Helgarpósturinn - 18.04.1996, Síða 27
FIMMTUDAGUR18. APRÍL1996
'orsetaslagurinn
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir veltir fyrir sér „klisjufaktoríunni" sem er í fotsetaframboöi.
Frambjóðendur á
eigin vegum og guðs
Þau tíðindi gerðust á
dögunum að sænskrí
sjónvarpskonu varð það á
að bera brigður á móður-
lega og hlýja ímynd for-
seta íslands og lýsa órit-
skoðuðum samskiptum
sínum við hana. Draga
fram það sem að óathug-
uðu máli mætti lýsa sem
hroka eða hreinni geð-
vonsku, en forsetinn er
sögð hafa hafið viðtalið
með þessum orðum: „-
Þetta er virkilega það nei-
kvæða við starfið. Til
hvers er eiginlega þetta
viðtal?“ Að loknu viðtal-
inu segir blaðakonan að
Vigdís hafi gröm haft orð
á því hversu hræðilegt
það sé að spyija um einka-
líf forsetans, meðal annars
hvemig það sé að starfa
sem forseti samtímis því
að vera fráskilin, einstæð
móðir.
Þannig er ljóst að kóngafólk
á íslandi metur friðhelgi sína
mikils og er reyndar vant að
fara sínu fram. Öfugt við til
dæmis breskt kóngafólk sem
notar blöðin sem flengingaról-
ar til að skera úr um minnstu
deilumál sín á milli. En gerir
það á svo fínlegan hátt að það
lætur leyndarmálin leka út um
annað munnvikið við lausmála
og fégráðuga kunningja svo að
nær öruggt sé að þau rati rétta
boðleið. Hér er ekkert fé að
hafa fyrir slíkar sögur þó svo
að eftirspurnin sé mikil og
kóngar á Islandi tugta fjölmiðla
óspart ef að fyrir miskilning og
gáleysi slæðist eitthvað inn í
greinarnar sem varpar ein-
hverju ljósi á hvaða manneskj-
ur eru inni í skrúðanum. Það
kann að virðast andstyggilegt
að vera að velta sér upp úr því
að Vigdís sem hefur verið far-
sæll forseti hafi átt slæman
dag og fundið hjá sér einhverja
hvöt til að hefja sína venjulegu
þulu um fjöll og firnindi á því
að snupra blaðamanninn. En
það sem gerir það athyglisvert
eru viðbrögð blaðakonunar
sem talar opinberlega um
skoðun sína á forsetanum og
lætur sér ekki nægja auðmjúkt
starf saumakonunnar sem
sníður, klippir og saumar
heppilega ímynd kringum hé-
gómagjarnan þjóðhöfðingja og
lætur síðan nafn sitt undir.
Blaktandi móðureyra
Á sama tíma og forsetinn fær
á sig þessa hryðju ryðst hver
puntudúkkan fram fyrir aðra í
fjölmiðlum og býðst til að
verða lítiil kóngur á Bessastöð-
um, enda standi á þeim öll
spjót. Og almenningur festir
vart svefn af spenningi eftir að
þessi eða hinn fari fram sökum
ættgöfgi, meðfæddra gáfna og
menntunar. Menn umbreytast
á einu augnabliki eins og Ösku-
buska áður en hún fór á ballið
— eða froskurinn sem breytt-
ist í undurfagran prins, slíkur
er máttur viðhafnarinnar og
töfrar embættisins. Jafnvel
strigakjafturinn Ólafur Ragnar
Þannig er Ijóst að kóngafólk á íslandi metur friðhelgi sína mikils og er
reyndar vant að fara sínu fram. Öfugt við til dæmis breskt kóngafólk sem
notar blöðin sem flengingarólar til að skera úr um minnstu deilumál sín á
milli. En gerir það á svo fínlegan hátt að það lætur leyndarmálin leka út
um annað munnvikið við lausmálga og fégráðuga kunningja svo nær ör-
uggt sé að þau rati rétta i iiiinm ihl UWHUM III—IW "IBilli
boðleið. Hér er ekkert fé |
að liafa fyrir slíkar sögur R
þó svo að eftirspurnin sé i
mikil og kóngar á íslandi
tugta fjölmiðla óspart ef j ^ Æ9f
að fyrir miskilning og
gáleysi slæðist eitthvað gajj áHJFVHj
inn í greinarnar sem jH|
varpar einhverju Ijósi á
hvaða manneskjur eru
inni í skrúðanum. WsaKL*
Menn umbreytast á einu augna-
bliki eins og Öskubuska, áður en
hún fór á ballið eða froskurinn
sem breyttist í undurfagran prins,
slíkur er máttur viðhafnarinnar og
töfrar embættisins. Jafnvel striga-
kjafturinn Ólafur Ragnar Grímsson
hefur gerbreytt um ham og þegir
nú oftast nema þegar hann malar
klökkur þakkarorð til þjóðarínnar
með lafandi silkitungu
Grímsson hefur gerbreytt um
ham og birtist nú landsmönn-
um einungis með blaktandi
móðureyra og hlýjan skilnings-
glampa í augum og hann skart-
aði einnig rauðum snýtuklút í
hárinu þar sem hann tiplaði
um meðal fyrirfólks og auðkýf-
inga á Indlandi á forsíðu tíma-
ritsins Séð og Heyrt. Jafnvel
blindir hljóta að sjá að maður-
inn er sjálfkjörinn forseti fyrst
hann þekkir svona margt intr-
essant fólk í útlöndum, enda
gleypir hann til sín fylgi í skoð-
anakönnunum og þakkar ma-
landi fyrir sig með lafandi silki-
tungu.
