Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 32

Helgarpósturinn - 08.12.1994, Síða 32
32 MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1994 Jólakúlur og sápukúlur Leikhúsin virðast komin í jólafrí og engar sýningar verða á stóru svið- unum fyrr en um jól, utan tveggja uppseldra sýninga á Verdi-óper- unni og aukasýningar á Dóttur Lúsífers í ÞJóðleikhúsinu. En „- litlu“ leikhúsin halda sínu striki. Hinn frábæri Kirsuberjagarður verður sýndur þrisvar um helgina hjá Prú Emilíu og Kaffileikhúsið býður upp á næst síðustu sýningu á Sápu eftir Auði Haralds föstudag- inn 9. des. Þar leysir Edda Björg- vinsdóttir Erlu Ruth Harðardóttur af þar sem „sápu“kúla hennar er við það að springa eins og segir í skemmtilegri fréttatilkynningu frá Hlaðvarpanum. Óléttar leikkonur eru víst ekki óalgengar í leikhúsun- um; fýrir sléttum 17 árum, þann 9 desember 1977, fór Edda Björgvins einmitt beint úr uppklappi í Nem- endaleikhúsinu og uppá fæðingar- deild. Enginn skuggi enn Hinn áhrifamikli léikjráttur um sifjaspell og afleiðingar þess, Þá mun enginn skuggi verða til, eftir Björg Gísladóttur og Kolbrúnu Ernu Pétursdóttur hefur verið sýndur víða um land á vinnustöð- um og hjá félagasamtökum. Vegna mikillar aðsóknar verða fýrstu tvær „opnu sýningarnar“ í Kaffileikhús- inu í Hlaðvarpanum fimmtudag- ana 8. og 15. desember. Möguleiki á umræðum eftir sýningu. Rétt er að geta þess að sýningin er ekki við hæfi barna. Leikkona er Kolbrún Erna en leikstjóri Hlín Agnarsdótt- ir. Fimmtudagur Vald örlaganna ★ ★★★ (Jónas Sen) Næstsiðasta sýning og uppselt. Þjóðleikhúsið kl. 20.00 Dóttir Lúsifers ★★★★ (Margrét Örnólfs). Aukasýning. Þjóðleikhúsið, Litla sviðið kl.20.30 Hárið ★★★★ íslenska óperan kl. 20.00 Trítiltoppur ★★★ Barnaleikrit. Möguleikhúsið kl. 10.00 og 14.00 Þá mun enginn skuggi verða til Leikverk um sifjaspell. Kaffileikhúsið i Hlaðvarpanum kl. 21.00 Föstudagur Kirsuberjagarðurinn ★★★★ Frú Emilia Leikhús kl. 20.00 Trítiltoppur ★★★ Möguleikhúsið kl. 10.00 og 14.00 Hárið ★★★★ íslenska óperan kl. 24.00 Sápa eftir Auði Haralds. Kaffileikhúsið i Hlaðvarpanum kl. 21.00 Laugardagur Vald örlaganna ★★★★ Þjóðleikhúsið kl. 20.00 Kirsuberjagarðurinn ★★★★ Frú Emilía Leikhús kl. 20.00 Trítiltoppur *★★ Örfá sæti laus. Möguleikhúsið kl. 15.00 Hárið ★★★★ islenska óperan kl. 24.00 Sunnudagur Trítiltoppur ★★★ Möguleikhúsið kl. 14.00 og 16.00 Kirsuberjagarðurinn ★★★★ Frú Emilia Leikhús kl. 20.00 Eitthvað ósagt eftir Tennesse Willi- ams. Kaffileikhúsið i Hlaðvarpanum kl. 21.00 ú í öllum jólaplötuútgáfuslagn- um er toppurinn að komast í Hemma GuNN en það er ekki öllum gefið. Útgefendur og popparar leggjast á hnén og Hemmi sjálfur á fullt í fangi með að hlusta á allt það efni sem honum berst í hendur. Glöggir menn hafa tekið eftir því að hljómsveitir á vegum Smekkleysu sm/hf hafa vart sést á efnisskránni í ■ Doktorinn má ekki drepast hjá Hemma Gunn Hemma. Undantekningar á þvi eru Bogomil Font og PAll Óskar. Þetta hefur verið rakið til þess að oft eru þetta skrítnar hljómsveitir sem eiga lítið erindi við hinn venjulega Íslending og einnig hefur verið bent á það að gimsteinninn í útgáfumál- um Smekkleysu, Sykurmolarnir, létu aldrci svo lítið að verða