Helgarpósturinn - 23.11.1995, Qupperneq 12
12’sm
F1MMTUDAGUR 23. NÓVEMBER1995
Það má kannski segja að Siv Friðleifsdóttir sé einn af fáum
þingmönnum sem hafa haldið uppi fjöri á óvenjudaufu þingi. Egill
Helgason skrifar um þetta óvenjulega eintak á Alþingi Islend-
inga, unga og framhleypna framsóknarkonu af mölinni.
með vöxtum þegar tíminn er
réttur,“ segir Birgir.
Siv er hins vegar ný tegund
af framsóknarmanni að því
Ieytinu að hún leitar stanslaust
inn í sviðsljósið meðan
óbreyttir framsóknarþing-
menn hafa hingað til verið
þekktastir fyrir að þegja þunnu
hljóði. Framsóknarmaður segir
í samtali við Helgarpóstinn að
mörgum þyki Siv helsti frek og
ágeng, ekki síst þyki konum í
flokknum nóg um framgang
hennar og finnist hún trana sér
óþarflega fram. Hins vegar sé
staða hennar óneitanlega
nokkuð sterk að vera ung og
lagleg kona í jafnmiklu karla-
samfélagi og Framsóknarflokk-
urinn er og því eigi hún
kannski auðvelt með að vera
eftirlæti manna þar, eins og
framsóknarmaður orðar það.
Þótt Siv verði raunar seint
talin einhver sérstök mælsku-
kona er að minnsta kosti víst
að hún á auðvelt með að skjóta
flestum framsóknarmönnun-
um á þingi ref fyrir rass í fjöl-
miðlum og er sagt að sumum
þeirra athyglisglaðari í hópi
þeirra hafi sárnað það nokkuð.
Engin
draktarkona
Sigurgeir, bæjarstjóri á Sel-
tjarnarnesi, segist ekki búast
við að Siv rekist vel í neinni
hjörð, enda gusti af henni hvar
sem hún komi. Þingmaður
sem hefur fylgst grannt með
Siv álítur þó að ekki sé einleik-
ið hversu sjálfstæð Siv hefur
reynst í hugsun: „Siv er líklega
alveg gersneydd hugsjónum
en dæmigerð fyrir ungan og
framagjarnan stjórnmálamann
sem ætlar að hafa lifibrauð af
pólitík. Hún hefur þess vegna
úti allar klær að flytja mál sem
hún heldur að muni þóknast
kjósendum. Stundum verður
henni reyndar hált á því, eins
og þegar hún hélt að hún yrði
vinsæl út á að viðurkenna að
hún bryti lög sem enginn fer
eftir, en fékk yfir sig vandlæt-
ingu siðapostulanna."
I svipaðan streng tekur
Magnús Ámi Magnússon
varaþingmaður, sem þekkir
vel til Sivjar í gegnum samstarf
ungliða stjórnmálaflokkanna:
„Hún lagði úr höfn með pok-
ann fullan af kosningaloforð-
um sem hún verður látin éta
eitt af öðru það sem eftir er
kjörtímabilsins. Framsókn hef-
ur það fram yfir aðra stjórn-
málaflokka að hafa aga á sínu
liði og Siv mun fá að kenna á
því.“
Framsóknarmenn flestir líta
hins vegar á Siv sem hinn
mesta vonarpening, enda eru
þeir máski ekkert sérstaklega
vanir því að hafa unga, að-
sópsmikla og sjarmerandi
þingkonu í röðum sínum. Birg-
ir Guðmundsson á Tímanum
talar líklega fyrir munn ýmissa
framsóknarmanna þegar hann
segist telja Siv duglega og
metnaðargjarna konu sem
ekki eigi í vandræðum með
ímynd sína, ólíkt því sem
kannski hefur iengi viljað loða
við framsóknarmenn. Birgir:
„Siv er köld að marka sér sér-
stöðu, til dæmis þegar hún sat
fyrir sem mótorhjólagella; hún
er ekkert rög við að vera ögr-
andi og engin svona draktar-
kona þótt hún geti kannski
verið það líka.“
Litla
framsóknar-
maddaman
Avenju fremur dauflegu
þingi er helst að eitt-
hvert líf hafi verið í
kringum unga framsóknar-
konu, Siv Friðleifsdóttur, sem
vann óvenjuglæsilegan sigur
fyrir flokk sinn á Reykjanesi í
kosningunum í vor. Strax þá
vakti Siv athygli fyrir að hafa
ekkert sérstaklega framsóknar-
legt yfirbragð — það sást
meira að segja til hennar þar
sem hún ók um leðurklædd á
mótorhjóli — og fyrir að taka í
ýmsum málum aðra afstöðu en
flokksforystan: Þess er helst
að minnast að fyrir kosning-
arnar boðaði hún sjávarút-
vegsstefnu sem forystan kann-
aðist ekki við að væri stefna
flokksins og var hálfpartinn í
andstöðu við kvótakerfið sem
sannarlega hefur leikið kjör-
dæmi hennar grátt.
