Alþýðublaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 11
sœr Föstudag
ur 30. júlí 1976.
11
____________HBIMGEK
STEINFLOTINN
Skip, sem byggö eru Ur stein-
steypu, þurfa ekki að óttast
rotnun, ryð eða elli. Langt er
siðan smiði slikra skipa hófst.
En seinna tók við vonbrigða-
timabil, mönnum virtist efnið
þungt og brotgjarnt.
Þá var það sem visindamenn-
irnir tóku sig til og fóru að
kanna vitleysurnar, sem gerðar
höfðu verið. Þeir fullkomnuðu
tæknina og smiðuðu ný skip.
Einna mest var gróskan i þessu
starfii Sovétrikjunum, endaeru
þar nú rúmlega tvöþúsund
steinskip sem höfð eru til hinna
margvislegustu nota. Og það
var lika i Sovétrikjunum sem
haldin var alþjóðleg ráðstefna
um notkun steinsteypu i skipa-
smi'ðum. Ivan Sivertsef og
Nikolaj Égorof, kennarar við
skipaverkfræðiskóla i Gorki,
eru meðal fremstu sérfræðinga
á þessu sviði. Hér fer á eftir við-
tal, sem fréttamaður APN átti
við þá félaga.
— I hverju skjátlaðist fyrstu
framleiðendum steinskipa? Að
hvaða niðurstöðum hafið þið
komist þar að lútandi?
I. Sivertsef: Reynslan hefur
fyrir löngu sý.nt, að san)a efni
hentar ekki öllum tegundum
skipa. T. d. er ekkert vit i að
steypa hraðbát úr steini, i hann
þarf léttara efni. En svo eru
aðrar tegundir skipa sem ekkert
hafa að gera með hin léttari
efni, eins 'og t.d. hafnar-
prammar. lipphafsmenn skipa-
smiða úr steinsteypu tóku ekki
alltaf tillit til þessara atriða. En
við getum ekki sagt að þeim hafi
skjátlast,þeir voru að þreifa sig
áfram, og enginn verður
óbarinn biskup.
A ánni Volgu, skammt frá
Gorki stendur steinprammi sem
notaður er til umferminga.
Hann hefur staðið þarna i nær
hálfa öld. 1 hverri skoðum sann-
færast eftirlitsmennirnir um að
engin ellimörk sjást á pramm-
anum.
Prammar og önnur skip úr
steinsteypu eru nú ekkiaðeins á
Volgu, heldur einnig á mörgum
öðrum siglingaleiðum Nokkuð
hefur dregið úr framleiðslu á
þeim vegna minnkandi eftir-
spurnar, sem stafar eingöngu af
góðri endingu þeirra. Aður
höfðu skipasmiðastöðvarnar
ekki við að framleiða skip til
þessarra nota, þar sem ryð,
rotnun, bilanir og eldsvoðar
grönduðu þeim fljótt.
N. Égorof :Skipasmiðastöðin i
Gorodéts hefur margra ára fjöl-
breytta reynslu i smiðum stein-
skipa. Þeir hafa framleitt verk-
smiðjuskip til nota á Kaspiahafi
og fljótandi veitingastaði fyrir
ibúa Leningrad. M.a. sem skipa-
smiðastöðin getur statað af má
nefna fljótandi þorp sem sett
eru upp þar sem verið er að
reisa raforkuver eða bora fyrir
oliu. 1 sliku þorpi eru ibúðarhús,,
skóli, félagsheimili, verzlanir,
sjúkrahús og bakarf, svo eittk
hvað sé nefnt. í Gorodéts er
einnig verið að vinna að hug-
mynd um stórt fljótandi raf-
orkuver.
I þessari skipasmiðastöð
er einnig verið að framleiða
skipakviar sem ætlaðar eru til
að gera viö togara. Svo stór
mannvirki erekki hægt að flytja
eftir Volgu og skipaskurðunum
til Svarta hafsins, Hvita hafsins
eða Eystrasalts, þar sem þau
verða notuð. Þess vegna eru
kviarnar framleiddar i pörtum
og fluttar þannig, en settar
saman þegar komið er á
áfangastað.
