Alþýðublaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 13
bis^fð Föstudagur 30. júlí 1976.
ráðið frá þvi að gefa þunguðum
konum þessi lyf.
Þungaðar konur og
róandi lyf.
Allar likur benda til þess, að
eitthvert samband sé milli
notkunar umræddra lyfja og
ýmissa likámsgalla hjá
börnum. Einkum þó ef lyfin eru
tekin á fyrstu mánuðum með-
göngutimans.
Vissa er fyrir þvi, að neyzla
valiums oglibriums getur valdið
skarði i góm og vör hjá
ófæddum börnum.
Nú hefur verið gefin út til-
skipun i Bandarikjunum þess
efnis, að öli róandi lyf beri að
merkja með sérstakri viðvörun.
Viðvörun þessi er til alira lækna
um að ganga úr skugga um það,
hvort kona sé þunguð áður en
skrifaður er lyfseðill á viðkom-
andi lyf.
Viðvörunarmiðar.
Lyfjaframleiðendunum hefur
verið gefinn stuttur frestur til að
setja viðvörunarmiða á um-
búðir lyfjanna. Verði það ekki
gert áskilja bandarisk yfirvöld
sér rétt til að banna sölu þeirra
þar i landi.
Yfirvöld og sérfræðingar I
Sviþjóð virðast samt ekki kippa
sér neitt upp við fullyrðingar
„koiiega” þeirra i Banda-
rikjunum og hafa ekki i hyggju
neinar aðgerðir enn sem komið
er.
Könnun.
Nýlega hefur verið gerð
nákvæm könnun á. þessum
lyfjum i Sviþjóð. Niðurstaður
þeirrar könnunar hafa rennt æ
sterkari stoðum undir þá vissu
sænskra sérfræðinga, að engra
aðgerða sé þörf i þessum
málum.
En konur sem taka þessi lyf á
meðgöngutimanum geta i fyll-
ingu timans komizt að raun um
það að þær hafa verið blekktar,
hafi þeim verið talin trú um að
lyfin væru með öllu skaðlaus.
Á að banna lyfin eða
ekki?
Sama máli gegnir um valium
librium og öll önnur læknislyf.
Þungaðar konur ættu að forðast
alla lyf janeyzlu á fystu
mánuðum meðgöngutimans.
En sænskir sérfræðingar telja
endar likur vera áþviað lyf þessi
séu hættuleg.
Að visu er það nú svo, að
enginn getur með vissu sagt að
læknislyf sé skaðlaust, en hægt
er að sýna fram á það að ekki
séu þekktar neinar ástæður á að
telja þau skaðleg.
Rannsókn sem gerð var á
meira en 50 þúsund þungunum
leiddi i ljós, að enginn munur
var á börnum þeirra sem tóku
inn róandi lyf og börnum þeirra
sem létu það vera.
En samt sem áður hafa
bandarisk yfirvöld varað við
notkun þessarra algengu lyfja.
Ástæðan fyrir þvi hefur verið
skilgreind svo:
Amerisk tryggingalöggjöf
hefur reynzt lyfjaframleið-
endum erfiður ljár i þúfu.
Upphæðir þær sem þeim hefur
verið gert að greiða vegna lik-
amsgalla barna, sem rekja má
til lyfjanotkunar móður um
meðgöngutimann, eru gifurlega
háar.
Lyfjaframleiðendur geta þvi
komið i veg fyrir slikt með þvi
að gefa upplýsingar um allar
hugsanlegar aukaverkanir lyfja
á umbúðum þeirra.
I Sviþjóð er þvi aftur á móti
þannig varið, að yfirvöld þurfa
að hafa rökstuddan grun um
það, að lyfin séu hættuleg áður
en gripið er til aðgerða gegn
notkun þeirra. Þau vilja ekki
skapa óþarfan ótta hjá fólki.
