Helgarpósturinn - 27.03.1995, Blaðsíða 9
'MrAWS*MMN 0 ÐWGUJ R1
wX-.... :
UTLOND
i
T
• «
I t
Craxi stuttbuxnaklæddur á gangi íTúnis.
FaHeraðup ior-
sæfisráðherra
•Bettino Craxi, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, býr nú í útlegð í
Túnis. Hann þorirekki aðsnúaheim endavofiryfirhonumfang-
elsisvist.
Craxi var forsætisráðherra
Ítalíu samfellt frá 1983 til 1987
og er það met í ítölskum stjórn-
málum eftir stríð. Hann varð
leiðtogi Sósíalistaflokksins 1976
og leiddi hann til áhrifa og virð-
ingar. Crítxi var á sínum tíma
sagður hafa slegið nýjan tón í
ítölskum stjórnmálum, hann
var álitinn nútímamaður sem
væri tákn um nýtt siðgæði og
nýjan stíl.
Þetta hefur öldungis reynst
vera tálsýn. í ljós kom að Craxi
er einhver spilltasti stjórnmála-
maður í Evrópu og eftir
hneykslismál undanfarinna ára
heyrir Sósíalistaflokkur hans
sögunni til.
FJÖRUTÍU LÍFVERÐIR
Craxi býr í hálfgerðu virki í
fiskimannaþorpinu Hammamet
í Túnis. Hann hefur fjörutíu líf-
verði sem gæta hans dag og
nótt. Hann eyðir tíma sínum í
að horfa á gervihnattasjónvarp
en fylgist þó vel með réttar-
höldum sem standa yfir í Míl-
anó. Þar er hann í aðallhlut-
verki — eða væri það réttar
sagt, ef hann væri ekki á flótta
undan réttvísinni. Craxi fylgist
einnig grannt með réttarhöld-
unum yfir Giulio Andreotti, öðr-
um falleruðum forsætisráð-
herra Ítalíu. Andreotti er gefið
að sök að hafa átt í samstarfi
við mafíubófa.
Á sínum tíma var Craxi mikið
eftirlæti fjölmiðla. Á Ítalíu var
hann eins konar tákngervingur
^jppatímans og hann var alltaf
umkringdur jámönnum og fögr-
um konum sem voru einkaritar-
ar hans. Hann talaði aldrei við
aðra blaðamenn en voru á mála
hjá Sósíalistaflokknum; öðrum
blaðamönnum svaraði hann
bréfleiðis.
ÍSIMTOL
Til að bæta gráu ofan á svart
segist Craxi hafa misst heilsuna
og notar það reyndar sem af-
sökun fyrir því að mæta ekki
fyrir dóm á Ítalíu. Craxi þjáist af
sykursýki. Hins vegar leggja
ítalir mátulega trú á þetta og
telja það fyrirslátt. Á Ítalíu njóta
sex milljón manns örorkubóta
sem byggðar eru á sviknum
læknisvottorðum.
Ekki bætti heldur úr skák þeg-
ar hann hitti gamlan vin sinn,
Mario Soares, forseta Portúgals.
Soares lét svo um mælt að
Craxi virtist við bestu heilsu.
Þegar Craxi er ekki að horfa á
sjónvarpið er hann í símanum
og hringir án afláts til Ítalíu.
Annað hvort skammast hann þá
út í fólk eða reynir að sannfæra
það um sakleysi sitt.
Craxi segist hafa fært minn-
ingar sínar í letur. í þeim komi
fram ýmislegt misjafnt. Hann
segir að ef hann verði fyrir
banatilræði viti menn hvert eigi
að leita tilræðismannanna. Það
verði einhver sem eigi allt undir
því að þagga niður í Craxi. Tún-
isstjórn tekur slíkt mark á þess-
ari hættu að hún leggur mikið
undir til að verja líf Craxis og
eiginkonu hans.É
Haraldur missir flmmtán kíla
iHaraldur Noregskonungur
hefur veriö í stífum megrunar-
kúr og meö ágætis árangri.
Norömenn eru hins vegar ekki
vissir um aö þeim líki við svo
mjóan kóng.
Eins og kunnugt er af fréttum
hafa ýmsir nafnkunnir stjórn-
málamenn verið í megrunarkúr
upp á síðkastið með ágætis ár-
angri að því er virðist. Eða er
Davíð Oddsson ekki orðinn hálf
horaður? Össur Skarphéðinsson
og Gro Harlem Brundtland hafa líka
verið að slást við aukakílóin.
