Helgarpósturinn - 23.11.1995, Side 24

Helgarpósturinn - 23.11.1995, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 Bíóborgin Dangerous Minds ★★ Michelle Pfeiffer reynir að bjarga unglingum í stórborgarslömmi með því að kenna þeim ljóð. Ósköp vel mein't. Showgirls 0 Ljót, löng og leiðinleg mynd um andstyggilegt fólk. Nóg er af holdinu — en hvað með það? Brýrnar í Madisonsýslu The Bridges of Madison County ★ ★★ Clint hefði kannski mátt skjóta smá, en gerir þetta samt fjarska vel. Under Siege 2 ★ Steven Seagal fór á kostum í flugvélamóðurskipinu, en hann verður óttalega ráðleysis- legur um borð í lest. Bíóhöllin Benjamín dúfa ★★★★ Hugljúf mynd sem rambar stundum á barmi tilfinningaseminnar en dett- ur þó aldrei fram af. NetiO The Net ★★ Sandra Bullock er sæt og tæknin voða ný, en það kviknar aldrei í púðrinu. Casper ★★★ Fínar brellur og góð ærsl, líka þekkileg angurværð sem svífur yfir vötnum. Ógnir í undirdjúpunum Crimson Tide ★★★ Smart mynd en hljóðið er smartast. Gefið því eyra. HundalíflOl Dalmatians ★★★ Hundarnir eru ósköp sætir en kvenvargurinn svakalegt flagð. Háskólabíó Jade ★ Óspennandi tryllir sem dregst skelfilega á langinn og lofar miklu meiru en hann getur staðið við. Fyrir regniö ★★★★★ Gagnmerk og átakanleg mynd sem lýsir því hvernig kynþáttahatur eyðileggur gamalgróið samfélag á Balkan- skaga. Glórulaus Clueless ★★★★ Alicia Silverstone er æðisleg smápía og stelpurnar eru sætar, klárar og klikkaðar. Ferlega sniðug mynd. Aö lifa ★★★★★ Epísk og stórbrot- in mynd þar sem er rakið líf faller- aðrar landeigendafjölskyldu á tíma Maós formanns. Fyrir bíófólk en þó ekki síður áhugamenn um sagn- fræði. Apollo 13 ★★★★ Tæknin er stór- kostleg en það er maðurinn sem er mesta undrið. Vatnaveröld Waterworld ★★ Kevin Costner er með tálkn og sundfit; kannski háir það honum svolítið. Laugarásbíó Hættuleg tegund Species ★★ Ein- hvers staðar á milli Aliens og In- vasion of the Body Snatchers — og ansi slepjulegt. Dredd dómari Judge Dredd ★ Það er sjón að sjá Stallone í fínasta dressi frá Versace, stretsbuxum og plankaskóm. Elnkalíf ★★ Þráinn er eins og full- orðinn maður sem villist óboðinn inn í partí hjá unglingum — en reynir að þrauka. Regnboginn Kids ★ Sérdeilis óskemmtileg mynd um unglingalýð í stórborg. Mikið af hálfberum smástrákum, en myndin hefur varla annan til- gang en að hneyksla. Aö yfirlögöu ráði Murder in the First ★ ★★ Nöturleg mynd um dóms- morð og niðurlægingu. Kevin Ba- con er átakanlegur að sjá. Braveheart ★★★ Mitt í blóðinu og forinni nær Mel Gibson að kveikja í þessu líf. Það leynir sér ekki hvað hann er vel heppnaður tappi. Sagabíó Dangerous Minds ★★ Michelle Pfeiffer reynir að bjarga unglingum í stórborgarslömmi með því að kenna þeim ljóð. Ósköp vel meint. Hættuleg tegund Species ★ ★ Einhvers staðar mitt á milli Alien og Invasion of the Body Snatchers — og ansi slepjulegt. Stjörnubíó Benjamín dúfa ★ ★★★ Strákarnir fjórir leika af innlifun og sannfæringarkrafti — sem einkennir raunar myndina alla. Tár úr steini ★ ★★★ Fín mynd og á allt annan hátt en þær íslensku bíómyndir sem rísa undir nafni, alvörumeiri, vandaðri, stærri í sniðum. Vondir krakkar, góðir