Helgarpósturinn - 23.11.1995, Page 3

Helgarpósturinn - 23.11.1995, Page 3
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER1995 3 im Flestir bendir til að Valdi- mar Jónsson, sem oftast er kenndur við veitinga- staðinn Valhöll á Þingvöllum (Valdi í Valhöli), sé nú endan- lega kominn á mölina eftir að hafa verið hótelstjóri í sveit- inni í mörg ár. Á dögunum fjár- festi faðir hans nefnilega í veit- ingastað í miðborginni en hann á fyrir tvö hótel; Hótel Valhöll og Hótel Örk í Hvera- gerði. Valdimar stýrir nú Car- uso, sem staðsettur er á Þing- holtsstræti 1, gegnt Sólon ís- landus, og mun væntanlega gera, að minnsta kosti þar til Valhöll skríður úr híðinu í vor. Risið á Caruso hefur ekki verið hátt að undanförnu en hækkar væntanlega með nýjum eig- endum... Skyndilegt brotthvarf Bjama P. Magnússonar úr starfi sveitarstjóra í Reykhólahreppi á sér langar og flóknar skýringar og tengist kaupum hreppsins á jörð sem var í eigu R a n n - s ó k n a - stofnunar landbún- aðarins. B j a r n i mun hafa varað hreppinn við kaupunum vegna kostnaðar sem nam um það bil skatttekj- um hreppsins í heilt ár, en þau voru frágengin þegar hann tók við starfinu. Bónda nokkrum í sveitinni voru síðan seld bú- stofn og fjárhús á jörðinni, en sjálfur keypti Bjarni íbúðar- húsnæði þar. Þau kaup öll flæktust svo verulega þegar kom í ljós að jörðin sú arna var hvergi til í löglegum jarða- bókum, heldur hafði verið „bú- in til“ með lögum árið 1944. Af þessum sökum var ekki hægt að gefa út afsal og aðra papp- íra tengda kaupunum, en úr málavafstrinu öllu varð svo til- færsla á peningum á milli Bjarna og hreppsins sem nú eru gerðar athugasemdir við. Kunnugir telja að Bjarni hafi skýlaust framið þá gjörninga í heimildarleysi, en fullyrða jafnframt að það hafi ekki ver- ið í eigin ábataskyni, enda hafi hann ekkert haft upp úr þessu persónulega. Hreppurinn gerir nú fjárkröfur á hendur Bjarna, en búast má við umtalsverð- um gagnkröfum frá honum áð- ur en öll kurl eru komin til grafar... 4 Iþýðubandalagsfélögin /\ Birting og Framsýn í JL JLReykjavík sameinast um næstu helgi, sem þykja nokkur tíðindi. Birting var á sínum t í m a h u gs u ð sem vett- v a n g u r „lýðræð- i s k y n - s 1 ó ð a r - innar“ og annarra s e m stóðu fyr- ir utan flokkinn og náði nokkrum árangri sem slík. Framsýn er mun yngra fé- lag sem erfiðara hefur gengið að skilgreina sig. En eins og haft er eftir Arthuri Morthens, varaformanni Birtingar, í Morg- unblaðinu í gær: „Þegar menn fóru að ræða saman kom í ljós að menn höfðu mjög svipaðar skoðanir á fjölmörgum rnálurn." Það kom sem sagt í ljós að þegar fólk, sem hafði verið nokkur ár saman í flokki, fór loksins að tala saman, hafði það bara nokk svipaðar skoðanir. Ja hérna hér... Það eru ótrúlegar tölur sem berast af samdrætti hjá bókaútgefendum á síðustu árum. Samkvæmt upp- lýsingum, sem Viðskiptablaðið aflaði sér, nam sam- dráttur í fyrra hjá stærstu útgefend- um alls tæplega 280 millj- ónum, en er hvorki meira né minna en 600 milljónir á síð- ustu þremur árum. Ekki er hægt að fullyrða að hér sé virðisaukaskatti einum um að kenna, en jafnljóst er að skatt- urinn sá ætlar ekki að skila miklum tekjum í ríkis- . sjóð. Bókaútgefendur varast þó að kveinka sér mikið yfir þessum tölum, þótt einhverj- um þætti ástæða tií, því slíkt ýti aðeins undir neikvæða af- stöðu fólks til bókar- innar sem dýrrar vöru. Þess er þó varla langt að bíða að einhver af menning- arvænni þingm'önn- um landsins leggi tii að virðisaukaskattur af bókum verði felld- ur niður og þá stend- ur upp á Framsóknar- flokkinn að efna lof- orð sín þess efnis frá því í vor... kokteil Hún er komin: m Bókaútgefendur munu varla aug- lýsa það fyrir þessi jól að íslenskar bækur hafi ekki hækkað í verði, en það hefur verið eitt helsta slagorð þeirra undanfarin ár. ís- lenskar skáldsögur virðast þetta árið ætla að kosta tæp- lega fjögur þúsund krónur, en dýrustu geisladiskar, sem helst keppa við bæk- ur á markaðnum, kosta um tvö þúsund krónur... Fyrir rúmu ári opnuðu tvö pör, þau Bára Hólm- geirsdóttir og Alfreð Kristinson ásamt þeim Sigrúnu Guð- nýju Markúsdóttur og Gísla Gíslasyni, tískuverslunina Flau- el við Laugaveg. Þrátt fyrir að margar slíkar séu þar fyrir þótti fljótt sýnt að áhugi væri fyrir því sem verslunin hefur upp á að bjóða, því á einu ári hefur Flauel náð að festa sig vel í sessi. Og nú í haust náðu eigendur versl- unarinnar augljós- lega — ef horft er yfir unglingahópa — enn og aftur að veðja á réttan hest með því að kaupa inn mikið magn af kanaúlpum. Það var Sigrún Guðný sem sá komandi tísku fyrir þegar hún var á tískusýningum er- lendis fyrir rúmu ári, en frá upphafi hefur það einmitt verið hún sem hefur haft gleggsta sýn á þarfir unga fólksins. Það er því vel að á dögunum náðist samkomulag um að hún og Gísli keyptu hlut Alfreðs og Báru. Kaupverð fékkst ekki uppgef- ið... Rescue 911 kvikmyndaði eina af sögum þessarar bókar og hefur sýnt tveimur öðrum mikinn áhuga verðursýnd heim á næstunni Tiu þyrlufiugmenn bjarga skipverjum af Goðanum Skipverjum af Tungufossi Drukknandi manni bjargað úr Hvítá (nniiokuðu fólki bjargað úr brennandi fjölbýlishúsi Ótrúlegir atburðir í Reykjavíkurhöfn ri

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.