Alþýðublaðið - 19.03.1976, Side 13
alþýöu-
blaóiö Föstudagur 19. marz 1976
OR VMSUM ÁTTUM 13
Þorskastríðið og NATO — íþróttir og peningar
hestaútflutningur og peningar
í norska blaðinu Fiskaren
skrifar öysten Rabben um
þorskastriðið og NATO. Hann
segir meðal annars á þessa leið:
„Það hefur ávallt vakið furðu
mina, að England skuli ekki
beita betri vopnum i þorska-
striðinu en herskipum. Þeir
hljóta að hafa vitað, að það
myndi ekki verða þeim til fram-
dráttar. England hefði heldur
átt að einbeita sér að samn-
ingaviðræðum.
Hættan á þvi, að Islendingar
gangi úr NATO, það er að segja,
ef Englendingar halda áfram
þorskastriðinu, er mikil. NATO
og Evrópa haf ekki ráð á að
glata þessum félaga. Þorskur-
inn, sem Englendingar veiða við
Island er ekki svo mikilsvirði.
Það væri örugglega mun ódýr-
ara að kaupa þennan fisk af Isl-
endingum, en að halda áfram
striðinu norður i höfum.
Englendingar og Efna-
hagsbandalagið.
Otfærsla fiskveiðilögsögu
Breta verður þeim og okkur
mikið vandamál. Enskir sjó-
menn hafa, eins og kunnugt er,
heimtað stærri fiskveiðilögsögu
en Efnahagsbandalagið sættir
sig við. En með þvi að gefa eftir
i deilu sinni við íslendinga
fengju Bretar gott tækifæri til
að fá kröfum sinum fram-
gengt gagnvart bandalaginu.
Sjálfur hefi ég ehga samúð
með aðferðum Islendinga, en ég
er sannfærður um, að vilji
þeirra verður ekki brotinn á bak
aftur með herskipum".
Siðan leggur Rabben til, að
allar þjóðir, sem hagsmuna
eiga að gæta i fiskveiðum, legg-
ist á eitt um að leysa þessa
deilu. Sú iausn yrði öllum
Evrópuþjóðum til hagsbóta.
iþróttir og fjármálin.
I siðasta Iþróttablaði er við-
tal við Gisla Halldórsson, for-
seta ISI, um iþróttastarfið og
fjármálin. Þar segir hann: ,,Nú
er talið, að um 55 þúsund konur
og karlar hérlendis iðki skipu-
lega iþróttir á vegum ung-
menna- og iþróttafélaga i land-
inu.
Segja má, að á siðustu árum
hafi orðið bylting i þátttöku alls
almennings i iþróttastarfinu, og
sú gleðilega þróun virðist halda
jafnt og þétt áfram, að æ fleiri
Islendingar taki þátt i iþrótta-
starfinu.
Það stendur iþróttahreyfing-
unni hins vegar i heild fyrir
þrifum hversu fjárvana hún er,
og stór hluti þess starfs sem for-
rriíH hrmrhi imrr
ijjmuuutuii
ÍÞRÓTTIR a ÚTILÍF
4 !ll iil
ystumennirnir inna af hendi er
til hvers konar fjáröflunar.
Það er allra skoðun, að bæði
sé sjálfsagt og eðlilegt, að félög-
in sjálf standi straum af kostn-
aði við rekstur þeirra að ein-
hverju leyti, og hefur sú skoðun
verið rikjandi meðal fprystu-
manna iþróttahreyfingarinnar,
að eðlilegt og æskilegt væri að
félögin öfluðu sjálf 40% fjár-
magnsins, en siðan kæmi á móti
30% framlag frá rikisvaldinu og
30% frá sveitarfélögum.”
Rauði þráðurinn i þessu við-
tali kemur fram i fyrirsögn, þar
sem segir: „Fjárskortur haml-
ar æskilegu iþróttastarfi. Samt
er það ósk þjóðarinnar, að
iþróttahreyfingin sé öflug og
góður árangur náist.”
útflutningur á hestum.
Hér birtum við auglýsingu,
sem búvörudeild SIS hefur sent
frá sér. Útflutningur á islenzk-
um hestum hefur verið um-
deildur. Fyrr á árum voru isl-
lenzkir hestar sendir til Bret-
lands, þar sem þeir voru brúk-
aðir i kolanámum. Sá útflutn-
ingur verður Islendingum til
ævarandi skammar.
