Alþýðublaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 12
12
Auglýst er til umsóknar
Starf forstöðumanns
námsflokka Garðabæjar
frá 1. september nk.
Skriflegar umsóknir berist skrifstofu Garöabæjar fyrir 1.
ágúst nk.
Bæjarstjóri
Tilkynning
til launagreiðenda
er hafa i þjónustu sinni starfsmenn bú-
setta i Kópavogi.
Samkvæmt heimild i 7. tölulið 103.
gr.reglugerðar nr. 245/1963, er þess hér
með krafist af öllum þeim er greiða laun
starfsmönnum búsettum i Kópavogi, að
þeir skili nú þegar skýrslu um nöfn starfs-
manna hér i umdæminu, sem tak laun hjá
þeim, nafnnúmer, heimilisfang og gjald-
daga launa.
Jafnframt skal vakin athygli á skyldu
kaupgreiðanda til að tilkynna er launþeg-
ar hætta að taka laun hjá honum og þeirri
ábyrgð, er kaupgreiðandi fellir á sig ef
hann vanrækir að halda eftir af launum
upp i þinggjöld samkvæmt þvi sem krafist
er, en i þeim tilvikum er hægt að inn-
heimta göldin hjá kaupgreiðanda, svo sem
um eigin skuld væri að ræða.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Kennarar
Kennara vantar að barnaskólanum á Sel-
fossi.
Upplýsingar veita skólastjóri i sima 99-
1498 eða 99-1500 og formaður skólanefndar
i sima 99-1640.
T’RÚL'OFUNARHRINGAR.
^
Fljót afgreiösla.
» *
Sendum gegn póstkröfu '
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiöur, Bankastr. 12
Lagerstærðir miðað við jnúrop.-
Uæð;210 sm x breicW: 240 sm
2W) - x - 270 snri
Aðrar sUarðir. srníÖaðar eftir beiðné " í
GLUÍQÓiASMIÐJAN
Sfftumúta iO, simi 38220 _
VIPPU - BitSKORSHURÐW
'á&yCg.I
Ji
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen f allflestum litum. Skiptum á
. einum degi meö \iagsfyrirvara fyrir ákveöiö verö.
Keyniö viöskiptin. ■ ,•
Bitasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Ritstjórn Alþýðubíaðsins er í J
Síðumúla 11 - Sími 81866 j
► ^ ^ ** **■ ^ *** ** ^
Pnc+nH^niir 30 iúlí 1976
alþýðu*
Líkur á fósturskemmdum
fá bandarísk yfirvöld til
að banna sölu róandi lyfja
Yfirvöld i Bandarikjunum hafa nú uppi hótanir þess efnis að stöðva sölu á
valium og librium.
Lyf þessi geta valdið fósturskemmdum séu þau gefin vanfærum konum.
Þær geta einkum átt það á hættu að ala börn með skarð i góm eða vör, ef
þær neyta þessarra iyfja um meðgöngutimann.
1 Sviþjóð fer neyzla þessarra lyfja sivaxandi. En sænsk yfirvöld og sér-
fræðingar þar i landi virðast ekki taka viðvaranir Bandarikjamann svo
hátiðlega. Þeir telja hættuna á fósturskemmdum ekki það mikla að ástæða
sé til að taka fyrir sölu á þessum lyf jum.
Lyfjaframleiðandinn Hoffmann La Roche er einnig alveg á sama máli.
ólafur ólafsson, landlæknir,
sagði að islenzkum læknum
hefðu verið gefnar greinargóðar
upplýsingar um lyf þessi og
notkun þeirra. Vissar takmark-
anir væru hér á landi varðandi
notkun valiums og libriums,
einkum þó varðandi stærð
skammta.
Ekki sagðist Ólafur sjá neina
ástæðu til að banna notkun
þessarra lyfja, enda væri
Iæknum vel kunn öll ákvæði um
notkun þeirra. Til dæmis vissu
þeir um hættuna á fóstur-
skemmdum og þvi væri
islenzkum læknum eindregið
FRAMHALDSSAGAN
1. kafli.
Það var farið að
rökkva mikið um fimmleytið,
enda ekki óeðlilegt, þvi að nú var
nóvember: en Ruth leit samt ó-
eðlilega oft að glugganum á
stofunni. Þetta var hlýleg stofa,
húsgögnin öll frá þvi fyrir alda-
mót, og núverandi söluverð hefði
komið eigandanum allmikið á ó-
vart. Aðeins stóru, stoppuðu
sófarnir við arininn voru tiltölu-
lega nýir af nálinni. Hvitt silkiá-
klæðið fór vel við bláu og hvítu liti
stofunnar, en þeir höfðu verið
byggðir á flngerðum Wedge-
worth-flisunum yfir arninum.
