Helgarpósturinn - 27.03.1995, Blaðsíða 13
1995 27. MARS MANUDAGUR
MEIRA MANNLiF
Ólína Þorvaröardóttir og Sigurður Pétursson frammáfólk í Pjóðvaka:
Aka um á bíl merktum XD
•Ólína Þorvarðardóttir ritstjóri blaðs Þjóövaka og eiginmaður
hennar Sigurður Pétursson, sem skipar efsta sæti lista flokksins
á Vestfjörðum, aka um á bíl með skráningarplötum merktum XD.
Ólína segir þetta ekki hafa valdið þeim miklu hugarangri.
„Þessi bíll var keyptur í borgar-
stjórnarkosningunum síðastliðið
vor. Á sama tíma og Reykjavíkurl-
istinn var í kosningabaráttunni
gegn Sjálfstæðisflokknum þá
labbar Siggi upp í umboð og kem-
ur með bílinn heim. Ég horfi á
hliðina á bílnum, sest inní hann
og prufukeyri og er mjög ánægð
og vil að hann kaupi bílinn. Svo
fer hann og gengur frá kaupun-
um. En þegar ég sé hann koma ak-
andi til baka niður brekkuna
rennur upp fyrir mér að það
stendur XD framan á bílnum. Það
lá við að við leigðum okkur bíl-
skúr til þess að fela ökutækið rétt
á meðan kosningarnar stóðu yfir.
Og nú er sama vandamálið á döf-
inni; við í harðri kosningabaráttu
fyrir Þjóðvaka en ökum um kyrfi-
lega merkt Sjálfstæðisflokkn-
um,“segir Ólína.
Ólína neitar því alfarið að þau
hjón hafi orðið fyrir aðkasti frá
flokkssystkinum sínum í Þjóð-
vaka út af skráningarplötum bíls-
ins og segir þær þvert á móti hafa
vakið töluverða kátínu.
Aðspurð hvort þeim hafi ekki
dottið í hug að fara þess á leit við
Bifreiðaskoðun íslands að fá
skráningarnúmeri bílsins
breytt, segir Ólína:
„Nei, við höfum nú ekki
lagt svo þunga merkingu í
þetta. Okkur finnst þetta
aðallega fyndið og þetta
hefur verið hálfgerður
brandari í fjölskyldunni."
Þar sem nú er skammt
til kosninga liggur beint
við að spyrja Olínu að því hvort
þau ætli að fara á bílnum á kjör-
stað?
„í borgarstjórnarkosningunum
lögðum við tveimur götum frá og Ólína Þorvaröardóttir og
gengum svo á kjörstað. Það verð- Sigurður Pétursson viö
ur sjálfsagt eitthvað svipað upp á fjölskyldubílinn sem er
teningnum núna.“ ■ ejns oa sest merktur XD.
Týndi nærri því eina eintakinu af myndinni.
Eins og PÓSTURINN hefur
sagt frá leit allt út fyrir að
Jóhann Sigmarsson, leik-
stjóri Einnar stórrar fjöl-
skyldu, myndi missa af
frumsýningu myndar sinn-
ar næsta föstudag þar sem
hann hafði verið boðaður í
afplánun 40 daga fangelsis-
dóms þann 24. mars vegna
ítrekaðs ölvunaraksturs.
Jóhanni hefur nú tekist að
fá afplánun sinni frestað
um mánuð og getur því
verið viðstaddur frumsýn-
inguna.
„Já, ég hringdi frá Kaup-
mannahöfn, þar sem var
verið að útbúa sýningar-
eintak af myndinni, í hann
Erlend hjá Fangelsismála-
stofnun og hann gaf mér
frest til 23. apríl. Eg sagði
honum að ég væri að frum-
sýna mynd og gæti ekkert
verið að fara inn á þessum
tíma. Hann skildi það al-
veg.“
Jóhann sleppur sem sagt
í bili við að fara í steininn
en það munaði hins vegar
litlu að ekkert yrði af frum-
sýningunni af annarri
ástæðu. Jóhann var búinn
að gera samning við fram-
köllunarfyrirtæki í London
um að útbúa sýningarein-
tak af mynd sinni. Þegar
hann fór síðan út á dögun-
um kom í ljós að hann gat
ekki greitt uppsett verð
fyrir þessa þjónustu.
Jóhann dó þó ekki ráða-
laus heldur útvegaði sér
hagstæðara tilboð frá fyrir-
tæki í Kaupmannahöfn, tók
frumeintökin af myndinni
úr vörslu enska fyrirtækis-
ins og pantaði flug til
Kaupmannahafnar. Þegar
þangað kom uppgötvaði
hann hins vegar, sér til
mikillar skelfingar, að spól-
urnar með myndinni höfðu
týnst á leiðinni.
„Ég stóð þarna á flugvell-
inum og vissi ekki hvað ég
átti að gera; hvort fjögurra
ára vinna væri farin í vask-
inn og 20 milljónir gufaðar
upp á þessum eina klukku-
tíma sem ég skildi við
myndina í flugvélinni."
Eftir nokkrar örvænt-
ingafullar klukkustundir
kom þó tii allrar lukku í
ljós að pakkinn með
myndinni hafði orðið eftir
á Heathrow-flugvelli og Jó-
hann gat tekið gleði sína á
ný.
Ein stór fjölskylda verður
frumsýnd næsta föstudag í
Háskólabíói. ■
Afliurða ljúffengt hreint Kóloinbíukaffi ineð kröftugu og frískandi bragði.
Kaffið er meðalbrennt seni laðar fram hin fínu blæbrigði í bragði þess.
Kólombíukaffi var áður í hvítmn umbúðuni.
MEÐALBRENNT
Einstök blanda sex ólíkra kaffítegunda. Milt Santos kaffi frá Brasilíu
er megin uppistaðan. Kólombíukafli gefur ilminn og frísklegt, kröftugt bragð.
Blandan er loks fullkomnuð með kostakaffi frá Mið-Ameríku
og kjarnmiklu Kenýakaffi.
'tKini.Bnrwr
GEVAUA
K ' KFI 50« C.
E-BRYGG sérhlanda
Kaffi sem lagað er í sjálfvirkuin kaffikönnum þarf að búa yfir sérstökum
eiginleikum til að útkoman verði eins og best verður á kosið.
Gevalia E-brygg er blandað með sjálfvirkar kaflikönnur í huga.
Aðems grófara, bragðmikið og ihnandi.
GEVAUA
-Það er kaffið!
Fádæma gott kaffi frá eyjunni Java í Indónesíu. Bragðið er mjúkt,
hefur mikla fyllingu og sérstaklega góðan eftirkeim
sem ehikennir Old Java. Kaffi sem ber af.