Alþýðublaðið - 24.08.1976, Side 16
Æskilegast
að þau fái
að búa á
einkaheim-
iium við sem
eðlilegastar
aðstæður
Menntamálaráðu-
neytið hefur auglýst eft-
ir fósturforeldrum fyrir
fjölfötluð börn sem
munu stunda nám i
öskjuhliðarskóla á vetri
komanda. Stefán ólafur
Jónsson sagði i viðtali
við Alþýðublaðið i gær,
að ráðuneytið hefði
einnig annazt slika
fyrirgreiðslu siðastliðið
ár og hefði gengið mjög
vel að koma börnunum
fyrir. Fólk sýndi þessu
mikinn skilning og
brygðist bæði fljótt og
vel við.
Sl. ár voru það 20-30 börn sem
þurftu á slikri aðstoð að halda. Aö
sögn Ólafs gátu aðstandendur út-
vegað nokkrum barnanna dvalar-
stað. Oðrum var komið til dvalar
á heimilinu að Selbrekku i Kópa-
vogi og að siðustu voru nokkur
Vantar vistanir
fyrir 30-40
fjölfötluð börn
barnanna vistuð á einkaheímil-
um.
Eru þau börn sem um ræðir
einkum utan af landi. Þó eru
nokkur þeirra úr Reykjavik, en
heimilisaðstæðurleyfa þá ekki að
þau dveiji heima.
Sagði Ólafur að fötlun barn-
anna væri á mjög mismunandi
stigi. Væru sum þeirra i hjólastól-
um og þvi ósjálfbjarga að mestu
eða öllu leyti.. I slikum tilfellum
væri ekki ætlazt til þess að börn-
unum væri komið fyrir á einka-
heimilum, heldur væru þau vistuð
á Selbrekku.
Hins vegar væri reynt að koma
þeim börnum, sem ekki væru
mikið fötluð fyrir á einka-
heimilum, svo að þau lifðu heil-
brigðu fjölskyldulifi og við sem
eðlilegastar aðstæður.
Það munu vera milli 30 og 40
börn sem við þurfum að útvega
dvalarstaði núna, sagði Ólafur að
lokum. En ég hef ekki trú á öðru
en að það gangi mjög vel. Það
sýnir reynslan frá siðasta ári.”
JSS
Tveim drengjum bjargað af kili
Tveir drengir voru hætt komnir
þegar litlum seglbát sem þeir
voru á hvolfdi á Skerjafirði. Ibúi
við Sörlaskjól varð fyrir tilviljun
þess var að eitthvað var að hjá
drengjunum og lét lögregluna
vita.
Sæmundur Pálsson lögreglu-
þjónn býr þarna við Sörlaskjólið
og var heima þegar atburðurinn
átti sér stað, en það var síðdegis á
sunnudag. Sæmundur brá við
skjótt og var aö hrinda bát á flot
með aðstoð kunningja þegar lög-
reglan kom. Fóru þeir og björg-
uðu drengjunum sem hénguá kili,
gegnblautir og kaldir.
Þegar slýsið átti sér stað var
hvasst og mikil ágjöf og mikil
mildi að þarna varð ekki alvar-
legt slys, en drengirnir náðu sér
fljótt eftir volkið.
—SG
Þj óðhagslegt gildi heilbrigðismið-
stöðva ekki metið sem skyldi
04 KLEPPSSPITALINN
MLUTFALLSIEQ SKJPTING KOSTNADAR 19 7
„Kostnaður við rekstur rlkis-
spitalanna fyrstu 6 mánuði
þessa árs, nemur nú um 1.8
milljarði króna. Reikna má með
allt að 4 milljarða rekstrar-
kostnaði á þessu ári en slikt er
þó óhægt að áætla I verðbólg-
þjóðfélagi sem þessu,” sagði
Davið A. Gunnarsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri rikis-
spitalanna, I viðtali við blaðið
fyrir skömmu.
„Um 70% alls rekstrarkostn-
aðar er I sambandi við launa-
greiðslur til starfsfólks. Næst i
rööinni koma svo matur, þvott-
ur, lyf og röntgenrannsóknir.
Kostnaöur viö ýmsar læknisað-
01 LANDSPITALINN
HLUTF ALLSLí O SKIRTINQ KOST N AOA R 1975
gerðir, svo sem uppskurði, er
innifalinn i launakostnaöi.
Daggjald fyrir sjúkling á
Landspitalanum er nú að með-
altali kr. 15.500 en sjúkrasamlag
greiðir allan kostnað við sjúkra-
húsdvöl sjúklings — lyf, læknis-
aðgerðir og annað, sem til kann
að falla.
Á hverju sumri horfir jafnan
til vandræða á sjúkrahúsum
viðsvegar um land. Fastráðið
starfsfólk fer i sumarfri og þá
vantar oft starfsfólk til að fylla I
skörðin.
Astæðuna fyrir þessu taldi
Davið vera þá, aö alltof fáir
hlytu sérhæfða menntun, miðað
03 VIFILSTADASPITALI
HLUTFALLSLEQ SKIPTINO KOSTNAOAR 1975
við þann fjölda sllks starfsfólks
sem brýnt er að hafa á sjúkra-
húsum. „Okkur vantar til dæm-
is æ fleiri hjúkrunarkonur og
sjúkraþjálfara. Þetta lagast þó
vonandi með hinni nýju náms-
braut I sjúkraþjálfun, sem byrj-
ar við háskólann I haust.
