Helgarpósturinn - 27.03.1995, Side 8
FRETTIR
r *
1 ■ ■ ■ MWN Ui ÐWGIÍJ Rr2v
ÓUPPLÝST ÍSLENSK SAKAMÁfQ
LÍKUR Á AÐ llM RÁHMORÍ HAFI \\
VERIÐ AÐ RvCDA
l*cir *«-m «*rðu vurír ma»nafi>rd<«
i Latuqormnihvnrn kl. 4—7,15 i
tjmrnntryun nru iu*ðt»V <oð
tuunhruMl.vid Kunuiu'tktwir-
l«»ar«iglun» strux
U,UJUKÍt.«riÓKt lr* v»r
» I tWíinS únni i t.rrúiút *jt Wroix Kkut
Vín»mrt ú *í r*A*.
t»«*» >«r « <n> *í »1.
a»la«
itut
HM«ia Mun
IWIÍrw i .««, VH> Kvu t.ÚMrr )«,
•r i>*r tnftir vfi<-,fjn ftxoo rtnimm-
«t»« * WMwtúKcia tifl kt. 4 411 R.1S nm cMtrimio*
A lutuh int* (rlltHHMxmiMu í f.xr tu>fZ. lot
kmlrUMMi, H»v4aar>rirt4«<r«lu).i««in rtutno'.kít-
»>*i'K'*tri*MM>»t:
-.v» »rt<»t xi nyr.a *fl )w»»l «9 f>*( tr«n(
ItmfJr hxfí niAí* rnrir rwtnn«(n4a i l.noftuu i
|m**« tUnnUH. ** ctm. Ii*>kI trl-.itiaar i«a
Mi UW» vpp láiprsjt Vfl n.P’.'tuirut UotftrxM US
Jm*» cJt UJX tw« vtmtwra ,M »*Ui: Ui* W*f
rl t»* Klttr *ljr íUtr ffrtii «-ln)t»«j»r «>.•»**«
Leigubílstjóramorðiö
Þejar James Bond
drap mann í Reykjavík
— ef marka mátti leiðara Þjóðviljans
Fimmtudaginn 18. janú-
ar 1968 var Gunnar S.
Tryggvason leigubílstjóri
hjá Hreyfli skotinn til bana
í leigubifreið sinni. Fannst
hann undir morgun í bif-
reiðinni í Laugarneshverfi
af ungum læknastúdent
sem þarna átti leið fram-
hjá. Morðinginn notaði
sjálfvirka skammbyssu,
hlaupvídd 32, og skaut
hann Gunnar neðarlega í
hnakkann hægra megin.
Miklum óhug sló að lands-
mönnum við atburðinn en
í fyrstu virtist vera um
ránsmorð að ræða.
Forvitnilegt er að fylgj-
ast með skrifum Þjóðvilj-
ans frá þessum tíma um
málið en fréttamat þeirra
litaðist furðu mikið af
kalda stríðinu. Gerði Þjóð-
viljinn mikið úr óheppileg-
um áhrifum frá erlendum
myndum eins og kemur
fram í tilvitnuninni á síð-
unni. Einnig gerðu þeir
mikið úr því þegar ungur
Bandaríkjamaður af vellin-
um var handtekinn vegna
málsins og var hann úr-
skurðaður í sjö daga
gæsluvarðhald vegna
þess. Fljótlega kom í ljós
að hann tengdist því ekk-
ert. Reyndar var Þjóðvilj-
inn ekki einn um að telja
þetta mikil tíðindi. í Morg-
unblaðinu var talað um
...einstœðan glœp í sögu
borgarinnar. “ — Og síðar
var sagt að þarna hefðu
orðið; „...eins konar þátta-
skil í tiltölulega friðsamri
sögu borgarinnar. “ í grein í
Morgunblaðinu sem hét því
dramatíska nafni „Morð-
ingi á meðal okkar... er
mikið gert úr því að virkja
almenning til að upplýsa
málið. Segir Mogginn;
„Ódœðismaðurinn getur
fundizt ef allir leggjast á
eitt.“ Þetta lýsir vel þeirri
stemmningu sem ríkti í
þjóðfélaginu eftir morðið.
