Alþýðublaðið - 30.07.1976, Síða 10
10 SJONJIBMIÐ
Föstudagur 30. júlí 1976. bía&ið1
Iss, krakkarnir borga brúsann ...
Áfengi í ýmsum
ílátum.
Fleira mætti rekja af þvi sem
boðið er upp á á þessum mótum.
Talandi um þessar vinlausu úti-
skemmtanir eða hátiöir eins og
þæreru gjarnan nefndar, þá má
ekki gleyma þeirri landlægu
hjátrú að ekki sé hægt að vera
meðal fólks án þess að hafa
brennivin með ser á gleri.
Vegna þess að bannaö er að
reyna að koma vinföngum fyrir
á mótsstaðnum nokkru áður en
mótið hefst sumir ku gera það
mánuðum áður. Siðan þegar
mætt er til leiks komast menn
með engilbros á vör framhjá
vinleitarmönnum og hrósa sér
fyrir snillina. Kunningi minn
lenti þó i þvi fyrir nokkrum ár-
um að reyna þetta, en svo ó-
heppilega tókst til að hann fól
birgðir sinar i jöröu þar sem
vera skyldi tjaldsvæöi fyrir fjöl-
Verzlunarmannahelgin
er að renna upp einu sinni
enn. Þessi helgi hefur
gjarnan verið nefnd
mesta ferðahelgi
sumarsins og er það trú-
lega réttnefni. Þeir sem
vettlingi valda axla pok-
ann sinn og bera hann út í
bíl, síðan er ekið af stað
til hins fyrirheitna stað-
ar.
Ýmsir hagsmunahópar hafa
fært sér i nyt þessa flækings-
áráttu þjóöarinnar og fjölgar
þeim nu sifellt sem reyna aö
skara eld að
Ýmsir hagsmunahópar hafa
fært sér i nyt þessa flækingsá-
ráttu þjóðarinnar og fjölgar
þeim nú sffellt sem reyna að
skara eld að sinni köku. Alls
kyns mót eru haldin i hverjum
landsfjóröungi, flest eru kölluö
bindindismót eða i öllu falli er
ætlunin að vin verði ekki haft
um hönd. Margvislegum
skemmtikröftum er lofað á
hverju móti og fylgir sögunni að
þeir muni fljúga milli staða til
þess að skemmta fólkinu. Lagt
er i að koma upp alls kyns að-
stöðu fyrir þá sem sækja staöina
til þess að gera þeim sem léttast
að yfirstiga þann aðstöðumun
sem fylgir þvi að flytjast dag
eða tvo i tjalddulu einhversstað-
ar þar sem enn hanga uppi
nokkrar trjáhrislur, úr bústöð-
um manna.
Útilegukindurnar hafa að-
gang að salerni, rennandi vatni,
rafmagn er fáanlegt fyrir raf-
magnsrakvélina og rafmagns-
tannburstann, verzlanir koma
upp útibúum i tjaldi á mót-
svæðunum og selja allt frá
naglasköfum uppi aflóga sól-
gleraugu sem mótsgestir heill-
ast þvi meir af sem vitglíran
laugast I brennivini. Þjóðarrétt-
ur ungu kynslóðarinnar er aö
sjálfsögðu á boðstólum, enda
hægt aö kaupa kók og pylsur á
uppsprengdu verði ef að likum
lætur, og gildir það sama um
allan varning sem fáanlegur er,
hvort sem um er að ræða nauö-
synjar ellegar fánýti.
taka slikan vökva með sér inn á
mótssvæðin, þá hefur ýmislegt
verið reynt til þess að sneiða
hjá banninu og smygla þessum
forboðna vökva inn á svæðin.
Meðan ég var i þessum
„bransa” gafst það vel að setja
vinið i hylkið undir rúðuvökv-
ann. Þannig var smyglað
hundruðum litra inn á hin vin-
lausu mót viða um land.
,,Djús”-brúsar bæði af plasti og
pjátri voru einnig gagnlegir til
þessa brúks. Tryggasta leiðin
var þó sú að kaupa niðursuðu-
vörur, leysa upp limið af miðan-
um utan um þær, gera þar á gat
og tæma innihaldiö úr. Síðan
var vin sett á dósirnar lóðað
snyrtilega fyrir og að lokum var
miðanum komið fyrir aftur.
Þessi aðferð mun enn vera not-
uð og að sögn gefst hún vel þeim
sem hana viöhafa.
Margir lögðu og leggja enn á
sig mikið umstang og erfiði til
þess aö koma vini inn á þennan
hátt. Enn er þó ótaliö að sumir
skyldur og barnafjölskylda ein
setti tjald sitt niður á torfu-
snepilinn þar sem vinið var
fólgið og hreyfði sig hvergi með-
an mótið stóð.
Hver borgar auglýsinga-
stríðið?