Nú er sifellt verið að auka
legurými á sjúkrahúsum. Sú
aúkning hefur það I för með sér,
að fjölga þarf hjúkrunarfólki.
Það þykir nú lágmark að á
meðalstórri deild, með um það
bil 25 sjúklinga, þurfi 5
hjúkrunarkonur.
Vandræðin I sambandi við
þetta eru þó mest á sumrin, en
við höfum þó mun meira starfs-
fólk nú en á sama tima I fyrra þó
mikið vanti enn á. Það hefur
meira að segja orðið að gripa til
þess ráðs að loka deildum eða
stofna 5 daga deildir, þar sem
sjúklingar eru sendir heim um
helgar. Það segir sig þó sjálft að
tilgangslitið er að stækka
sjúkrahús, ef ekki er nægur
vinnukraftur fyrir hendi.
Stefna okkar I heilbrigðis-
málum ætti fremur að vera
sú,að fjölgaö yrði göngudeild-
1 LAUN OG LAUNATENOO OJÖLO 97.9«
* LTF OG ÝMSAR SPÍTALAVÓRUR 2.3*
3 MATVÖRUR 8.4«
4 ORKA TIL LJÓSA 00 HITUNAR | B%
9 HJÚKR.GÖQN OO LiCKNAÁHÓLO Q1*
9 SÉRFR<COI|>JÓNUSTA 0«\
7 VERKTAKAR. HREING þVOTTAHÚS 17*
9 VIOHALOSGJÖIO 2.9«
» STOFNKOSTNA0UR lB%
10 VMISLEGT 195«
um, deildum fyrir langlegu-
sjúklinga og heilsugæzlustööv-
um, i stað þess að bæta viö rúm-
um á sjúkrahúsum. Það á ekki
allt að miöa I þá átt, aö leggja
sem flesta inn. Þeir sem gang-
ast þyrftu undir rannsókn, ættu
að geta fengið það gert á göngu-
deildum. Ef I ljós kæmi að rann-
sókn lokinni, að viðkomandi
þyrfti að gangast undir aðgerð,
þá væri rétti timinn að leggja
hann inn á sjúkrahús.
RIKISSPITALAR, YFIRLIT YFIR BRAÐABIRGÐAUPPGJÖR
jan/júni 1976
DAGGJALDASTOFNANIR SAMTALS: (Landspitali, Fæöingar-
deild, Vifilstaöaspitali, Kleppsspitali, Kópavogshæli, Gunnars-
holtshæli)
Laun og launatengd gjöld
önnur rekstrargjöld
Viöhald
Fjárfesting.............
Gjöld samtals............
Tölur sýndar i milljónum króna.
Kr: 1.223.131. 66%
kr: 473.718. 26%
kr: 59.862. 3%
......................92.238. 5%
................Kr: 1.848.949.
ÞRIÐJUDAGUR
24. ÁGÚST 1976
alþýðu
blaöið
Tekið eftir: Það hlýtur að
vekja athygli hve óheppi-
legur timi er valinn til
opinberrar heimsóknar
Einars Ágústssonar, utan-
rikisráðherra, til
Tékkóslóvakiu. Hann kem-
ur þangað rétt i þann mund
að tiu ár eru liðin frá þvi að
sovézki herinn barði niður
tilraun Tékka til að rifa sig
lausa frá Sovétrikjunum.
Mætti lita á þessa heim-
sókn sem viðurkenningu
islenzkra stjórnvalda á að-
gerðum Sovétmanna i
Tékkóslóvakiu fyrir tiu ár-
um.
o
Heyrt: Að islenzka rikis-
stjórnin hafi haft hug á þvi
að stöðva framkvæmdir við
Kröflu, að minnsta kosti i
bili, eða að fá Gunnar
Thoroddsen, iðnaðarráð-
herra, til að draga úr fram-
kvæmdahraða. Þessar til-
raunir munu hafa farið út
um þúfur, og er fram-
kvæmdum haldið áfram
þrátt fyrir verulega eld-
gosahættu á Kröflusvæö-
inu.
o
Fre'tt: Að ef sakadómur
Reykjavikur tregðast lengi
við að birta nöfn þeirra
manna, sem stundað hafa
milljarða ávisanasvindl i
Reykjavik um árabil, muni
dagblöð, sem nú hafa undir
höndum nöfn flestra þeirra
manna, sem þarna koma
við sögu, bindast samtök-
um um að birta þau. Betur
færi þó á þvi að sakadómur
birti nöfnin, en kröfur um
nafnbirtingu verða sifellt
háværari. Almenningur
óttast að málið kunni að
„gleymast”, eins og oft
hefur orðið raunin á.
o
Lesið: I Lögbirtingarblað-
inu: „Eftir kröfu inn-
heimtumanns rikissjóðs og
að undangengnu lögtaki 26.
febrúar 1976 verður hús-
eignin Hafnarbyggð 1 i
Vopnafjarðarkauptúni,
ásamt leigulóðarréttindum
og öllu, sem eigninni fylgir
og fylgja ber, þinglesin
eign Kaupfélags Vopna-
firðinga, boðin upp og seld,
ef viðunandi boð fæst, tií
lúkningar gjöldum til rikis-
sjóðs ca. kr. 10 milljónir,
auk alls kostnaðar við lög-
takið og væntanlegt upp-
boð, á opinberu uppboði,
sem hefst á skrifstofu
minni fimmtudaginn 7.
október 1976 kl. 9.30, en sið-
ar verður háð á sjálfri
eigninni á þeim tima, sem
ákveðinn verður á upp-
boðsþingi”.