við því að koma fram í þættinum þrátt fyrir að vilji væri fýrir því hjá Hemma. Hljómsveitin Unun er að gefa út disk um þessar mundir og sam- kvæmt heimildum morgunpóstsins hefur honum verið haldið að Hemma en þá kom babb í bátinn. Aðalmaðurinn í Unun heitir nefni- lega Dr. Gunni og skrifar fjölntiðla- gagnrýni í MORGUNPÓSTINN. Þann 17. nóvember birtist pistill um þáttinn Á tali sem fékk eina stjörnu og komment á við „í raun hefur þessi þáttur verið dauður í mörg ár og fyrir þrjósku verið haldið gangandi með blóðgjöf og rafstuðum. Það er stórund- arlegt að það sé ekki löngu búið að taka hann úr sam- bandi. Það væri líknar- morð.“ I ljósi þessa þarf ekki að koma á óvart að þegar það kom til tals að Unun væri í Á tali þá hafi Hemmi sagt eitthvað á þá leið að hann vildi ekki bera ábyrgð á því að Dokt- orinn hreinlega dræpist úr leiðindum í þættinum... Elísabet Jökulsdóttir um myndina af sjátfri sér Þessi manneskja gæti verið einkabílstjóri hjá töfradrottningu. Eða leiðsögumaður í eigin fjallgöngu. Hún elskar ör- ugglega Gullfoss. Og vildi óska þess að hún ætti tvo menn svo hún gæti horft á þá tefla. Mér sýnist vera miklar andstæður í andlitinu; blíða, gáfur og friður og hins vegar fyrirlitning, hroki og sorg. Það eru sennilega þessar andstæður sem gera hana svona ómótstæðilega. Hún þyrfti að eiga tvö hús; lítinn kofa við hafið og ungverskan kastala. Hún er á svipinn einsog henni sé nákvæmlega sama hvað allir aðrir halda um ‘ hana, þó ég viti auðvitað betur. Þessar hendur eru líka athyglisverðar, það er orka á leiðinni þangað. Ákveðinn þreytusvipur á andlitinu gefur til kynna að hún hafi nýlega gengið í gegn- um þrekraun og komist lífs af. Annars er það styrkurinn sem kemur mér á óvart. Mér sýnist þessi manneskja geta allt. Ég gæti best trúað að hún geti líka grátið. Minnsta búð bœjarins Á föstudaginn var opnaði að Laugavegi 8 minnsta fatabúð í bænum. Gólfflötur búðarinnar er aðeins 15 m2 en þrátt fyrir smæð hafa eigendurnir.Agnar Agnarsson og Daði Magnússon, gefið hennið nafn- ið Stóri bróðir. Þeir félagar eru hvergi smeykir við samkeppni og segja að þeir ætli að vera með föt og aðrar vörur fyrir markhóp sem hefur verið van- ræktur. „Við verðum til dæmis með fullt af auka- hlutum fyrir hinn almenna hiphoppara: feitar reimar og fleira af því tagi sem erfitt hefur verið að nálgast hér á landi,“ segir Agnar. Drengirnir verða fyrst og fremst með á þoðstólunum vörur frá bandarískum framleiðendum, til dæmis Fuct, Union, Pervert og Dorthy’s Fortress. Og innan fárra vikna verður svo einnig hægt að nálgast alvöru gönguvélar frá Cat- erpillar í Stóra bróður. Agnar og Daði á lokasprettinum með að gera búð sína klára. Horfið á vídeó með Siaurióni Hjúfrið um ykkur í sófanum með Sigurjóni Myndbandaleigan sem gleymdist Hin stórmerkilega vídeóleiga, Video Hlemm, hefur verið í gangi frá örófi alda. Hún hefur siglt gegn- um ólgusjó stöðugra sviptinga á vídeómarkaðnum og notað til þess aðferð sem er mjög frábrugðin við- skiptaháttum annarra vídeóleiga, en hún virðist byggjast á því að vera alltaf með sömu myndirnar á boð- stólum. Það hafa sennilega ekki verið keyptar inn nýjar myndir á Video Hlernm síðan um 1982. Og hvílíkt gósenland! Þarna