Helgarpósturinn - 27.02.1995, Qupperneq 13

Helgarpósturinn - 27.02.1995, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1995 MORGUNPÓSTURINN ERLENT 13 Tsjetsjenía Þrátt fyrir að and- staða Tsjetsjena sé að mestu lokið halda Rússar uppi stans- lausum stórskota- árásum á úthverfí Groznij, en fíestiríbú- arþarerufíúnir nema gamalmenni ogsærðir. Hernaði Rússa í Grozníj er hvergi nærri lokið. Að sögn flóttamanna, sem komust fótgangandi frá borg- inni, eru hundruð manna innikróuð i suðurhluta borgarinnar og skortir sárlega mat og lyf. Þorri fólksins er gamalmenni og særðir, sem ekki hafa getað komist burtu af eigin rammleik. Rússar hafa haldið uppi stöðugum stórskotaárásum í borg- inni og nágrenni hennar. „Ástandið í Tsjernoretsjíje-hverfi er langverst," sagði maður að nafhi Hassan, sem fréttamaður Renter ræddi við, en hann gekk frá borginni til þess að freista þess að skipuleggja brottflutning frá henni. „Ég sá um 18 særða óbreytta borgara og þar af voru nokkrir mjög alvarlega særðir. Það er enginn matur eða lyf svo orð sé á gerandi. Ég hef sjálfúr grafið 12 gamalmenni, sem dóu úr sulti á síð- ustu dögum.“ Rússneskur blaðamaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, staðfesti frásögn Hassans, en hún var honum samferða eftir að hafa verið innilukt í borginni í viku. „Tsjemoretsjíje þarf á hjálp að halda og það þarf einhver að taka sig til og aka rútum þangað etsjíj sé enn krökkt af hermönnum Tsjetsjena og fyrir vikið hafa þeir haldið uppi stórskotahríðinni á íbúahverfið, án þess að huga neitt að því hverjir verði fyrir harðinu á henni. Rússar einblína þó ekki á Grozníj, því á laugardag gerðu þeir mikla og óvænta sprengjuárás á þorpið Shalíj, sem er um 20 km suðaustur af borg- inni. Sjö óbreyttir borgarar féllu og 15 liggja særðir. Tvö börn og foreldr- ar þeirra lágu í valnum og tvö systk- ini þeirra eru alvarlega særð. Líkams- leifar þeirra var að finna út um allan garð umhverfis húsarústirnar að sögn Ramazans Jahíhanovs ná- granna þeirra. „Flugvélin flaug svo lágt að ég hugsa að flugmaðurinn hafi séð börnin að leik í götunni." ■ Rússneskir hermenn manna loftvarnabyssu í miðborg Grozníj. til þess að ná hinum særðu burt,“ sagði hún. „Rússneska stórskota- hríðin tekur engan enda og fólk hí- rist í kjöllurum matarlaust og án rennandi vatns eða ljóss. Það er hryllilegt.“ Hún staðfesti að flestir væm gamalmenni af rússneskum uppruna. Rússneskar hersveitir náðu mið- borg Grozníj á sitt vald snemma í mánuðinum eff ir harða götubardaga um tveggja mánaða skeið. Sveitir Tsjetsjena höfðu úthverfi í suður- hluta borgarinnar lengst af á valdi sínu, en síðastliðinn þriðjudag náðu rússneskar hersveitir að umkringja borgina alla og er hætt við að Tsjetsj- enar eigi ekki mikla möguleika á nýrri sókn gegn Rússum. Rússar virðast álíta að í Tsjernor- Kjotkveojuhatið i Rio í Rio de Janeiro hamast menn við sambadans á kjötkveðjuhátíðinni, en henni lauk í gær. Þessar föngulegu stúlkur undu sér við dans f klúbbi nokkrum, en hundmð þúsunda fóm um götur borgarinnar f skrúðgöngum, sem enduðu á Samba- leikvanginum sem var reistur sérstaklega til þess arna. Frakkland Fundur helstu iönríkja heims Vinsældir Balladur dvína Keppinautar Eduard Balladur um forsetaembættið í Frakklandi hafa hert mjög áróðurinn gegn honum og fylgið við forsætisráð- herrann, sem fyrir skemmstu bar höfuð og herðar yfir alla aðra fram- bjóðendur, dvín nú ört. Kosninga- baráttan er hafin af fullum þunga, en kosningarnar fara fram í apríl og maí. Kosið er í tveimur umferðum. Síðustu skoðanakannanir sýna að jafnræði er með þeim Balladur, Jacques Chirac, en þeir eru báðir gaullistar, og sósíalistanum Lionel Jospin. Síðustu áföll Balladurs voru upp- ljóstranir um símhleranir