Að njóta veiþóknunar
Annar kandídat ætlar að
reka framboð sitt frá skrifstofu
forsætisráðherra að skilja má,
en hann vitnar einnig í annan
„Guð“ sér til fulltingis: „Allt er
unnið fyrir gýg ef vilji hins al-
máttuga Guðs allra stétta er
ekki með í förinni.“ Það kann
að vera að hann hafi bara verið
að vísa til Davíðs. Það væri
kannski til full mikils ætlast að
hann hefði rætt persónulega
við þá alla þrjá, Davíð, Friðrik
og Guð þegar kosningabarátt-
an er svona skammt á veg
komin.
Pétur Kr. Hafstein ætlar að reka
framboð sitt frá skrifstofu forsæt-
isráðherra að skilja má, en hann
vitnar einnig í annan „Guð“ sér til
fulltingis: „Allt er unnið fyrír gýg
ef vilji hins almáttuga Guðs allra
stétta er ekki með í förínni." Það
kann að vera að hann hafi bara
veríð að vísa til Davíðs. Það værí
kannski til full mikils ætlast að
hann hefði rætt persónulega við
þá alla þrjá, Davíð, Fríðrik og Guð
þegar kosningabaráttan er svona
skammt á veg komin.
Djobb eða umbytting?
Guðrún Pétursdóttir virðist
líta á þetta sem hvert annað
djobb sem gaman væri að
sinna og virðist setja traust
sitt á menningu og ættarsnobb
meðan nafna hennar Agnars-
dóttir talar um breytingar og
umbyltingar á þvílíku rósamáli
að það er ekki fyrir hvítan
mann að skilja.
En hver hefur líka þrjátíu
milljónir á takteinunum til að
kaupa sér hásæti, lætur verða
að því og er samt með tærnar
svo nærri jörðinni að sérsaum-
uðu silkisokkarnir snerta við?
Svarið er: Enginn. En hvert er
hlutverk fjölmiðla í að kynna
allar þessar manneskjur fyrir
almenningi? Eiga þeir bara að
dansa með á hirðballinu, og
bugta sig og beygja, takandi
niður nótur af gegndarlausum
lofræðum fólks um sjálft sig,
minningargreinum um maka-
lausa hæfileika og ofurmann-
lega greind? Eða eiga þeir að
hugsa upphátt eins og sænska
blaðakonan?
Dýrt hásæti
Nú er ljóst að framkvæmdir
Guðrún Pétursdóttir virðist líta á
þetta sem hvert annað djobb sem
gaman værí að sinna og virðist
setja traust sitt á menningu og
ættarsnobb.
við fílabeinsturninn á Bessa-
stöðum mun kosta þjóðina
tæpan milljarð króna. Kosning-
arnar sjálfar kosta marga tugi
milljóna og hver snillingurinn
þarf einnig að punga út tug-
milljónum milljónum til að
nauðga ímynd sinni uppá þjóð-
ina. Það er almenningur sem
greiðir þessa peninga að lok-
um fyrir öll herlegheitin og
hann á líka heimtingu á að vita
hvað þær manneskjur hafi í
raun sér til ágætis sem gerir
þær að verðugum fulltrúum
allrar íslensku þjóðarinnar.
Hvernig koma þær fyrir á bak
við tjöldin? Hver var ímynd
þeirra áður en þau fóru að
máta sig við þjóðhöfðingja-
skrúðann?
Bindindisfélagið
Bessastaðir
Hver á næstu árin að blása í
ryðgað gjallarhorn þjóðarsam-
stöðu og sefa þjóðina með
Guðrún Agnarsdóttir talar um
breytingar og umbyltingar á því-
líku rósamáli að það er ekki fyrír
hvítan mann að skilja.
löngum uppblásnum ræðu-
höldum um íslendingasögurn-
ar, náttúruna, hreina vatnið og
samhug þjóðarinnar? Hvaða
fyrirmyndarfjölskylda á að
setjast að á Bessastöðum,
landi og þjóð til heilla. Það er
ljóst að kóngar eru í tísku á ís-
landi í dag og menn gerast
varla lengur svo alþýðlegir að
pissa í kross við saltfiskarlana.