Það logaði eldur á arninum, og
neistarnir endurspegluðust frá
krystalglösunum á kaffiborðinu
og breyttu sérriinu i slípuðu
könnunni i bræddan kopar. Ruth
haföi sett glös og vin á borðið á
hverju kvöldi eftir að frænka
hennar kom til hennar. Það var
hátiðlegra, þó að þær fengju ekki
annað en hamborgara að borða.
En i kvöld kom Sara seint.
Gul birta götuljósanna lýsti inn
um myrka gluggana, og Ruth
flýtti sér að þeim til að draga
fyrir þá. Hún hinkraði þá við og
strauk viðutan yfir ljós blátt
satinið.Sara var búin i skólanum
kl. hálf fjögur...
En Ruth minnti sjálfa sig á það,
ákveðin, að Sara væri oröin tvi-
tug. Hún hafð svo sem ekki lofað
neinni barnagæzlu, þegar hún tók
aö sér að hafa frænkuna búandi,
meðan hún væri i skóla. Auðvitað
fannstSöruhún vera fullorðin. En
Ruth fannst frænkan svo við-
kvæm og auðsærð eins og ungt
fólk er gjarnan. Og það var ekki
hollt að ferðast einn um göturnar
i Washington á þessum tima
sólarhrings —jafnvelekki i svona
finu hverfi.
Þetta var ömurlegur árstimi,
eilift rökkur eða myrkur, en þó
örlaði enn fyrir hinum frægu töfr-
um Georgetown, út um gluggana
á húsi Ruths, á töfrum, sem
byggðust á hefðbundinni
byggingarlist og fornum siöum.
Nú var hinn forni virðuleiki
mótaður af þvi, að vera enn á ný I
tizku, og hrörleg húsin höfðu
fengið nýtt andlit, sem bar vitni
um miklar viðgerðir og auð.
Húsin við götuna voru reist i
byrjun átjándu aldar. Georgiskar
framhliðir, skreyttar útskurði og
ljóskerum með örlitlum túnblett-
um fyrir framan og aftan þau.
Millihúsanna voru garðarnir sem
borgarhlutinn var þekktur fyrir,
gróskumiklir og faldir fyrir aug-
um umferðarinnar og afgirtir frá
næstu nágrönnum. Núna var að-
eins hægt að sjá trjátoppana.
Andrúmsloftið var eilltið
skemmt af umferðinni og bilun-
um, sem lagt var þétt hvern við
annan, og oftast ólöglega.
Bifréiðarnar, sem óku eftir
götunni höfðu kveikt á ljósunum,
og Ruth leit taugaóstyrk yfir á
strætisvagnastöðina við hornið.
Sara sást hvergi. Ruth tautaði
eitthvað ófagurt fyrir munni sér,
en hristi svo kollinn. Móðurtil-
finningin varð bara sterkari. þeg-
ar hún byrjaði að á að láta á sér
bera um siðir.
Ruth var rúmlega hálffimm-
tug. Hún hafði alltaf verið lág-
vaxin og var enn grönn, en þar
sem hún hafði aldrei viljað „gera
eitthvað” við hærunum eða not-
færa sér önnur „bellibrögð”
kvenna, sem dýrka æskuna,
sögðu nýtizkulegri vinkomur
hennar vorkunnsamlega, að hún
„héldi sér bara vel”. Hún keypti
föt sin enn i litlu búðinni, sem
hún hafði verzlað við i fimmtán
ár, og notaði enn sömu stærðina
af fötum. Hún var i nýlegu
köflóttu pilsi og ljósblárri
rúllukragapeysu. 1 vinnunni gekk
hún i drögtum, en heima valdi
hún helzt ljósa liti, sem áttu vel
við blá augun og gyllt hárið, sem
breytzt hafði i silfur.
Það fór hrollur um hana við
gluggann. Það var alltaf kalt á
þessum stað i stofunni, jafnvel
þung gluggatjöldin gátu ekki
Kortidu
heim,
Ammí
Höfundur:
Barbara Michaels
Þýðandi:
Ingibjörg Jónsdóttir