Alþýðublaðið - 19.03.1976, Side 2
2 FRÉTTIR
Föstudagur 19. marz 1°76 ösadfö'
FULLNÆGIANDIFAG-
ÞEKKING FYRIR HENDI
FIÁRVANA HLUTAFÉLAGI FALIO
800 MILLJÚN KRÓNA VERKEFNI
SciiI'íi'Ju'teiJI ■Rcykiavlkurboiq 'omu. »,6 poppitilélag um Irom
segir Itak h.f.
Eftirfarandi tilkynning barst
blaðinu frá ítaki hf. arkitekta-
og verkfræðifyrirtæki, vegna
umræðu um fyrirtækið vegna
forhönnunar Seljaskóla i
Reykjavik:
Vegna nýtilkominnar álykt-
unar frá Arkitektafélagi tslands
vill ttak h/f taka eftirfarandi
fram:
1 október 1974 var fyrirtækið
ttak h/f stofnað i kringum hug-
myndir, sem orðið höföu til viö
að kynnast uppbyggingu bygg-
inga úr steinsteyptum einingum
iDanmörku. Hugmyndir þessar
voru kynntar á íslandi fyrir
ýmsum aðilum og voru undir-
tektir það jákvæðar að eðlilegt
þótti að stofna fyrirtæki sem
gæti komið fram sem ábyrgur
ogsjálfstæður aðili ifrekari við-
ræðum, sérstaklega þegar tillit
var tekið til þess aö þetta fyrir-
tæki gæti haft greiðan aðgang
að sérþekkingu á ofangreindu
sviöi frá Danmörku, sem nægja
mundi til þess að skýra þessar
hugmyndir.
A
Þegar ljóstvarð að áhugi var
á að hagnýta sumar þessara
hugmynda var leitaö eftir fag-
mönnum, sem áhuga hefðu á að
taka þátt i samstarfi um að
ryöja til rúms hagkvæmari
byggingarháttum á tslandi. Var
þá sérstaklega haft i. huga aö
verkefni fyrirtækisins yrðu unn-
in með hópsamstarfi mismun-
andi sérfræðinga til þess að auð-
velda samhæfingu hinna ýmsu
hönnunarþátta.
Eftir þvi sem fagmenn hafa
ráðizt til fyrirtækisins hafa þeir
gerst hluthafar með þvi að
kaupa hlutabréf af hinum upp-
haflegu hluthöfum og eru nú-
verandi hluthafar Itaks h/f
þessir:
1) Einar Sigurðsson, arkitekt,
menntaöur viðNorges Tekniske
Hiiyskole. Vann 1 Norégi I rúm
þrjú ár að loknu námi við
hönnun á byggingum úr stein-
.steyptum einingum og stál-
grindahúsum. Hefur síðan
starfaðá Islandii rúm tvö ár við
hönnun bygginga.
"pó STKROF U -
AbGj/ismi_
FRÍMERKI í STAÐ
FERÐAR í BÆINN
LEVÍS
GALLABUXUR
SNIÐ 522
Vinsamlegast sendið mér Levi's gallabuxur T þeirri stærð
sem merkt er við.—
MITTIS- MÁL
25 26 . 27 28 29 30 31 32 33 34 36
Q Q \n LL LU CC 34
36
w
NAFN: HEIMILISF:
Levrs 4 Levrs
laugavegi 89-37
hafnarstræti 17
10353 12861 13303
2) Sveinn Ingólfsson, bygg-
ingaverkfræðingur, menntaður
við Norges Tekniske Hþyskole.
Starfaði að loknu námi i eitt ár
hjá ráðgefandi verkfræðifyrir-
tæki i Danmörku. Vann siðan i
rúm sex ár við ráðgefandi verk:
fræðistörf á tslandi.
3) Hafsteinn Blandon, véla-
verkfræðingur, menntaður við
Danmarks Tekniske Hfíjskole.
Hefur starfað að námi loknu i
tæp fjögur ár á tslandi, aðallega
við hönnun hita-, loftræsti- og
hreinlætislagna.
