Alþýðublaðið - 19.02.1976, Qupperneq 7
JprcttiK
Þaö myndisjálfsagt veröa hlegiö mikið nú á knattspyrnuleikvanginum
ef menn léku i eins siöum buxum og þessir haröjaxlar frá árunum 1930
geröu. Þeir voru þó ekki siður baráttuglaöir i þann tima þó ekki fengju
þeir eins mikiö af peningum og nú tiðkast. Þessi mynd er af Arsenal
leikmanninum Alex James, sem um og eftir árin 1930 var einn mark-
vissasti á Englandi.
þá. Jafntefli ætti þvi ekki að
vera fjarri lagi.
Q.P.R-lpswich 1.
Q.P.R virðist vera að draga
sig upp úr þeim öldudal sem
þeir gengu i gegnum jólin og i
byrjun nýja ársins, og hafa þok-
aö sér jafnt og þétt upp töflu-
stigann. Þeir eru nú farnir að
ógna talsvert toppliðunum
Liverpool og United, þó ennþá
standi þeir nokkuð verr en þau
Þeir hafa einu stigi minna en
hafa leikið tveimur leikjum
meir, þannig að 5 stigum hafa
þeir tapað meir en toppliðin.
Ipswich og Q.P.R. eru með
skemmtilegri liðum á Englandi
i dag, og þykja bæði leika létta
og lipra knattspyrnu. Það
verður þvi áreiðanlega vel leik-
inn og skemmtilegur leikur á
Loftus Road á laugardaginn.
Q.P.R. er að sjálfsgöðu sigur-
stranglegra enda á heimavelli.
Stoke-Tottenham. 1.
Stoke City er mun liklegra til
þess að vinna þennan leik, en
varúð skal þó höfð, þvi
Tottenham getur vel bitið frá
sér. Þeir hafa náð all þokkaleg-
um árangri á útivöllum, og eru
alls ekki auðunnir þrátt fyrir
stórtap þeirra gegn Q.P.R. á
White Hart Lane á laugardag.
West Ham-Derby X.
Þessi leikur er svo sannarlega
erfiöur viðureignar. Hann getur
hæglega farið á alla þrjá vegu.
Jafntefli er þvi hinn gullni
meðalvegur, og þvi setjum við
X við hann.
Wolves-Burnley. 1.
úlfarnir hafa bætt árangur
sinn nokkuð á þessu ári. Útlitið
er samt slæmt hjá þeim, og
blasir við hrap niður i 2. deild ef
þeir herða sig ekki enn betur.
Sömu sögu er að segja um
Burnley, þeir eru I alvarlegri
fallhættu. Úlfarnir eru heppnir
að þvi leyti að þessi leikur er á
heimavelli þeirra, og þvi eru
sigurmöguleikar þeirra meiri.
Carlisle-Bolton X.
Það er alltaf erfitt að sækja
Carlisle heim. Félagið heitir
eftir samnefndri borg á landa-
mærum Skotlands og Englands,
og svipar raunar meir til
skozkrar borgar en enskrar.
Heimavöllur þeirra, Brunton
Park, hefur oft verið kallaður
„grafreiturinn” vegna þess
hversu oft þeir slá 1. deildar-
félög út úr bikarkeppnum. Efsta
liðið I 2. deild Bolton heimsækir
þá, og mega vera ánægðir meö
jafntefli.
United og Liverpool skildu jöfn á Old Trafford
Þrlr leikir voru leiknir á Englandi I gærkvöldi, einn i bikar-
keppninni og tveir I deildarkeppninni.
A Old Trafford leikvangnum i Manchester mættust toppliöin í
deildinni Manchester United og Liverpool. Mikil eftirvænting og
stemming var á leikvellinum þegar leikurinn hófst, og var hann
troðfullur. Leiknum lauk meö markalausu jafntefli, þannig aö
Liverpool er enn fyrir ofan Manchester United á markatölu, en
bæöi liöin hafa hlotið 40 stig.
