Helgarpósturinn - 08.12.1994, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN MENNING
31
í
KRABBAMEINSFEL
VEITTU STUÐNING
I þetta sinn voru miðar sendir konum, á ^ldri, lum 23ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim
sem þegar hafa borgað miöana og minnum hiná á jbðan málstað og verðmæta vinninga
Greiða má í banka, sparisjóði eða pó'stafgreiðslu til hádegis á aðfangadag jóla.
Vakin er athygli á því að hægt er að borgímieö greiðslukorti (Visa, Eurocard).
Hringiö þá í síroa~(9<1) 621414.
í ^fflte
Hver keyptur miði eflir sókn og vörri gegn krabbameini!
krrtik
íslenskt kýrkjöt
ogpakkasúpa
LAGSINS 1994
-VERTU MEÐ!
75 ára. Við þökkum öllum þeim
Sýn
Listasafn Kópavogs
SaMSÝNING 3. DES.-18. DES.
★ ★★★★
Listamennirnir eru á röltinu og
það er margt skrafað á kaffihúsum
og vinnustofum félaganna, eða þá að
þeim tekst að kveikja hver í öðrum,
þegar svo ber undir, með brennivín-
inu og gerast þeir þá opinskáir og
láta ýmislegt flakka; — sem þeir ein-
ungis geta fóðrað seinna með
blackouti eða stundarbrjálæði.
Gagnrýnandinn er svo álengdar í
miðilshlutverkinu; hann gerir sér
mat úr skeggræðunum og gefur þá
stundum listamönnunum kost á að
lesa það á prenti sem borið hefur á
góma um þá sjálfa í skrafi félaganna.
Þetta miðils- og þýðingarstarf getur
stundum verið vanþakklátt því hið
viðtekna viðkvæði listamannanna er:
„Ég hef nú mínar skoðanir á listinni
og listamönnunum, en ég hef aðrar
leiðir við að koma þeim á framfæri
en í ræðum og fyrirlestrum eða á
prenti; en sérstaklega er allt mitt vit
best geymt í verkunum mínum.“
Margt ætti því að vera skrafað um
sýningu sex af fremstu myndlistar-
konum þjóðarinnar, sýningu sem
sett hefur verið þrisvar upp í þremur
löndum. Við fyrstu sýn eru ein
helstu tíðindin við þessa sýningu þau
að fyrir henni er skrifaður sýningar-
stjóri sem þó er karl en telst trúlega
slíkur kvenréttindamaður að hann er
jafnan hafður efstur á blaði enda er
hann málpípa kvennahópsins, eins
og haninn er í sínum hópi. Sýningar-
stjórum er jafnan mikill vandi á
höndum þegar setja á saman trú-
verðuga samsýngu. Á þemað að vera
annað kynið, kynjajafnræði, hjón,
barna- og fjölskyldufólk, lesbíur og
hommar, sami aldur eða mismun-
andi kynslóðir, sama þjóðerni eða
fúlltrúar mismunandi þjóða, þeir
sem mála eða gera tvívíð verk, þeir
sem gera þrívíð verk, þeir sem nota
blandaða tækni, innísetningar og
gerninga, framúrstefnumenn eða
íhaldið, þeir sem gera bestu verkin
með hvaða tækni sem er, gæðablóð
og hjartahreinir, jaðarmenn og þjóð-
legir, þeir sem eru öðru hvorum
megin við núllpunktinn, heimsfræg-
ir eða dauðir, klíkur, kunningjar og
vinir, þeir sem eru utan félaga eða þá
í Nýlistasafninu, FÍM, SÍM, NKKK,
NKF, MHÍ eða KFÚK, og svo fram-
vegis? Já, vandinn er mikill og starf
sýningarstjórans er erfitt, og því
þeim mun meiri fögnuður yfir að sjá
nú sýningarstjórann sigla fimlega í
örugga höfn með átakalausu leiðar-
stefi: íslenskar konur á sama aldri
sem allar búa í sama hverfinu í
Reykjavík og sem jafnframt eru
hneigðar til myndlistariðkunar.
Þetta minnkaði úrtakið svo mikið að
sýningarstjórinn þurfi ekki að velja
neitt, heldur bætti fremur einni
konu við sem var utan hverfis og ára-
tug yngri til að dylja hina sjálfgefnu
vinnuaðferð fyrir öðrum sýningar-
stjórum.
Það þarf svo ekki að geta þess, að
allar þessar konur hafa á undanförn-
um árum sýnt bæði heima og er-
lendis, líklega væri vissara áður en
langt um líður fyrir konurnar að taka
upp eins atkvæðis listakonunöfn því
það er ekkert vit í því að láta heims-
frægðina daga uppi upp í útlending-
unum sem koma ekki nöfnunum út
úr sér. Þarna sýnist mér komið enn
eitt verkefnið fyrir sýningarstjórann,
ef vel gengur verða konurnar
kannski allar orðnar óþekkjanlegar
en auðveldar í ffamburði þegar sýn-
ingin verður sett upp í fjórða sinn.
