Alþýðublaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 5
V Gist í Hæðum í Skaftafelli hjá Ragnari Stefánssyni, konu hans, dóttur og bróður vandræBafólk kemur alls staðar að. Þessar breytingar hafa bæði gott og vont í för með sér en maður reynir að.gera það besta úr öllu.” Laga veginn eða loka honum alveg A sandinum fyrir neðan Skaftafell er verið að reisa mikla sjoppu með salernisað- stöðu handa öllum ferðamönn- unum. En þrátt fyrir það sækir örugglega stór hópur fólks upp til Hæða. Og vegurinn þangað upp er afar slæmur. Það er greinilega langt síðan dyttað hefur verið að honum og ekki get ég imyndað mér, að bilar gætu mæst þar. Annar hvor yrði að bakka, 200 metra upp eða niður, krókóttan veg, og gangi þeim vel. „Veginn þarf að laga fyrir sumarið,” samsinnti Ragnar, „eða þá að loka honum alveg. Hann þolir enga umferð svo það er alveg augljóst, að hann þarf að bæta mikið. Svo veit maður ekkert hvað verður gert.” Þaö hefur alltaf verið mikið um ferðamenn f Skaftafelli og landfræðilegra orsaka vegna hefur Ragnar alla sina tið getað fylgst óvenju vel með hlaupum úr jöklunum. Hann er töluverð- ur fróðleiksmaður um hlaupin og jöklana. Og hann hefur hitt marga ferðamenn. „Hann Orn Johnsen hjá Flug- félaginu kom einu sinni hingað með hóp ferðamanna um nótt. Þetta var um sumar og bjart úti, svo útsýnið var talsvert, en meiningin var að skoða bænhús- ið. Svo fór ég að spyrja daginn eftir hvernig þeim hafi likað og þá kom i ljós, að flestir höfðu skoðað bænhúsið en allir höfðu skoðað fjósið.” Þeim i Skaftafelli þóttu ferða- menn oft skoða skritna hluti. Þögnin vekur borgarbörnin Við borðuðum kjarngóðan mat og þau bjuggu mér góða hvilu I herbergi á efri hæð húss- ins, þar sem hálf blaðamanna- stéttin islenska hefur gist i nátt- úruhamförum. Langt i burtu heyrðist þungur niður, sem barst til manns meira með jörð- inni en vindinum og rétt hjá rann fjörugur lækur. Það var undarleg tilfinning, þessi þögn, fyrir mann, sem býr við eina helstu umferðargötu borgarinn- ar og er að koma úr flugvél og nokkurra klukkustunda akstri eftir misjöfnum vegum. Einhverntima um nóttina vaknaði ég við eitthvað sem ég vissi ekki almennilega hvað var. Ég hlustaði út i þögnina — og fann þá, að það var þögnin sjálf sem vakti mig. Ég nefndi þetta við Laufeyju um morguninn og þá sagði hún: „Já, ég skil hvað þú átt við. Ef til dæmis hún Skaftá rennur hér eitthvað ve'star en venjulega, þá finnst manni eitthvað vanta. Þó heyrir maður ekki beinlinis i henni en hún er þarna og þessi litli niður, sem af henni er, hann heyrir til þessu umhverfi.” Ragnar: „Flytja héðan? Nei, tja, maður veit aldrei. Hér á maður heima.” Anna, dóttir þeirra Ragnars og Laufeyjar, sækir skóla að Hofi, 30 kilómetrum austar i sveitinni. Hún fer á hverjum morgni með móður sinni á Moskvitsj að næsta bæ, Svina- felli, þar sem kennarinn býr og situr i Landróvernum hans austur að Hofi. t skólanum er allur barnaskólaaldurinn. I haust verður Anna annaðhvort að fara á Klaustur eða Höfn i Hornafirði til að halda áfram skólagöngu. Þau voru ekki viss hvort það yrði, en mér fannst mega skilja á þeim, að Klaustur yrði fyrir valinu. öræfingar hafa liklega fengið nóg af að sækja til Hafnar, þar sem þeir i eina tið áttu á stundum söguleg viðskipti við kaupmenn einok- unarverslunarinnar. Anna var sjálf ekki viss um hvort hún héldi áfram að skyldunámi loknu. Henni líkaði vel i sveitinni innan um dýrin, hálfleiddist Reykjavik. „Ég verð að hafa dýrin,” útskýrði hún. Og hún reiknaði með að verða bóndakona. Gott hjá ’enni. Ég skutlaði henni i skól- ann og fór svo út á sandinn til að skoða mannvirkin og hitta vegavinnukalla og vegavinnu- konur. 1 hádeginu borðaði ég aftur kjarngóða máltið i Skafta- felli. Eftir mat ætlaði ég að fara aftur i vegavinnukallana, og áð- ur en ég kvaddi þetta indælis fólk og þeirra eigin hund, sem var állka vingjarnlegur og hinir höfðu verið f jandsamlegir, fékk ég þá bræður til að koma með mér út á hlað til að taka af þeim myndir. Græðum upp sandinn Ragnar gekk með mér um hlaðið, sýndi mér nýborið lamb, hross, kindur og fleira, talaði um búskap við mig og sagði mér sögur, af mönnum og málefn- um, sagði mér frá sandinum, allir I öræfasveit segja manni sögur af sandinum. *„Ég held og hef trú á þvi, að ég lifi það að sjá meira en hálf- an þennan sand grænan, jafnvel þótt ekkert verði gert til þess,” sagði Ragnar og benti út yfir ca. 400 km 2 kolsvart