Alþýðublaðið - 12.11.1976, Side 1
1
I
1600
millj.
í útflutn-
ingsbætur
vegna land-
búnaðar-
afurða
Talið er að verðbætur á útflutt-
ar landbúnaðarafurðir fyrir verð-
lagsárið 1975-76 nemi nálægt 1600
millj. kr. Endanlegar tölur liggja
enn ekki fyrir, þar sem uppgjöri
allra reikninga er ekki lokiö.
Þetta kemur m.a. fram i ný-
komnu fréttabréfi frá upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins.
Segir þar að útflutningurinn svari
til 8,5% af verðmæti landbúnað-
arframleiðslunnar, en hefði þurft
aö nýta heimild laga um útflutn-
ing 10% verðmætis landbúnaðar-
framleiðslunnar, þá yrðu útflutn-
ingsbæturnar um 1874 milljónir.
Nú hafa söluaðilar lagt fram
reikninga fyrir 1516 milljónum,
en rikissjóður hefur greitt af þvi
um 1150 millj. kr.
— ARH
Fornihvammur:
Dræm
veiði
— rjúpan er
dreifð
og stygg
„Það er ósköp litið um rjúpu
hér núna, og ennþá minna en i
fyrra, sagði Elin Haraldsdóttir I
Fornahvammi, þegar Alþýðu-
blaðið ræddi við hana i gær. Það
liafa lika komið færri tii aö veiöa
rjúpu nú en undanfarin ár, enda
hefur veðrið verið leiðinlegt i
haust.
Sagði Elin, að ekkert væri farið
að snjóa á heiðinni, og á meðan
svo héldist, væri rjúpan stygg og
dreifð.
Sá sem hefur verið fengsæl-
astur þaðsem af er hausti,fékk 38
rjúpur yfir daginn. Annars hefur
með.alveiðin verið þetta 5-10
rjúpur og allt niður i eina eða
tvær.
Fornihvammur hefur fram til
þessa ekki farið varhluta af jóla-
ösinni, og hafa menn fjölmennt
þangað til að sækja jólasteikina.
SagðiElin, að vanalega færi veiði-
mönnum að f jölga upp úr miðjum
nóvember, svo enn væri ekki að
vita nema menn reyndu að ná sér
i rjúpu fyrir jólin, þrátt fyrir
dræma veiði.
JSS
Til Vilhjálms menntamála-
ráðherra:
Við krakkarnir þurfum lika
að borða. Okkur finnst að þið
ættuð að láta mömmur okkar
og pabba fá nógu mikið náms-
lán, þvi að námslánin eru
kaupið þeirra. Ef þið viljið það
ekki, eruö þið ekki gott fólk.
Fyrir öll námsmanna-
börnin,
Guðrún Arný.
Til Alþingis:
Viljið þið hjálpa okkur?
Mömmur okkar og pabbar fá
svo litið námslán, að það er
ekki nóg fyrir mat og fötum
handa okkur.
Við þurfum lika að borða.
Við erum lika til.
Fyrir öll náms-
mannabörnin.
Guðrún Arný.
FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER
Þessa dagana hafa hestamenn gæðinga sina á haustbeit og búa þá undir
veturinn.
Á baksiðu er stutt spjall við hestamann.
1 gæi IUI 11 d 111 m Uiugdiiga
barna námsmanna. Með i
förinni voru nokkrir náms-
menn, sem þannig studdu
kiöfur barna sinna.
Safnast var saman á Arnar-
hóli. Báru flestir krakkarnir
kröfuspjöld, þar sem á stóðu
setningar eins og: Vilhjálmur,
bezti vinur barnanna, Vil-
hjálmur, af hverju ræðst þú á
garðinn, þar sem hann er
iægstur, og fleiri i svipuðum
dúr.
Kröfugangan endaði niður
við Alþingi, en þá er talið, að
þátttakendur hafi verið orðnir
um fjögur hundruð, þar af
helmingur fullorðið fólk.
Börni'n afhentu þrjár yfir-
lýsingar, fjármálaráðherra
fékk eitt, menntamála-
ráðherra eitt og loks fékk
Alþingi eitt.
Yfirlýsingarnar voru svo-
hljóðandi:
Til Matthiasar fjármála-
ráðherra:
Við krakkarnir fórum i
göngu til að segja ykkur, að
þið eigið að láta pabba okkar
og mömmur fá nógu mikið
námslán.
Mömmur okkar og pabbar
þurfa lika að fá peninga til að
gefa okkur að borða. Við erum
lika til.
Fyrir öll námsmanna-
börnin,
Ólafur Kristinn.
Askriftar-
síminn er
14-900
- ARH
HLIF.I HAFNARFIRÐI:
Skorar á verkafólk að
hefja aðgerðir fyrir
bættum kjörum
Á fundi í trúnaðarmannajráði Verkamannafélagsihs Hlifar i Hafnar-
firði, sem haldinn var 10. nóvember s.l., var samþykkt ályktun um
kjaramálin. Þar segir, að fundurinn telji að ,,nú sé svo þrengt að kjór-
um verkafólks almennt, að minum skefjalausu verðhækkunum, að
verkalýðshreyfingin geti ekki setið hjá aðgerðalaus þótt samningar
séu bundnir fram á næsta vor. Fundurinn skori á verkaiýðssamt' kin
að risa nú upp og hef ja aðgerðir og sóknarbaráttu fyrir bættum kjörum
og nota til þess hverja þá aðferð sem likleg er til árangurs”.
Rltstjórn Sfðumúla II