krakkar Kids Regnboginn ★ Clueless Háskólabíó ★★★★ Nú á aldeilis að hneyksla. Framan í mann er hent hópi amerískra lágstétt- arunglinga sem allir eru eigin- lega sama persónan með sama hundrað orða forðann Bíó ' y L. Egill ÉrjsM Helgason og það mestanpart klúryrði — og maður á að trúa því að þetta sé alveg ofboðsleg ádeila á bandarískt þjóðfélag. Þetta gefur sig út fyrir að vera geigvænlega raunsætt, hrá mynd og óvægin, og maður á ábyggilega að verða alveg bugaður maður — nema þá að maður sé eins og leikstjórinn og fái kikk út úr því að hneykslast eða hneyksla hressilega. Ég las í einhverju blaði að handrit Kids væri skrifað af tvítugu nördi sem aldrei kem- ur út fyrir hússins dyr, en hef- ur setið inni og ímyndað sér að svona hagi sér allir krakk- arnir sem vilja frekar skemmta sér ærlega en vera með hon- um: Þeir drekki bjór allan lið- langan daginn, renni um á hjólabrettum, tali klúrt, sofi hjá smástelpum, nauðgi smá ef færi gefst og gangi í skrokk á einhverjum vitleysingum. Svona eru þeir semsé ungling- arnir í myndinni og samfélagið svaka úrkynjað, en þótt þetta eigi vísast að vera einhvers konar cinéma verité á enginn þeirra foreldra, eða að minnsta kosti eru þeir ekki sýnilegir, enginn fer í skóla eða vinnur fyrir sér eða þarf að hafa áhyggjur af því að kunna að lesa eða eiga ekki fyrir dópi eða bjór; þetta er „Allirbúa í hroðalega ósmekklegum húsum og eru gjörsamlega ómót- stœðilegir, og þá ekki síst stúlkan Chersem erskírð eftir þekktri söngkonu og hlýturað vera frábœrasta smápía í heimi. “ semsagt algjör draumaheimur fyrir svona hundrað prósent nörd eins og handritshöfund- inn, Harmony Korine. Þetta er líka draumaheimur fyrir leikstjórann, fimmtugan pervert sem gæti svosem ekki staðið meira á sama um ung- lingana, nema af því þeir eru svo skemmtilega mjóslegnir og hárlitlir og eiginlega ekkert bólugrafnir og þarna fær hann svo mörg tækifæri til að mynda stráka sem eru helst alltaf berir að ofan og eru svona eins og spilltir englar, en smástelpurnar kannski ekki alveg jafn sætar en góðar samt þegar sést í naflann á þeim. Þetta er einkennilega húmorsnauð og óskemmtileg bíómynd, en sé eitthvað hneykslanlegt við hana er það helst grasserandi pedófílían sem er megininntak hennar. í útlendum blöðum hef ég verið að lesa að fólk sé annað- hvort AT/ds-megin í lífinu eða C/ue/e.s.s-megin í lífinu. Ég segi glaður að ég er Clueless-meg- in. Clueless gerist í heimi þar sem er alltaf frábært veður, all- ir aka um í sportbíl eða jeppa og tala linnulaust í GSM-síma; allir búa í hroðalega ósmekk- legum húsum og eru gjörsam- lega ómótstæðilegir, og þá ekki síst stúlkan Cher sem er skírð eftir þekktri söngkonu og hlýtur að vera frábærasta smápía í heimi, svo tandur- hrein og falleg í sálinni þrátt fyrir hvað hún er yndislega snpbbuð. Á þessum stað eru allir góð- ir og glaðir kjánar, eða að minnsta kosti afar uppteknir við sitt; þetta er að sumu leyti Hluti viðtals féll niður Vegna tæknilegra mistaka féll niður upphaf viðtals við Áma M. Mathiesen í síð- ustu viku. Það fer hér á eftir, en Árni er beðinn velvirðingar á mistökunum. Fyrst aðeins um ríkisstjórn- ina. Ertu ánœgður með hana? „Ég