flæmið, sund- urskorið af jökulvötnum og ám. Gróður hér i sveitinni og þar með út á sandana hefur stór- aukist á undanförnum árum. Mest á undanförnum 30 árum eða svo, eftir að hlaupin fóru að minnka. Þetta hafa fjandakorn- ið engin hlaup verið á siðustu árum. Hér hefur ekki komið al- mennilegt hlaup siðan 1938. Siðasta hlaup var smáhlaup. Það gerði þó eitt: það auglýsti happdrættisskuldabréfin, sem hann Jónas Pétursson átti hug- myndina að. Lúðvik, aftur á móti, hann stakk fyrst upp á þessari vegagerð hér yfir Skeið- arársand á þingi 1964. Þá fannst manni þetta óhugsandi ævin- týri. Nema hvað, á sama þingi komu svo framsóknarmenn og Ihald með samskonar tillögu. Það má nú segja, að fátt er það, sem þeir geta komið sér saman um, þessir menn. Svo gerði það hlaup annað,” hélt Ragnar áfram og gekk yfir að voldugu akkeri, sem lá i hlaðvarpanum. „Þetta akkeri er eitt af þremur úr miklu Indiafari, sem strand- aði á sandinum. Siðasta hiaup gróf hin tvö en þetta hafði áður verið flutt hingað upp eftir og eitthvað smiðað úr þeim, skeif- ur og svoleiðis reikna ég með. Hér eru margir góðir smiðir. (Ég rak mig á það siðar, að fleiri en Ragnar töldu það mik- inn kost á manni, að hann væri góður smiður.) Sterki bóndinn i Skaftafelli og úrilli vinnumaðurinn i Svinafelli Hér i Skaftafelii”, sagði Ragnar og horfði út yfir sand- inn, „bjó um siðustu aldamót maður, sem hafði viðurnefnið „sterki”. Bróðir hans einn bjó á Hofi, sem er 30 km austar. Svo var það einhverntima um haust, að kýrin á Hofi var kálffull og fékk þá bróðirinn lánaða eina kúna hér frá Skaftafelli. Undir jól bar svo kýrin og þá fékk bóndinn hér skilaboð frá Hofi um að hann gæti sótt kúna sina. Veður var heldur slæmt en hann fór þó af stað gangandi. A leið- inni til baka versnaði veður stöðugt og bóndinn með kúna i bandi. Hann komst þó að Svina- felli, þar sem hann ætlaði að fá inni fyrir sig og skepnuna um nóttina. En þegar hann kom þar að, hitti hann engan nema vinnumann einn, sem var held- ur geðstirður og ekki hjálpaði þetta slæma veður upp á það. Bóndinn bar fram erindi sitt en vinnumaðurinn taldi öll tor- merki á þvi og það endaði með þvi, að bóndinn hélt áfram, sjálfur dauðþreyttur, eins og nærri má geta, og kýrin ekki siður eftir alla gönguna. Svo segir sagan, að hér undir Skaftafelli hafi kýrin hreinlega gefist upp og þá gerði hann sér litið fyrir og setti undir hana herðarnar og bar hana það sem eftir var. Haft var eftir honum, að það haíi verið dálitið „vont” þegar hann þurfti að bera skepnuna.” Efri bærinn i Skaftafelli stendur um það bil 200 metrum ofar sandinum. Ég spurði Ragnar um drauga i öræfasveit en hann sagði draugatrú aldrei hafa verið sterka þar. Það hefði þá og þá átt að hafa verið reimt i ein- hverjum kofum, en aldrei alvarlega. „En það kom einu sinni fyrir mig atvik, sem ég á erfitt með að útskýra,” sagði Ragnar og horfði á mig. Hvað sáu hestarnir? „Fyrir nokkrum áratugum kringum 1940, var ég að fara með birkifræ riðandi vestur að Klaustri — bændur hér söfnuðu saman birkifræi fyrir skógrækt- ina. Ég fór sjálfur riðandi á ungum og frisklegum klár en reiddi fræið á tveimur hestum, sem alltaf höfðu verið notaðir i alls konar slark, eins og að reiða ýmislegt drasl úr fjörunni. Þeir áttu að vera öllu vanir og ekki hræðast neitt. En þá gerist það allt i einu á leiðinni, þegar ég er kominn vel út á sandinn, að þeir verða svona líka logandi hrædd- ir, svo ég mátti hafa mig allan við að halda i þá. Ungi klárinn varð greinilega ekki hræddur við það sama og þeir, heldur frekar við lætin i þeim. Þeir eins og sveigðu út af sporinu og voru alveg kolvitlausir i nokkrar minútur. Svo var allt búið. Ég veit ekki hvað þetta var — en ég hef svona látið mér detta i hug, sjálfummér til gamans, að hest- arnir hafi þarna orðið varir við umferðina, sem nú er að koma hér yfir. Þetta var 1940. Ef þeir hefðu orðið varir við eitthvað, sem kom aftan úr öldum, þá hefðu þeir ekki átt að verða hræddir, þvi munurinn var ekki svo mikill á þvi og þeim timum. En hvort þetta var umferðin veit ég ekki. Ég hef svona látið mér detta það i hug.” —ó.vald. Anna heldur i skólannfrá Svinafelli ásamt kennara sveitarinnar, Þor- steini Jóhannssyni, og Hólmfriði Guðlaugsdóttur frá Svinafelli. Ragnar Stefánsson asamt joiu uroour sinum a niaoinu í Skaftafelii. Þeirra bær stendur hæst á tslandi að sögn. Sunnudagur 14. júlí 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.