Helgarpósturinn - 27.03.1995, Qupperneq 2
Enginn veit hvað varð af 374 busundum
Þrátt fyrir afskipti rannsóknarlögreglu hefur stjórnendum Há-
skólabíós ekki tekist aö hafa upp á hvað varð af 374 þúsund krón-
um sem einn starfsmaður bíósins fór með í banka um páskana í
fyrra. Peningarnir voru í tösku sem starfsmaðurinn fullyrðir að
hann hafi sett í næturhólf Landsbankans, sem er í sama húsi og
bíóið. Engar skýringar hafa fundist á hvarfi peningatöskunnar.
Friðbert Pálsson. Enginn veit hvað varð af 374 þúsund krónum.
Starfsmaðurinn, Sigurbjörn
Þorgrímsson, getur engar skýr-
ingar gefið en eðlilega féll grun-
ur á hann þar sem hann átti að
koma peningunum í banka.
Ásamt Sigurbirni hefur Jónína
Björgvinsdóttir, sem var yfirmað-
ur sælgætissölu, verið höfð und-
ir grun.
Þrátt fyrir lögreglurannsókn
og innanhússrannsóknir hefur
ekkert komið fram um að Sigur-
björn og Jónína séu sek. Ekki'
hefur gróið um heilt þar sem
Jónína hefur verið lækkuð í tign,
er ekki lengur yfirmaður sælgæt-
issölunnar heldur starfar núna
við afgreiðslu og við framleiðslu
á poppkorni. Búið er að svipta
hana lyklavöldum af sælgætis-
geymslu, en hún hafði verið með
lyklavöldin í yfir 20 ár.
Meðal þeirra skýringa sem
hafa komið á töskuhvarfinu er
sú að uppgjör í töskunni hafi
ekki stemmt og að starfsfólk
bankans hafi sent hana aftur í
bíóið og að hún hafi ekki skilað
sér þaðan aftur.
Heimildir PÓSTSINS segja að
þetta mál og önnur hafi orðið til
þess að andrúmsloft meðal
starfsmanna Háskólabíós sé afar
slæmt, þar sem hluti starfs-
manna er grunaður um þjófnað.
Þá segja heimildirnar að Friðbert
Pálsson, framkvæmdastjóri Há-
skólabíós, sé þeim starfsmönn-
um sem hann grunar afar erfiður
og geri allt til að gera þeim ver-
una á vinnustaðnum sem erfið-
asta.
Ekki náðist í Friðbert Pálsson
vegna þessa máls.B
Snorri Olsen og Garðar Valdimarsson. Garðar fær tveggja ára hvíld frá starfi
hann af.
Karl Ragnars forstjóri Bifreiðar-
skoðunar íslands. „Góðir og gildir
íhaldsmenn fengu jafnvel XG núm-
er á bílana.“
Ihaldsmenn
vilja ekki sjá
XG á bílana
sina
„Við hættum að úthluta þess-
um númerum fyrir um það bil
tveimur árum vegna þess að þau
gátu verið viðkvæmt mál fyrir
suma,“ segir Karl Ragnars, for-
stjóri Bifreiðarskoðunar íslands,
en fyrirtækið sá sig tilneytt til
þess að hætta að deila út bíln-
úmerum sem byrjuðu á X því
þau áttu það til að ganga þvert á
stjórnmálaskoðanir bíleigenda.
X-D, X-G, X-A, X-B, X-V eru allt
kunnugleg tákn viðkomandi
stjórnmálaflokka og listabókstaf-
ur Þjóðvaka, J, er farinn að sjást
æ oftar með x-inu fyrir framan.
Þessir bókstafir eru flestir svo
rækilega tengdir ákveðnum
flokkum í huga fólks að ekki er
búist við því að þeir sjáist ná-
lægt öðrum en stuðningsmönn-
um viðkomandi flokka og að
sögn Ragnars létu bíleigendur
hiklaust í sér heyra ef ökutæki
þeirra fengu skráningarnúmer
sem fór ekki saman við sannfær-
ingu þeirra.
„Góðir og gildir íhaldsmenn
fengu jafnvel XG númer á bílana
sína við lítinn fögnuð og ekki
voru vinstri mennirnir hrifnari af
því að fá XD á sína bíla,“ segir
Ragnar.
Hinum til huggunar sem fegnir
vildu sýna flokki sínum stuðning
með því að fá bílnúmer með
listabókstöfunum en geta ekki
nú, bendir Karl á að ósk þeira
muni rætast ef Árni Johnsen kem-
ur frumvarpi sínu um sérvalin
persónuleg númer í gegnum Al-
þingi.
„Og þá geta góðir bolsar feng-
ið sér XG númer ef þeir vilja,“
segir Ragnar. ■
Ræddi um hvað
•Ríkisstjórnin ræddi mál skatt-
stjóra en þrýstingur hefur verið um
að hann yrði leystur frá störfum.
