Alþýðublaðið - 30.07.1976, Qupperneq 14
14 FRÁ MORGNI...
Föstudagur 30. júli 1976. ssssr
Útvarp
7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.,
7.55. Morgunstund barnannakl.
8.45: Björg Árnadóttir les sög-
una „Kongsdótturina fögru”
eftir Bjarna M. Jónsson (2).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Spjallað við bænd-
urkl. 10.05. Tónleikarkl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Suisse Romande hljómsveitin
leikur „Thamar” sinfóniskt
ljóð eftir Balakireff: Ernest
Ansermet stjórnar / Sinfóniu-
hljómsveit Lundúna leikur
Sinfóniu i C-dúr eftir
Stravinsky: Colin Davis stjórn-
ar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tii-
kynningar.
12.25. Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Römm er
sú taug” eftir Sterling Nortj
Þórir Friðgeirsson þýddi.
Knútur R. Magnússon les sögu-
lok (16).
15.00 Miðdegistónleikar Rena
Kyriakou leikur Pianósónötu i
B-dúr op. 106 eftir Mendels-
sohn. Anneliese Rothenberger
syngur lög eftir Hugo Wolf og
Richard Strauss: Gerald Morre
leikur á pianó. Josef Suk og St.
Martin-in-the-Fields hljóm-
sveitin leika Rómönsu nr. 2 i F-
dúr op. 50 eftir Beethoven:
Neville Marriner stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tiikynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.30 „Birtan kemur með blessað
strit” Jón Hjartarson leikari
flytur ferðaþanka frá Suður-
Kina: — fyrri þáttur.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 íþróttir Umsjón: Bjarni
Feiixson.
20.00 t föðurgarði fyrrum Pétur
Pétursson rasðir við Selmu
Kaldalóns um föður hennar, og
flutt verða lög þeirra feðgin-
anna.
20.40 i deiglunni. Baldur Guð-
laugsson ræðir viö Berg
Guðnason og ÓlafNilsson um
skattheimtu og skattrann-
sóknir.
21.15 „Á þessari rimlausu skegg-
öld”, kórverk eftir Jón Ásgeirs-
son við ljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum. Háskólakorinn syng-
ur. Söngstjóri Rut L. Magnús-
son.
21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan úr
Svartaskógi” eftir Guðmund
Frimann Gisli Halldórsson
leikari les (5).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldsagan:
„Litli dýrlingurinn” eftir
Georges Simenon Asmundur
Jónsson þýddi. Kristinn Reyr
les (20).
22.40 Áfangar Tónlistarþáttur i
umsjá Asmundar Jónssonar og
Guðna Rúnars Agnarssonar.
23.30 Fréttir þ.á.m. iþróttafréttir
frá Montreal. Dagskrárlok.
Vandað ársrit Kven-
réttindafélagsins
í dag kemur út ársrit
Kvenréttindafélags ts-
lands, '19. júni. Ritið er
76 blaðsiður að stærð
með fjölbreyttu efni.
Þar á meðal eru hring-
borðsumræður nokk-
urra kvenna um fortið
og framtið i stöðu karla
og kvenna.
Að sjálfsögðu er fjallað um
Kvennaárið og raunar fylgir
blaðinu stórt póstkort frá úti-
fundinum á Lækjartorgi þann
24. október. Þá er viðtal við
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur i Spil-
verki þjóðanna og nefnist þaö
„Við flytjum boðskapinn um
ástina.” Fjallað er um stefnu
þingskrifara á hendur Alþingi
og einnig um jafnréttislögin.
Dagur með pabba heitir mynd-
skreytt grein þar sem lýst er
degi heimilisföðurs sem hugsar
um heimilið meðan konan vinn-
ur úti og auk þess eru greinar og
fréttir i ritinu af innlendum og
erlendum vettvangi.
Arsritið fæst á skrifstofu
K.R.F.Í, Nesti, blaðasölunni hjá
Eymundson og Eden i Hvera-
gerði. Dreifing blaðsins út á
land er einnig hafin.
Ritstjóri þessa 26. árgangs 19.
júni er Erna Ragnarsdóttir.
t SG
Samvinnan komin
út
Samvinnan fjórða hefti sjöt-
ugasta árgangs er komin út.
Meðal efnis i blaðinu er grein
sem Björn Haraldsson skrifar
og ber hún nafnið Úr Kópa-
skersþætti. Þar greinir frá þvi
lifi sem menning og listir hafa
átt á Kópaskeri á þessari öld.
Grein þessi er skilmerkilega
unnin og fyllir nokkuð i eyður
menningarsögu N-Þingeyinga.
Þá er frásögn dansks rithöf-
undar Kelvins Lindemanns i
blaðinu, en hann segir sögu af
tveimur hrafnsungum sem is-
lenzkur vinur hans færði honum
að gjöf.
Þá er 200 ára afmælis Banda-
rikjanna minnst með þvi að
birta grein sem heitir —
Fimmtudagurinn dimmi — og
segir þar m.a.: „Hinn 24. okt,
1929 hefur verið nefndur
fimmtudagurinn dimmi. Þá var
hinni gullbrydduðu blekkingar-
hulu velmegunarinnar svipt
burtu i einu vetfangi. Verðhrun-
ið mikla i Wall Street kom eins
og reiðarslag.” Greinin fjallar
sem sagt um kreppuna miklu
sem skall á 1929.
Margt annars efnis er að finna
i ritinu sem er allt hið vegleg-
asta.
Ritstjóri Samvinnunnar er
Gylfi Gröndal.
— EB
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Siini 71200 — 74201
(D
b PÚSTSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
^ JfólwniitB Utiísson
Tt.iugalicgi 30
®>ími 19 209
Dunn
Síðumúla 23
/ími 84900
Heimiliseldavélar,
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Óðinstorg
Simar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
sími 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn