Helgarpósturinn - 29.08.1996, Side 18
F1MMTU0AGUR 29. ÁGÚST1996
18
{tilefni af komu bresku hljómsveitarinnar Blur hingaö
til lands á næstunni spjallaði SigurðurÁgústsson viö
Þorstein Kragh, framkvæmdastjóra tónleikanna, um
Blur, umboösménnsku, Uxa ogfleira...
Byrjaði
allt í rjúpu
með Bubba
Island er orðið að uppá-
haldslandi popparanna.
Á Þessu ári hafa Bowie og
Pulp skemmt landanum,
að ógleymdri sjálfri Björk.
Nú bætist enn I fríðan
flokk íslandsvina ársins
1996 og ólíkt mörgum öðr-
um íslandsvinum er hér
um að ræða menn sem eru
ástfangnir af landi og þjóð
eins og kemur berlega í
ljós í eftirfarandi viðtali
við Þorstein Kragh, um-
boðsmann, tónleikahald-
ara og altmugligtmand.
„Var blekktur í þetta“
Denni, eins og Þorsteinn
Kragh er kaliaður, er einn fárra
íslendinga sem hafa haft um-
boðsmennsku hljómsveita að
aðalvinnu. Það liggur því bein-
ast við að spyrja hvernig hann
hafi dregist inn í þennan heim.
„Það var á rjúpnaveiðum
með Bubba uppi á Héraði.
Hann sagði að sig vantaði um-
boðsmann og bað mig að taka
það að mér. Ég sagði nei. Það
varð þó úr að ég ákvað að
hjálpa honum með eina tón-
leika; ég var blekktur í þetta.
Þetta var fyrir 7 árum.“
Þú ert nú einmitt frœgur
fyrir að hafa verið umboðs-
maður frœgustu hljómsveita
og listamanna íslenskra og
má þar nefna, auk Bubba,
KK og Jet Black Joe, að
ógleymdum Richard Scobie.
En heimsfrœgðina hlaustu
eftir að til ryskinga kom á
ísafirði þegar þú varst með
hljómsveitina Jet Black Joe
á þínum snaerum. Varðst
frœgur að endemum.
„Isafjarðarmálið er búið og
gert. Þar fór allt úrskeiðis sem
gat farið úrskeiðis. Við urðum
innlyksa á ísafirði og þar fram
eftir götunum. Það er ekkert
meira um það að segja.“
Seinþreyttur til vandræða
þótt ég sé skapmikill
Nú er einn fyrrum skjól-
stœðinga þinna, Bubbi Mort-
hens, landsþekktur fyrir
boxáhuga og hefur sjálfur
sagt frá því að í eina tíð hafi
honum oft verið laus höndin
við heimamenn. Lœrðirðu
þetta afhonum?
„Nei,“ segir Denni og hlær
dátt. „Þótt ég sé skapbráður
maður þá er ég seinþreyttur til
vandræða og stofna aldrei til
slagsmála. Hvað Bubba varðar
má hann eiga það að eftir að ég
kynntist honum er hann mikill
friðarins maður.“
Berðu kala til ísfirðinga
eftir að hafa fengið að dúsa
saklaus í dýflissunni með
Páli Rósinkrans heila nótt?
„Nei, alls ekki, ísfirðingar
eru gott fólk og þar á ég marga
góða vini.“
Skífumenn
hafa samband...
Árið í ár hefur verið ís-
lenskum tónlistaráhuga-
mönnum gott; Ash, Cardigans,
Björk, Bowie ojg Pulp hafa þeg-
ar spilað fyrir Islendinga og nú
er von á einni allra stærstu
sveitinni í bransanum: Blur.
Verða þetta ekki stærstu tón-
leikar sem haldnir hafa verið
hér?
„Það hafa margar góðar
sveitir sótt okkur heim; Led
Zeppelin, Deep Purple, Kinks
og þar fram eftir götunum.
„Jarvis hefur í blaðaviðtölum sagt
Islandsferðina standa upp úr eftir
15 ár í bransanum. Betri gerast
meðmælin varla."
Þetta verða þó með stærri tón-
leikum hér.“
Hvernig kom það til að þú
gerðist framkvœmdastjóri
tónleikanna?
„Ég byrjaði að vinna fyrir
Uxa-menn fyrir tveimur árum
og var þá í því að flytja inn
hljómsveitir í samvinnu við þá.
Reyndar meira svokallaðar
,,indie“-hljómsveitir eins og
Drumclub og mjög mikið af DJ-
um. Svo tók ég að mér verkefni
fyrir Uxa, Ash-tónleikana sem
gengu vel fyrir sig þótt fleira
fólk hefði mátt mæta. Síðan
var það Pulp og þegar Skífan
ákvað að halda veglega 20 ára
afmælishátíð var mér boðið að
sjá um framkvæmdastjórn á
Blur-tónleikunum sem ég og
þáði. Þar fyrir utan var ég bú-
inn að ná ágætu sambandi við
Blur-menn. Þeir hafa sömu út-
gefendur og Pulp. Þeir þekktu
til mín úti og því var ekki erfitt
að fá samþykki þeirra.“
Margt farið til fjandans...
Það hlýtur að hafa verið
erfitt að koma íslandi inn á
landakort erlendra hljóm-
sveita eftir að misgáfulegir
menn fengu misgáfulegar
hljómsveitir til landsins þar
sem orð og efndir fóru ekki
alltaf saman. Það hefur
varla verið til að bœta fyrir
fámennið hér.
„Þetta hefur verið þrotlaus
vinna í tvö ár. Það hefur margt
farið til fjandans og ekki bætir
úr skák að við erum ansi fá og
því verður eitthvað annað en
gróðasjónarmið að ráða ferð-
um hljómsveitarinnar.“
Sem dæmi um umfang tón-
leikanna má nefna að um 100
manns verða í vinnu á vegum
tónleikahaldaranna þann 8.
september, auk þess sem
margir hafa unnið að þessu
með öðru í nokkrar vikur. Fyrir
þá allra forvitnustu má geta
þess að símareikningur Denna
hleypur á mörgum tugum þús-
unda og hundruðum, og það
eru ekki „0-900“ númer sem
hann er að hringja í.
„íslandsferðin
stendur upp úr“
Hvernig kom það til að
Blur ákvað að spila á land-
inu?
„Björk bauðst til að lána Jar-
vis Cocker, söngvara Pulp,
íbúðina sína í viku í fyrra í
viku. Hann dvaldi tvo daga í
Reykjavík og restinni eyddi
hann úti á landi. Jarvis sagði
Damon hversu vel sér hefði
líkað dvölin og eins og menn
vita hrifust bæði Jarvis og
Damon af Iandinu. Ég fékk upp-
hringingar frá umboðsmönn-
um Pulp og Blur, Richard Pri-
est og Ifan Thomas, þar sem
þeir þökkuðu kærlega fyrir
móttökurnar fyrir hönd hljóm-
sveitanna. Richard Priest
sagði Pulp ekki hafa haft það
jafn þægilegt og átt jafn góðan
tíma á hljómsveitarferðalagi
og hér á íslandi. Það verða að
teljast góð meðmæli því hljóm-
sveitin hefur verið að í 15 ár.
Jarvis var spurður að því I við-
tali ekki alls fyrir löngu í
bresku pressunni hvað stæði
upp úr eftir ailan þennan tíma
og hann sagði að að það væri
íslandsferðin.“
Oasis væntanleg?
Ætti þá ekki að vera lítið
mál að fá þekkt fólk til að
koma til Islands eflir allt
þetta stjörnuflóð?
„Það vilja mjög margir koma
og án þess að fara nánar út í þá
266 bjórar, 5 naríur og margt fl
Að mörgu smálegu er að hyggja þegar súper-
grúppa á borð við Blur sækir landann heim.
Þeir sem hafa haldið Blur-menn einhverja sóða
eru á villigötum því þeir vilja hafa tiltækar nýjar
boxaranærbuxur baksviðs eftir tónieikana. Það
er Eikl Feíti á Salatbarnum sem sér til þess að
enginn Blur- manna verði hnugginn í bragði og
hann mun sjá til þess að eftirfarandi óskir Blur
verði virtar. Hér fer á eftir listi, ættaður frá
Blur, með fyrirmælum um hvað skuli vera við
höndina í það og það skiptið.
Við komu sveitarinnar:
Ferskir ávextir
Fat, ídýfa og flögur og bragðsterkt snakk
Gott úrval osta
Kex og smurostar fyrir ofangreind atriði
Úrval gosdrykkja (20 dósir)
Tveir lítrar af ferskum appelsínusafa
1 lítri af ferskri léttmjólk
Aðstaða til að búa til te og kaffi
10 eins lítra flöskur af lindarvatni
Diskar, hreinlætisvörur og fleira:
20 vatnsglös (ekki plast)
30 vínglös
20 kampavínsglös
20 viskíglös
5 pör af boxaranærbuxum
5 pör af svörtum gæðasportsokkum
íslenskar kræsingar (komið okkur á
óvart)
10 pakkar af Marlborough Light
5 pakkar af Camel Filter
Vasi með ferskum blómum
Sjúkrakassi
Nægar birgðir af ís, bali til að kæla
bjórinn i og fata til að skenkja drykki í
10 handklæði
2 sápustykki
1 sjampóflaska
1 pakkning af einnota rakvélum
1 raksápa
40 mínútum
áður en fara á bak-
sviðs:
30 flöskur af innflutt-
um gæðabjór (ekki Mill-
er, Bud o.s.frv.)
1 flaska af evrópsku
gæðarauðvíni (franskt,
spænskt, ítalskt...)
1 tappatogari
Baksviðs, 10 mínútum
fyrir tónleikana:
15 handklæði
20 eins lítra vatnsflöskur
20 plast-„glös“
30 flöskur af innfluttum
gæðabjór (ekki Miller, Bud
o.s.frv.)
Eftir tónleikana (sjjáið til
þess að þessu verði komið
iyrir í búningsherberginu
meðan hljómsveitin er á sviðO:
200 flöskur af innfluttum gæðabjór (ekki Mill-
er, Bud o.s.frv.)
8 flöskur af evrópsku gæðarauðvíni (franskt,
spænskt ítalskt...)
1 flaska af Martini (dry)
1 flaska af bresku gini (Bombay Saphire
myndi koma sér vel)
2 Iítrar af indversku tóniki
2 ferskar sítrónur, beittur hnífur og skurð-
bretti
6 flöskur af gæðakampavíni (hafið hugfast að
kampavín kemur eingöngu frá Champagne-hér-
aðinu í FRAKKLANDI)
6 dósir af Guinnes-bjór
1 flaska af Remy Martin koníaki
Og...hvaðeina sem þið haldið að okkur muni
líka
ATH. Vinsamlega hafið hugfast að allir með-
limir hljómsveitarinnar eru grænmetisætur -
EKKERT KJÖT í búningsherbergið.