Alþýðublaðið - 19.02.1976, Page 6
f/J
Hinn fjölhæfi frjálsiþróttamaður úr ÍR, Friðrik
Þór óskarsson, mun dveljast i æfingarbúðum i
Darmstadt í V-Þýzkalandi um páskana og
freista þess að ná Olympiulágmarkinu i
þristökki, sem er 15.90 m.
Friðrik Þór
Óskarsson til
V-Þýzkalands
Enn einn frjálsiþróttamaður-
inn hyggst leggja land undir fót,
og fara i æfingabúðir, rneö það
fyrir augum að freista þess að
ná Olympiulágmarki. í þetta
sinn er það hinn f jölhæfi iþrótta-
maur úr IR, Friðrik Þór
Óskarsson, sem er á faralds-
fæti. Þegar Alþýðublaðið hafði
fréttir af þessu hafði það sam-
band við Friðrik og innti hann
nánar eftir þessari utanlands-
ferð.
,,Jú það er rétt að ég er á
förurn til V-Þýzkalands, þar
sem ég mun dvelja i æfinga-
búðum og æfa undir handleiðslu
v-þýzka landsliðsþjálfarans
Peter Tischine, sem var hér i
sumar. Ég mun fara kringum
28. marz og dveljast i borginni
Darmstadt, sem er nálægt
Frankfurt, i um það bil þrjár
vikur. Ahuginn hefur verið mik-
ill hjá mér i vetur og hef ég æft
mjög vel. Mér datt það allt i
einu i hug um daginn að fórna
sumarleyfi minu, — að ein-
hverju leyti — i þessa ferð. Ég
mun væntanlega slást i förina
með frjálsiþróttamönnunum
Hreini Halldórssyni og Guðna
Halldórssyni en eins og kunnugt
er þá eru þeir að fara á sama
stað.”
,,Ég mun æfa um það bil 5
tima á dag á Tartan-braut, en á
slikum brautum hef ég aidrei
æft áður, en aðeins keppt i örfá
skipti á þeim, svona einu sinni á
ári. A þessum gúmmibrautum
nær maður miklu betri árangri
og geri ég mér þvi vonir um að
ná jafnvel Olympiulágmarkinu i
þristökki, sern er 15.90 rn. Ég
mun þvi aðallega æfa þristökk
en einnig dálitið langstökk og
spretthlaup, en það er aðallega
gert til þess að ná sem beztri at-
rennu i stökkunum. Mig hefur
alltaf langað mikið til þess að
æfa mig á Tartan-brautum, og
vita þannig hvað ég raunveru-
lega get i stökkgreinunum.
Menn verða að æfa á slikum
brautum til þess að eiga ein-
hverja möguleika á að ná góð-
um árangri. Það þýðir ekkert
aðeins að keppa á þeim, eins og
ég hef _gert, maður verður að
æfa lika á þeim ef maður á að
læra á þær og ná einhverjum
árangri. Ég tel mig allavega
nokkurn veginn öruggan með að
geta stokkið 15.60m til 15.70 m
og hver veit nema ég nái
Olympiulágmarkinu.”
Þegar islenzka frjálsiþrótta-
landsliðið var i Trömsö siöast
liöiö sumar, stökk ég 15.17
metra á venjulegri braut og
varð sigurvegari. Þeir kepp-
endur sem ég átti i höggi viö þá,
æfðu flestir á Tartan-brautum.
Þeir sögðu við mig að maður
gæti bætt árangur sinn um allt
að einum metra á slikum braut-
um og þvi langar mig til að
reyna við þessar undrabrautir
sem kallast Tartan, sagöi
Friðrik að lokum.
DEILDARKEPPNIN
AD VERÐA EINViGI
MILLILIVERPOOL
OG MAN.UNITED?
- eða nær einhver að blanda sér í baráttuna?
Bikarkeppnin var á
dagskrá um síðustu helgi,
en á laugardaginn hef st 1.
deildarkeppnin aftur, og
alvara atvinnuknatt-
spyrnumannsins i
Englandi heldur áfram.
Allt bendir nú til þess að
keppnin um meistaratitil
Englands verði einvígi
það er að segja,
félaganna í rauðu
búningunum AAanchester
United og Liverpool
Þau hafa tekið nokku gott for-
skot á hin liðin og ef marka má
af leikjum þeirra upp á siðkast-
ið er ekki búizt við þvi að þeim
verði þokað af toppnum á þessu
keppnistimabili, þó auðvitað
allt geti gerzt. Þó þessi tvö lið
standi óneitanlega bezt að vigi,
er langt frá þvi að dofnað sé yfir
keppninni. Fallbaráttan hvaða
þrjú liö komast i Evrópukeppn-
ina —U.E.F.A. keppnina og svo
auðvitað uppgjör United og
Liverpool er enn ósvarað, og svo
getur farið, og gerir það liklega,
að ekki fæst úr þessum spurn-
ingum skorið, fyrr en i siðustu
leikjunum. Tuttugasti og fimmti
getraunaseðillinn litur þannig
út:
Arsenal-Birmingham 1.
Það verður hart barizt um
stigin i þessum leik, þvi bæði
félögin standa i fallbaráttunni.
Arsenal stendur betur að vigi i
tvennum skilningi. Þeir hafa
hlotið einu stigi meir en
Birmingham og lika að þeir
leika á heimavelli á laugardag-
inn. Ef þeir sigra i þessum leik
má ætla að þeir séu nokkurn
veginn búnir að tryggja sig fyrir
þeirri skömm að falla niður i 2.
deild, en þar hafa þeir ekki leik-
ið siðan fyrir siðari heims-
styrjöldina. Arsenal er þvi verð-
ugt þess að 1 sé settur fyrir
framan þennan leik.
