Helgarpósturinn - 27.03.1995, Page 11
Óstarfhæf
Samstarfsnefnd sjómanna og út-
gerðarmanna, sem á að taka á
kvótabraskinu, er nánast óstarf-
hæf eftir síðasta úrskurð. Þetta
kemur fram í Víkingi sem kemur út
í dag. Ástæðan er sú að nefndin
úrskurðaði að áhöfnin á Alberti
GK hafi verið látin taka þátt í
kvótakaupum en í mjög svipuðu
máli þar sem Hólmaborg SU átti í
hlut greiddi formaðurinn atkvæði
á móti. Hólmaborgin er í eigu fyrir-
tækis Alla ríka á Eskifirði en bæði
málin snúast um landanir á síld til
Alla ríka. Eftir að hann útvegaði Al-
berti GK 400 tonna síldarkvóta
lækkaði verðið á síldinni. Þetta
þótti meirihluta nefndarinnar rak-
ið dæmi um að áhöfnin hafi verið
látin taka þátt í kvótakaupum. ■
Fáleikar og slirt starf
#Miklir fáleikar eru sagðir milli tveggja valdamestu manna lands-
ins í hrossarækt, þeirra Þorkels Bjarnasonar og Kristins Huga-
sonar, en báðir eru þeir hrossaræktarráðunautar hjá bændasam-
tökunum. Margir bændur og hrossaræktendur eru sagðir hafa
töluverðar áhyggjur af þessu, enda talið nauðsynlegt að þessir
menn, sem meðal annars eru helstu hrossadómarar landsins, eigi
samstarf sín á milli.
Deilur þeirra og samstarfserfið-
leikar hafa meðal annars birst á
síðum hestatímaritanna Eiðfaxa
og Hestsins okkar, eða í „hófa-
pressunni", eins og hestamenn
nefna tímaritin oft. Þar hefur
Kristinn til dæmis gagnrýnt Þork-
el óbeint fyrir að hafa verið á kafi
í eigin hrossarækt á sama tíma og
hann dæmdi annarra manna
hross. Þorkell hefur á hinn bóg-
inn sagt að Kristinn hafi ekki sýnt
sér nægilega virðingu og ekki nýtt
sér áratuga reynslu sína í starfi.
Þorkell Bjarnason.
Hefur Þorkell meðal annars sagt
að hann hafi verið reiðubúinn að
draga sig í hlé fyrir nýjum manni,
en nú sé hann að hugsa um að
starfa lengur og gæti hann því
verið í starfi allt til 1998, sem
Kristni mun ekki þykja sérlega
þægileg tilhugsun.
Deilur hrossaræktarráðunauta
Kristinn Hugason.
eru annars ekki nýjar af nálinni
og má til dæmis nefna að þeir
Gunnar Bjarnason, fyrrverandi
ráðunautur og Þorkell Bjarnason
hafa í marga áratugi deilt hart á
opinberum vettvangi, svo sem
um útflutning kynbótahrossa,
gjöld í stofnverndarsjóð og margt
fleira.B
Andseta illra afla á Suðurnesiunum
Miðilsfundi
•Birgir Þórarinsson, guðfræðinemi af Suðurnesjunum,
heldur uppi teiknum á lofti sem benda til árása illvígra
anda inn á miðilsfundi. Hann hefur ritað nokkra pistla þess
efnis til Víkurfréttta á Suðurnesjum að undanförnu, þar
sem hann hefur barist hatrammri baráttu gegn hinu illa í
heimabæ sínum í formi spíritisma. Biblían vitnar til sær-
ingamanna og -kvenna sem starfa gegnum kölska sjálfan
en í nýrri þýðingu Biblíunnar sem út kemur kringum árið
2000 mun orðið særingamaður þýtt sem miðill, að sögn
Birgis. Pósturinn tók Birgi tali og gægðist um leið inn í
Guðs orð.
„Gamall brandari innan guð-
fræðideildarinnar segir klæða-
skáp kölska fullan af gervum hins
góða, þar sé að finna presthemp-
ur og vængi engla sem hinn illi
sjálfur getur brugðið yfir sig ef
svo beri við. Þetta er nú reyndar
gamansama útgáfan af háalvar-
legu máli, en hið illa býr yfir
römmum hæfileikum til blekking-
ar ásýnd sinni og selur saklausu
fólki oft ranghugmyndir. Hið illa
getur, ef svo ber við, tekið á sig
ásýnd látinna ættingja og ást-
vina. Því miður er þetta raunin á
miðilsfundum og þetta er það
sem gerist þegar miðlar falla í
trans,“ segir Birgir um áhrif spír-
itisma og andleg málefni.
En hvorum megin línunnar
vinna þá miðlar sitt starf, er
þetta fólk undir hæl kölska sjálfs
í hans augum?