og deilur við Bandaríkin vegna meintra njósna þeirra á franskri grundu. Kröfur eru uppi um að hann segi af sér eftir að upp komst að Charles Pasqua innanríkisráðherra fýrir- skipaði símhleranir geðlæknis nokkurs, en tengdasonur hans er rannsóknardómari, sem hefur ver- ið að fara í saumana á fjármálum gaullista-flokks þeirra Chiracs og Balladur. Þá hefur beiðni franskra stjórnvalda um að Bandaríkin kalli heim fimm stjórnarerindreka vegna meintra njósna þeirra. Balladur er þó ekki einn um að lenda í hremmingum, því þrátt fyr- ir kokhreysti Jospins, sem hefur talsvert unnið á, neituðu Róttækir, sem eru til vinstri við miðju, að styðja framboð hans og hafa nefnt Kosningabaráttan í Frakklandi er hafin, en þeir ganga senn að kjör- borðinu til þess að velja sér forseta í stað Fran?ois Mitterrand. Á myndinni sjást grímur þeirra þriggja frambjóðenda, sem helst þykja koma til greina. Það eru íhaldsmennirnir Eduard Balladur (fyrir miðju) og Jacques Chirac (til hægri), en á vinstri vængnum er sósíalistinn Li- onel Jospin (efstur) sem helst kemur til greina. Fjórða gríman er af Charles Pasqua innanríkisráðherra. Jean-Franpois Hory sem fram- bjóðanda sinn. Möguleikar hans eru engir taldir, en Jospin þyrfti að reiða sig á stuðning Róttækra til þess að komast upp úr fyrri umferð kosninganna. Róttækir unnu 12,5 prósenta atkvæða í þingkosningun- um síðastliðinn júní. Vinsældir þeirra hafa snarminnkað síðan eftir að helsti spútnikk flokksins, fjár- sýslumaðurinn og fótboltafélags- eigandinn Bernard Tapie var tek- inn til rannsóknar vegna fjársvika og annars vafasams athæfis. ■ Hátækni komi öllum til góða Fulltrúar siö helstu iðnríkia best trevstandi til bess að leiða bró- ust opna fyn^rlenda eienara Fulltrúar sjö helstu iðnríkja heims hittust í Brussel um helgina og ræddu í þaula upplýsingabylt- inguna og hver áhrif hún hefði á heimsbyggðina í framtíðinni. Ráð- herrarnir komust að þeirri niður- stöðu að einkafýrirtækjum væri best treystandi til þess að leiða þró- unina, en hinu opinbera bæri að tryggja flæði upplýsinga og fjár- magns milli landa til þess að þetta væri unnt. Al Gore varaforseti Bandaríkj- anna tilkynnti að Bandaríkin hygð- ust opna fyfl^rlenda eignaraðild í bandarískum símfyrirtækjum, en það væri þó bundið því skilyrði að Bandaríkjamenn mættu fjárfesta í samsvarandi fyrirtækjum í viðkom- andi löndum. ■ Demi Moore. Demi ekki ánægð með sig Demi Moore þykir einhver feg- ursta leikkona hcims og drauma- dís ótal karlmanna um viða ver- öld. Sjálf segir Demi Moore þó að hún hafi aldrei verið ánægð með útlit sitt, hún sé alltof smávaxin og hafi of lítil augu. Hinir fjöl- mörgu karlkyns aðdáendur Demi mundu þó varla vera sammála, þvi hún þykir afar kynþokkafull eins og glöggt má sjá i kvikmynd- inni Disclosure sem nú er sýnd í Reykjavik. ■ Pamela Anderson. Pamela og karl- amirfimmtán Nú hefur fengist úr því skorið. Það hefur komið í ljós að kyn- bomban Pamela Anderson hefur átt vingott við nítján karlmenn um dagana. Þar af segist hún hafa sofið hjá fimmtán. Blaðakona The Sumlay Times segist telja þetta mjög hæfilega tölu; ef karlarnir hefðu verið færri væri hægt að telja Pamelu óþarflega siðavanda en ef þeir hefðu verið öllu fleiri mætti telja hana lauslátu. ■ Daryl Hannah. Daryl Hannah í ástarsorg Leikkonan fagra, Daryl Hannah, þykir heldur döpur þessa dagana og leiða fjölmiðlar getum að því að ástæðan sé sú að ekki er ýkja langt sfðan slitnaði upp úr ástarsambandi hennar og glæsimennisins John Kennedy. Þykir Daryl Hannah hafa tekið þetta svo nærri sér að nú hugsi hún litt um útlit sitt, heldur gangi hún um götur New York klædd í verstu larfa, þung á brún og án alls andlitsfarða. ■

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.