Helgarpósturinn - 27.03.1995, Blaðsíða 3
ragSBi
FRÉTTIR
Goða nótt, Olafun
•Skömmu áður en Alþingi lauk storfum í síðasta mánuði voru
mikil átök um afgreiðslu grunnskólafrumvarpsins og um tíma leit
út fyrir að Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra tækist ekki að
koma málinu í gegnum þingið, stjórnarandstaðan og kennarar
börðust gegn afgreiðslu frumvarpsins eins og það var þá.
Ólafur G. Einarsson
vissi ekki um nætur-
fund Davíðs og Svav-
ars um grunnskóla-
frumvarpið.
Davíð Oddsson boð-
aði Svavar Gestsson
og formannKennara-
sambands íslands á
næturfund til að
bjarga grunnskóla-
frumvarpinu.
Svavar hitti Davíð
Oddsson á leynifundi
í stjórnarráðinu undir
morgun. Þar var
tryggð afgreiðsla
grunnskólafrum-
varpsins.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra beitti sér ekki mikið í mál-
inu lengst af, hann lét Ólafi það
eftir. Jæja, skömmu áður en
þingið lauk störfum kom Davíð
að máli við Svavar Gestsson, fyrr-
verandi menntamálaráðherra og
foringja stjórnarandstöðu í mál-
inu, og bað hann um að hitta sig
í stjórnarráðinu þegar þingfundi
lyki um nóttina.
Aðrir þingmenn og ráðherrar
fóru hver til síns heima til að
hvíla lúin bein, þar á meðal
menntamálaráðherrann Ólafur
G. Einarsson. Davíð og Svavar
hittust undir morgun í stjórnar-
ráðinu ásamt þriðja manni, Eiríki
Jónssyni, formanni Kennarasam-
bands íslands. Á ekki löngum
fundi tókst þessum þremur að
gera þær breytingar á frumvarp-
inu sem allir gátu sæst á. Þegar
hvíldir ráðherrar og þingmenn
mættu aftur til þingfundar fund-
uðu Davíð og Svavar hvor með
sínum hópum og greindu frá
hverju ætti að breyta í frumvarp-
inu. Ólafur G. hlustaði eins og
aðrir og fáum klukkustundum
síðar var frumvarpið samþykkt á
Alþingi og eins í röðum kennara.
Samkvæmt þessu var framlag
menntamálaráðherrans, eftir að
frumvarpið kom fram á Alþingi,
minna en margur heldur. For-
maður Sjálfstæðisflokksins og
forsætisráðherrann tók einfald-
lega völdin af sínum eigin ráð-
herra og gerði samkomulag við
kennara og stjórnarandstöðu.
„Það lá ekkert annað fyrir.
Davíð vissi að Svavar var lykil-
maður í stjórnarandstöðunni og
eins veit hann að Svavar er betri
menntamálaráðherra en Ólafur,"
sagði sjálfstæðismaður í samtali
VÍð PÓSTINN.B
Forsíða póstsins
frá fimmtudeginum.
á bróðurJóns
Ólafssonar
Marg-
dæmdur
fíkniefnasali
Situr í varðhaldi í Portúgal.
■ Hálfbróðir Jóns Ólafssonar,
Tryggvi Bjarni Kristjánsson,
hefur verið talsvert í fréttum að
undanförnu þar sem íslensk
yfirvöld hafa krafist framsals á
honum frá Portúgal vegna um-
fangsmikils fíkniefnamáls. Eins
og fram kom í póstinum á
fimmtudaginn sýna gögn að
hann kemur nokkuð við fíkni-
efnasögu Jóns.
í nóvember síðastliðnum var
breskt par handtekið á Keflavík;
urflugvelli með 6,1 kíló af hassi. í
kjölfarið voru þrír íslendingar
hnepptir í gæsluvarðhald og
óskað framsals á Tryggva Bjarna
frá Portúgal þar sem hann situr í
fangelsi. Grunur fíkniefnalög-
reglunnar er sá að hann hafi
um Iangt skeið útvegað hópi
manna fíkniefni sem flutt hafi
verið inn til landsins.