V|LDU ERLENDA
SERFRÆÐINGA
Þrátt fyrir umfangsmikla
rannsókn Rannsóknarlög-
reglunnar miðaði henni
ekkert áleiðis og 27. janúar
óskaði Frami, félag leigu-
bílstjóra, eftir því að er-
lendir sérfræðingar yrðu
kallaðir til að rannsaka
málið. Ekki var orðið við
þeirri ósk þeirra en í lok
febrúar var samstarfs-
mönnum Gunnars hjá
Hreyfli nóg boðið og hétu
þeir háum verðlaunum fyr-
ir upplýsingar sem gætu
leitt til lausnar málsins.
C LEIÐARI ÞJÓÐVILJANS
19. JANUAR 1968
„Byssumorð í Reykjavík
— og mönnum verður
liugsað með hrolli um
stórborgarhraginn, rétt
eins og að myndun jjétt-
býlis í landi friðsamrar,
vopnlausrar |)jóðar hljóti
að kalla á glæpi. Gæti ekki
liitt komið til að hugsun
mann um morð sé að
breytast. Skyldu ekki
stanzlausar morðlýsingar
í bókum, kvikmyndum og
sjónvarpi fara að síast inn
í íslendinga. Hugsum til
|)ess kapps sem lagt er á
að umvefja hetjuljóma
glæpamannanna eins og
skáldsögufígúruna James
Bond, sem látin er liafa
stjórnvaldsbréf upp á það
að hann megi myrða í
starfi sínu og sé látinn
fremja morð með köldu
blóði. Hryllilegir glæpir
eins og morð hins reyk-
víska bifreiðastjóra hljóta
að verða íslendingum
áminning um að vinna
gegn áhrifum iier-
mennskuáróðurs og vop-
naglamurs, gegn áhrifum
afþreyingarefnis sem ger-
ir morð að æsispennandi
leik.“ ■
Á tímabili var gerð mikil
leit að hugsanlegu vitni
sem hafði skilið eftir
sænsku sígarettutegund-
ina John Silver nálægt
morðstaðnum. Kom síðar í
ljós að viðkomandi tengd-
ist málinu ekkert.
Þetta mál er líklega eitt
það frægasta í sögu óupp-
Íýstra glæpamála en að
lokum var maður handtek-
inn sem talinn var eiga
sökótt við Gunnar. Þrátt
fyrir mikla rannsókn og
sterkar vísbendingar að
margra dómi var maður-
inn aldrei sakfelldur fyrir
morðið þannig að morð-
ingi Gunnars er enn ófund-
inn og finnst væntanlega
ekki úr þessu.B
Ford Econoline-bifreiðin eftir veltuna
Sjö menn voru fluttir á slysa-
deild eftir bílveltu á austanverðri
Hellisheiði í gær. Fólkið var á leið
frá Reykjavík austur fyrir fjall á
upphækkaðri Ford Econoline-
fjallabifreið þegar slysið átti sér
stað. Lögreglunni á Selfossi barst
í gær. Sjö menn voru fluttir á slysadeild.
tilkynning um slysið rétt upp úr
hádegi í gær.en aðkoman var ljót
og óttast að fólkið í bílnum væri
alvarlega slasað. Þokkalegt veður
var á heiðinni og skyggni ágætt en
nokkur skafrenningur. Líklegt er
talið að ökumaðurinn hafi misst
stjórn á bílnum vegna hálku með
þeim afleiðingum að hún valt og
endaði á toppnum utan vegar.
