Helgarpósturinn - 27.03.1995, Page 7
'MMRSWAW UJ DWGUJ R1
FRETTIR
Siqh\/atnr Rjnrgwingcnn hefði gert það sama í máli prófessorsins
Staríslohasamningur var
ninnig gnrður við Stofán
„Ef ég hefði lögsögu í máli Jon-
asar Haiigrímssonar prófessors
þá myndi ég leita eftir áliti ríkis-
lögmanns og spyrja hann álits.
Það hefur komið fram hjá
menntamálaráðherra að það sé
ekki ljóst hvort það er mál hans
eða Háskólans. Eg myndi einfald-
lega leita til ríkislögmanns um
ráðgjöf. Ég myndi haga mér ná-
kvæmlega eins og ég gerði í máli
Júlíusar Vaissonar," sagði Sighvat-
ur Björgvinsson, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, þegar hann
var spurður hvað hann myndi
gera hefði hann lögsögu yfir Jón-
asi Hallgrímssyni sem er eini
þeirra ríkisstarfsmanna sem
framdi skattabrot vegna tekna af
örorkumötum og er enn við
sömu störf og hann var áður en
málin komu upp.
Sighvatur sagðist allt eins eiga
von á málssókn vegna þeirrar
Sighvatur Björgvinsson segist hafa
óskað álits ríkislögmanns í máli
Jónasar Hallgrímssonar hefði hann
lögsögu yfir prófessornum.
ákvörðunar að víkja Júlíusi frá
störfum yfirtryggingalæknis.
„Ég get átt von á málssókn en
það kemur mjög eindregið fram í
áliti ríkislögmanns að brotið sé
þess eðlis og að það sé ekki síð-
ur alvarlegt en brot Björns Ön-
undarsonar og Stefáns Bogasonar
og ef eitthvað sé sé ásetningur-
inn enn ríkari og ríkislögmaður
telur ótvírætt að Júlíus eigi enga
kröfu um skaðabætur, en fari
það mál fyrir dómstóla þá er það
verk ríkislögmanns að verjast
því.“
„Það er rétt að það var gerður
starfslokasamningur við bæði
Björn Önundarson og Stefán
Bogason. Þannig að það er hægt
að segja að þeir hafi báðir misst
störf sín. Starfslokasamningur-
inn við Björn var gagnrýndur
mjög hart,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson.
Ekki hefur áður komið fram að
gerður var starfslokasamningur
við Stefán Bogason, en Stefán
fékk tæpar tvær milljónir króna
þegar gerður var við hann starfs-
lokasamningur. ■
Stjórnarmenaflugleiða
Hækkuðu
eigin laun
Stjórnarmenn í Flugleið-
um hafa hækkað eigin laun
talsvert, það er þau laun
sem þeir fá fyrir að sitja í
stjórn fyrirtækisins. Þannig
hækkuðu laun Harðar Sigur-
gestssonar stjórnarformanns
í 800 þúsund krónur á ári.
Aðrir stjórnarmenn eru með
hálf laun á við stjórnarfor-
manninn.
Þessi ákvörðun var tekin á
Hörður
Sigurgests-
son fékk
launahækk-
un fyrir að
stýra stjórn
Flugleiða.
aðalfundi félagsins á dögun-
um og er gerð nánast á sama
tíma og flugfreyjur voru að
boða aðgerðir gegn félaginu
til að knýja á um breytingar
á launum.
Allir helstu yfirmenn Flug-
leiða hafa verið á námskeiði
síðustu daga þar sem þeir
undirbúa sig að leysa flug-
freyjurnar af hólmi á meðan
þær verða í verkfalli. Ekki
fékkst leyfi til að mynda
nemendurna en náminu lýk-
ur með prófum. ■
„Þegar það var farið að
safna fyrir orgeli stóð
kórinn fyrir popptónleik-
um og fékk til liðs við sig
dægurlagasöngvara og þá
mætti ég ekki á tónleika
enda fannst mér ekki við-
eigandi að klappa í kirkj-
um og standa fyrir slíkum
uppákomum.“
# 44? |H
Jk' * #1
/# * ??• ;
L % ## i % %%
í I * ýp
„Það hafa ýmsar fjárfestingar kirkjunnar verið gagnrýndar, til dæmis kaup á nokkurra milljóna króna hljóðveri sem var staðsett í herbergi þar sem átti
að vera skrifstofa prestsins, “ segir Flóki Kristinsson.
auk þess voru ekki höfð eðlileg sam-
ráð við mig um þetta. f þessu tilfelli
annaðist annar prestur athöfnina,
en sem sóknarprestur þá ber ég
ábyrgð á þeirri starfsemi sem er í
myndir að orgelið væri í kórnum
og að organistinn sneri baki við
prestinum. „Það tíðkast ekki
nema í babtistakirkjum í Banda-
ríkjunum," sagði Flóki.