AV.
varnað kuldanum inngöngu,- og
stofan var of þröng handa eina
arninum andspænis glugga-
veggnum. Forfeður hennar höfðu
vist þolað kuldann betur, hugsaði
Ruth. En þeir hefðu heldur aldrei
staðið við gluggann og beðið eftjr
ungristúlku, sem væri eina á ferli
i rökkrinu.
Skyndilega ók bifreið að húsinu.
Hún nam staðar og dyrnar opnuð-
ust, en út kom ringulreið leggja og
handleggja, sem teygðu úr sér og
urðu að hávaxinni frænku hennar.
Ruth brosti, sumpart af létti, en
sumpart vegna þess, að hún hafði
alltaf skemmtun af að sjá Söru
með langa leggi og pinupils stíga
út úr smábil. Hún brosti enn
breiðar þegar hún sá, hvernig
Sara varklædd. Yfirleitt lá hún i
rúminu, þegar Ruth fór i vinnuna.
Sara hafði lært þá góðu list að
hagræða timum þannig, að þeir
brutu ekki um of i bága við
skemmtanir né svefn: og á hverju
kvöldi beið Ruth i ofvæni og eilitl-
um ótta eftir frænku sinni. Henni
fannst hver klæðnaðurinn hljóta
að vera það lengsta sem hægt
væri að ganga, en uppgötvaði
mistök sin i hvert skiptí.
Sara hélt á bókahlaða undir
öðrum handleggnum, en með
hinni hendinni hnykkti hún siðu
hárinu frá andlitinu, en sú hreyf-
ing hennar angraði hina kvöldu
en þöglu frænku hennar hvað
mest. Sara var með dökkt, renni-
slétt jár. Ruth hafði aldrei séð
hana strauja það, en grunaði hið
versta. Hárið huldi eyru
stúlkunnar, háls og axlir, og kom
með þvi að stað húfu og trefils,
sem Sara harðneitaðiaðnota, það
yljaði henni þó i kuldanum.
Siða hárið átti vist að bæta upp
nektina á neðri hlutanum. Þetta
kvöld var Sara i háum svörtum
stigvélum, en samt var svona á-
tján sentimetra bil frá þeim að
pilsfaldinum. Þessi hluti var
fylltur, en ekki hulinn, með svört-
um netsokkum, sem sýndu all
mikið af beru holdi.
Þetta var sérlega skringilegt
með tilliti til þess, hvernig Sara
leit út, þegar hún kom í septem-
ber-byrjun. Þá var hún i lérefts-
dragt, nælon-sokkabuxum,
krókódilskóm, og með hatt og
hanzka. Hatturinn dragtinn og
skórnir virtust hverfa sporlaust
um leið og hún var komin heim til
Ruthar. Það gladdi Ruth að visu,
að Sara skildi ekki hafa hana
grunaða um ihaldssemi, en þó
taldi hún að búingurinn hefði ver-
ið fremur móður Söru, en henni
sjálfri að þakka.
Sara laut inn um gluggann til að
ræða við ökumanninn. Hárið
huldi aftur ásjónu hennar. Þetta
ver ekki einn af þessum venju-
legu fylgdarmönnum frænkunn-
ar, þvi að Sara var greinilega að
bjóða honum aðlita inn. Bfldyrn-
ar opnuðust og maður steig út.
Ruth fannst hann ósköp venju-
legur við fyrstu sýn. Hávaxinn og
herðabreiður, en þó bar mest á
hárinu, jafnvel i daufu skini götu-
ljósanna. Eldrauði liturinn virtist
ósnortinn öllu gráu, en Ruth skildi
að hann var ekki ungur: hann
stóð ekki þannig, hann hreyfði sig
ekki þannig...
Hann snérist snöggt á hæl og
leit á húsið. Ruth lét gluggatjaldið
falla fyrir glugganum eins og
sögusmetta — eða viktoriönsk
gæzlukona. Hún roðnaði út að
eyrum — jafnvel fimmtan ára
starf hennar hjá utanrikisráðu-
DÆGRADVÖL
13
Bridge
Vörn á verði.
Litum á spil dagsins.