„Það fólk sem starfar að þess-
um málum er góðhjartað og
vinnur starf, sem það telur
hjálpa öðrum. En þetta fólk gerir
sér ekki grein fyrir því við hvað
það er að fikta. Það segir Guðs
orð okkur og orð fyrrverandi
miðla sem hafa séð sannleika
málsins. Margir miðlar hafa ekki
áttað sig á þessu fyrr en í óefni
hefur verið kömið.^
#„Við vitum það
nú alveg að það
eru gífurlegir fjár-
munir í þessum
bransa."
ILLIR ANQAR REKNIR UT
GEGNUM SIMA
„Við vitum það nú alveg að
það eru gífurlegir fjármunir í
þessum bransa. Seint síðastliðið
ár var viðtal við formann Sálar-
rannsóknarfélags Reykjavíkur þar
sem hann sagði 1200 beiðnir
hafa borist félaginu síðasta ár,
varðandi útrekstur illra afla af
heimilum. Og hann lýsir því sjálf-
ur hvernig það fór fram, þeir
ráku illu andana út gegnum síma
og sendu svo viðkomandi gíró-
seðil í pósti upp á 2000 krónur.
Þarna erum við komin með 2
milljónir króna í tekjur félagsins,
einungis fyrir að taka upp
símann,“ segir Birgir ennfremur.
„Þetta er bara svo hlægilegt
vegna þess að ef fólk.tejur sig
^hefur verið kömið.^ ' - vegna þess að ef fólk^-tejur si
finna fyrir ónbtum á sínum heim-
ilum þá getur það haft samband
við sinn sóknarprest sem mætir
á staðinn bg fer með bænir með
heimilisfólki þeim að kostnaðar-
lausu. í húsnæði Sálarrannsóknar-
félags Suðurnesja varð uppi fótur
og fit í fyrra þegar mikill drauga-
gangur fór að gera vart við sig.
Þarna þurfti að aflýsa fundum og
reyndar komust fjölmiðlar í
þetta. Ef Guð á að vera staddur á
miðilsfundi, hvers vegna í ósköp-
unum ríður þá draugur þarna
húsum? Það er eitthvað bogið
við þessar staðreyndir. Forráða-
menn félagsins brugðu á gömul
húsráð til varnar öflunum og
dreifðu salti í öll horn, þarna
voru menn að mola niður rúg-
brauð og í mínum augum var
þetta eins og hver annar fífla-
gangur. En svo hætti nú þessi
andseta að lokum.“
Hfólk er feimid við
FRELSARANN
„Um 90 prósent landsmanna er
skráður í Þjóðkirkjuna, en mér
finnst það mjög miður að orð
Gúð? é,r., flfii^ið,;feiinnism41, -þjá
Birgir Hrafnson guðfræðinemi:
„Ég tel guðs hjálp mun sterkara
vopn en allt þetta andakukl
nútímans".
fjölda fólks og það þykir reyndar
mjög töff, ef svo má að orði kom-
ast, að vera í þessu rugli sem
miðlastarfsemi er. Fjölmiðlar
hafa brugðist mjög í þessum efn-
um. Tveir ungir drengir týndust
á Suðurnesjunum fyrir nokkru
síðan en þá var því komið á fram-
færi gegnum fjölmiðla, að leitað
hefði verið til miðla. Þeir gátu
sagt að drengirnir væru lokaðir
inni, en ekki hvar þeir væru. Ég
get ímyndað mér hvernig að-
standendum þessara drengja
varð við þegar þeir heyrðu þessi
orð og hefði ég ekki viljað vera í
þeirra sporum. Það var engin
sáluhjálp í þessu fólki og ég skil
ekki hvers vegna þessir miðlar
voru að blanda sér inn í leitar-
starfið ef hjálpin var ekki meiri
en raun bar vitni. Ég sé engan
kristilegan kærleik við þetta og
tel guðs hjálp mun sterkara vopn
í lífsbaráttunni en þetta anda-
.1.0 5k> libixo l::
frá hlut-
höfum í
Miðli hf.
JÁ
í ljósi umræðu síðustu daga i
tengslum við birtingu greinar
um Jón Óiafsson teija hluthafar
og ritstjórn Morgunpóstsins rétt
að eftirfarandi komi fram:
Aðfaranótt s.l. fimmtudags
stöðvaði Friðrik Friðriksson
prentun Morgunpóstsins eftir að
ritstjórn hafði skilað blaðinu af
sér til prentsmiðju. Blaðstjórn
harmar þessi vinnubrögð Frið-
riks Friðrikssonar og biður les-
endur afsökunar á þeirri töf sem
varð á útgáfu blaðsins.
Þá hefur verið reynt að gera
ritstjórnarleg viðfangsefni blaðs-
ins tortryggileg á þeim forsend-
um að ekki hafi verið birt hverjir
það eru sem eiga útgáfufélag
blaðsins. Þó almennt sé ekki
hægt að elta ólar við umræðu af
þessu tagi, verður að teljast
nauðsynlegt af þessu tilefni að
upplýsa hverjir eigi blaðið og
bera ábyrgð á því.
