Helgarpósturinn - 29.08.1996, Page 14
14
RMMTUDAGUR 29. ÁGÚST1996
Fram undan eru merk tímamót hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Aldarafmælis félagsins verður
minnst á veglegan hátt og af þessu tilefni
spjallaði Sæmundur Guðvinsson við
Þórhildi Þorleifsdóttur leikhússtjóra.
Þau átök sem urðu
hér síðastliðinn vet-
ur skildu eftir sig
sár en nú leggjast
allir á eitt um að
græða þau sár og
hefja leikinn að
nýju...
Eg held að það hafi aldrei
verið sýnd svona mörg ís-
lensk verk á einu leikári hjá
Leikfélagi Reykjavíkur eða öðr-
um leikhúsum landsins. En
þegar stórafmæli er annars
vegar eru nokkrar leiðir til að
halda upp á það. Til dæmis að
vera að heiman, bjóða aðeins
nokkrum vinum eða þá að hafa
opið hús þar sem allir eru vel-
komnir. Og það er einmitt það
sem við ætlum að gera í tilefni
aldarafmælisins; bjóða öllum
til okkar,“ sagði Þórhildur
Þorleifsdóttir, leikhússtjóri
Leikfélags Reykjavíkur, í sam-
tali við Helgarpóstinn.
Leikfélagið verður 100 ára í
vetur og hefur nú kynnt hvað
boðið verður upp á í Borgar-
leikhúsinu í tilefni afmælisins.
Það vekur sérstaka athygli að
ein sjö íslensk leikverk verða
sýnd af þessu tilefni. Þórhildur
var spurð hvað réði því eink-
um að aldarafmælisins væri
minnst með þessum hætti.
„Okkur var auðvitað mikiil
vandi á höndum þegar ákveða
skyldi hvernig best væri að
halda upp á þessi merku tíma-
mót. Eitthvert eitt sérstakt
verk til að sýna sem afmælis-
leikrit er vandfundið. Við eig-
um ekki auðuga klassík að
sækja í hvað varðar íslensk
leikrit og sum sem teljast til
okkar bestu verka hafa nýlega
verið sýnd. Ef ákveðið hefði
verið að taka eitt erlent sígilt
stórverk til sýningar er því
miður ólíklegt að aðsókn hefði
orðið sem skyldi. Því var það
niðurstaðan að dreifa afmælis-
veislunni á heilt ár og færa
áhorfendum og leikhúsinu þá
gjöf að ráða svona marga ís-
lenska höfunda til að taka þátt
í þessari afmælisveislu.“
Nú er því stundum haldið
fram að leikhúsin séu rög
við að taka ný íslensk leikrit
til sýningar þrátt fyrir mikið
framboð. Leikhúsin þori
ekki að taka þá áhœttu og
sœki því frekar í að sýna
verk þekktra erlendra höf-
unda.
„Að vissu leyti er nú ekki
sanngjarnt að halda þessu
fram. Ég held að það sé
óvenjumikið sýnt hér af verk-
um innlendra höfunda miðað
við það sem gerist með öðrum
þjóðum. Ég var einmitt að lesa
helsta leikhúsblað Þýskalands
þar sem fjallað er um leiklistar-
hátíðir og þar er spurt hvar
nýju leikritaskáldin sé að
finna. Það má ef til vill segja að
þetta sé alþjóðleg kreppa. En
ég held að hlutfall innlendra
verka sé óvenjuhátt í leikhús-
um hér á landi.
Það berst mjög mikið af ís-
lenskum handritum til leikhús-
anna en J)að er ekki þar með
sagt að hægt sé að sýna þau
öll. Það er mjög dýrt að leggja í
þann kostnað að vinna með
höfundum þar til verk er orðið
sýningarhæft. Ef leikhúsin fá
ekki handrit sem eru nokkurn
veginn tilbúin þarf mjög mikla
peninga og vinnu til að koma
þeim áfram. Staðreyndin er sú
að það er mjög flókið ferli að
skrifa fyrir leikhús og engin til-
viljun að heimsbókmenntirnar
eiga mun minni afrakstur í leik-
ritaskrifum heldur en í skáld-
sögu- og ljóðaskrifum. En á
síðasta ári var Borgarleikhúsið
að gera tilraun með höfunda-
smiðju og það er í fyrsta sinn
sem gerð er markviss tilraun í
þá átt að leiða fólk áfram á
þessari braut. Vonandi getum
við haldið þeirri starfsemi
áfram næsta vetur.“
En svo við víkjum aftur að
afmœlinu sjálfu. Verður eitt-
hvað meira um að vera en
leiksýningarnar sem þegar
hafa verið kynntar?