Nú er orðið uppvíst að Harald-
ur Noregskonungur hefur einnig
verið á stífum megrunarkúr. Eins
og sést á meðfylgjandi myndum
var hann orðinn helsti feitlaginn
í ágúst 1993. Hann hefur aldeilis
Haraldur — fyrir...
bætt úr því og segja sérfræðing-
ar sem hafa virt af sér myndir af
kónginum að hann hafi misst um
fimmtán kíló. Norðmenn eru
hins vegar ekki alveg vissir um
í tiiefni stækkunar
Aðalbónstöðvarinnar
DJOOUITI VIO.
:
Notum aðeins
%
dii&í
fólksbílar kr. 2000-
jeppar kr. 3000-
Alþrif og vélarþvott
fólksbílar kr. 2500-
jeppar kr. 3500-
Aðal-alþrif
Alþrif + djúphreinsun, vélarþvottur
fólksbílar kr. 4500-
jeppar kr. 5500-
Gerum tilboð í blettanir og útvegum efni.
f-| int>|A im£iw
blilbiC lHfOÍJIk
vörur
Opið virka daga
kl. 7:30 - 22:00
Opið laugardaga
og sunnudaga
kl. 10:00 -22:00
Suðurlandsbraut 32, bakhús S: 568 1516, 568 8060
Sækjum og skilum bílum þér að kostnaðarlausu
COSBY, NÆSTUM 20 KÍLÓUM
LÉTTARI.
C0SBY BREYTIR
...og eftir.
hvort þeim líkar við hinn nýja
Harald, enda fannst þeim hann
líkjast föður sínum þegar hann
var í feitari kantinum, þeim ást-
sæia Ólafi.H
UIVI HAM
Frœgt fólk notarýmsar
aðferðir til að ná afsér
aukakílóunum. Sjón-
varpsstjarnan Bill Cosby
leist ekki á sjálfan sig
þegar hann leit í spegil,
enda var hann orðinn
heil 115 kíló. Cosby leit-
aði ráða hjá vinkonu
sinni Oprah Winfrey sem
eitt sinn var afar feitlag-
in. Henni tókst að megra
sig allverulega með því
að sœkja tíma hjá nála-
stungulœkni. Oprah gaf
Cosby heimilisfang
lœknisins og afleiðingin
var sú að hann léttist í
97 kíló á aðeins fimm
mánuðumM
Julie Delphy finnst hún ekki
NÓGU DUGLEG.
JULIE VAKNAR
KLUKKAN SEX
Franska kvikmynda-
leikkonan Julie Delphy
segist vakna kluhkan
sex á hverjum morgni.
Annars komi hún ekki
öllu í verk sem hún þarf
að gera. Delphy, sem er
24 ára, lék meðal ann-
ars í Hvítum, mynd
Krysztof Kieslowski. Delp-
hy er ekki bara leikkona
heldur fcest hún líka við
að skrifa og leikstýra.
Hún segist samt sóa tím-
anum í vitleysu, hefði
hún lagt harðar að sér
hefði hún átt að geta
skrifað tvö hundruð
kvikmyndahandrit síð-
ustu tvö árinM
u INFORM IIX m : i ; : ' - X - ;..s
- Útbreiddasti gagnagrunnur íslands STRENGUR hf. - í stöðugri sókn
' & ”.ííl fKÁfc '-ft- U. .' áUNIX Stórhöföa 15, Reykjavík, sími 587 5000
Clapton, sem hér er ásamt
Naomi Campbell.
Kvennabósinn
Clapton
Konursem hafa átt
kynni við gítarsnilling-
inn Eric Clapton segja að
hann sé rómantískasti
maður í heimi. Þessar
konur eru ekki svo fáar,
enda skýrði Clapton frá
því að 1974 hefði hann
þegarsofið þjá þúsund
konum. Meðal þeirra
kvenna sem sagt er að
hafí sœngað með Clap-
ton eru leikkonurnar
Michelle Pfeiffer, Tatum
O’Neil og Lori Del Santo
en af fyrirscetum má
nefna Naomi Campbell og
Carla Bruni. Auk þess má
bœta d listann söngkön-
unni Grace JoricsM