Alþýðublaðið - 19.03.1976, Side 8
8
Föstudagur 19. marz 1976
alþýðu-
blaðiö
alþýðu-
blaðið
Föstudagur 19. marz 1976
VETTVANGUR 9
SKODANA-
KÖNNUN
ALÞÝÐU-
BLAÐSINS
Eitt af einkennum nútimaþjóðfélagsins er sjálfstæði ein
staklinga i hugsun og athöfnum. Atburðarásin er nú hraða
en nokkru sinni fyrr og þekking manna og þekkingarmiðlui
er með allt öðrum hætti á okkar dögum en áður tiðkaðist.
Að visu gerist það enn, bæði hér á landi, sem annars staðarj
að fólk fæðist inn i stjórnmálaflokka, trúfélög og jafnvel
iþróttafélög. Þrátt fyrir það er augljóst að skoðanir einstak-
linga á einstökum málum fara eftir ýmsu og er fjarri þvi, að
hægt sé að flokka fólk i staðlaða og óbreytanlega skoðana-
hópa.
Ef til vill er það lýðræð-
is- og frelsishyggjan, sem
hefur þannig kollvarpað
hinni gömiu hefð fast-
heldninnar og stuðlað að
þeirri frjálshyggju, sem
einkennir svo mjög hugs-
un og lif almennings á
þessum siðustu áratugum
20. aldarinnar.
Tilraun með skoð-
anakönnun
Fólk hefur alltaf gaman
af þvi, að gizka fram i
timann eða spá um þróun
einstakra mála eða úrslit.
Að visu er forsagnarhæfi-
leiki manna mjög mis-
jafn, enda er sagt um
suma menn að þeir séu
forvitri. Aðrir og senni-
lega flestir hafa minni
hæfileika til að sjá fyrir
um óorðna hluti.
Alþýðublaðið mun nú á
næstunni gera tilraun
með skoðanakönnun og
hefst sú fyrsta 1 blaðinu I
dag. Þessari skoðana-
könnun verður þannig
háttað, að lesendur Al-
þýðublaðsins geta fyllt út
þar til gerð spurninga-
form, klippt úr blaðinu og
sent til Alþýðublaðsins,
Pósthólf 320 Reykjavik.
Tíu dögum eftir að
skoðanakönnun birtist i
blaðinu mun umsjónar-
maður hennar og annað
aðstoðarfólk hringja i
jafn marga einstaklinga
og sem nemur fjölda inn-
kominna svara og leggja
fyrir þá sömu spurningar.
Simaskráin verður notuð
þannig að valin verða
númer eftir ákveðnum
reglum, t.d. efsta nafn á
tiundu hverri siðu i
skránni.
Rétt er að taka fram, að
hér er aðeins um tilraun
að ræða og er hugsanlegt,
að einhverjar breytingar
verði gerðar á formi
hennar að fenginni
reynslu.
Sá sem svarar þessari spurningu er ára
Karl
kona (Setjið x þar sem við á)
Eiga opinberir starfsmenn
að hafa verkfallsrétt?
já
NEI
SUMIR
HEF EKKI
SKOÐUN
Leiðbeining: Setjið x við það svar, sem við á.
Klippið út og setjið í lokað umslag.
Utanáskrift:
Skoðanakönnun Alþýðublaðsins
Pósthólf 320
Reykjavík
ÓPÍUM- OG MORFÍNSTULDIR
ERU ÓTRÚLEGA ALGENGIR!
I
„ópiumtöflum og
morfini stolið”, „Brot-
izt inn i báta og róandi
töflum, ásamt fleiri
lyfjum stolið”. Slikar
fyrirsagnir getur oft að
lita i dagblöðunum.
Þessum fréttum er þó
alls ekki hampað, enda
kannski ekki ástæða til
þess. Ef hins vegar
finnst hass á einhverj-
um, þá verður mikið
fjaðrafok, og fylgzt er
með rannsókn málsins
af mikilli gaumgæftii.
Af þessu mætti ætla, að
fyrrnefndu efnin væru
miklu hættuminni en
þau siðamefndu, sem
er alls ekki, þvi þar er
mikill munur á.
AlþýöublaöiB aflaBi sér upp-
lýsinga um innbrot i skip, þar
sem lyfjakassinn hefur veriB
takmark þjófanna. Fyrst var
haft samband viB Sigurjón
Jónsson, lyfjaeftirlitsmann, og
hann spuröur um eftirlit meö
þessum litlu „apótekum”, sem
eru nauBsynleg I öllum skipum.
Sérstakar reglur um
ávana- og fiknilyf
„Lyfjabirgöir skipa eru
endurnýjaöar einu sinni á ári,
og er þaö yfirleitt gert i byrjun
vertiöar. Þegar þaö er búiö, þá
eru gefin út vottorö um aö lyf ja-
kassinn sé i lagi. t sérstökum
lyfjabúöum eru afgreidd lyf til
skipa. Viö endurnýjun, er lyfj-
um bætt i, eftir þvi sem þurfa
þykir.