„Já. Það er verið að skrifa
sögu Leikfélags Reykjavíkur og
það rit kemur væntanlega út í
kringum afmælið. Við verðum
einnig með stóra afmælisdag-
skrá hér í húsinu sem verður
með nokkuð öðrum hætti en
sýningarnar sem fara fram á
leiksviðunum. Þetta verður
dagskrá sem tengist Leikfélag-
inu og sögu þess. Við reynum
að skyggnast í það hvernig
samfélagið var á hverjum tíma
og hvernig leikhúsið var. Það
verður borið niður hér og þar í
sögu félagsins með nýstárleg-
um hætti og má segja að sú
sýning berist víða um húsið.
Það verður leikið og sungið og
sagt frá, bæði í máli og mynd-
um, og óhætt að segja að þetta
verður fjölbreytt afmælisdag-
skrá. Ýmislegt fleira er í bígerð
og fleiri en Leikfélag Reykjavík-
ur koma við sögu.“
Er allt að falla í Ijúfa löð í
Leikfélaginu eftir lcetin sem
urðu fyrr á þessu ári?
„Já, ég held að allir hafi orð-
ið sammála um að nú yrði að
hefjast annar kapítuli. En það
fer ekki hjá því að þau átök
sem urðu hér síðastliðinn vet-
ur skildu eftir sig sár og það
þurftu allir að leggjast á eitt
um að græða þau sár og hefja
leikinn að nýju. Hitt er svo ann-
að mál að það má ekki heldur
gera alltof mikið úr þessu. Ef
fólk myndi lengra en nokkra
mánuði aftur í tímann þá er
það nú svo að saga jafnt Leik-
félagsins sem Þjóðleikhússins
einkennist bæði af góðærum
og lakara tíðarfari ef svo má
taka til orða. Það eru ekki mjög ^
mörg ár síðan svipað umtal J
var um Þjóðleikhúsið og átti ji
sér stað um Borgarleikhúsið. é
Þá voru uppi háværar raddir §
um að það ætti bara að loka
Þjóðleikhúsinu, segja upp öll-
um leikurunum og leigja húsið
út til leikhópa af því þá áraði
illa. En það rétti úr kútnum,
rétt eins og við ætlum að reyna
að gera núna hjá Leikfélaginu.
Það skiptast á skin og skúrir á
þessum vettvangi sem annars
staðar en nú erum við öll önn-
um kafin við að undirbúa
glæsilega afmælishátíð sem
best,“ sagði Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikhússtjóri.
Verkefnaskrá LR á aldarafmælinu
íslenskur farsi fyrst á dagskrá
Fyrsta frumsýningin á aldarafmæli Leikfé-
lags Reykjavíkur verður í næsta mánuði.
Þá verður tekið til sýningar nýtt leikrit eftir
Áma Ibsen sem ber heitið Ef ég vœrí gull-
fiskur. Þetta er farsi að fyrirmynd frönsku
meistaranna Georges Feydeau (Fló á
skinni) og Eugéne Labiche (ítalskur strá-
hattur). Leikritið fjallar um íslenskan sam-
tíma — íslenska stórfjölskyldu, fjármál,
frama og framhjáhald.
í september verður enn fremur frumsýnt
Largo Desolato eftir Václav Havel. Þetta er
áhrifamikið verk eftir forseta Tékklands.
Gamansemi er á yfirborðinu en djúpur
harmur býr undir. Skáldið er hér hvorki að
fjalla beinlínis um eigið líf né umhverfi held-
ur hefur verkið víðtæka skírskotun í jwer-
sagnakenndum heimi.