Það hefur vist ekki farið
framhjá neinum sem heyrn hef-
ur að nú um þessa helgi hyggj-
ast óvenju mörg félagasamtök
maka krók sinn. Milljónum
króna hefur verið varið til þess
að auglýsa þessi mót, bæði i
blöðum og i útvarpi. Hefur þessi
auglýsingaalda stundum borið
uppi auglýsingatima útvarpsins
og lengt hann oft til muna, jafn-
skemmtilegt viöfangsefni og
þessar auglýsingar eru. Lengi
framan af var verði aðgöngu-
miðanna haldið leyndu, trúlega
til þess að keppinautarnir hefðu
engar spurnir af þvi, þannig að
hættan á undirboði minnkaði.
Þar kom þó að ekki verð lengur
dulizt og verð voru auelvst.
Inngangseyrir er frá hálfu
fjórða þúsundi og niður I eitt
þúsund.
Gerum okkur dæmi um visi-
tölufjölskyldu sem gerir sér ferö
á svona mót. Aðgangseyrir fyrir
hana er 14 þúsund krónur og þá
á hún eftir að koma sér á móts-
staðinn. Sá kostnaður er vitan-
lega misjafn eftir þvi hvaðan
farið er, en gera má ráð fyrir að
visitölufjölskyldan sem fer frá
Reykjavik þurfi að greiða um 11
þúsund fyrir ferðirnar.
Útbúnaður sem er nauðsyn-
legur til svona útilegu er tjald
sem varla kostar undir 20
þúsund krónum, fjórir svefn-
pokar sem kosta um 8 þúsund
kronur hver, og ekki er ósann-
gjarnt að reikna með þvi að
matvæli sem höfð eru meðferðis
og það sem keypt er i sölutjöld-
um kosti minna en 10 þúsnd
krónur ef sparlega er fariö með
fé. Þarna eru komnar tæpar 90
þúsund krónur, en þess ber að
geta að fjárfesting i tjaldi og
svefnpokum endist oftastnær
lengur en eina ferð af þessu
tagi, kostnaðurinn er nægur
þrátt fyrir það.
Sá mikli aðgangseyrir sem
nefndur var að framan er rétt-
lættur með þvi að vel sé til
skemmtanahaldsins vandað og
einnig sé mikill kostnaður i för
með þeirri aðstöðu sem komið
hefur veriö upp vegna sam-
komuhaldsins.
En þeir sem sækja þessi mót
ættu að leiða hugann að þvi hver
það er I raun og veru sem borg-
ar fyrir boli og einhverskonar
gúmmifigúrur, kenndar við hjá-
trú, og kemur I hlut þeirra sem
kaupa fyrstu þúsund aðgöngu-
miðana.
Eins dauði er annars
brauð
Þegar upp er staðið eftir
þessa helgi sem jafnan er ein
mesta rigningarhelgi hvers árs,
ætti fólk að skoða þessi mál i
samhengi.
Það er góðra gjalda vert að
ungmennafélög, skátar og þess
háttar samtök skuli sýna við-
leitni til þess aö afla sér fjár
sjálfir, i stað þess að troða staf-
karlsstig á vit þeirra sem sitja
á sameiginlegum sjóðum ætluð-
um til aimannaþarfa. Þessir að-
M /
/4 ,
1'
ilar sem hver á fætur öðrum hafi
troðið upp I fjölmiðlum og lýst
þvi yfir að þeir geti hver um sig
tekið á móti öllum þeim sem
hyggja á ferðalag um verzlun-
armannahelgina, verða að gera
sér grein fyrir þvi að það er að-
eins takmarkaður hópur sem
verið er að bitast um. Það er
staðreynd að auglýsingaher-
ferðin sem haldin hefur verið
með tilheyrandi kostnaði ræöur
sáralitlu um hve margir feröast
um þessa helgi, hún hefur að
vissu marki áhrif á það hvert
fólk leggur leið sina, hitt ræðst
mun fremur af veðurfari.
Aðstandendurir ættu einnig að
gera sér grein fyrir þvi að sú
blóöuga samkeppni sem nú er
háð um ungmennin, kemur ein-
ungis niður á þeim sem út i hana
fara, auk þess sem ungmennin,
fyrir sakir áhrifagirni sinnar,
verða fyrir stórfelldum fjárút-
látum. Hvorugt samræmist
hugsjónum ungmennafélag-
anna eöa drengskaparástundun
skátanna svo vel fari á.
Eirikur Baldursson.
Hvað veldur þeirri sorg?
Skuggalegar horfur
Veðurguðirnir hafa ekki leikið
við sunnlenzka bændur það sem
af er þessu sumri. Ötiðin veld-
urþvi,að annað árið i röð hrekj-
ast nú hey i stórum stii, eða
grasiö sprettur úr sér og verður
næsta lélegt aö fóðurgildi, þótt
einhverntima bráðum stytti
upp.
Engum, sem kunnugur er
sveitabúskap, dylst, að hér er
mikil vá fyrir dyrum, og hætt
við aö menn séu ekki vel i stakk
búnir til mikilla kjarnfóður-
kaupa annað árið i röð. Þvi fer
raunar fjarri, að samskonar á-
föll hafi ekki yfir dunið og það
býsna þétt.