•Á fundi ríkisstjórnarinnar fyrir skömmu var rætt um hvað gera
ætti við Garðar Valdimarsson ríkisskattsjóra. Mikið hefur borið á
kvörtunum úr viðskiptalífinu vegna krafna frá Garðari, en talsvert
hefur verið um að fyrirtæki hafi þurft að skila nákvæmu bókhaldi
og þá hverri nótu. Pessu fylgdi eðlilega mikil vinna víða og marg-
ar Ijósritunarvélar kólnuðu ekki.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra neitaði alfarið í samtali
við PÓSTINN að Garðar hafi verið
settur af tímabundið, en hann er
að fara í tveggja ára frí. Hins
vegar segja aðrar heimildir að
þrýstingur hafi verið á að koma
Garðari frá. Þann tíma sem hann
verður í fríi á hann að nota til að
gera tvísköttunarsamninga við
önnur ríki, en Garðar er búinn
að vinna við það í hlutastarfi í
^vö ár. Nú er sagt að leggja þurfi
aukaáherslu í þetta starf þar
sem ísland eigi mikið eftir til að
ganga frá þessum samningum.
Heimildir PÓSTSINS herma að
óánægja með störf Garðars hafi
ollið því að hann var settur af,
allavega um tíma. Snorri Olsen,
deildarstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, verður ríkisskattstjóri með-
an Garðar verður í sérverkefn-
inu.
Stjórnendur fyrirtækja, sem
rætt var við og hafa þurft að
fara að kröfum Garðars, segja
hann nánast hafa verið óþol-
andi þar sem mikill tími og pen-
ingar hafi farið í að uppfylla
kröfur hans. Einn viðmælenda
blaðsins sagði sitt fyrirtæki
aldrei hafa lent í útistöðum við
skattinn samt hafi hann verið
meðhöndlaður eins og saka-
maður.
„Við urðum að skila öllu inn
og það var nánast vikuvinna fyr-
ir eina manneskju að ljósrita öll
gögn, því ekki gátum við verið
án allra bókhaldsgagna á með-
an. Það fór frá okkur nánast
stútfullur sendibíll og það er ég
viss um að enginn starfsmaður
hjá ríkisskattstjóra hafi svo mik-
ið sem litið á þetta,“ sagði
stjórnandi þekkts fyrirtækis í
Reykjavík.B
Þetta var líka
í FRÉTTUM
GRíkissáttasemjari
lagði ekki fram sátta-
tillögu í kennaradeil-
unni í gœr eins og
vœnst hafði verið.
Hann mun leggja tillög-
una fram í dag.
9Eftir að sáttatillaga
sáttasemjara liggur
fyrir verður tekin
ákvörðun um skóla-
hald.
%Ekki hafa tekist
samningar milli Flug-
leiða og flugfreyja.
Þriggja daga verkfall
hefst á morgun. Nor-
ræna flutningamanna-
sambandið hefur hótað
aðgerðum gegn Flug-
leiðum í Norðurlanda-
fluginu verði stjórn-
endur Flugleiða í starFi
flugfreyja.
9Þing slökkviliðs-
manna samþykkti
harðorða bókun gegn
Bergsteini Gizurarsyni
brunamálastjóra.
Brunamálastjóri segist
ekki skilju hvað
slökkviliðsmönnum
gengur til. Slökkvilið-
stjórarhafa lýstyfír
stuðningi við Bergstein.
%Ólafur Ragnar Gríms-
son er nánast tilbúinn
að mynda vinstri
stjórn. Hann er langt
kominn með gerð mál-
efnasamnings. Hann
segir acI hœgt sé að
mynda slíka stjórn fyr-
ir páska.
9Hugmyndir eru uppi
um að hœkka vatnsyf-
irborð Hagavatns til að
hefta sandfok.
Blaðburðar-
börnum
vísað frá
Blaðburðarbörn PÓSTSINS
fengu ekki inngöngu á kvik-
myndasýningu í Regnboganum
síðastliðinn laugardag eins og
ráð var fyrir gert. Börnin höfðu
fengið miða hjá blaðinu sam-
kvæmt samkomulagi við Regn-
bogann og áttu þeir að duga
þeim til inngöngu. Voru frímið-
arnir veittir sem viðurkenning
fyrir vel unnin störf. Við inngang-
inn fengu börnin þá skýringu hjá
starfsmönnum Regnbogans að
láðst hefði að ganga frá sam-
komulaginu og því væri ekki
unnt að hleypa þeim inn. Eftir að
málið hefur verið rannsakað
verður ekki annað séð en að
þarna sé um fyrirslátt að ræða
og að þessi uppákoma tengist
umfjöllun um eiganda Regnbog-
ans, Jón Óiafsson, hér í blaðinu á
fimmtudag. Harmar PÓSTURINN
að þetta skuli þurfa að koma nið-
ur á blaðburðarbörnunum en
blaðinu var ekki gert viðvart um
þessar aðgerðir þannig að ekki
var unnt að koma í veg fyrir að
börnin færu þessa fýluferð. Voru
þau mörg komin um langan veg
og þurftu þau að hírast fyrir
framan bíóið þar til þau voru
sótt aftur. PÓSTURINN mun bæta
þeim þetta upp og komust mörg
þeirra streix á sýningar í Sambíó-
unum í gær. ■
/ Guð hjálpi okkur
þegar hann fer að heimta
að þeir í Brussel Ijósriti
pappírsflóðið hjá sér. .
Þeirráku
bara skattstjórann
fyrir að láta
fyrirtækin Ijósrita
V endalaust. y