Ekki nema það sé um að kenna
jafnrétti kynjanna en Guðrún-
arnar gætu varla leikið slíkar
kúnstir á framboðsferðalagi.
Klisjufaktorían sem nú býð-
pr sig fram til embættis forseta
íslands kallar einkum fram
hugrenningatengsl við bind-
indisfélagið Iðunni og Anker-
sen sparisjóðsstjóra í bókum
Heinesen, nema hvað að það
var miklu litríkara og skemmti-
legra en þetta kompaní. Þau
mega mín vegna fara öll á
Bessastaði og dúsa þar og tala
tungum.
En hvert er hlutverk fjölmiðla í að kynna allar þessar
manneskjur fyrir almenningi? Eiga þeir bara að dansa
með á hirðballinu, og bugta sig og beygja, takandi nið-
ur nótur af gegndarlausum lofræðum fólks um sjálft
sig, minningargreinum um makalausa hæfileika og of-
urmannlega greind? Eða eiga þeir að hugsa upphátt
eins og sænska blaðakonan?
áfangastaðir
|—-«Yucatán
Á fomum
slóðum Maja
Hinn fornfrægi þjóðflokkur
Maja kom til Yucatán-skag-
ans i Mexíkó fyrir um þúsund ár-
um og kom þar á þróaöri við-
skiptamiðstöö i tengsium við
bæinn Túlkum. Á kalksteins-
kletti við Karíbahafið byggöu inn-
flytjendurnir virki til varnar
stormum — og síðar spænsk-
um nýlenduherjum. Staðurinn,
sem er um 300 kílómetra frá
Cancún og alveg við landamæri
Belize, er nú friöaður meö lög-
um um umhverfis- og menning-
arvernd. Allt frá Cancún til Yuca-
tán er aö finna fjölmarga gisti-
staðí í stórbrotinni og fagurri
náttúru þar sem umhverfisvernd
og sjálfbær þróun eru lykilhug-
takiö. Svæðiö er jafnvel enn
skemmtilegra aö heimsækja ut-
an hins hefðbundna ferða-
mannatíma, sem hefst um
páskana. Þó skal þeim er hyggja
á páskaferöalag til Miö-Ameríku
bent á aö staöurinn er vissulega
þess viröi aö heimsækja og
eyöa þar nokkrum dögum í friö-
sælli náttúrunni. íslenskir Canc-
únfarar ættu alls ekki aö láta
hjá líða aö feröast um svæöiö.
Hjarta svæðisins er Playa del
Carmen, þorp suöur af Cancún,
og hægt er aö fara þangað meö
skemmtiferöaskipi. Einnig er
hægt aö ferðast í bíl, rútu eöa
lest meöfram ströndinni og gott
er aö gefa sér tíma til að stoppa
á leiðinni og gista í einhverjum
af fjölmörgum kofaþyrpingum
sem standa bókstaflega á
ströndinni, þannig aö sjórinn
flæöir reglulega yfir og kælir
feröalanga — og ekki veitir af.
Meöfram ströndinni má fmna
stórbrotna klettasýn; nokkuö
sem maöur sér aöeins á póst-
kortum. Feröinni er svo haldiö
áfram inn til Túlkum þar sem
hafnarborg Majanna blasir viö,
—■ inni í dal. Skammt frá er
þjóögaröur meö gömlum rústum
sem breytt hefur veriö í eins
konar fornminjasafn og
skemmtigarö þar sem maöur
getur fengiö sér sundsprett í
einum af fjölmörgum lækjum og
vötnum sem þar er aö finna.
Einnig eru strendurnar þar ein-
staklega vel gerðar frá náttúrun-
ar hendi og mannskepnunni hef-
ur ekki enn tekist aö eyöileggja
þær. í öörum garöi í regnskóg-
unum skammt frá fær náttúran
aö njóta sln meö fjölskrúöugu
dýralífi, eins og krókódílum,
jagúarköttum og öörum villtum
dýrum. Einnig eru á svæöinu
fornir pýramídar, sá hæsti um
45 metrar. Ferðalöngum skal
bent á aö best er aö greiða meö
gjaldmiöli innfæddra. Einnig er
þó hægt aö greiöa fyrir alla þjón-
ustu með dollurum, en verðið
viröist hækka um leiö og glittir I
grænu seölana. Gisting sem
pöntuö er fyrirfram er yfirleitt
dýrari en þegar pantaö er á
staönum. Ef menn eru útsjónar-
samir má spara dágóöa
summu. - EBE