Alþýðublaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 14.07.1974, Blaðsíða 9
— I Svínafelli spjallaði sðgumaður við Svövu í fjósinu og spilaði fótboltaspil við Ásgeir litla — Það þekkist nú viðar, að sveitir séu með þjóðbrautír urii sig miðjar. Þetta verður eins en ég held, að ef eitthvað gerist, þá verði það okkur til góðs. Ég hef ekki trú á, að þetta verði neitt alvarlegt, þótt aðrir séu hræddir um það. Hverjir eru þessir — „aðrir”? Svava vildi ekki segja hverjir þessir „aðrir” voru — og það var hlutur, sem ég rak mig á Þau Hólka og Geiri léku sér uppi i heyinu við kattargrey og þá kom þessi hundur I dyrnar og blóðlangaði að taka þátt i leikn- um. með fleiri öræfinga. Greinilega eru ýmsir I sveitinni með ein- hverjar áhyggjur af þeim breyt- ingum, sem óhjákvæmilega verða i sveitinni eftir opnun hringvegasambandsins, en eng- inn vildi ræða það við mig. Eða eins og Ragnar i Skaftafelli sagði: — Það er erfitt að vera að tala um þetta við ókunnuga menn. Nema hvað, við Svava héld- um áfram að spjalla. Þau eru með á þriðja hundrað fjár — sem krakkarnir tveir, Ásgeir litli og stúlka af hinum bænum, Hólmfriður Guðlaugsdóttir, 11 ára, sýndu mér. Auk þess eru þau Magnús og Svava með þrjár kýr til heimilisins en þau eru lika með nokkur geldneyti til slátrunar. Hvergi i öræfasveit eru kúabú og að sögn Svövu fer mjólkurkúm fækkandi i sveit- inni, — enda ekki hægt að ætlast til þess, að mjólkurbilar komi alla leið hingað fyrir þessa fáu litra, sagði Svava. Hún sagðist ekki viss um að nokkuð breyttist i þessum efn- um þótt hringvegurinn opnaði öræfingum leið i báðar áttir en sagði: — Þvi skyldi ekki vera hægt að vera með kúabú hér eins og annars staðar? Ég held bara að það hafi enginn áhuga á þessu, kýr eru svo bindandi. ,,Ég ætla að verða rútubilstjóri”. Asgeir litli, dóttursonur þeirra Magnúsar og Svövu ætlar sér örugglega ekki að verða Svava húsfreyja I Svinafelli vildi ekki mikið ræða við sögumann en gaf honum gott og langþráð kaffi. bóndi. Hann sagðist litt hrifinn af þvi, að gera ákveðna hluti á ákveðnum tima. Hann vill verða rútubilstjóri og keyra á Höfn og til Reykjavikur — hvert hann hefur aldrei komið. Hann er náttúrlega i skóla og þykir það frekar skemmtilegt og hann kann meira að segja „dálitið” að lesa. — Það er verið að kenna mér það i skólanum, sagði hann þegar við gengum með Hólmfriði (yfirleitt kölluð „Hólka”) á milli útihúsanna. Hólku þykir allt i lagi að vera i skólanum en henni leiðist i Reykjavik. Og hún er allsendis óráðin um hvað hún vill gera seinna meir. Pósturinn, Sigurður Björns- son á Kviskerjum, kom þar að og við tókum tal saman. Svava kom út i dyr nokkrum sinnum og bauð okkur að koma heldur inn en Sigurður var timabund- inn enda póstumdæmi hans við- áttumikið, svo hann staldraði ekki lengi við. Þegar hann var farinn og við höfðum mælt okkur mót daginn eftir heima á Kviskerjum, kom Asgeir litli og bauð mér inn, amma sin væri með heitt á könnunni. Svo sátum við tveir i stofu, drukkum kaffi og þáðum kaffibrauð, spjölluðum saman og spiluðum fótboltaspil. — Loksins fékk hann einhvern til að spila við, sagði amma hans og ruglaði á honum hárinu. Gilitrutt og Geiri Asgeir talaði mikið um Gili- trutt og Kristrúnu i Hamravik, sem hann hafði séð i sjónvarp- inu. Á dálitið kostulegan hátt ruglaði hann þessum tveimur hefðarkonum saman, svo ég rifjaði upp sögurnar með hon- um. Hann sat hugsi smástund en rak svo upp hláturroku og sagði: — Stundum er ég kallað- ur Gilitrutt en annars Geiri. Ég fékk þó ekki upp úr honum hvers vegna hann var kallaður Gilitrutt og við fórum að spjalla saman um sjónvarpið. Honum þótti mest gaman á föstudögum, þvi þá gat hann horft á „Að Heiðargarði”. Sameiginlega rifjuðum við upp nokkra kafla úr þessari makalausu sjón- varpsseriu. Þegar ég spurði hann hvort hann kynni nokkuð i ensku dofnaði heldur yfir hon- um: — Nei, ætli maður verði ekki að læra það i skólanum. Við spiluðum meira fótbolta- spil og hann vann 7:4. — ó.vald. Grill margar geröir KJORIÐ í FERÐALAGIÐ GEísiP YÐAR ÁNÆGJA OKKAR ÁNÆGJA iiliiiÍiHiriiliil NESTI h.f. Brauösamlokur frábrauöbæ fást i Ncsti hf. Ártúnshöföa.v/Ellíöaár og Fossvogi Leggið upp frá NESTI með nesti frá NESTI fyrir yður, fjölskylduna og bifreiðina. NESTI h.f. Hraði, þægindi Hinar vinsælu Friendship skrúfuþotur Flugfélagsins sameina lands- byggðinameð tíðum ferðum, hraðaog þægindum. Áætlunarferðir bifreiða milli flestra flugvalla og nærliggjandi byggðar- laga eru í beinum tengslum við flugferðirnar. NjótiS góðrar og skjótrar ferðar með Flugfélaginu. H SKRIFSTOFUR FLUGFÉLAGSINS OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT VEITA NÁNARI UPPLÝSINGAR OG FYRIRGREIÐSLU FLl/GFÉLAG ÍSLAJVDS Sunnudagur 14. júlí 1974. Q

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.