Fólkið var flutt á slysadeild en
meiðsli þess voru ekki alvarleg
eftir því sem næst var komist hjá
lögreglunni á Selfossi í gær. ■
Enginn
Póstur í
Bónusvídeó
Um leið og Pósturinn kom út síð-
astliðinn fimmtudag hringdi eig-
andi Bónus-vídeó á skrifstofu
blaðsins og tilkynnti að hann
seldi blaðið ekki framar. Sem
kunnugt er var forsíðufrétt
blaðsins um fíkniefnamisferli
Jóns Ólafssonar i Skífunni, eins
stærsta heildsala á myndbönd-
um á íslandi. Viðskiptavinum
Póstsins skal því bent á að þeir fara
erindisleysu ef þeir ætla að grípa
blaðið í Bónus-vídeó. Pósturinn
fæst hins vegar á öllum öðrum
blaðsölustöðum. ■
uiaiur bunmaugsson, nægrimao-
ur: „íslenskir þjóðernissinnar
vinna sitt starf af mikiili vanþekk-
ingu og hafa annarlegar skoðanir
á málunum."
birtingu greinar minnar sem ég
ritaði í Morgunblaðið síðastliðinn
febrúar varðandi rannsóknir á
kynþáttum þar sem ég gagn-
rýndi vísindin. Við áttum langt
og skemmtilegt spjall saman þar
sem hann innti mig eftir skoðun-
um mínum, og þrátt fyrir að ég
væri ekki í öllu sammála skoð-
unum hans, sem voru full öfga-
kenndar fyrir mig, þá var sann-
leikur í orðum hans. Ég er nú
ekki meðlimur í samtökunum,
en ég segi ekkert meira um það.
Alla vega ekki ennþá.“
SKRIFAÐIST Á VIÐ FORMANN
KU KLUX KLAN
En Ólafur Gunnlaugsson, 28 ára
öfgasinnaður hægrimaður, hef-
ur verið í nánu sambandi við
samtök sem og einstaklinga
með rasískar og hægrisinnaðar
hugsjónir í nokkur ár. Hann hef-
ur staðið í bréfaskriftum við er-
lenda kynþáttahatara og meðal
annars skrifaðist Ólafur á við
formann Ku Klux Klan í Banda-
ríkjunum um nokkurt skeið sem
hann segir hafa verið skemmti-
legan mann með raunsæjar
skoðanir.
„Islenskir þjóðernissinnar eru
afskaplega þröngsýnir og það
fólk er starfar hérlendis hefur
svo annarlegar skoðanir að ég
sleit öllum samskiptum við það
fyrir um þremur árum. Tölu-
verður fjöldi ungs fólks á íslandi
í dag, er alfarið á móti kynþátta-
blöndun og hefur gamaldags og
ansi róttækar skoðanir á málun-
um. Á íslandi er óvenju mikið af
hreinum og beinum kynþátta-
höturum og það kemur mér allt-
af meira á óvart hversu margt
ungt fólk hefur hatursfullt álit á
erlendum innflytjendum." ■
sóknarflokks á þingi, var dyggur
stuðningsmaður Norræns
mannkyns um góðan tíma og
sótti einna best fundi allra
skráðra félagsmanna þegar
starfsemin var í mestum blóma,
að sögn fyrrum formanns og
stofnanda samtakanna, Magnús-
ar Þorsteinssonar, bónda í Gríms-
nesi. Eftirmaður Magnúsar í for-
mennskunni var Einar S. Jóns-
son, fasteignasali og eigandi
fasteignasölunnar Landsbyggð-
ar í Reykjavík, og hefur hann
gegnt þeirri stöðu undanfarin
þrjú ár. Skráðir félagsmenn sam-
takanna eru nú um 200 talsins
en ekki hefur mikil starfsemi far-
ið fram að undanförnu vegna
anna formannsins við önnur
störf. Þrátt fyrir það eru uppi
hugmyndir um sameiningu
landsbyggðarinnar gegn inn-
flytjendum og samtökin bíða
enn síns tíma, sem sumir segja
að muni sannarlega renna upp.
