Alþýðublaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 3
TILKYNNIR IHORNAFIRDI n me6 matnum, sagði hann og dró upp flösku af Púrtvini. — Mér var sagt a6 barinn væri ekki opinn nema yfir hásumarið, svo það er eins gott að hugsa fyrir öllu. Þessum siðustu orðum beindi hann frekar til min en stúlkunnar. — Það er bannað að drekka hérna, sagði stúlkan og var að- eins brugðið. — Hva’? Heldurðu að ég megi ekki fá mér einn léttan? spurði Hjálmar Diego, I. stýrimaður hissa. — Það má ekki vera með vin i matsalnum, sagði stúlkan. — Jæja, jæja, sagði Hjálmar, —■ þá skal ég ekki vera með vin i matsalnum. En ég hlýt að geta fengið mér einn hérna. Stúlkan brosti afsakandi og gaf til kynna að hún myndi ekki gera neinar meiriháttar at- hugasemdir við stútsopa i gang- inum. Maður er alltaf að koma og fara” Hún lauk við að afgreiða mig og á meöan gekk stýrimaðurinn upp stigann. Ég mætti honum þegar ég ætlaði sjálfur upp til að kikja aðeins á þetta margumtalaða hótel. — Er ekki einhver setustofa hérna? spurði hann. — Jú, það er svona nokkurs- konar setustofa þarna uppi, svaraði stúlkan. Við gengum samferða upp og fengum okkur sæti. — Viltu einn? spurði hann. Nei takk, tilefnið þarf að vera annað en að vera tiltölulega syfjaður og kvefaður á kulda- legum morgni á Höfn i Horna- firði. — Hefurðu aldrei komið hingað áður? spurði hann. — Nei. — Þetta er finn staður. Sjáðu bara hvað það er fallegt hérna. Stattu upp og komdu hérna út að glugganum. Sjáðufjöllin hérna i kring, jöklana, sjóinn, fuglana, himininn. Ég hef oft komið hér en aldrei getað stoppað neitt. Maður er alltaf að koma og fara. Það tilheyrir þessu starfi. Nú er ég til dæmis að fara út til Noregs með Stapafellinu. För- um i kvöld. Mig langar að koma hingað og skoða mig vel um hérna. Keyra hér austur- og vesturfyrir, heilsa upp á jöklana og sjóinn. — Og sandinn, sagði ég. — Já, og allt það helviti, sagði Hjálmar. — Nei , maður á að njóta náttúrunnar meira en maður gerir. Hérna allt i kring eru stórkostlegustu undur nátt- úrunnar. Ég hef nú viða farið en hvergi, held ég, séð jafn dásam- lega náttúru og hérna. Hann hélt áfram að tala um náttúruna góða stund áður en við settumst aftur. — Jæja, sagði hann þá. — A hvaða ferða- lagi ert þú? Ég sagði stuttlega frá þvi og spurði svo: — Hefur þú verið lengi sjómaður? — Ég hef alltaf verið sjómað- ur, svaraði hann. — Ég var i þrjú ár stýrimaður á Arnarfell- inu.Þaövar skip.ekki kassi eða dolla með frakt. Stapafellið er ágætt en það verður aldrei eins. Sko, Arnarfellið sáluga var mið- skipsbyggt, raunverulegt skip. Það brakaði dálitið i þvi, það var með raunverulegt hjarta. Skúlptúr Sigurjóns, Hann sagði mér af fleiri skip- um, sem hann hafði siglt með, stöðum sem hann hafði heimsótt og alltaf talaði hann um náttúr- una. Svo stóð hann allt i einu upp og benti út um gluggann. Þar var skemmtileg járnlistar- mynd, sem við urðum nokkurn- veginn sammála um að væri eftir Sigurjón ólafsson. Hjálmar Diego, stýrimaður, út- skýrði fyrir mér myndina og sá á henni margar hliðar. Þetta var fugl, jú jú, sjófugl. Það sýndu linurnar i brjóstinu og bakinu. En neflagið var eigin- lega of ránfuglslegt. Þetta gat náttúrlega komið öðru visi út ef maður horfði á myndina frá öðru sjónarhorni en þá var ann- að, hvers vegna var þá verið að láta myndina snúa svona að hótelinu, það var frá þessu sjónarhorni, sem flestir horfðu á þennan skúlptúr. Við spjölluðum um myndina, fleiri myndir og myndlistar- menn og ég hreifst mjög af Hjálmari Diego. Hann virðist náttúruheili og tilvera hans snuðrulaust ævintýralif sjó mannsins sikáta. Náttúrubarn. Það passaði vel inni þarna. Við