Þetta skilaði Siv ábyggilega
ófáum atkvæðum, en nú þegar
rúmt hálft ár er liðið frá kosn-
ingunum má ef til vill segja að
yfirlýsingarnar séu að koma
aftur í höfuðið á henni. Nýskeð
komu fokreiðir trillukarlar
saman á mótmælafundi á Aust-
urvelli og hermdu meðal ann-
ars loforð upp á Siv sem stóð
þar í miðri þvögu. Sjónarvottar
segja að Siv hafi verið hálfráða-
laus og að endingu sagt með
uppgjafartóni við hina herskáu
sjósóknara: „Ég man ekki eftir
öllum þessum loforðum."
Þýðir þetta að Siv Friðleifs-
dóttir sé mesti lýðskrumarinn í
Framsóknarflokknum, eins og
einn af eldri og ráðsettari þing-
mönnum hans mun hafa látið
um mælt, eða er hún einfald-
lega nútímakona sem er ein-
kennilega sett í stjórnmála-
flokki karlskrögga? Kannski er
eitthvað hæft í hvoru tveggja,
en fyrst og fremst þarf Siv lík-
ast til að giíma við hið vanda-
sama hlutskipti að vera fram-
sóknarmaður á mölinni, að
þurfa að skapa sér einhverja
sérstöðu sem fellur borgar-
fólki í geð án þess að segja sig
úr lögum við flokk og forystu.
Nútíminn i
Framsókn
Fyrir síðustu kosningar lét
Framsóknarflokkurinn einskis
ófreistað að kynna sig sem nú-
tímalegan stjórnmálaflokk.
Það er erfitt að telja kjósend-
um trú um að Páll Pétursson
og Guðni Ágústsson séu nú-
tímamenn, Halldór Ásgríms-
son er ekkert tiltakanlega nú-
tímalegur heldur, svo hitinn og
þunginn af öllum þessum nýja
tíma Framsóknar lenti á Siv
Friðleifsdóttur.
Undir þessari kröfu hefur Siv
reynt að rísa síðan hún settist
inn á Alþingi í vor. Hún hefur
sýnt sig að vera afar metnaðar-
gjörn, kannski framhleypin á
köflum, og hefur beitt sér í
ýmsum málum sem flestir
myndu líklega seint bendla
hinn svifaseina Framsóknar-
flokk við. Fyrir utan að hafa
tekið sjálfstæða, þó máski ögn
tvíbenta, afstöðu í sjávarút-
vegsmálum hefur hún talað
fyrir jöfnun kosningaréttar,
hún hefur lagt til að ráðherrar
séu ekki jafnframt þingmenn,
hún hefur beitt sér fyrir því að
úreltar reglur um útivistartíma
barna verði slegnar af og
ásamt nokkrum öðrum þing-
mönnum hefur hún lagt fram
frumvarp um að áfengiskaupa-
aldur verði lækkaður í átján ár.
Siv vakti einnig mikla athygli
þegar hún talaði gegn því að ís-
lenskar konur færu á kvenna-
ráðstefnuna í Kína, en þar var
hún á þveröfugri skoðun við
flokksbróður sinn og formann,
utanríkisráðherra.
í forystugrein Alþýðublaðs-
ins á þriðjudag er fjallað um þá
fyrirætlun Sivjar að leggja fram
þingsályktunartillögu um jöfn-
un atkvæðisréttar. Segir í
greininni að í þingflokki Fram-
sóknar hafi verið valtað yfir
hana þegar hún gerði sig lík-
lega til að flytja tillöguna, en
loks hafi hún í staðinn fengið
að flytja fyrirspurn um málið.
Segir loks í forystugreininni:
„Sú staðreynd að Siv skyldi
láta bjóða sér að draga þings-
ályktunartillöguna til baka er
til marks um tvennt: Átakan-
legan skort á skoðanafrelsi í
þingflokki Framsóknar og
hraðan flótta mótorhjólakapp-
ans undan kjósendum og kosn-
ingaloforðum."