FRÍMÚRARAR í KULDANUM
Varðandi gagnrýni á hversu
stífur Flóki sé í samstarfi og ein-
ráður heyrðust raddir um að
hann hefði bannað ýmsar at-
hafnir á þeim forsendum að þær
væru ekki nægilega kirkjulegar.
„Ég man eftir einu atviki þar sem
ég bannaði eitthvað við athöfn
en þá voru frímúrarar að hreiðra
um sig til að fara af stað með ein-
hverja seremóníu við útför eins
úr hreyfingunni,“ sagði Flóki. „Ég
vildi það ekki á þeim forsendum að
þetta er leyniregla og við skiljum
ekki hvað þessar athafnir tákna en
kirkjunni. Jón Stefánsson organisti
brást mjög reiður við þessu enda er
hann í frímúrarareglunni að ég best
veit.“„Það vill nú til að ég fram-
kvæmdi þessa athöfn og ég verð
að segja að hans viðbrögð voru
mjög merkileg,“ sagði Sigurður
Haukur Guðjónsson. „Eg var
ekki ósáttur en það er víðtekin
venja að frímúrarar fái að
standa heiðursvörð við kistuna,
en hann ræddi þetta ekki við
mig og það var staðinn heiður-
svörður eins og venja hefur ver-
ið. Kannski er það þess vegna
sem hann álítur að ég sé á móti
honum.“
EMBÆTTISMENN VERNDAÐIR
„Það var ákveðið að tala ekki
um þetta mál við blöðin. Suma
hluti verður að vinna í næði.
Annað getur valdið misskilningi
og sárindum," sagði Haukur Jónas-
son guðfræðingur sem starfar
við kirkjuna. „Það hefur komið
til tals að segja honum upp komi
hann aftur,“ sagði Jón Stefánsson
organisti. „Þetta er mál sem
varðar alla sóknarnefndina og
starfsfólkið og við erum svo til
einróma með einni undantekn-
ingu. Að mínu áliti er þetta þó
viðkvæmt mál sem á að leysa í
friði og spekt án þess að blása
þetta upp. Við höfum ekkert val
um hvort hann kemur aftur eður ei.
Embættismenn eru svo verndaðir
að þeir verða að brjóta landslög til
þess að hægt sé að segja þeim upp.“
Einn viðmælandi blaðsins sagði
að tölur um messusókn segðu í
raun alla söguna, meðan Flóki
messaði hefðu að meðaltali um
„Þetta bréf var vegna áburðar á
sóknarnefndarformanninn og það
er rakalaus vitleysa að ég hafi
beðið um það í þessu bréfi að
Flóki yrði settur af,“ segir Sig-
urður Haukur Guðjónsson."
tíu manns sótt messur en Sigurð-
ur Haukur Guðjónsson þjónaði söfn-
uðinum áður og leysir Flóka nú
af. Á meðan sá síðarnefndi er í
námsleyfi trekkir hins vegar á
annað hundrað áheyrendur að.
Sr. Flóki Kristinsson taldi tölurn-
ar af og frá en vísaði í þessu til-
felli á biskupsstofu sem hefði
allar tölur um messusókn en
skrifstofur hennar voru lokaðar
um helgina þegar greinin var í
vinnslu. ■
_______________________________I
Sonur Gunnþórunnar er
HÆTTUR.
Ekkjusonurinn
HÆTTUR HJÁ OLÍS
Glöggir menn sáu út að
yfírmannsstaða hjá Olís
var auglýst laus til um-
sóknar í sunnu-
dagsmogganum. Þetta
mun vera staða Jóns
Kristjánssonar, sonar
Gunnþórunnar Jónsdóttur,
ekkju Óla í Olís. Jón hef-
ur verið yfírmaður sölu-
deildar og staðið sig
mjög vel í því. Menn áttu
hins vegar von á því að
hann myndi hœtta um
leið og móðir hans seldi
og það er nú komið á
daginnM
Hvað var Ólafur að gera í
Tryggingastofnun?
Landlæknir í
ELDINUM MIÐJUM
Á föstudaginn varð mikil
uppákoma í Trygginga-
stofnun þegar Sighvatur
Björgvinsson ákvað að
reka Júlíus Valsson trygg-
ingayfirlœkni. Stofnunin
var öll upp í loft; starfs-
menn á fundum í öllum
skotum og menn að
koma. Það vakti mikla
athygli að Ólafur Ólafsson
landiœhnir var þarna á
ferðinni út um alla
ganga og fór mikinn. ■