Trúðaskólinn eftir Friedrich Karl
Waechter/Ken Campell er trúðleikrit fyrir
börn sem frumsýnt verður í október. Þar
segir frá skólagöngu trúðahóps og baráttu
þeirra við sjálfa sig og kennarann. Kennslu-
stundir enda í óyfirstíganlegri óreiðu og í
skólaferðalagi gerast ólíklegustu atburðir.
í október verður einnig frumsýnt gaman-
leikritið Svanurinn eftir Elizabeth Egloff.
Þessi bandaríski gamanleikur er dulúðugt
og áleitið verk. Leikritið er mjög óyænt og
undarlegt, fyndið og ljóðrænt. Þetta er sam-
starfsverkefni við leikfélagið Annað svið.
Dðminó eftir Jökul Jakobsson verður
svo frumsýnt í desember. Dularfullt leikrit,
í senn einfalt og flókið, sem sýnir okkur ráð-
villt fólk í þjóðfélagi allsnægta. Jökull var
eitt merkasta leikskáld þjóðarinnar og flest
leikrita hans voru frumflutt af Leikfélagi
Reykjavíkur. Margir telja Dóminó eitt besta
leikverk Jökuls enda hlaut það mjög góðar
viðtökur þegar það var frumflutt í Iðnó
1972.
í janúar verður frumsýnt nýtt íslenskt
leikverk með söngvum byggt á Ijóðum eftir
Tóméis Guðmundsson og er höfundur þess
Karl Ágúst Úlfsson. Leikverkið nefnist
Fagra veröld.
I febrúar verður Frumsamið dansverk og
La Cabina 26 eftir Jochen Ulrich á fjölum
Borgarleikhússins. Þetta er ein sýning þar
sem flutt eru tvö verk eftir eitt fremsta
dansskáld álfunnar. Ulrich hefur stjórnað
danshópnum Tanz-Forum í Köln frá stofn-
un árið 1971. Þetta er samstarfsverkefni við
fslenska dansflokkinn.
Völdundarhus eftir Sigurð Pálsson verður
frumsýnt í mars. Þetta er átakaverk sem
gerist á síðasta áratug tuttugustu aldar. Öfl-
ugar valdablokkir takast á um ákveðið
verksmiðjuhús og hvernig eigi að nota það.
Bakgrunnur atburða og persóna er Reykja-
vík á þessari öld. Ofsafengið andrúmsloft,
svefnleysi, spenna og þreyta.
í mars frumsýnir Leikfélagið enn fremur
Ástarsögu 3 eftir Krístínu Ómarsdóttur.
Þetta er óvenjulegt leikrit um ást á hrakhól-
um og vináttu sem er líka ást. Við erum
leidd inn í táknrænan ástarskóg sem fólk er
alltaf að lenda í.
Þegar kemur fram í apríl verður Vor í Týr-
ól eftir Svein Einarsson frumsýnt. Þetta er
söngleikur, byggður að hluta á Sumar í Týr-
ól eftir Ralph Benatzky. Tónlistin er eftir
hann og fleiri. Atburðirnir gerast í frægu
gistihúsi við Wolfgang-vatn í Týról síðla
vetrar. Gistihúsið er rekið af íslenskri konu
og er afar vinsæll gististaður íslenskra
hópa í skíðaferðum.
Frá síðasta starfsári halda áfram sýning-
ar á Stone Free, Konur skelfa og Barpar. Þá
má nefna að vikulegir tónleikar verða í sam-
vinnu við Stöð 2 og Bylgjuna, kynningar-
heimsóknir grunnskólabarna, ævintýraleik-
ritið Gulltáraþöll og danssýningin Kaldur
sviti. -SG
Við bjóðum
öllum í afmælið
Menningarmolar
■ Á laugardaginn veröur opnuö
sýning á verkum Valgerðar Guð-
laugsdóttur í Gallerí Greip aö
Hverfisgötu 82. Valgeröur lauk
námi í skúlptúrdeild Myndlista- og
handíöaskóla íslands áriö 1994.