4) Agúst Þ. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri, menntaður við
Danmarks Ingenijlrakademi.
Var framkvæmdastjóri fyrir
byggingafyrirtæki i Danmörku i
'þrjú ár og framkvæmdastjóri
ttaks h/f frá stofnun þess.
5) Hreinn Svavarsson. Hefur
starfaö i tæp niu ár að hönnun
raflagna i byggingar.
Auk þessara manna er innan-
hússarkitekt starfandi hjá fyrir-
tækinu.
Til þess að tryggja sér sér-
fræðiþekkingu á byggingu húsa
úr steinsteyptum einingum
hefur ttak h/f frá upphafi haft
samstarf við tvö þekkt dönsk
fyrirtæki, arkitektafyrirtækið
Vagn O. Kyd og Per Kyd A/S og
verkfræðifyrirtækið Harry og
Mogens Larsen I/S. Þessi tvö
fyrirtæki hafa sérhæft sig i
hönnun skólabygginga úr stein-
steyptum einingum og voru
aðalhönnunaraðilar hinnar svo-
nefndu Fjónsáætlunar um
skólabyggingar i Danmörku, en
tilgangur þeirrar áætlunar var
að stuðla að sem hagkvæmust-
um framkvæmdum við gerð
skólabygginga. Hafa þessir
aðilar nú hannað rúmlega
600.000 fermetra af skólabygg-
ingum, þar á meðal skóla á
jarðskjálftasvæðum i Kali-
forniu.
ítak h/f vill að gefnu tilefni
taka fram að fyrirtækið er arki-
tekta- og verkfræðifyrirtæki,
sem starfar eingöngu að hönn-
unar- og ráögjafastörfum.
SKIPT UM
ÁHÖFN Á
SKÚTUNNI
segir formaður Arkitektafélagsins
Vegna „Tilkynningar
til fjölmiðla” frá fyrir-
tækinu Itak h.f. hafði
blaðið samband við
Hrafnkel Thorlacius,
form. Arkitektafélags
Islands og spurðist fyr-
ir um viðbrögð félags-
ins.
Hann sagði: „Um
þessa tilkynningu er
ekki mikið að segja.
Það fyrirtæki sem
lýst er i tilkynningunni
er i raun allt annað fyr-
irtæki en það, sem
Reykjavikurborg hóf
viðræður við fyrir tæp-
um 18 mánuðum.
Það hefur semsagt verið skipt
um áhöfn á skútunni, eða öliu
heldur viröist sem nýir menn
hafi veriö geröir að hluthöfum i
fyrirtækinu eftir að gagnrýni
okkar kom fram.
Nýir hluthafar eru komnir inn
núna, en samkvæmt opinberum
gögnum eru nöfn þessará hlut-
hafa hvergi að finna.
Þvi vaknar sú spurning hvort
þetta nýja fyrirtæki getur geng-
iö inn i þau störf sem borgin hef-
ur faliö upphaflega fyrirtækinu
að annast.
Ég vil taka það skýrt fram að
við erum ekki að gagnrýna þá
einstaklingasem að fyrirtækinu
standa, heldur þau vinnubrögö
sem borgin hefur viðhaft i þessu
máli.
Þau hafa I raun og veru veriö
að semja um 700-800 milljón
króna viö fyrirtæki sem ekki var
til nema á pappirnum, og hafði,
þegar umræðurnar hófust ekk-
ert þaö til brunns aö bera sem
þarf til þess að standa fyrir
hönnun og umsjón með fram-
kvæmd sem er jafn mikil að
vöxtum og umrædd skólabygg-
ing.
Þessu til viöbótar má benda á,
að I tilkynningunni segir aö
menn gerist hluthafar samtimis
að þeir hefja störf hjá fyrirtæk-
inu. Þessi fullyrðing er ekki
sönn, nema að hluta til, þó þekkt
séu dæmi um aðþað hifi gerzt.”
Að lokum sagði Hrafnkell:
„Hver frekari viðbrögð Arki-
tektafélagsins veröa, vil ég ekki
segja neitt um á þessu stigi
málsins.”
—EB