„Hún dinglar
innan rammans"
Það er þó kannski fulldjúpt í
árinni tekið að Siv sé að reyna
að leika einhvern pólitískan
einleik í óþökk flokksforyst-
unnar. Framsóknarmaður
sagði í samtali við Helgar-
póstinn að Siv þyrfti varla að
óttast að vera lamin niður ef
hún gengi ekki lengra en þetta,
þvert á móti væri hún ómiss-
andi hluti af þeirri ímynd sem
flokkurinn er að reyna að
koma sér upp. Það væri heldur
enginn járnagi í flokknum, að
minnsta kosti ekki lengur,
heldur frekar ákveðinn andi
sem menn undirgengjust sjálf-
viljugir. Forystan gerði sér
mætavel grein fyrir því að það
væri ekki ýkja nútímalegt að
flokksmenn væru sú einlita
hjörð sem lengstum hefði setið
í þingflokki Framsóknar. Þetta
vissi Sif og hún gengi á lagið að
son tannlæknir og Björg Ju-
hlin Ámadóttir kennari og er
hún önnur í röð fjögurra systk-
ina. Eldri systir hennar Ingunn
er tannlæknir, en yngri bræður
hennar Ámi og Friðleifur eru
þekktir handboltamenn. Siv er
gift Húnboga Þorsteinssyni
skrifstofustjóra og eiga þau
tvo syni. Fjölskyldan hefur
lengst af búið á Seltjarnarnesi
og er tekið til þess hversu sam-
hent hún er.
Þeim sem þekkja til Sivjar
ber saman um hversu metnað-
argjörn ung kona hún er. Hún
hefur alla tíð verið mikið fé-
lagsmálatröll, hún hefur átt
langa setu í stjórn Norræna fé-
lagsins og stjórnum og nefnd-
um á vegum Æskulýðssam-
bands íslands. Hún var for-
maður Sambands ungra fram-
sóknarmanna 1990 til 1992 og
1990 settist hún í bæjarstjórn
Seltjarnarness sem efsti maður
á sameiginlegum framboðs-
lista vinstrimanna, sem hún
átti mikinn þátt í að koma sam-
an, þá aðeins 27 ára. Því sæti
heldur hún enn.
Sigurgeir Sigurðsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, hefur
allnokkra reynslu af því að
vinna með Siv: „Ég er búinn að
þekkja hana nánast frá fæð-
ingu,“ segir hann. „Hún er mik-
ill keppnismaður og gefur sig
ekki fyrr en ' lengstu lög. Það
er óhætt að hæla henni fyrir
það. Hún er kannski nokkuð
fljót á sér stundum, en það er
nokkuð sem kemur fyrir flesta
pólitíkusa einhvern tíma. Það
kemur vafalaust með aldrinum
og meiri þátttöku í pólitík að
hugsa sig um tvisvar áður en
hún taiar.“
Kristín Ástgeirsdóttir, þing-
kona Kvennalistans, segir að
hún telji Siv hressa, opna og
sjálfstæða konu, en er sam-
mála Sigurgeiri um að hún eigi
til að vera fullfljótfær.
Framsóknarkonum
verður nóg um
Kosningasigurinn sem Siv
skóp flokki sínum síðastliðið
vor var slíkur að henni virtust
um tíma allar leiðir færar.
Strax á fyrsta kjörtímabili sínu
á Alþingi gat hún gert tilkall til
ráðherradóms, og sumir segja
raunar að hún hafi freistað
þess, en orðið að láta í minni
pokann fyrir Páli Péturssyni.
Þá hafði hún augastað á emb-
ætti þingflokksformanns, en
það féll í skaut hinni gamal-
reyndu Valgerði Sverrisdótt-
ur. Siv varð því að gera sér að
góðu að vera óbreyttur þing-
maður og raunar telur Birgir
Guðmundsson, fréttastjóri á
Tímanum, að hún sé hæst-
ánægð með það, enda sé ekki
hægt að væna hana um metn-
aðarsýki. „Hún ákvað að leggja
sitt inn á bankabók og hirða
skapa sér sérstöðu, en
gætti sín þó vel á að það
væri allt innan skikkan-
legra marka. Halldór
hefði til dæmis líklega
vitað fyrirfram um upp-
hlaup hennar í sjávarút-
vegsmálunum fyrir kosn-
ingarnar í vor. „Hún
dinglar innan rammans,"
voru óbreytt orð þessa
framsóknarmanns, og
hann bætti við: „Það
springur enginn stjórn-
málaflokkur á útivistar-
tíma barna.“
Fljótfær
keppnismaður
Siv Friðleifsdóttir er
fædd 1962, varð stúdent
frá Menntaskólanum í
Reykjavík og tók próf í
sjúkraþjálfun frá Háskól-
anum. Foreldrar hennar
eru Friðleifur Stefáns-
Sigurgeir Sigurðsson:
„Hún hefurþess vegna úti allarklœrað flytja mál
sem hún heldur að muni þóknast kjósendum. “