Þetta leiðir hugann að þvi,
hvað sunnlenzkir bændur virð-
ast vera ihaldssamir um hey-
verkun, að ekki hefur verið haf-
izt handa um að hagnýta sér
nýjungar, sem eru þó hreint
ekki alveg spánnýjar — til þess
aðbægja frá þeim voða, sem við
blasir, þegar fóðuröflun fyrir
búpeninginn bregzt, vegna
ótiðar.
Furðuleg stöðnun
Um langan aldur var mikill
samgangur milli Suður- og
Norðurlands, bæði vegna ver'j-
ferða suður að norban, og
kaupafólks norður að sunnan.
Enginn efi leikur á, að með
þessum mannlegu samskiptum
fluttust nýjungar milli lands-
hluta miklu fyrr en ella og báðir
landshlutar græddu á.
Snemma á þessari öld voru
sunnlenzkir bændur i farar-
broddi um heyverkun.og er það
til marks,aðheyhlöður voru þar
reistar miklu fyrr almennt en i
Norðurlandi. Vera má, að þar
hafi nokkru um valdið, hve
miklu votviðrasamara er hér
syðra en i norðlenzkum sveit-
um. Enda kennir neyðin naktri
konu að spinna. En framtakið
var rriikið og merkilegt eigi að
siður.
Þessi met hafa nú raunar
jafnazt og vel það. En með hlið-
sjón af þvi', sem áður var, vírð-
ast framfarir i heyverkunarað-
ferðum hafa sneitt hreint furöu-
lega hjá garði sunnlenzkra
bænda.
Þvi fer auðvitað fjarri, þótt
yfirleitt sé fremur þurrviðra-
samt i Norðurlandi, séu þó ekki
ýmis byggðarlög þar afskipt, og
bændur nyrðra hafi ekki þurft
að neyta ýmissa ráða, til að
bjarga fóðuröflun sinni, ann-
arra en að biða eftir sólskininu
og láta slag standa. tbúar
Strandasýslu hafa löngum verið
hart haldnir um heyþurrk, öðr-
um byggðarlögum fremur I
Norðurlandi. Þeir hafa þvi orðið
að leita annarra bragða en að
setja allt sitt traust á þurrheys-
verkun.
Fregnir berast nú um, að vot-
heysverkun hafi um sinn gefið
þá raun, að leysa þá undan þvi
oki, að eiga allt sitt undir sól og
regni.
Við höfum fyrir satt, að is-
lenzkur túngróður, og raunar
allu. íslenzkur gróður, sé i senn
harðgerður og næringarrikur, ef
hanser aflað i fóður,þegar hann
er hæfilega sprottinn, hvorki of
eða van, siztof. Það líggur þvi i
hlutarins eðli, að mestu skiptir,
að geta slegið og verkað fórið á
réttum tima.
Bændur um allt land hafa klif-
ið þritugan hamarinn, til þess
að afla sér nýtizku heyvinnu-
tækja, og svo stórvirkra, að það
tekur skamman tima að slá og
hirða, ef tiðin leikur i lyndi.
Sá þáttur fóðuröflunarinnar
mun ekki vera annarsstaðar
myndarlegar úr garði gerður,
og virðist mörgum, að þar sé
jafnvel meira til kostað en þörf
krefur. En hvað, sem um það
má segja, verður að telja það
einstaklega ömurlegt, að horfa
á þær aðfarir, að i stórum
byggðarlögum og vel ræktuðum
séu sibreiður af kolmórauðum
hrakningi það, sem mætir aug-
um, ef um byggðarlögin er far-
ið, eða þá trénuð og úr sér
sprottin óslægja.
Mönnum verður eðlilega á að
spyrja, hvað þvi geti valdið, að
bændastéttin hér syðra, sem á
sinum tima var á undan öðrum i
fóðurverkun, skuli hafa dregizt
svo hörmulega aftur úr, sem nú
virðist raun á. Varla verður
kunnáttuleysi um kennt.
Satt er það, að á siðari timum
hefur það færzt ákaflega i vöxt,
í HREINSKILNI SAGT
að ala islenzkan búpening á er-
lendu kjarnfóðri. Vera má að
þar sé nokkur orsök þess, að
bændur hafa siður hirt um að
laga sig að þvi að búa að sinu,
sem áður var hátturi sveitum.
Okkur er sagt, að landsmenn
þurfi nú öllu til að kosta, að vera
sem mest sjálfbjarga af eigin
landsgæðum, og það eru vist fá-
irsem draga þá þörf i efa, þegar
litið er á bæði efnahagsástand
og þá ekki sfður gjaldeyris-
skortinn.
Þegar litið er á þá staðreynd,
að með votheysverkun má kalla
að létt væri af bændastéttinni,
að verulegu leyti þeirri hug-
raun, að horfa á heyfeng sinn
eyðileggjast ár eftir ár og jafn-
framt verulega létt af þeim tvi-
eða margverknaði að basla við
heyþurrkun i votviðrasumrum,
hlýtur sú spurning að verða á-
leitin. Hvað veldur þeirri sorg
að þeir hættir, sem öðrum gef-
ast vel, skuli ekki hér upp tekn-
ir?
Oddur A. Sigurjónsson