióborgín
Sérfræöingunnn The Specialist ★
Gengur út á aó sýna líkamsparta á
Stone og Stallone. Þeir hafa margt til
sins ágætis en sólgleraugun eru best.
I blíðu og stríðu When a Man Loves
a Woman ★★ Nákvæm og afarlöng
lýsing á alkóhólisma ívæmnum
thirtysomething-stii.
Fæddir morðingjar Natural Bom
Killers ★★ Boðskapurinn erað Am-
erika sé gegnsýrð af ofbeldi. En Oli-
ver Stone er ekki siður hugfanginn af
ofbeldinu og hinir.
Bionoilin
Villtar stelpur Bad Girls ★ Þrjár flott-
ar dömur og eitt bimbó í villta vestr-
inu.
M. Butterfly ★★ Mynd eftir Cronen-
berg en berþess samt engin merki,
heldur er þetta fremur þyngslaleg lýs-
ing á stóreinkennilegu ástarsam-
bandi.
Skýjahöllin ★★ Fyrirbörn sem gera
ekki miklarkröfur um persónusköpun.
Leifturhraði Speed ★★★ Keanu Ree-
ves er snaggaralegur og ansi sætur.
Sannar lygar True Lies ★★
Schwarzenegger kann ekki að dansa
tangó en finnur ótal brögð til að nið-
urlægja konuna sina.
Háskólabíó
Heilagt hjónaband Holy Matrimony
★ Ein lítil hugmynd sem reynt er að
treina með annarri ennþá minni.
Daens ★★★ Örsnauður öreigalýður
lætur iðnbyltingarkapítalista fara illa
með sig. Gamaldags sósíalrealismi
en á köflum áhrifarikur á að horfa.
Mynd sem hefði fengið fimm stjörnur
ÍPrövdu.
Blown Away íloft upp ★★ lllmennið
er besta lýsing á IRA-manni sem hef-
ur sést i kvikmynd.
Þrir litir: Hvitur Trois couleurs:
Blanc ★★★★ Mynd sem segir frá
þvi hvað er mikill vandi að vera mað-
ur, og vandar sig við það.
Bein ógnun Clear and Present Dan-
ger 0 Strákar, passiö ykkur ef þið
Daf.ns
HAsköi.abíö
★★★
Bakkabræður I ParadIs
Regnboginn
★
Það er haft fyrir satt að Karl
Marx hafi reist kenningu sína á því
að falsa tölur um lífskjör verka-
manna í spunafabríkkum í iðnað-
arhéruðum Englands. Marx hag-
ræddi tölunum þannig að þær
sýndu að líf verkafólks varð ömur-
legra og ömurlegra, meðan iðju-
höldar urðu ríkari, feitari og gráð-
ugari. Af þessu dró Marx þá niður-
stöðu að það væri sögulega óhjá-
kvæmilegt að fljótlega brytist út
bylting, öreigarnir tækju völdin og
borgarastéttin fengi hvergi að þríf-
ast. Staðreyndin var hins vegar
þveröfúg. Líf verkamanna skánaði
frekar en hitt; á endanum var það
orðið svo sæmilegt að vonlítið var
að teyma neinn út í byltingu nema
á asnaeyrunum.
Ekki það að líf alþýðu á tíma
iðnbyltingarinnar hafi verið sælt
eða fagurt. Fyrir mörgum árum
kom ég á safn í þýsku borginni Es-
sen sem helgað var sögu þessa
tímabils í Ruhr-héraðinu. Þar voru
líkön, sum í fullri stærð, af skítug-
um verksmiðjusölum og djúpum
námapyttum þar sem börn, konur
og karlar þræluðu í sagga og ólofti
innan um maskínur sem með vél-
kjöftum sínum sátu um líf þess og
limi.
1 svona umhverfi gerist belgíska
bíómyndin Daens. Þetta er afar
gamaldags sósíalrealismi, það er
alveg víst að hún hefði fengið
fimm stjörnur í Prövdu, þótt mér
finnist eins og meira að segja Sov-
étmenn hafi verið hættir að gera
svona myndir áður en yfir lauk.
Verkamennirnir eru góðir og
hjartahreinir, séu þeir það ekki er
það vegna einhvers misskilnings
eða vegna þess að þeir hafa verið
rændir allri mannlega reisn. Kapít-
alistarnir eru slægir eins og högg-
ormar; þeir svífast einskis til að
hafa af alþýðunni brauðið, æruna
og líftóruna. Söguhetjan, klerkur-
inn Adolf Daens, er hugumstórt
hetjumenni sem þarf að gera upp
hug sinn milli kirkju og verkalýðs.