Aðalatriðiðér að i flestum til-
vikum er steinsteypa ekki
aðeins notuð i staðinn fyrir stál,
af illri nauðsyn, heldur er hún
betra og fullkomnara efni fyrir
þessa tegund skipa og mann-
virkja.
Nú þegar er listinn yfir
fljótnadi mannvirki úr stein-
steypu orðinn langur og hann
lengist stöðugt. t þessu sam-
bandi hefur mikið að segja að
sovézkir visindamenn eru sifellt
að finna upp nýjar tegundir af
steinsteypu. Ein þeirra er svo-
kallað útvikkandi seme nt , sem
harðnar fljótt og myndar sterkt
lag á samskeytum, en það er
mikils virði þegar skip og önnur
mannvirki eru steypt i pörtum.
I Sovétrikjunum var fundin
upp sú aðferð, að styrkja með
steinsteypu stálskrokka gull-
leitarslóðanna sem slæða ár og
aðra vatnsfarvegi, og nú er i
athugun smiði þessarra tækja
úr steinsteypu eingöngu.
Tilkoma nýrra efna hefur
kallað á nýja aðferðir i skipa-
smiðum. Með minni fyrir höfn
er nú unnt að framleiða
traustari skip. Skipasmiðir i
Gorki hafa náið samstarf við
starfsbræður i Leningrad,
Moskvu, Nikolajev, Gorodéts,
Herson og viðar.
— Hvernig framtið spáið þið
steinskipunum?
I. Sivertsef: Nýting land-
grunnsins, þar sém óhemju auð-
ævi er að finna, opnar einstaka
möguleika fyrir steinskipa-
smiðar. Enn sem komið er
vinnum við aðeins fimmta hvert
tonn af oliu, sem fyrirfinnst i
landgrunni okkar, allt hitt til-
heyrir framtiðinni. Reynslan
sýnirað olia á hafsbotni verður
ekki unnin með venjulegu móti
nema upp að 40 metra dýpi.
Þegar lengra kemur þarf að
nota fljótandi mannvirki, risa-
stóra steinpramma þar sem
bortækjunum verður komið
fyrir auk annarra nauðsynlegra
mannvirkja.
Sama máli gegnir um önnur
efni, sem unnir verða af hafs-
botni. Okkur þykir nauðsynlegt
að hyggja þegar i stað að smiði
geysistórra fljótandi eyja, sem
verða einskonar miðstöðvar
fyrir iðnaðarflota framtið-
arinnar. Þar yrðu að vera við-
gerðarverstæöi, frystihús og
geymslur, flugvellir og
bryggjur og kjarnorku-
afstöðvar. Þá er einnig nauð-
synlegt að koma upp hvildar-
aðstöðu fyrir fólkið sem vinnur
að framleiðslustörfunum, þar
sem það gæti dvalizt á fridögum
sinum. Þar verða að vera fyrir
hendi fljótandi félagsheimili,
sjúkrahús, vietingastaðir,
brauðgerðar, og tæki til að
framleiða drykkjarvatn úr sjó.
Að sjálfsögðu er' erfitt að
segja fyrir með nokkurri
nákvæmni hvernig nýting út-
hafsins mun fara fram. En eitt
er hafið yfir allan vafa: það
verður nauðsynlegt að reisa^
svona fljótandi þorp. Bezta
efnið og stundum það eina sem
tilgreinakemur.er steinsteypa.
Grígorí Zakharov (APN).
_____________________HOBWID
KVEÐJUR TIL KARTÖFLUSTJÓRA
Ragna Jónsdóttir hringdi:
Ég var að lesa frétt í
Alþýðublaðinu um að
kartöflur myndu stór-
hækka i verði í haust. En
það kom jafnframt fram/
að „kartöf lustjórinn" eða
hvað hann er kallaður
þessi sem stjórnar inn-
flutningi á kartöflum#
hafi litið sem ekkert vilj-
að tala við blaðið af því
það skammaðist út af
skemmdu kartöflunum
sem f luttar voru inn í vor.