er ánægður með sumt, en annað ekki. Það eru meiri rólegheit yfir þessari ríkis- stjórn en þeirri síðustu, ekki sömu upphlaupin og stórkost- legar yfirlýsingar um alls kyns mál. Maður hefur ekki á tilfinn- ingunni að samstarfsflokkur- inn sé að reyna að slá keilur á kostnað okkar. Ég held að fólk kunni að meta þetta. Hins vegar er þessi stjórn þyngri, það er ekki sama snerpan. Það getur raunar ver- ið af hinu góða. Það ríkir meiri bjartsýni um framtíðina núna en áður og þá getur verið betra að hafa styrkari stjórn og rólegri. Á síðasta kjörtíma- bili þurfti kannske meiri snerpu. Eitt fer þó í taugarnar á mér og það eru landbúnaðarmálin. Niðurstaðan úr búvörusamn- ingnum var fyrirsjáanleg, úr því okkur tókst ekki að mynda stjórn með Alþýðuflokknum. Niðurstaðan hefði orðið lík þessari í hvaða stjórnar- munstri öðru sem er og í þess- ari ríkisstjórn hefur vera Framsóknarflokksins í henni þau áhrif að búvörusamning- urinn varð ekki eins og bezt varð á kosið.“ Þú vildir halda gamla stjórn- arsamstarfinu áfram? „Já, ég sagði það í upphafi, en það var ekki raunhæfur kostur miðað við úrslit kosn- inganna. Forsenda þessarar skoðunar minnar var til dæm- is landbúnaðarmálin og ákveð- inn málefnalegur samhljómur í utanríkisviðskiptamálum og raunar viðskiptafrelsi bæði innan lands og utan. Við áttum hins vegar í svo- litlum vandræðum í ríkisfjár- málum, þar sem Framsóknar- flokkurinn er líklega auðveld- ari í samstarfi. Ég hef á tilfinn- ingunni að Framsóknarflokk- urinn verji ekki einstaka þætti velferðarkerfisins af jafnmikilli eigingirni og Alþýðuflokkurinn gerði stundum." Sýnist þér það vera raunin í fjárlagagerðinni núna? „Ég veit ekki hversu miklar ályktanir er rétt að draga strax, en markmið fjárlaga- frumvarpsins gefa ákveðnar vísbendingar. Menn þóttust líka merkja það af málflutningi Framsóknarflokksins í kosn- ingabaráttunni í vor að hann hefði breytzt nokkuð. Hvort það eru raunverulegar breyt- ingar veit maður ekki, það mun koma í ljós. En ég vil gefa samstarfinu öll tækifæri til að skila árangri." eins og í leikriti eftir Oscar Wil- de eða sögu eftir P.G. Wode- house og það eru eiginlega engir bakþankar eða komplex- ar eða alvöru vandamál og eng- in spilling og enginn sem miss- ir neitt sakleysi. Þvert á móti, þetta er bíómynd sem hendist áfram í dásamlegu áhyggju- leysi, full af brakandi sniðugum tilsvörum (unglingarnir í þess- um heimi hafa nefnilega góðan orðaforða) og alveg laus við að taka sig, persónurnar sínar eða yfirleitt neitt hátíðlega. Og er fyrir vikið einhver fyndnasta og frísklegasta mynd sem lengi hefur sést í bíó. Dodo-lilla-dakinn Ísíðasta þætti ræddi ég nokkuð um slakan árangur í baráttu skólamanna gegn þágufallssýkinni svonefndu. En hvernig ætli standi á að ekki hefur tekist betur til? Ef við fylgjumst með barni sem er að læra málið sjáum við að eitt stig málþroska tek- ur við af öðru. Fyrst lærir barnið algeng, notadrjúg orð eins og mamma, pabbi og nei. Svo fer það að mynda heilar setningar, stuttar fyrst en smám sam- an verða þær lengri og flóknari að gerð. Þar kemur að barnið er orðið altalandi. Enn er þó málnot- andinn ungi óviss um beygingu ein- stakra