Þá léku á Baseball Ground f Oerby, núverandi meistarar
Oerby County og Arsenal. Er skemmst frá því aö segja aö
heimaliðið sigraöi örugglega, 2:0.
Þá léku Newcastle og Bolton Wanderers I bikarkeppninni á St.
james Park i Newcastle. Fyrri leiknum sem háöur var i Bolton
lauk meö jafntcfli 3:3. Þessum leik lauk einnig meö jafntefli, eft-
ir framlengingu 0:0, og er langt siöan aö Newcastle hefur ekki
gert mark i leik. Liöin veröa þvi aö reyna meö sér aö nýju til þess
aö fá úr þvi skoriö hvort leikur gegn Oerby i 6. umferöinni.
1. deild Man. United — Liverpool 0:0.
1. deild Oerby — Arsenal 2:0.
Bikarkeppnin. Newcastle — Bolton 0:0.
Þjálfari og leik-
maður reknir úr
húsinu fyrir röfl
Njarðvíkingar töpuðu fyrir IR og Armann tyrir KR svo
erkiféndurnir mætast í úrslitaleik Coke-keppninnar
Coco Cola keppnin i
körfuknattleik hófst á
þriðjudagskvöldið I i'þróttahúsi
Hagaskólans. Fjögur efstu liðin
i 1. deild taka þátt i þessari
keppni, Ármann, KR, tR og
UMFN. 1 fyrrakvöld léku KR og
Armann og strax á eftir 1R og
UMFN. Eftir þá leiki verður það
hlutverk KR og tR að leika til
úrslita i keppninni þar eð bæði
liðin sigruðu leiki sina, KR
Armann 101:91 og 1R UMFN
103:79, en Armann og UMFN
munukeppa um þriðja og fjórða
sætið. Þeir leikir verða væntan-
lega leiknir næstkomandi
þriðjudagskvöld.
Mikil eftirvænting rikti fyrir
fyrri leikinn, þar sem Armann
og KR áttust við, urn það
hvernig orrusta bandarisku
svertingjanna RogersiogCarters
færi, þvi þegar félögin áttust við
i tslandsmótinu i desember
brutust út slagsmál, sem svo
mikið var skrifað um þá. Ekkert
slikt mál átti sér stað i fyrra-
kvöld sem betur fer. Rogers lék
heldur ekki með Armenningum,
þar sem hann var með inflúensu
og var auk þess meiddur á ökla.
KR-ingarnir tóku yfirhöndina
þegar frá upphafi og var nær
alltaf sýnt að þeir myndu vinna
Armann og vera þar með annað
liðið sem ynni þá á þessu
keppnistimabili — áður hafði ÍR
unnið Armann i úrslitaleik
Reykjavikurmótsins. KR-ing-
arnir höfðu yfir i hálfleik 45:37
og var sá munur sizt of stór.
Armenningarnir hófu
„pressu” vörn þegar i upphafi
siðari hálfleiks. t fyrstu
reyndist hún mjög vel, þeir
jöfnuðu og komust yfir 56:53
eftir aðeins 5 minútna leik. En
KR-ingar voru ekki á þvi að
gefast upp og „Trukkurinn” og
Gisli Gislason gerðu þá hverja
körfuna á fætur annarri. Var
það einkum þeim tveimur að
þakka að KR vann þennan leik,
en þeir léku báðir mjög vel. Á
þessum tima höfðu KR-ingarnir
fundið svar við „pressu”vörn-
inni, eða að Árrnenningarnir
voru ekki nógu sarntaka i þess-
ari varnaraðferð. Trukkurinn
gerði 33 stig, þrátt fyrir að hann
hafði ekki verið inná helrninginn
af fyrri hálfleik, — rneiddist
litillega i baki, en Gisli Gislason
sern átti sinn bezta leik i vetur
gerði 20 stig. Jón Sigurðsson var
langbezti rnaður Arrnenninga i
þessurn leik, en sá galli var þó á
leik Jóns að hann var of eigin-
gjarn á köflurn. Jón gerði 39
stig, aðrir gerðu rnun rninna.