Þetta finnst mér fyrir neðan
allar hellur hjá opinberum em-
bættismanni. í raun og veru ætti
að kæra rikiö fyrir svik. Þegar
pólsku kartöflurnar voru þær
einu sem fengust kom það oft
fyrir á minu heimili, að meira
en helmingur i fimm kilóa poka
var ónýtt rusl sem fór beint i
öskutunnuna. En það fékkst
engin endurgreiösla og svona
viöskipti eru hrein svik og ekk-
ert annað. Þaö hefur einstöku
sinnum komiö fyrir að ég hef
fengið of gamalt skyr i verzlun-
unum, en alltaf fengið þvi skipt
fyrir nýtt alveg orðalaust.
En „kartöflurstjórinn” segir
bara eitthvað á þá leið, að hann
beri ekki ábyrgð á vöru sem
hann selji og prangar svo svina-
fóðri inn á fólk. Og nú vill hann
ekki einu sinni segja hvort farið
er að athuga með innflutning
fyrir næsta vetur. Þetta er mál
sem kemur öllum við og svör
stjórans er ekkert annað en arg-
asti dónaskapur við almenning
sem borgar honum laun. Að
minum dómi væri rétt að athuga
hvort aðrir gætu ekki sinnt
þessu starfi betur heldur en sá
er nú situr i þvi. Að minnsta
kosti verða ekki fluttar inn verri
kartöflur en i vor. Það er útilok-
að.
53^
Kartöfluakrar eru sviönir eltlr ládæma þurrka
Gífurlegar verðhækk-
anir á kartöflum í
Evrópu í haust
Vegna fádæma kartöflum erlendis frá.
þurrka Í Evrópu nú Í Skemmst (ró aft segja tókíor-
sumar er búizt viö upp- syórinn þessum spurningum
Qlromhroctí A kartnfl- af"-Ula. Kvaöst hann ekki haía
sKeruoresti a Kartoii neina hugmynd um uppskeru-
um og gifurlegri verö- horfur hérlendis og taldi af og
séB, aB blaBiB skuli hafa vogaB
sér aB gagnrýna innflutningum
á skemmdum kartöflum I vor.
Danir áhyggjufullir
Fullorðnir menn
og konur
Alþýðublaðið óskar eftir tveim fullorðnum
mönnum eða konum til að annast lausa-
sölu á blaðinu hluta úr degi, 5 daga vik-
unnar.
Þeir eða þær sem áhuga hafa leggi nafn,
heimilisfang og simanúmer inn á
afgreiðslu blaðsins Hverfisgötu 8-10 merkt
„hálfs dags vinna” eða hringi i 14-900.
Snæfellingar —
ferðamenn
Bensin og olíuvörur frá
öllum þrem oliufélögunum
Esso — BP — og Shell.
Sælgæti, tóbak, öl og gosdrykkir.
Alls konar ferðavörur.
Bensín- og olíustöðin
við Aðalgötu Stykkishólmi
Kynning á æskulýðs- og félagsmálastarfi i
Vestur-Þýzkalandi mai-júli 1977.
Vestur-þýzk stjórnvöld og Victor Gollancz menntastofn-
unin bjóða starfsfólki og sérfræðingum i æskuiýðs- og fé-
lagsmáiastarfi til þriggja mánaða náms- og kynnisferða f
Sambandslýðveldinu Þýzkalandi næsta sumar (mai-júll
1977).
Þátttakendur þurfa að hafa gott vald á þýzkri tungu, vera
starfandi viö æskulýös- eða félagsmálastarf og vera yngri
en 35 ára.
Umsóknareyöublöö og nánari uppiýsingar fást I mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, og þurfa
umsóknirum þátttöku að hafa borizt ráðuneytinu fyrir 15.
september n.k.
Menntamálaráðuneytiö 27. júli 1976.
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöid kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur með sjálfsafgreiðslu opin alla
daga. .
IIÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL SAGA
Grillið opið aila daga. Mfmisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miövikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826.
ÞÓRSCAFÉ
Opið á hverju kvöldi. Simi 23333.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR