Alþýðublaðið - 09.06.1974, Blaðsíða 31

Alþýðublaðið - 09.06.1974, Blaðsíða 31
lausnin fundin, og hún byggist á þvi, að málmnet er fellt inn i svonefnt ,,phenolic”-plastfroðu, sem er mjög mikið fjaðrandi efni og dregur þvi vel úr högg- um. Við árekstur gefur bólstrunin eftir, og tilraunir sýna, að hún þolir vel högg við árekstur á allt að 50 km hraða, án þess að slys verði á fólki. Til þess að full- komna þetta öryggisatriði þarf þó nýja gerð af framrúðum, sem draga úr höggum án þess að brotna. Þannig rúður eru ein- mitt á tilraunastigi, og þegar þær bætast við öryggisbólstrun Ford verður hún mun betra ör- yggistæki en loftpokarnir. (Frá AP) VATNIÐ LEITT UM ÞURRKU- BLAÐIÐ Hið svonefnda „rúðupiss” á bilum er vist að flestra dómi ekki sérlega góð lausn á þeim vanda, sem óhreinar framrúður eru, enda höfum við sannfrétt, að þetta fyrirkomulag hafi verið upp fundið út úr hreinni neyð. Þó hefur „rúðupissið” gert sitt gagn, enda þótt ekki megi vera mikill hliðarvindur, svo bunan fari frekar á bilinn við hliðina en þangað, sem hún á að fara. Nú hefur sænska fyrirtækið BeBiCi fullkomnað nýtt „rúðu- piss”, sem leysir þetta vanda- mál. 1 staðinn fyrir að hafa spissa fyrir framan framrúðuna er vatnið leitt um sjálft þurrku- blaðið, þannig að það lendir á rúðunni hvernig sem vindurinn stendur. Með þessu lagi fer þurrkan alltaf eftir blautri rúð- unni, — hreinsunin verður þvi öruggari og einnig minnkar það slit bæði á þurrkunni og rúð- unni. Mögulegt verður að setja þetta nýja „rúðupiss” á allar venjulegar gerðir af rúðuþurrk- um, en verðið er ekki vitað ennþá. Framleiðandinn segir þó, að það verði „mjög hag- kvæmt”. Nýja „rúðupissið” vinnur eins og sýnt er á innteiknaða hringn- um. Tilraunabill frá Ford bólstraður fram í og afturi með nýju öryggis- bóistruninni Þverskurður af ör- Vggisbólstruninni frá Ford. I NÆSTU VIKU REYNSLUEKUR AL- ÞÝÐUBLAÐIÐ TRA- BANT ÁRGERÐ 1974? HIÐ FULL- KOMNA DROPA- LAG >0 km á að eyða ' nema rétt rúmlega sex lítrum á 100 kílómetra. í fyrstu verður Fascination með 70 ha Renault vél og fram- hjóladrif (eða framhjóls- drif, því við fáum ekki betur séð en framhjólið sé aðeins eitt), en ætlunin er, að bíllinn verði í framtíðinni búinn gufu- vél. VAR LÖG- LEGT AÐ SEKTA FÖLK FYRIR AÐ AKAÁ SUNNU- DÖGUM? Fyrir skömmu var tekið fyrir i bæjardómi Þrándheims athyglis- vert mál, sem fylgst er imeð af mikilli eftir- væntingu. Málið var nefnilega höfðað gegn manni, sem ákærður er fyrir að brjóta helgar- akstursbannið í vetur, á meðan það gilti. Maður- inn neitaði að greiða þá sekt, sem ákveðin var fyrir þetta brot og var málið því sent bæjar- dómi til meðferðar. Þetta er i fyrsta sinn, sem mál vegna brots á akstursbanni fer fyrir dómstólana, en ákærði ákvað að láta reyna á það, hvort það hafi stað- ist lagalega, — hvort landslög leyfa sektir við sliku broti. Einnig neitar hann sök þar sem hann hafði undanþágu vegna starfs sins, en lögreglan heldur því fram, að hann hafi misnotað und- anþáguna og verið að aka tengdamóður sinni, þegar hann var stöðvað- ur. Sendum sjómönnum öllum og f jölskyldum þeirra bestu árnaðaróskir i tilefni dagsins. Hraðfrystihúsið h.f. Hnífsdal Sendum islenskum sjómönnum og fjöl- skyldum þeirra bestu heillaóskir á sjó- mannadaginn. Alftfirðingur h.f. Súðavík Utgerðarfélag Akureyringa h.f. sendir sjómönnum og fjölskyldum þeirra beztu kveðjur i tilefni dagsins. Sendum sjómönnum um land allt beztu kveðjur i tilefni af sjómannadeginum. Þorbjörn h.f. Grindavík Sendum starfsmönnum vorum og sjó- mönnum öllum beztu kveðjur i tilefni sjó- mannadagsins. Skagstrendingur h.f. Skagaströnd. Sendum sjómannastéttinni okkar beztu hamingjuóskir á sjómannadaginn. Hjálmur h.f. BÍLAR OG UAAFERD | Flateyri Sunnudagur 9. júni 1974. ©

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.