Það var einkum þrennt sem
vakti athygli i leik 1R og UMFN.
t fyrsta lagi var það hversu
IR-ingarnir léku vel lengstaf og
gáfu Njarðvikingum litla mögu-
leika, og að fyrst Stefáni
Bjarkasyni i UMFN og siðan
þjálfara hans Hilmari Haf-
steinssyni, var vikið úr salnum
fyrir röfl. Svo strangir dómar
eiga sér ekki oft stað i körfu-
knattleik, en voru þó fyllilega
réttlætanlegir. Það var þvi
miður mjög leiðinlegt að sjá
jafn gott lið og UMFN láta
dómarana fara eins mikiö i
skapið á sér, og raun var á i
fyrrakvöld. Þeir voru á köflum
alls ekki i körfuknattleik, heldur
var eins og þeir væru á
pólitiskum umræðufundi á Al-
þingi, en íþróttir eiga ekkert
skylt við nöldur og rifrildi.
Skemmst er frá þvi aö segja
að tR-ingarnir voru mun betra
liðið, og var 24 stiga munur
þeirra sizt of stór, eftir gangi
leiksins, enda fengu þeir mikið
athafnasvæði þar sem vörn
Njarðvikinganna var lengst af i
molum. Staðan i leikhléi var
52:41 1R i vil. Flestir ef ekki
allir leikmenn ÍR stóðu sig mjög
vel, en þó voru þeir Kolbeinn
Kristinsson og Birgir Jacobsson
einna beztir. Kolbeinn i sókninni
en Birgir i vörninni. Kolbeinn
var stigahæstur i IR með 27 stig,
en Jónas Jóhannesson var
stigahæstur hjá UMFN með 19
stig.
Nú getur Fram þakk-
að Val fyrir titilinn 72
Þá er útséð með það að leikur
Fram og FHI Lauardalshöllinni
á sunnudaginn sker úr um það
hvort Valur eða FH veröi
lslandsmeistarar, eftir sigur
Vals yfir Vikingum I gærkvöldi
24:21. Valur hefur hlotið 19 stig
en hefur þegar lokið leikjum
sinum, en Hafnarfjarðarliðiö
hefur 18 stig, en á leik inni gegn
Fram eins og fyrr segir.
Nokkur eftirvænting rikti
fyrir leik Vals og Vikings i gær-
kvöldi, þvi svo gat fariö aö jafn-
vel þrjú lið ættu möguleika á
sigri I mótinu ef. t.d. félögin
hefðu gert jafntefli I gærkvöldi.
En leikurinn leit aldrei út fyrir
aö veröa jafntefli þvi siður að
Vikingar ynnu, þvi miður fyrir
Fram. Vals-liðið var allan
timann sterkari aðilinn og var
þriggja marka sigur þeirra sizt
of stór. Jón Karlsson, Bjarni
Guðmundsson Guðjón Magnús-
son voru þeir menn sem geröu
mestan usla I vörn Vikings, og
vörnin og marvarzlan var
þokkaleg. Vikingar virkuöu
áhugalausir, markvarzlan i
molum eins og oft áöur i vetur
og þvi fór sem fór. Staöan i
leikhléi var 12:10 fyrir Val.
Mörk Vals I leiknum geröu:
Jón Karlsson 8, Guöjón
Magnússon og Bjarni
Guömundsson geröu 5 mörk
hvor. Fyrir Viking var Stefán
Halldórsson lang markahæstur
meö 11 mörk.
Fyrri leikurinn I gærkvöldi
var á milli Armanns og Hauka.
Haukarnir unnu þann leik 21:20,
eftir aö staðan i leikhléi haföi
veriö 11:10 Ármenningum i vil.
Fimmtudagur 19. febrúar 1976
Alþýðublaðið