Auðvitað velur hann rétt og á end-
anum gengur hann hnarreistur í
fararbroddi verkamanna — var
það ekki kallað að vera með storm-
inn í fangið?
Máski er þetta einfalt, en það er
ekki lélegt. Myndin er geysifallega
tekin, í senn stór í sniðum og stíl-
hrein, og músíkin er fjarska áhrifa-
rík. Á köflum nær þetta næstum að
verða hrífandi, þegar kvikmynda-
vélinni er lyft upp með krana og
hinn snauði lýður þrammar í fylk-
ingu — það liggur við að manni
svelli móður.
Ætli einhver að reyna að pína sig
í jólastemmningu er Regnboginn
tæplega rétti staðurinn. Bakka-
brœður í Paradís verða þess varla
valdandi heldur að neinn glati
jólastemmningunni sem hana hef-
ur fúndið á annað borð — myndin
skiptir í rauninni engu máli til eða
frá.
Þrír seinheppnir smákrimmar
ræna banka í fyrirmyndarsmá-
bænum Paradís. Þar eru allir svo
frábærlega góðir að bófarnir sjá
villu síns vegar áður en jólin eru
liðin hjá. Heitir það ekki andi jól-
anna? Fyrst hann virkaði á Ebenez-
er Scrooge á hann ekki í miklum
vandræðum með að leggja þessi
smámenni að velli.
-Egill Helgason
ætlið að bjóða stelpu á þessa mynd.
Þið megið vita að hún fer út i hléi og
þið sjáið hana aldrei framar.
Forrest Gump ★★★★★ Annað
hvort eru menn með eða á móti. Ég
er með.
Næturvörðurinn Nattevagten ★*★
Mátulega ógeðsleg hrollvekja og á
skjön við huggulega skólann í danskri
kvikmyndagerð.
Fjögur brúðkaup og jarðarför Four
Weddings and a Funeral ★★★
Breska yfirstéttin makar sig í ágætri
kómedíu. Hugh Grant er sjarmerandi
hjálparvana og konur vilja bjarga hon■
Laugarásbío
Gríman The Mask ★★★ Myndin er
bönnuð innan tólfára og þvítelst
lögbrot að þeir sjái hana sem hafa af
henni mest gaman — tíu ára drengir.
Ögrun Sirens ★★ Hugh Grant er
sætur og þarna eru líka sætar stelpur
sem eru tit íað fara úr fötunum.
Regnbogrnn
Bakkabræður i Paradís Trapped in
Paradise ★ Jólamynd sem kemur
varla neinum íjólaskap en tekst
sennilega ekki að eyðileggja það
heldur.
Reyfari Pulp Fiction ★★★★★ Tar-
antino er séni.
Undirleikarinn L'accompagnatrice
★★ Aðaltilgangurinn erað láta leikar-
ann frábæra, Richard Bohringer, hitta
fallega og svarteygða dóttur sína,
Romane.
Lilli er týndur Baby’s Day Out ★
Verst að óheppnu þrjótarnir eru ekki
vitund fyndnir.
Allir heimsins morgnar Tous les
matins du monde ★★★ Músikin er
falleg, en myndin ekki annað en kvik-
mynduð skáldsaga.
Svikráð Resevoir Dogs ★★★★ Frá-
bært blóðbað þarsem smákrimmar
eru fáránlega alvörugefnir mitt íallri
dellunni.
Sögubió
Sérfræðingurínn The Specialist ★
James Woods er svo góður sem
vondi karíinn að maður kemst ekki
hjá þvíað halda með honum.
Stjörnubio
Einn, tveir, þrír Threesome ★★★ Allt
snýst um uppáferðir og er fullt af
gatsa og laust við tepruskap. Möst
fyrir karla og konur á aldrínum 14 til
20.
Þaö gæti hent þig It Couid Happen
to You ★★ Ríkt fólk heldur að ástin
veiti lifshamingju en fátæklingar vita
að það eru peningar.
Biódagar ★★★ Margt fallega gert en
það vantar þungamiðju.
Flóttinn frá Absalon Escape from
Absalon 0 Voru þeir ekki hættir aö
sýna þessa?