Tryggvi Bjarni á langan af-
brotaferil að baki. Á árunum
1976 til 1990 var hann fjórtán
sinnum dæmdur fyrir brot á
hegningarlögum, fíkniefnalöggjöf
og umferðarlögum og hlaut sam-
tals 74 mánaða fangelsi fyrir þau
brot. Auk þess hefur hann átján
sinnum gengist undir dómsátt
vegna brota á fíkniefnalöggjöf-
inni.
Fyrir nokkrum árum fluttist
Tryggvi Bjarni til Spánar. Þar í
landi var hann hnepptur í fang-
elsi, meðal annars fyrir að mis-
þyrma fyrrum eiginkonu sinni. í
desember síðastliðnum var
hann svo handtekinn í Portúgal
vegna fíkniefnamisferlis og úr-
skurðaður í þriggja mánaða
varðhald.
Annar hálfbróðir Jóns, Guðleif-
ur Kristjánsson, kom lítillega við
sögu í fíkniefnamálunum frá
1972-3 sem Jón tengdist. ■
Reynsliiaktu
RenauW
O —
IVílliams
HF.MAlJl.r ;
Formulal —
. prefal*|ur
heimsmeistari
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI 5 53 1 236
Verðið á Renault 19 RN
árgerð 1995
er aðeins kr. 1195.000,-
INNIFALIÐ:
Hörkuskemmtileg og sparneytin 1400 vél, vökvastýri, rafdrifnar
rúðuvindur, íjarstýrðar samlæsingar, fjarstýrt útvarp/segulband,
styrktarbitar í hurðum, bílbeltastrekkjarar, samlitir stuðarar,
málmlitur, ryðvörn, skráning ..
Fallegur fjölskyldubíll á fínu verði.
RENAULT
RENNUR UT!
Hagstæðustu
bílakaup ársins!?
Arthúr Morthens. Allir
VEIKIR HJÁ SVR.
Undanfarin ár hafa verið
sífelldar endurskoðanir
hjá Strœtisvögnum
Reykjavíkur. Einkavœð-
ingunni var kastað fyrir
róða en menn eru ekki
búnir að kasta frá sér
hugmyndum um hagrœð-
ingu en nú ráða þar
völdum Lilja Ólafsdóttir
forstjóri og Arthúr Mort-
hens stjórnarformaður.
Ein þeirra staðreynda
sem menn verða að taka
tillit til erþað að forföll
vegna veikinda eru gíf-
urleg hjá SVR. Er rœtt
um að launakostnaður
vegna veikinda sé að
meðaltali í kringum 2
prósent í fyrirtœkjum
landsins en hjá SVR mun
þetta vera nálœgt 10
prósentM
Atvinnulausir á
HANDAHLAUPUM
/ flokkakynningu Al-
þýðuflokksins sem sýnd
var í Ríkissjónvarpinu í
síðustu viku fjallaði Sig-
hvatur Björgvinsson um
nauðsyn þess að laða
hingað erlent fjármagn.
Rök Sighvats voru þau
að þetta fjármagn gœti
skapað vinnu handa
„þeim atvinnulausu
höndum sem nú ganga
um atvinnulausar“. Þá
veit maður það. Efmað-
ur mœtir fólki sem geng-
urá höndum þá erþar
um atvinnuteysingja að
rœða. ■
Stefán Grímsson segist
LENGI HAFA REVNT AÐ VEKJA
ATHYGLI Á SLYSAGILDRUNNI.
í Kópavogi
„Eg er margbúinn að til-
kynna um þessa slysa-
gildru en það virðist
enginn hlusta á ábend-
ingar mínar, “ sagði Stef-
án Grímsson, íbúi í
Kópavogi, sem í þrigang
hefur sagt frá eyðilögðu
rafboxi við gangbrautar-
Ijós á mótum Álfhólsveg-
ar og Skólatraðar. Boxið
er brotið þannig að börn
geta hœglega stungið
hendinni inn í það. Er
mikil hœtta á slysi þar
sem straumurinn er 380
volt þarna. ■