En gagnrýni sem minnist ekki á
verkin og höfúndana er engin gagn-
rýni. Hvað veitir sýning sem ber
nafnið „Sýn“ innsýn í, spyrja nú
hverjir aðra?
Ráðhildur Ingadóttir sló fýrst í
gegn fyrir nokkrum árum með sýn-
ingu sinni í Gallerí einn einn, þaðan
lá leiðin í Nýlistasafnið þar sem hún
kvaddi sér hljóðs sem skúlptúristi í
blandaðri tækni með því að sýna
inniskóna sína. Nú sýnir hún verk
byggð á huglægu rými þar sem hún
leggur jöfnum höndum útfrá plat-
ónsku ári og Seríoshringjum. Ekki er
laust við gamansemi af hálfu Ráð-
hildar nú þar sem hún kallar verk sitt
„Aðdráttarafl“. Form
Svövu Björnsdóttur verða
til við guðlegan innblástur. í
stað þess að mála blandar
hún litadufti út í pappa-
massann steypir síðan í
mót, þannig verða verkin
bæði þung og létt í senn
með margvíslegar skírskot-
anir bæði inn á við og út á
við. Verk Sólveigar Aðal-
steinsdóttur eru gjöful,
svaiandi . og spennandi,
enda hefúr hún breytt sýn
okkar á ruslið sem hún end-
urvinnur á huglægu plani
en sýnir svo í hlutlægu plani
og gerir að síðmódernísk-
um rýmisverkum þar sem
hún klæðir svampinn í
prjónanærboli. Huldu Há-
kon þarf vart að kynna þar
sem hún fetar einstigið milli
heimslistar og heimalistar
með sitt Gagn og gaman í
höndum. Vegir listarinnar
eru órannsakanlegir, eða
eins og hún segir: „í Ástralíu
var mér sagt að ég ætti að
fara til Grikklands, því
Grikkir væru hrifnir af nor-
rænum konum.“ Guðrún
Hrönn er með ljóðrænt út-
spil sem kemur ffam í sam-
runa hugmyndalistar og
formhyggju. Hún nálgast
listina ekki sem húsgagna-
smiður heldur sem verkleg-
ur djúphugsuður og stend-
ur nú uppi með forláta skáp
og ljóstýru í krukku og hillu
með kögri. Inga Þórey
glímir kannski við verðug-
asta verkefnið.sem er sam-
runi sæðisfrumna og brjóst-
sykurs með skírskotunum í
liti, Ijós og iandslag.
Kannski bera skynrænar til-
finningar og sögulegar skír-
skotanir verkanna, innan
þanþols hinnar síðmóder-
nísku heimsmyndar sem
breytir sýn okkar á raun-
veruleikann, vott um að
skottið á sæðisfrumunum
sé aldrei langt undan. Is-
lenskt kýrkjöt og pakkasúpa
hefði því verið vel við hæfi á
opnun. Sigurður Hall hefði
séð um kjötið, en Halldór
og konurnar kunna vafa-
laust tökin á pakkasúpun-
um. Það er því ekkert annað
effir en að segja verði ykkur
að góðu — ekki er að efa að
ekki hefði staðið á gestun-
um.
Hannes Lárusson
Imyndið ykkur að þið sé-
uð stödd á íslandskynn-
ingu þar sem Sigurður
Hall fer á kostum í kýr-
kjötinu en Halldór B.
Runólfsson eldar nor-
ræna pakkasúpu af jafn
mikilli snilld. Veislu-
borðið er hlaðið: skyn-
rænar tilfinningar, verk-
leg djúphugsun, síðmó-
dernískt þanþol, sögu-
legar skírskotanir sem
breyta raunveruleikan-
um... — En kannski hef-
ur soðið upp úr pottun-
um... Hin opinbera
stjörnugjöf er fimm en á
röltinu ein. Fyrir áhuga-
sama eru uppskriftimar
í Gagn og gaman.
I Bankabókinni fen lesandinn á
bak við tjöldin í peningastofnunum
landsins í fylgd með Nóra, sögu-
manninum ún „Kolknabbanum", og
faen m.a. að gægjast inn þan sem
útvalin stórmenni á þneföldum
náðhennalaunum sitja í góðu
yfinlæti við að ákveða vexti,
venðbætun og þjónustugjöld
handa þén að bonga.
Nóri fer á kostum og frændfólk
hans er ekki að skafa utan af
því frekar en fyrri daginn.
Vissin þú að útlánatöp
síðustu þniggja ána jafngilda
venðmaeti allnan byggðan í Bneiðholti?
Vissin þú að Seðlabankakónguninn van
sömuleiðis stjónnanformaðun þess
fynintaekis sem sló metið i tapnekstni á
íslandi 1 SS3 og skuldan meina en allun
íslenski sjávanútveguninn samanlagt?
Bókaútgáfan
Fax: 2 ~75 1 A
HVÍTA HÚSIÐ / SlA