úir og grú- ir af mjög svo dularfullum mynd- um sem fyrir löngu eru horfnar af hinum almenna markaði. Þetta eru myndir sem maður man eítir að hafa séð í „den“ þegar maður var ekki enn kominn í mútur, myndir sem fundust á vídeóleigum sem nú eru flestar farnar á hausinn. Þarna standa þær enn í rykugum hillun- um, hulstrin orðin upplituð og manni líður eins og maður sé staddur í tímavél, eða í yfirgefnu síldarplássi sem allir eru búnir að gleyma. Óg úrvalið er með ólíkindum, hver furðutitillinn á fætur öðrum. Mig langar til að nefna hérna nokkrar myndir sem ég hef tekið á undanförnum tíu árum á Video Hlemrn — og það er þó fullt af myndum þarna sem vekja forvitni mína en ég hef ekki enn komið í verk að taka. Blood orgy of the She devils - Mynd gerð af sérvitringnum Ted V. Mikaels, sem tekinn er sérstaklega fýrir í Re-Search bókinni „Incredi- ble strange films“. Home Movies - Þetta er eina víd- eóleigan í heiminum sem ég hef rekist á þessa snilldarmynd Brian De Palma, en mynd þessa gerði hann með nemendum sínum í NYU árið 1979. The Sadist - Stórundarleg og per- vertísk mynd um rokkhljómsveit á tónleikaferðalagi og hinn band- brjálaða bassaleikara, Butts, sem kemur félögum sínurn í klandur. Switchblade Sisters - Frábær stuð- filrna urn alræmt stúlknagengi sem gengur um með keðjur og hnífa og gerir gæjana máttlausa af hræðslu. Sigurjón Kjartansson ■Sem sagt, ef menn vilja sökkva sér ofan í undarlegheit og nostalgíu í svosem eins og eina kvöldstund, þá er Video Hlemm sannarlega rétti stað- urinn. Furðuhljóð og gerningar á Kjarvalsstöðum Eins manns tríó og Reptilicus Hérlendis er starfandi breskt einsmanns tríó sem heitir The Hafler Trio. Aðalmaðurinn heitir Andrew M. McKenzie en hann hefur fengið þá Guðmund Mark- ússon og Jóhann Eiríksson, Rep- tilicusmenn sér til aðstoðar og þessir þrír verða með tónleika á Kjarvalsstöðum í kvöld. McKenzie er all sérstæður tónlistarmaður sem vinnur mikið með hljóðupptökur, hann tekur upp hljóð um allan heim og setur saman, ýmist með gömlu klippitækninni eða með tölvum. McKenzie setti til dæmis saman verk sem hann kallar Banda- ríska þjóðarsálin en þá tók hann upp umhverfishljóð í ýmsum borg- um Bandaríkjanna og skeytti sam- an. Annað verk eftir hann táknar frumkraftana, hann tók upp hljóð sem sólin og hinar og þessar plánet- ur gefa frá sér(?), skreið ofan í helli og tók þar upp hljóð og svo fram- vegis. Haflertríóið hefur gefið út um þrjátíu diska og hefur þann hátt á að hverju verki fylgir bók með einhverjum bókmenntalegum texta. Reptilicus-dúettinn verður til upphitunar og fyllir upp í Haflertr- íóið þegar það tekur við með sínar snældur, vídeógerninga, slæds- myndir og upptökutæki. Að sögn Guðmundar þá er þetta ekki í fyrsta skipti sem þeir vinna saman, Rep- tilicus vann plötuna „0“ með Haflertríóið: McKenzie og Reptil- icus-menn McKenzie. „Við vorum bara búnir að steingleyma tímaritinu og það var of seint í rassinn gripið þegar við uppgötvuðum það. En platan og Núlltímaritið hafa ekkert með hvort annað að gera.“ Nú standa yfir samningaviðræð- ur við hollenska og bandaríska að- ila um útgáfu á þessum diski er- lendis. JBG

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.