Skipstjóri getur fengiö flest öll
lyf, sem I kassanum eru, sam-
kvæmt skriflegri beiöni. Þetta
gildir þó ekki um ávana- og
fikniefni, um þau gilda sérstak-
ar reglur. Aftur á móti, þegar
þeim lyfjum er stoliö, þá er
nauösynlegt aö bæta þeim aftur
i kassann.
Styrkleiki allra lyfja, sem eru
Ilyfjakössunum.er samkvæmt
lyfjaskrá. 1 morfinsprautunum,
er t.d. 2% morfln eins og lyfja-
skráin gerir ráö fyrir.”
Les oftar um það
i blöðunum
„Það koma einstaka mál til
okkar, sem fjalla um þjófnaöi á
ávana- og fikniefnum úr skip-
um, en i flestum tilvikum fáum
viö þau ekki til rannsóknar”,
sagöi Asgeir Friðjónsson dóm-
ari hjá Fikniefnadómstólnum.
„Maöur les oftar um þessa
þjófnaöi úr lyfjakössum i blöö-
unum, þannig aö i flestum til-
Lyfjageymslur báta freista margra. Flestir
morfínþjófarnir eru innan við þrítugsaldur.
Rætt við Njörð Snæhólm aðalvarðstjóra
hjá rannsóknarlögreglunni
vikum fáum viö þá ekki til rann-
sóknar. Ég held, þessi mál séu
tekin, eins og um venjulega
þjófnaöi sé aö ræöa. Þarna virö-
ist vera um óhefta áráttu viss
hóps manna i lyfjakistur, og
sýnist mér, aö helzt sé leitaö eft-
ir morfini. Hvort þarna sé um,
eiturlyfjasjúklinga að ræða, get
ég ekkert sagt um, en þó held ég
að svo sé ekki”.
Ákveðnar tegundir
i tizku?
Hvaða tegundir af sterkum
lyfjum eru algengastar?
„Fyrir nokkrum árum var
töluvert af LSD I umferð, en svo
hvarf þaö alveg. Nú höfum viö
engin slik mál til meðferöar, og
höfum ekki haft I nokkurn tlma.
Hins vegar viröist innflutningur
á amfetamindufti og neyzla
þess, hafa færzt mikiö I vöxt.
Margar ástæöur eru sjálfsagt
fyrir þessari breytingu. Þetta
gæti þess vegna veriö tizku-
fyrirbrigöi”, sagöi Asgeir aö
lokum.
Tekin sem almenn
þjófnaðarmál
„Það er alltaf töluvert um
innbrot I báta, og er þá oft stoliö
úr lyf jakistum þeirra. Margir af
þessum strákum sem leita I
lyfjakistumar, eru þeir sem
hafa verið i „hárvatninu”,
þ.e.a.s. þefa af eða drekka hár-
vatn, til þess að komast i ein-
hvers konar vimu”, sagði
Njörður Snæhólm aðalvarö-
stjóri hjá lögreglunni.
„Ég get ekki gefiö þér neina
nákvæma tölu um innbrot af
þessutagi, enda yröi þaö gifur-
leg vinna aö safna öllum gögn-
um I þessu sambandi. Þeir, sem
stunda þessa iöju, eru flestir
innan viö þritugsaldurinn. Þetta
er i flestum tilfellum gaukar,
sem vinna viö sjóinn. Þegar
ekki er sjóveöur, þá eru þeir á
þvælingi niöur viö bátana, og of t
einhverjir meö þeim. Oftast eru
þeir fullir, og fá þá útrás til aö
svala forvitni sinni á þessum
lyfjum. Hér er ekki um forfallna
eiturlyfjasjúklinga að ræöa.
Það er almennt tekið á þess-
um málum sem almennum
þjófnaðarmálum, og þau af-
greidd sem slik”.
Fullir að sprauta sig
Fyrir nokkrum dögum var
framið innbrot I bát sem lá I
Keflavíkurhöfn, og stolið
ópiumtöflum og morfini. Höfö-
um við samband við Hauk
Guömundsson, lögreglumann i
Keflavik, og spuröum hann nán-
ar um þessi mál.
„Já, þaðer þó nokkuö um mál
af þessu tagi hérna, og er ég
ekki frá þvi að þau hafi eitthvað
aukiztuppá siðkastið. Það byrj-
aði fyrst að bera á þessum inn-
brotum um og eftir 1973.
Það er mjög vont að ná I þessa
aöila, þvi að I sumum tilvikum
eru það skipsverjarnir sjálfir
sem eru hinir seku. Þeir, sem
sækja i lyfjakassana, éru I flest
illum tilvikum undir áhrifum á-
fengis. Ég hef ekki trú á að þetta
séu eiturlyfjasjúklingar.
Venjulega er fjallað um þessi
mál eins og önnur þjófnaðar-
mál, en það getur oft verið erfitt
að yfirheyra þjófana, vegna
þess að þeir eru oft i mjög mis-
jöfnu ástandi. Það var komiö að
einum sl. vetur, þar sem hann
var blindfullur aö reyna aö
sprauta i sig morfini. Var hann
búinn að pikka sig allan inn að
beini. Eins og gefur að skilja, þá
er þarna um stórhættulegan
verknaö að ræða”, sagði Hauk-
ur að lokum. GG
KEDIUBREFIN BÚNNUD!