Ingólfur Sigurðsson, Nýalsinni:
„Skoðanir þessar eru fullöfga-
kenndar fyrir minn smekk en samt
er margt áhugavert í þeim.“
VEIÐITÍMANUM LÝKUR ALDREI
Meðlimir samtakanna leita
uppi félagsmenn eftir ýmsum
leiðum og ónefndur heimilda-
maður PÓSTSINS sagði þá óstöðv-
andi í leit að áhugasömum félög-
um. Ingólfur Sigurðsson, Nýal-
sinni og pistlahöfundur, segir
svo frá:
„Ég fékk símtal frá einum með-
limi Norræns mannkyns eftir
■ Kynþáttahatur finnst í ríkum mæli á íslandi í dag og ekki að-
eins meðal miðaldra fólks heldur innan allra þjóðfélagsstétta. Sú
goðsögn hefur lengi loðað við landið að hér sé tærasta kynstofn-
inn að finna, því að hér búi ekkert litað fólk, hversu mikið sem til
er í þeim sögusögnum.
I Skráðir félagsmenn
samtakanna eru í dag um
200 talsins en ekki hefur
mikil starfsemi farið fram
að undanförnu vegna anna
formannsins við önnur
störf.
Kynþáttahatur lifir góðu lífi í
leynum á íslandi og fjöldi íslend-
inga í dag hefur öfgakenndar
skoðanir á blöndun kynþátta og
innflytjendum. Flestir kynþátta-
hatarar kjósa að hafa liægt um
sig vegna andúðar almennings á
skoðunum þeirra og í raun er
þessi stefna ekki mjög virk hér á
Íandi í dag. En fordómarnir
krauma undir niðri og þeir eru
margir skoðanabræðurnir hér-
lendis þrátt fyrir að í misjöfnum
mæli sé. Skoðanir þessar eru
ekki aðeins bundnar við mið-
aldra fólk af heimsstyrjaldar-
kynslóðinni með arískar hug-
sjónir, því að margt ungt fólk
býr yfir íhaldsömum skoðunum
í átt til hægri öfga. Þessum skoð-
anaflokkum má þó skipta niður
í þijá hópa. Fyrst ber að nefna
gömlu nasistana af þýska skól-
anum, sem fer óðum fækkandi,
en næst er stefna þjóðemis-
sinna, sem er mun fijálslyndari
þrátt fyrir öfgakenndar skoð-
anir á blöndun kynþátta. Hið
svokallaða Þriðja afl sem er
sprottið frá Evrópu, er afar
hægrisinnað en þó ekki rasískt
og má finna töluvert af fólki
hériendis sem hefur álíka skoð-
anir.
Hetnamarnir kveiktu bál í
HJORTUM ÞJOÐERNISSINNA
Samtök með rasískar hugsjón-
ir að leiðarljósi hafa verið starf-
rækt hérlendis um tíu ára skeið í
dag, samtök sem berjast gegn
innflytjendum og telja rót þjóð-
arvandans liggja í innfluttu fólki
og erlendum áhrifum. Þrátt fyrir
að ísienski nasistaflokkurinn
l^rafi verið lagður af um 1980 er
starfsemi hans síður en svo
undir græna torfu kominn, þrátt
fyrir að elstu félagsmenn þeirra
séu það hins vegar og enn má
finna nokkra meðlimi gamla
Nasistaflokksins sem starfa inn-
an vébanda nýrra samtaka í dag.
Rasísku samtökin Norrænt
mannkyn, sem starfrækt eru
hérlendis, samanstanda af fólki
með róttækar skoðanir í átt til
öfga og meðal þess sem samtök-
in hafa barist fyrir er lögbann
fóstureyðinga, en félagsmenn
telja fóstureyðingar hvetja til
ættleiðinga erlendra barna inn í
landið. Norrænt mannkyn tók til
starfa um það leyti er víet-
namska flóttafólkið tók að bera
til landsins og blossaði kyn-
þáttahatur einstakra manna upp
á þeim tíma.
f ASTEIGNASALI LEYSIR
B0NDANN AF I F0RMENNSKU
Samtökin hafa barist fyrir
ýmsum málefnum gegnum árin
og meðal annars staðið fyrir
undirskriftasöfnunum fyrir lög-
banni fóstureyðinga og margoft
hefur þingið tekið við beiðnum
þeirra um sérstaka löggæslu til
verndar þjóðarstofninum. En
samtökin hafa einnig átt sína
fulltrúa á þingi. Þórarinn Sigur-
jónsson, fyrrum fulltrúi Fram-
Uppganqa nasista á íslandi