Aston Villa-
Manchester United. 2.
Miklar likur hljóta að vera á
þvi aö United fari meö sigur af
hólmi i þessum leik. Nokkrar
ástæður liggja á bak viö það. I
fyrsta lagi hefur félagið leikið
mjög vel og unnið hvern leikinn
á fætur öðrum. Aston Villa hefur
hins vegar átt erfitt uppdráttar i
sinum siðustu leikjum og má þvi
ætla að þeir breyti ekki þar
neinu um á laugardaginn gegn
United. 1 öðru lagi, er United
mun betra lið, og ætti þvi ekki
að verða skotaskuld úr þvi að
leggja Birmingham liðiðað velli
þótt á útivelli sé.
Leeds United-
Middlesbrough 1
Margir voru þeir, sem farnir
voru að halda að Leeds ætlaði
enn einu sinni að sigra deildar-
keppnina á nokkrum árum. En
eftir tapið fyrir Crystal Palace i
4. umferð ensku bikarkeppninn-
ar, hafa þeir tapað tveimur
íeildarleikjum i röð, þannig að á
tveimur vikum hafa þeir hrapað
niður i fimmta sæti. Von þeirra
er þó langt frá þvi að vera
vonlaus, þvi þeir hafa aðeins
tapað tveimur stigum meir en
United og Liverpool. Þeir mega
alls ekki tapa fyrir „Boro” á
Elland Road, og ef þeir vinna,
sem liklegt verður að teljast, þá
eru þeir emnn mikil ógnun fyrir
„rauðu” félögin, i baráttunni
um meistaratitilinn.
Leicester-Sheffield Utd.
1.
Litill vafi hlýtur að leika á þvi
hvort liðið sigri þennan leik.
Leicester, stendur ekki aðeins
betur að vigi af þvi þeir leika á
heimavelli, heldur lika að þeir
hafa staðið sig mjög vel að und-
anförnu, og ekkert lið getur
verið öruggt um sigur gegn þvi
eins og United menn geta sagt
okkur eftir leik þeirra gegn
Leicester á Filbert Street
siðasta laugardag. Þeir ættu þvi
ekki að eiga i neinum umtals-
verðum erfiöleikum með
Sheffield United á heimavelli á
laugardaginn.
Liverpool-Newcastle. 1.
Þetta verður áreiðanlega
leikur sem gaman hefði verið að
vera áhorfandi að. Ekkert lið
hefur skorað meir af mörkum i
1. deildinni i ár heldur en
Newcastle-liðið, enda er það
álitið eitt það skemmtilegasta á
Englandi i dag. 1 siðustu fimm
leikjum hafa þeir gert hvorki
meira né minna en 20 mörk, og
sýnir það glöggt hversu mikið
þeir leggja upp úr sóknarleik.
En eins og oft vill verða með
sóknarlið þá fá þeir oftast mikið
af mörkum á sig. Ekki geta
menn búizt við þvi að þeir leggi
Liverpool að velli á Anfield
Road i Liverpool, en það má
nokkurn veginn bóka það að
Ray Clemence i marki
Liverpool verði einhvern
timann i leiknum að hirða knött-
inn úr netmöskvunum. Liver-
pool gerir þó fleiri mörk, og
hreppir þvi sigurinn.
Man. City-Everton 1.
Liklegt verður að þykja að
City sigri i þessum leik. Þeir eru
liklega örlitið betra lið en
Everton auk þess sem þeir leika
á heimavelli. Everton hefur
ekki staðið við þær vonir sem
bundnar voru við liðið i haust.
Arangur þeirra hefur verið æði
skrykkjóttur, og hefur það kom-
ið i veg fyrir að þeir eru ekki
ofar i deildinni núna en raun ber
vitni.
Norwich-Coventry X.
Þó hér sé spáð jafntefli,
verður að segjast eins og er að
Norwich er sigurstranglegra.
Coventry er þó alltent, þokka
legt útilið, og erfitt er að sigra
Getraunaþjónusta Alþýðublaðsins
Heima Util 7ó- 71 72 73 74 75 15/11 f .umf
TVJV ■Areenal-Birmingham TVTTZ — — 2-o 1-0 1-1 1-3
WJT Aston Villa- Manch.UtdVJJJ - - - — 2-o o-2
VWT Leeds-Middlsehro - - - - — 2-2 0-0
VVW Leicester- Sheff.Utd. TJTT 2-1 o-o 0-1 0-0 1-1 3-o 2-1
WJV Liverpool-Newcastle TVJJ 0-0 1-1 5-o 3-2 2-1 4-o 2-1
VTW Manch.City-Everton VJTJ 1-1 3-o 1-0 0-1 1-1 2-1 1-1
JJW Norwich-Coverntry TVJT - - 1-1 0-0 - 0-1
JVW Q.P.R. - Ipswich VTTV - - - 0-1 1-0 1-1
VJVT Stoke - Tottenham TJW 1-1 0-1 2-o 1-1 1-0 2-2 1-1
TJVT West Ham - Derby JTVT 3-o 1-4 3-5 1-2 0-0 2-2 1-2
TTJV Wolves-Burnley TTVJ 1-1 1-0 - - o-2 4-2 5-1
WTJ Carlisle- Bolton VTJV 2-1 l-o — _ 1-0 — 0-1
LW Alþýóublaöiö
Fimmtudagur 19. febrúar 1976