Þetta er hennar fyrsta einkasýn-
ing en hún hefur tekiö þátt í sam-
sýningum heima og erlendis.
■ Stjörnubíó hefur í nokkra daga
endursýnt kvikmyndina Tár úr
steini sem fjallar um tímabil í ævi
tónskáldsins Jóns Leifs. Kvik-
myndin hefur aö undanförnu veriö
sýnd á kvikmyndahátíöum í
Bandaríkjunum og víös vegar um
Evrópu. Með haustinu veröur hún
einnig sýnd á kvikmyndahátíð í
Ástralíu. Tár úr steini hefur hlotiö
ýmiss konar viðurkenningu og
góöa dóma. Síðasta sýning á Tári
úr steini veröur í Stjörnubíói í
kvöld klukkan 19 og er það aö
öllum líkindum síöasa tækifærið
til að sjá myndina í bíói hérlendis.
■ Aðalsteinn Bergdal leikari
hefur tekið saman dagskrá um
Davíð Stefánsson skáld frá
Fagraskógi sem flutt veröur í Dav-
íöshúsi á Akureyri á föstudags-
kvöldiö klukkan 20.30 og einnig
á laugardag klukkan 17. Að-
gangseyrir er 500 krónur og hús-
iö verður opnaö hálftíma áður en
dagskrá hefst. Dagskránni er ætl-
að að höfða jafnt til þeirra sem
vilja efla kynnin viö Davíð Stef-
ánsson og skáldskap hans sem
og þeirra sem þekkja hann gjörla
og þrá af honum sífelld kynni.
■ Á sunnudaginn klukkan 20
veröa fyrstu tónleikar starfsársins
í tónleikaröö Tríós Reykjavíkur og
Hafnarborgar. Á tónleikunum
koma fram þrír strengjaleikarar,
Guðný Guðmundsdóttir fiölu-
leikari, Unnur Sveinbjamardótt-
ir víóluleikari og Nina G. Flyer
sellóleikari. Þær munu flytja trió
eftir Schubert og Dohnanyi og
dúó eftir Mattinu og Ravel. Tón-
leikamir í tónleikarööinni veröa
fimm í vetur. Sérstakir tónleikar
veröa haldnir þann 29. september
til heiöurs Halldóri Haraldssyni
píanóleikara sem lætur nú áf
störfum meö tríóinu. Peter Maté
tekur viö sem píanóleikari triósins
en aörir meðlimir verða eftir sem
áöur Guöný Gúömundsdóttir og
GunnarKvaran sellóleikari.
■ Á laugardaginn opnar Gréta
Mjöll Bjamadóttir sýningu á
grafíkverkum í Gallerí Horninu aö
Hafnarstræti 15. Gréta nefnir
sýningu sína Var — ný þrykk af
gömlum klisjum, sem vísar til
þess aö verkin eru þrykk af göml-
um legsteinum við Suöurgötuna.
Tæknin er upprunnin í Kína en
þarlendir grafíklistamenn taka
þrykk af letursteinum. Gréta Mjöll
hefur haldið fjölda einka- og sam-
sýninga, meðal annars í Kína,
Danmörku og Svíþjóð. Sýning
Grétu Mjallar stendur til 18. sept-
ember.
■ Á Óháðri listahátíö veröa mynd-
listarsýningar á ýmsum stööum í
borginni. í Eldgömlu Isafoldi
Þingholtsstræti verður Innsetning
fyrir líkama, Hvíld, sýning Sigur-
bjargar Eiðsdóttur. í sal Is-
lenska grafíkfélagsins aö Tryggva-
götu 15 sýna Kristbergur Pét-
ursson og Sveinbjöm Halldórs-
son. í Suöurgötu 7 sýna þau
Tómas Ponzi, Lína Rut, Jóhann
Valdimarsson og Jón Sæmund-
ur Auðarson. í Gallerí Fischer-
sundi sýna Anna Braga, Thom-
as Elovsson, Ámi Guðmunds-
son og Per Huttner.