Lagt fram á Alþingi frumvarp um
eftirlit með opinberum fjársöfn-
unum - og um bann við fjársöfn-
unaraðferðum sem teljast hæpnar
Lagt hefur veriö fram á Alþingi
frumvarp til iaga um opinberar
fjársafnanir. Flutningsmaður er
Helgi Seljan. Frumvarpiö hefur
tvisvar veriö flutt áöur, en hlaut i
hvorugt skiptiö endanlega af-
greiöslu.
í greinargerö með frumvarpinu
segir á þessa leiö:
Fjársafnanir ýmiss konar eru
orönar mjög algengar. Jafnan
fara þær fram I góöum tilgangi,
og það skal fram tekiö, aö engin
sérstök ástæöa tii tortryggni ligg-
ur að baki þessa frumvarps. Hins
vegar skortir nokkuð á um laga-
setningu, sem ákvarði fyrir-
komulag og uppgjör slikra fjár-
safnana.
Ekki er það óalgengt, að fjár-
safnanir skili milljónum I hendur
þeirra, sem fyrir þeim standa, og
almenningur, sem þarna leggur
fram sina fjármuni, á siöferði-
lega heimtingu á þvi að vita nið-
urstööur söfnunar og ráöstöfun
fjárins.
Hverjum þeim aöila, er aö f jár.
söfnun stendur, á einnig aö vera
þaö ljúft aö sýna allt á hreinu, svo
aö enginn blettur geti falliö á að-
standendur eða markmið slikrar
söfnunar. Hér virðist vanta all-
mjög nánari lagafyrirmæli. Þetta
frumvarp, sem mjög er sniöiö eft-
ir löggjöf I Danmörku, miöar aö
þvi, aö hér komist á fastar og
skýrar reglur um framkvæmd og
skipulag slikra fjársafnana. Þaö
skal rækilega undirstrikaö, aö hér
er á engan hátt verið aö bregöa
fæti fyrir heilbrigöar fjársafnan-
ir, frekar er hér um aö ræöa
undirstrikun á tilvist þeirra og
réttmæti, en um leið ætti að vera
hægar aö stemma stigu viö fjár-
söfnunum, sem engan rétt ættu á
sér.
Einnig ætti ákveöin lagasetning
aö koma I veg fyrir óþarfa og ó-
réttmæta tortryggni, en reyndar
skýra eöli og tiigangur frum-
varpsins sig fullkomlega.
Þaö er varla ofsagtaö fjársafn-
anir séu orðnar mjög algengar
hér á landi, eins og segir I upphafi
þessarar greinargeröar. Nær
sanni væri aö ætla, að fjársafnan-
ir væru hér fleiri og almennari en
i nokkru öðru landi.
□ Tilgangurinn
helgar meðalið
1 æsku er börnum strax kennt,
aö fjárhættuspil séu af hinu vonda
og þau beri aö foröast, sem aöra
meiriháttar lesti og glæpi. En
þegar þjóðþrifastofnanir standa
fyrir og reka happdrætti sem
velta hundruðum milljóna á ári
Lukkuhjól happdrættanna fá — frumvarpinu sam-
kvæmt—að snúast áfram á sinn hefðbundna hátt...
... en keðjubréfaskriftir, betl — eða hótunarbréf
munu flokkast undir ósæmilegar fjár-
öflunaraðferðir.
breytist fjárhættuspiliö og veröur
að góðgeröarstarfsemi.
Þegar einmana ræfill slangrar
um göturnar og biður vegfarend-
ur um aura til aö kaupa þær nauö-
þurftir, sem hann telur mikilvæg-
astar, er hann kallaður betlari. Á
hinn bóginn snýst máliö viö ef
hinn almenni borgari missir hús
sitt og bú I eldsvoöa og biöur um
fjárhagsaöstoð til að framfleyta
sjálfum sér.
□ Fjársafnanir
eru fyrirtæki
Þaö er mjög nauðsynlegt aö
setja lög um fjársafnanir eins og
hér er lagt til, enda er hér um að
ræða stórar fjárfúlgur, sem al-
menningur lætur af mörkum til
verðugra málefna.
Það er einnig nauösynlegt aö
fullt eftiriit sé haft með opinber-
um fjársöfnunum til þess aö
draga úr eða koma I veg fyrir tor-
tryggni i garö þeirra, er að f jár-
söfnun standa.
□ Keðjubréfin
bönnuð
Fyrir tveim árum gekk sérstök
keðjubréfaalda yfir hér á landi.
Keðjubréfin hafa skotiö upp koll-
inum af og til og eru enn langt. frá
þvi aö vera úr sögunni.
Enda þótt frumvarpið sé mjög
tlmabært og gagnlegt er spurning
hvort ekki sé ástæða til að taka
þessi mál öll til enn frekari athug-
unar og meðferðar en hér er lagt
til.
—BJ