Alþýðublaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 11
r
FOLK, HÚS, HLIITIR,
Þegar blaðamaður Al-
þýðublaðsins var á ferð
um öræfasveit fyrir
páskana síðustu/ kom
hann víða við og hitti
ýmsa að máli» eins og
raunar er gerð ýtarleg
grein fyrir i þessu blaði.
Hann var einnig með
myndavélina á lofti alltaf
stöðugt og þótti ýmsum
nóg um, eins og kemur
fram í einni grein hans í
blaðinu.
Vegna þeirrar stefnu,
sem fylgt hefur verið við
uppsetningu þessa blaðs,
þ.e. að hafa hvergi fram-
hald á greinum (þótt það
hafi reynst nauðsynlegt í
einu tilviki), var einfald-
lega ekki hægt að koma
með greinunum öllum
þeim myndum, sem æski-
legt hefði verið að fylgdu
þeim. Þegar fjallað er
um öræfasveit — og
raunr þegar f jallað er um
hvað sem er, sem er jafn
stórbrotið og hrífandi og
sú sveit og íbúar hennar,
þá segja myndir oft
meira en orð.
Því er það, að við birt-
um hér á síðunni litla
„myndsjá": fólk, hús,
hlutir, skepnur, land.
Myndirnar tók ómar
Valdimarsson.
Hagnar bóndi Stefánsson I Skaftafelli sýndi blm. Alþýöublaösins allt þaö, sem hann
taldi geta vakið áhuga. Nokkrar kindur voru bornar og er myndin tekin fyrir utan
fjárhúsin.
i fjárhúsunum á Svfnafelli hangir margt forvitnilegt — og I ljósblossanum komst
upp um eina kindina, sem var að stelast I fóðurpoka (th).
1 öræfasveit neyðist ökumaöurinn til að stansa við og við einfaldlega til að njóta
þessarar stórfenglegu náttúru.
Sumum ökumönnum þykir ekki nóg að horfa á landið úr fjarlægð. |»aö getur fariö illa
(sjá grein á baksiðu),
Metúrkoma hérlendis mældist á Kvlskerjum. Þar er þó ekki snjóþungt en gestir
þeirra systkina kunna vel að meta snjósleðann.
Þeir Kviskerjabræöur eru að byggja sér nýtt fbúðarhús i rólegheitunum. Myndin er
af einum þeirra, Sigurði,þar á hlaöinu.
myndsjá myndsjá myndsjá myndsjá myndsjá myndsjá myndsjá
SKEPNUR, LAND, SANDUR
J
o
Sunnudagur 14. júlí 1974.