Helgarpósturinn - 29.08.1996, Page 17
FIMMTUDAGUR 29. AGUST1996
V
-L'
17
PROFANAM A HAUSTONN 1996
Öldungadeild
GRUNNSKÓLASTIG
(íslenska, stærðfræði, danska og enska)
Grunnnám: Samsvarar 8. og 9. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni.
Fornám: Samsvarar 10. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa náð tilskyldum árangri í 10. bekk
eða vilja rifja upp. Undirbúningur fyrir nám á framhaldsskólastigi.
FRAMHALDSSKÓLAS TIG
Menntakjarni: Fyrstu þrír áfangar kjamagreina: íslenska, danska, enska og stærðfræði.
Auk þess eðlisfræði, efnafræði, félagsfræði, námstækni, stærðfræði 112 og tjáning.
Sjúkraliðabraut: heilbrigðisfræði, líffræði, líffæra- og lífeðlisfræði, líkamsbeiting, næringarfræði, sálfræði, siðfræði og skyndihjálp.
Aðstoðarkennsla í stærðfræði fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum. Nemendur mæta með eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla.
Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda og er haldið í lágmarki.
INNRITUN fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, dagana 29. og 30. ágúst frá kl. 16.30 til 19.30.
INNRITUN í FRÍSTUNDANÁM fer fram 12. og 13. september kl. 16.30-19.30.