borðuðum i snatri i isköld- um matsalnum og þar varð ég öllu þjóðlegri en hann: ég fékk hangikjöt en hann ommelettu. Svo komu þrir framsóknar- menn á stórum Blazer frá Sambandinu og Hjálmar Diego, I. stýrimaður á Stapafelli SÍS, gaf sig á tal við þá. Þeir voru að tala um stöðuhækkanir innan einstakra deilda Sambandsins þegar ég yfirgaf þá. Ég stoppaði i bensinsjoppu og keypti batteri og ullarsokka. Þeir komu sér vel nokkrum klukkustundum siðar, þegar bil- tikin drap á sér neðan undir Vatnajökli, sem blés bæði kalt og mikið ofan af. — ó.vald. VANTI YÐUR HÚSNÆÐI ÞÁ AUGLÝSIÐ í litibú Kaupfélags Borgfirðinga_ Verslunar- og veitingahús r VEGAMOT SNÆFELLSNESI ALÞÝÐUBLAÐINU Alþýðublaðið inn á hvert heimili Dempnrar í flestar gerðir bíla. Kristinn Guðnason hf. Suðurlandsbraut 20 Simi 8-66-33. FERÐAFÓLK, vér viljum draga athygli yðar að þvi, að vér bjóðum yður i veitinga- húsinu: Kaffi. Smurt brauð (heimabakað) Kökur (heimabakaður) Pylsur Tóbak öl og sælgæti. i verzluninni bjóðum vér yður: Allar algengar vörur, auk þess margt sér- staklega fyrir ferðafólk, t.d. filmur, vega- kórt, niðursuðuvörur i fjölbreyttu úrvali, ferðagastæki og áfyllingar fyrir þau. Starfrækjum auk þess benzin- og oliu- afgreiðslu. Veitingastofan og bensinafgreiðslan er opin frá kl. 9.00 til 23.30. VERZLUNAR- OG VEITINGAHÚSIÐ VEGAMÓTUM. — SÍMI um Hjarðarfell. Kynnist yðar eigin landi Það gerið þér bezt með þvi að gerast félagi i FERÐAFFÉLAGI ÍSLANDS Argjaldið er nú kr. 750,00og fyrir þaö fáið þér Ar- bókina, sem ekki fæst I bókabúðum, og mundi kosta þar mun meira en félagsmenn greiða fyrir hana með árgjaldinu. Arbækur Ferðafélagsins eru orðn- ar 47talsins og eru fullkomnasta lslandslýsing, sem vöFer á. — Auk þess að fá góða bók fyrir litið gjald, greiða félagar lægri fargjöld i ferðum félagsins og lægri gistigjöld i sæluhúsunum. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERA í FERÐAFÉLAGINU Gerizt félagar, og hvetjið vini yðar og kunningja til aö gerast einnig félagar og njóta hlunnindanna. Ferðafélag íslands ÖLDUGÖTU 3 — REYKJAVtK. Simar 19533 og 11798. 30 ÁRAHÚMOR „Gætuð þér gefið mér gaml- an frakka?” „Já, en frakkinn, sem þér eruð i, er næstum nýr.” „Það er einmitt gallinn. Hann er alveg aö eyðileggja atvinnu mina.” Betlari: „Eigið þér ekki kökubita handa fátæklingi, sem hefur ekki bragðað mat i tvo daga?” Húsfreyja: „Köku? Er brauð ekki nógu gott handa yður?” Betlari: „Jú, venjulega, En ég á afmæli i dag.” „Hafið þér aldrei unnið ær- legt handtak?” spurði geðill húsfreyja betlara nokkurn. „Ef þér haldið, að það sé engin vinna fólgin i þvi að urga út úr yður matarbita, þá vitið þér ekki hvað vinna er.” „En hvað sumir menn eru kaldrifjaðir,” sagði flakkari við félaga sinn. „Ég sagði þessum þarna, að ég væri svo blankur, að ég yrði að liggja úti.” „Lét hann ekki segjast af þvi?” spurði hinn. „Ekki alveg. Hann kvaðst gera það sjálfur og þurfa auk þess að borga lækni sinum fyr- ir að segja sér að gera það.” Heyvagninn hafði oltið um og drengurinn, sem setið hafði á ekilssætinu, stóð hjá honum og vissi ekki, hvað til bragðs skyldi taka, þegar bónda nokkurn bar þar að. Bóndinn bauð piltinum inn að borða og sagði nógan tima til að reisa vagninn við, þegar máltiðin væri á enda. Pilturinn maldaði i móinn og sagði að föður sinum mundi mislika það, en bóndinn hafði sitt fram. Að lokinni góðri máltið þakkaði pilturinn góðgerðirn- ar, en sagði aftur, að faðir sinn mundi kunna þessu illa. „Vitleysa!” svaraði bóndi. „Hvar er hann annars?” „Hann er undir hlassinu!” svaraði drengurinn. Sunnudagur 14. júlí 1974. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.