Norðuf
ÁiK105
A6
jG 10953
Vestur ^ D102 .Áustur
4 42 4 ÁG873
V G10973 V 82
♦ AD8 4 7
+ 963 * ÁG754
Suður
♦ D96
VKD54 :
♦ K642
*K8
Sagnirnar gengu:
Suður Vestur Norður Austur
ltigl. Pass 21auf Pass
2gr. Pass 3gr. Pass
Pass Pass Pass
Enda þótt þriggja granda sögn-
in sé nokkuð hörð með aðeins 23
háspilapunkta á báðum höndum,
eru allar sortir vel stoppaðar og
gamesögn engan veginn fjarstæð.
Hún hefði verið næstum örugg
hefði t.d. tiguldrottningin legið i
Austri. Vestur sló út hjartagosa
sem sagnhafi tók á ásinn i blindi.
Austur fleygði tvistinum i, sýndi
engan áhuga. Tigulgosa var nú
spilað og hann var gefinni, og nú
vöknuðu vonir sagnhafa um vinn-
ing. En næsta tigul tók Vestur á
drottningu og gætti nú vel að af-
kasti Austurs. Eftir nokkra um-
hugsun fleygði Austur spaða-
tvisti, sem Vestur skildi réttilega
að var bending um styrk i laufi,
jafnvel útspil. Vestur sló nú út
laufniu og sagnhafi var bjargar-
laus. Hann hlaut að missa þrjá
slagi á lauf og tvo á tigul.
Ef Vestur hefði hinsvegar spil-
að út hjarta áfram, þegar hann
tók fyrri tigulslaginn, hefði sagn-
hafa gefizt kostur á að gera tigul-
inn góðan og hirða sina niu slagi.
t
og svo
var það
þessi
um...
..litlu teipuna, sem var i
sunnudagsskóla hjá manni
sem hafði það að aðalstarfi
að stjórna skurðgröfu.
Lfklega hefir honum orðið
nokkuð tíðrætt um það, þvi
eitt sinn er teipan er að þvi
spurð hvernig dauða Jesú
hafi borið að höndum, svar-
aði hún: Hann hefir iiklega
orðið undir skurðgröfu.
t
|í
SvÖT -niJpfi| t ’oi
Bf •(!
'UOSSBUOf UUBqOf '8
‘9681 ‘1
•UOSJBJJBfH IJJOX ‘9
•uossSnBjuuno ujbjh -c
•uuiSepnuuns v 'V
'S88I 'í:
•sajBOS ouEiy 'z
•uosBupno JEuiajs IJEM '|
FRETTA-
GETRAUN
Getraunin vill minna menn á,
að þó að mesta ferðahelgi
sumarsins sé að byrja og
margir leggi af stað i ferðina
strax i kvöld, þá verður einnig
getraun i blaðinu á morgun.
Lesið þvl blaðið i dag vel, og
kaupið svo Alþýðublaðið i næsta
blaðsöðustaðá morgun.
1. Hver er maðurinn?
2. Hvað heitir forsætisráðherra
Portúgals?
3. Hvenær var knattspyrnufé-
lagið „Southampton” stofnað?
4. Hvenær hefst sjónvarp að
nýju?
5. i gærkvöidi flutti rikisútvarp-
ið leikrit, er nefnist „Með bakið
að veggnum”, og er það eftir
Evan Storin. Hver var leik-
stjóri?
(i. Ilvað lieitir sáttasemjari
rikisins?
7. Hvenær voru fyrstu Ólympiu-
leikarnir, i núverandi mynd,
hald nir?
6. Hvað lieitir forstjóri græn-
metisverzlunar landbúnaðar-
ins?
9. Var Guðni Kolbeinsson með
islen/.kuþátt i blaðinu i gær?
10. Hver var lokasögnin í
bridgeþættinum i gær?
Nei takk ég ætla ekki að kaupa ryksugu, en þú
skalt reyna i næsta húsi. Ég fæ þeirra ryksugu
venjulega lánaða og hún er vægast sagt orðin
hálf léleg.