orða. Hann tekur fúslega við leiðréttingum, festir þær sér í minni og endurraðar mál- fræðikerfinu sem hann er búinn að koma sér upp. (Nú var ég kominn á flug í þessari hugljúfu lýsingu og nærri bú- inn að bæta við „í litla heilanum sín- um“ en hætti við það af því að það gæti misskilist.) Svo eykst færnin í meðferð málsins, hætt er að leiðrétta barnið: það veit orðið hvað telst rétt mál og hvað rangt í því um- hverfi sem það lifir og hrær- ist í; á heimilinu, barnaheimil- inu og meðal leikfélaganna. Barnið er komið með mál- kennd. Þegar eitthvað fer í bága við málkennd okkar finnst okkur það vera rangt mál. Setjum nú svo að barn sé alið upp við að segja mér langar og mér dreymir, engu síður en mér finnst og mér sýnist. Svo kemur biessað barnið í skóla og kennarinn segir að rétt sé að segja mér finnst og mér sýnist, en hins vegar eigi að segja mig langar og mig dreymir. — Barninu finnst kennarinn hafa rangt fyrir sér. En hann er kennari, full- orðinn maður og búinn að læra heil ósköp. Barnið veit að hann hefur rétt fyrir sér. En það er hægara sagt en gert fyrir skólanemann okkar að venja sig af málnotkun sem honum finnst rétt og er honum svo töm að hann beit- ir henni ævinlega ósjálfrátt nema kannski þegar hann er að gera verkefni um óper- sónulegar sagnir í málfræð- inni. „lesum ekki fyrir börn eins ogþau séu ein- hverjir aular. Þar á ég bœði við lesefnið og framburðinn. “ Af framansögðu má ráða að ég tel heimilin bera mesta ábyrgð á því hvernig til tekst um máluppeldið. Þess vegna er feikilega mikilvægt að upp- alendur barna sinni þeirri skyldu sinni að láta börnin heyra málið. Það þarf að tala við börn, lesa fyrir þau, fara með vísur og kenna þeim þær; syngja fyrir þau og með þeim. Ef lestrargeta eða söngvísi er af skornum skammti má stöku sinnum leika fyrir þau plötur og snældur með sögum og söng- iögum og leyfa þeim að horfa á myndbönd með ísiensku tali. Þegar við lesum upphátt fyrir lítil börn veljum við vita- skuld léttar bækur í fyrstu með mörgum myndum. „Lest- urinn" er líklega í upphafi fyrst og fremst spjall um myndirnar, við fáum barnið til að benda á dýr og hluti og herma eftir nöfn þeirra. Smám sam- an fær textinn meira vægi og þar kemur að barnið hlustar á mynd- lausa sögu ef svo ber undir. Og eitt ætla ég að boða hér og nú og leggja á ríka, þunga og mikla áherslu: Lesum ekki fyrir börn eins og þau séu einhverjir aul- ar. Þar á ég bæði við lesefnið og framburðinn. Það er ekkert nauðsyn- legt að velja ein- tómt „smábarna- efni“ fyrir smábörn og „barnaefni" fyrir stálpaðri börn. Þau þola vel að heyra annað slagið tor- meltari texta. Og í öllum bænum lesið fyrir börn á manna- máli en ekki með einhverjum do-do-lilla- dákinn-sóni. (Ýmsir agnúast út í siettur. Margir lesendur kannast ugg- laust við tvær sögur af kenn- urunum. Annar sagði við nemendur sína: „Engar enskuslettur, please.“ — Hinn hafði, eins og fleiri, mikl- ar áhyggjur af enskum áhrif- um á íslensku en var farinn að huga að því að friða síð- ustu dönskusletturnar. Hann sagði eitt sinn í tíma: „Nú er svo komið að dönskuslettur eru alveg fyrir £>;'.“)

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.