Alþýðublaðið - 30.07.1976, Síða 7
7
Föstudagur 30. júlí 1976.
SERA
MAGNÚS
GUÐMUNDSSON
fyrrverandi prófastur í Ólafsvík
80 ára
Séra Magnús Guðmundsson er
áttræður í dag, 30. júli 1976. Hann
gerðist prestur i-Nesþingapresta-
kalli á miðju ári 1923, og þjónaði
þvi brauði fram til ársins 1964.
Hann tók við brauðinu úr hendi
hins virta og mikilhæfa frænda
sins, séra Guðmundar Einarsson-
ar, siðar prestur á Þingvöllum og
Mosfelli i Grimsnesi, en hafði áð-
ur verið aðstoðarprestur hjá hon-
um um skeið, Hann þjónaði
kirkju sinni og kalli með skör-
ungsskap alla sfna tið.
En séra Magnús var okkur óls-
urum meira en prestur. Hann var
I fyrsta lagi skólastjóri við barna-
skólann I þrjú ár, áður en hann
tók við brauði.
Ég var meðal nemenda hans öll
þau ár. Ég minnist sérstakiega
reikningstimana, þegar liöa tók á
námstimann. Hvernig hann sat
við borðiö hjá okkur og leysti
fyrir okkur erfið dæmi, en við
nemendurnir hópuðumst i kring
um hann til þess að fylgjast meö
þvi, hvernig hann reiknaði dæm-
ið. Eöa hugareikningstfmarnir.
Þeir voru bæði skemmtilegir og
þroskandi. Séra Magnús var
mikill stærðfræðingur, en hann
var lika mikill islenzkumaður.
Hann þótti strangur um það, að
nöfn barna, sem hann skirði, lytu
islenzkri málvenju og beygingu.
Þetta bar mikinn og góðan árang-
ur. Séra Magnús var framámað-
ur I byggðinni og forustumaður i
félagsmálum og sporgöngumaður
fyrir mörgum af okkar stærstu
málum. Fyrstu tveir áratugirnir,
sem hann var i Ólafsvik, voru
mjög erfiðir. Þá eins og lengi sið-
an, var hafnarmálið stærsta mál
byggðarinnar. Hann vann að þvi
máli af ósérplægni, elju og dugn-
aði i marga áratugi, og ótaldar
eru þær ferðir, sem hann tókst á
hendur til Reykjavikur, fyrir
þetta málefni, og ekki mun alltaf
hafa komið fé fyrir, né þakklæti
sem skyldi. Þau eru fjölmörg
önnur mál byggðarinnar, sem
séra Magnús vann að i byggöinni
á löngum starfsferli, sem hér
veröa ekki rakin. En öll, eða flest
komust þau heil i höfn.
Nú fyrir skömmu kom hann til
Ólafsvikur og prédikaði þar i
kirkjunni. Hvithærður öldungur,
trúr kirkju sinni og kalli, eins og
höfðingjar kirkjunnar hafa lengi
verið.
Við Ólsararnir eigum séra
Magnúsi mikiö að þakka, svo og
konu hans, frú Rósu og börnum
þeirra, sem öllum þótti vænt um
og báru viröingu fyrir. Við hjónin,
og væntanlega fjölmargir aðrir úr
byggðinni, sendum séra Magnúsi,
konu hans og fjolskyldu heilla- og
blessunaróskir i tilefni af átt-
ræðisafmælinu.
Ottó Árnason.
r T7
L1 M '■}
Vörumarkaðurinn
Leyft verð
Okkar verð
OPIÐ TIL KL. 10
RÍKISÚTVARPIÐ
Skúlagötu 4 - Reykjavík
Auglýsingasímar:
22274 og 22274
GÓÐA FERÐ!
MANA-
KAFF
Simi 94-3777
Matsala — Gisting —
Grillréttir allan dag-
inn.
Opið frá kl. 7.30-11.30
•
Við bjóðum yður
velkomin til
tsafjarðar.
Letgu f lug—Mey öa r f lug
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
FLUGSTÖÐIN itE
Símar 27122-11422
Kennarar - Kennarar
Kennara vantar að Barna- og unglinga-
skóla Hólmavikur næsta skólaár. Æskileg
kennslugrein mynd- og handmennt. Ódýrt
húsnæði.
Upplýsingar gefur skólastjóri Bergsveinn
Auðunsson i sima 95-3123
Skólanefndin