Siðar hófst útflutningur til
áhugamanna um hestamennsku
viða um heim. Hestarnir vori)
þá oft fluttir með skipum og illa
að þeim búið. Kom fyrir, að þeir
dræpust á leiðinni, ef illt var i
sjó. A þessum aðferöum höfðu
flestirandstyggð, nema kannski
þeir, sem fengu nokkrar krónur
i vasann.
Nú er farið að flytja hestana
út með flugvélum, og er með-
ferðin öll betri en áður. Ýmsir
bændur og „hestaræktendur”
hafa verulegar tekjur af þessum
útflutningi og þykir sumum
þetta góður „bisniss,,.
Hvernig er fylgzt meö?
En þá vaknar spurningin
þessi: Hverjir kaupa hestana og
hvernig er farið með þá? Fylg-
ist einhver með þvi? Hvernig
liður skepnunum i hitum Suður-
Þýzkalands eða i strangri tamn-
ingu "sérfræðinganna,,.
íslenzkur maður, sem fyrir
tveimur árum var á ferð i
Vlnarborg, lagði leiö sina i
skemmtigarð. Þar sá hann is-
lenzka hesta, sem beitt hafði
verið fyrir barnahringekju. Hit-
inn var mikill og fluga ásótti
þessa tryggu vini, sem voru
bundnir við arma hringekjunn-
ar með skrautböndum.
A þessi fyrrum þarfasti þjonn
og yndi nútimamannsins ekki
betra skilið af Islendingum en
að vera sendur til fjarlægra
landa i misjafnt fóstur. Er
svona útflutningur peninganna
virði? .^-AG
Reykjavíkurmeistaramót í
skíðaboðgöngu eftir 20 ára hlé
Eftir um 20 ára hlé siðan
skiðaboðganga var meðal
keppnisgreina i Reykjavikur-
móti, var þráðurinn tekinn upp
að nýju laugardaginn 13. marz.
Keppt var i 3x10 km skiðaboð-
göngu, og féll meistaratitillinn i
skaut A-sveitar Skiðafélags
Reykjavikur, sem fékk timann
141,38 min. I öðru sæti var
skiðadeild Hrannar, en B-sveit
Skiðafélags Reykjavikur lenti i
þriðja sæti. Gestasveit frá Isa-
firði tók einnig þátt i mótinu, en
hún lauk ekki keppni. I sigur-
sveitinni voru Páll Guðbjörns-
son, Matthia-s Sveinsson og
Ingólfur Jónsson.
Veður var mjög mismunandi
meðan á keppni stóð. Um tima
gerði mikla hrið þannig að
fennti i slóðina, en er leið á
gönguna, batnaði veðrið til
muna.
Rásmark var rétt neðan við
lyftuhúsið, og var gengið i 5 km
hringi i sömu braut i endamark,
sem var það sama og rásmark.
Göngustjóri var Skarphéðinn
Guðmundsson, en Haraldur
Pálsson sá um brautarstjórn-
ina.
—GG
Umsóknarfrestur um dvöl á
Laugarvatni rennur út 26. þ.m.
Um næstu mánaðamót verður
gengið frá úthlutun til einstakra
aðila um dvöl i Iþróttamiðstöð ÍSI
að Laugarvatni. Um miðjan
febrúar sl. sendi ISI héraðasam-
böndum og sérsamböndum erindi
vegna starfsemi iþróttamið-
stöðvarinnar á komandi sumri.
Frestur til að senda inn umsóknir
um dvöl i iþróttamiðstöðinni
rennur út 26. þ.m.
Iþróttamiðstöðin rúmar allt að
60manns samtimis. Dvalarkostn-
aður á sólarhring verður
fyrir hvern þátttakanda.
1.150,00
—GG
Spennandi
bikarglíma
á Húsavík
Bikarglíma íslands fór
fram á Húsavík 7. marz sl.
Var mótiö spennandi og
margar snarpar viðureign-
ir sáust, enda létu áhorf-
endur sig ekki vanta.
Keppt var i tveimur aldurs-
flokkum. Annars vegar flokki
fullorðinna og urðu helztu úrslit
þar sem hér segir:
vinningar.
1. Ingi Yngvason HSÞ 7
2. Guðm. Ölafss. Armanni 6
3. Þorsteinn Sigurjónss.
Vikv. 5
I flokki drengja og unglinga:
1. Eyþór Pétursson HSÞ 4 1/2
2. Hjörleifur Sigurðss. HSÞ 4 1/2
3. Jón Magnússon KR 3
Glímuráð Héraðssambands
Suður-Þingeyinga sá um fram-
kvæmd mótsins og fórst það vel
úr hendi. —GAS
Sigurvegarar
unglingaflokki.
tRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiöur, Bankastr. 12