Gunnar Smári Egilsson
Kristinn Albertsson
Bimingur hf.
Ámi Mölier
Andrés Magnússon
Hafsteinn Egilsson
Brúarstólpi hf.
Stór hópur þeirra sem stofn-
uðu blaðið seldi fyrir nokkru síð-
an hlut sinn eins og skýrt hefur
verið frá opinberlega. Kaupandi
þessa hlutafjár var hlutafélagið
Brúarstólpi hf. Eigendur Brúar-
stóipa hf. eru Friðrik Friðriksson
og Árni Möller.
Það var af tiilitsemi við Friðrik
Friðriksson og að hans eigin ósk
að ekki var látið koma fram opin-
berlega hverjir það eru sem eiga
hlut í Brúarstóipa hf. Friðrik
taldi það henta hagsmunum sín-
um og konu sinnar, Elínar Hirst,
fréttastjóra á Stöð 2, að haldá
þessum kaupum frá opinberri
umræðu. Friðrik mat það svo að
ef uppiýst væri hve stór hluthafi
hann væri að Morgunpóstinum
gæti það haft áhrif á starfsöryggi
konu hans. Að auki kom hér til
ýmislegt fleira sem snertir hann
persónulega.
Það hefur vissulega komið
þeim sem til þekkja undariega
fyrir sjónir með hvaða hætti þau
hjónin Elín og Friðrik stóðu að
því að stöðva útgáfu blaðsins og
ritskoða það s.l. fimmtudag. Af
þessum fáheyrðu viðbrögðum
sést, að þau hjónin gengu ekki
erinda blaðsins, heldur annarra
hagsmuna blaðinu óviðkomandi.
Ritstjórn sérhvers blaðs getur
aldrei sætt sig við íhlutun af því
tagi sem hér var viðhöfð. Því var
það að hluthafar og stjórn blaðs-
ins studdu ritstjórnina og sjálf-
stæði hennar einhuga — ef frá er
talínn Friðrik Friðriksson. Og
bjaðið.var prentað
Meirihluti
JilLÍUS SÓLNES ÆTLAR AÐ
STYÐJA FRAMSÓKNARFLOKKINN.
JÚLÍUS Á EFTIR
Inga Birni
Þuð er skrautlegt uð
fylgjast með pólitískum
þreifíngum tyrrum Borg-
arafíokksmanna þessa
dagana. Ingi Björn Al-
bertsson, hefur gefíð út
yfírlýsingu um að hann
œtli að styðja Fram-
sóknarflokkinn í kom-
andi kosningum. Hinn er
Júlíus Sólnes, prófessor
og fyrrum umhverfísróð-
herra. „Ég íhuga alvar-
iega að styðja Fram-
sóknarflokkinn, “ segir
Júlíus, „...oglítþar
auðvitað til hinnar
gömlu stefnuskrúr Borg-
araflokksins. Við Borg-
arafíokksmenn stað-
nemumst einna helst við
Framsóknarfíokkinn, “
fullyrðir Júlíus. ■
Guðmundur Agústsson seg-
IR HINS VEGAR FRAMSÓKNAR-
FL0KKINN SÍSTA K0STINN.
Guðmundur
EKKI IVIEÐ
En Guðmundur Ágústsson
lögmaður, sem einnig er
fyrrum þingmaður Borg-
araflokksins, segir hins
vegar Framsóknarflokk-
inn sísta kostinn. „Ég vil
helst sem minnst af
þeim fíokki vita“, segir
Guðmundur. Um hvaða
flokk hann œtlar að
styðja í nœstu kosning-
um vildi hann lítið segja.
„Það eru nú enn nokkrir
dagar til kosninga, en
œtli ég komi ekki til með
að styðja annan hvorn
stjórnarflokkinn.“ ■
Asgeir Hannes Eiríksson
ÆTLAR AÐ STYÐJA JÓHÖNNU.
JÓHÖNNU
Ásgeir Hannes Eiríksson er
sú sem œtlar að styðja
Jóhönnu Sigurðardóttur.
„Það er langt til kosn-
inga og margt gott fólk í
Framsóknarfíokknum en
ég held ég styðji nú Jó-
hönnu. Það þýðir þó
ekki það sama og að ég
styðji Þjóðvaka enda
fínnst mér að pólitík eigi
að vera persónubundin.
Þetta með Jóhönnu
byggir d gömlum tengsl-
um við fjölskylduna. Það
sem hefur líka með
þessa afstöðu mína að
gera er að vera engum
húður og getu kosið það
sem manni sýnist, eins
og ég held að lang
.. stœrsli filúti'þjóðarihn-
arhugsi. ■